Tíminn - 21.06.1978, Síða 15
Miðvikudagur 21. júni 1978
15
oooooooo
— tekur þátt i keppni i Danmörku, Finnlandi
og Svíþjóð næstu daga
— Ég stefni aö sjálfsögðu aö þvi
aö geta tekið þátt i Evrópu-
meistaramótinu i Frag, sagöi
Hreinn Halidórsson, kúiuvarpar-
inn sterki, sem er nú nær búinn aö
ná sér eftir meiöslin, sem hann
hefur átt viö aö striða. Hreinn
sagöist ekki fara til
Tékkóslóvakfu, nema aö hann
hafi þá náö viöeigandi árangri
fyrir EM.
— Ég fer ekki nema ég sjái
fram á, að ég geti verið með i
keppninni um verðlaunasæti,
sagði Hreinn, sem kastaði 20.18
m 17. júni á Laugardalsvellinum.
Hreinn hefur nú fengið fri frá
vinnu fram að Evrópumótinu, til
aö geta undirbúið sig sem bezt
fyrir átök sumarsins. Hreinn
verður I sviðsljósinu i Kaup-
mannahöfn um næstu helgi, en
þar fer fram landskeppni i köst-
um milli Dana og tslendinga.
Hreinn heldur siöan til
Helsinki, þar sem hann tekur þátt
i hinum árlegu heimsleikum þar
28. júni, en þaðan liggur leið hans
til Stokkhólms, þar sem hann
tekur þátt i mjög sterku móti.
3.—4. júli. Þaö var einmitt i
Stokkhólmi sem hann setti
tslandsmet sitt — kastaði kúlunni
21.09 m 4. júli 1977.
Það er greinilegt aö Hreinn
setur markiö hátt. — Þessi mikli
keppnismaður er kominn i viga-
móð og þá má búast viö miklu af
Hreini.
• Hreinn
Halldórsson
Strandamaðurinn sterki byrjaður
að undirbúa sig fyrir EM i Prag:
Hreinn á ferð
og flugi um
Norðurlönd
Hverjir leika til úrslita i EM?
Brasilíumenn
eru óhressir...
— vegna þess að leikur þeirra gegn Póllandi fer ekki
fram á sama tíma og leikur Argentínu og Perú
— Ef við leikum ekki til
úrslita eða um þriðja sætið,
þá verður það mikið áfall
fyrir okkur, sagði Helmut
Schön, landsliðseinvaldur
V-Þjóðverja. Schön sagði,
að dagskipunin væri
,,mörk, mörk og aftur
mörk" gegn Austurríkis-
mönnum, en V-Þjóðverjar
mæta þeim í HM-keppninni
í dag.
ítalir og Hollendingar leika
mjög þýðingarmikinn leik. ítalir
verða að vinna leikinn til að kom-
ast i úrslit, en Hollendingum dug-
ar jafntefli, svo framarlega að V-
Þjóðverjar vinni ekki Austur-
rikismenn meö 5 marka mun.
— Hollendingar eru með marga
stórhættulega leikmenn, sem
verða erfiöir, sagöi Bearzot,
landsliðseinvaldur Itala, sem
sagði að það yrði hræðilegt ef
ttalar gerðu jafntefli gegn Hol-
lendingum og kæmust ekki i úr-
Enskir á
Enska ,,B”-landsliöiö i knatt-
spyrnu vann stórsigur 8:0 yfir
landsliöi Singapore I Singapore á
sunnudaginn. 35 þús. áhorfendur
sáu leikinn, og skoruöu þessir
leikmenn mörk Englands — Alan
Kennedy, Paul Mariner, Steve
Daley, Tommy Langley, Viv
Anderson, Mel Eves og Gordon
Hill (2).
Eyjamenn fá tslandsmeistara
Akranes i heimsókn til Vest-
mannaeyja I kvöld, þar sem þeir
mætast i 1. deildarkeppninni.
Róöurinn veröur án efa erfiöur
fyrir Skagamenn, þvi aö Eyja-
menn ætla sér örugglega aö
ieggja þá aö velli, og blanda sér
þannig I baráttuna um islands-
meistaratitiiinn. Þaö má þvi bú-
ast viö spennandi og fjörugum
leik I Eyjum I kvöld kl. 8.
slit. — Við værum þá búnir aö
fara taplausir i gegnum keppn-
ina, sagði hann.
Austurrikismenn hafa tilkynnt
að þeir ætli að leggja allt i sölurn-
ar til að leggjá V-Þjóðverja að
velli.
Brasiliumenn eru mjög óhress-
ir yfir þvi að þeir eiga að leika
gegn Pólverjum tveimur timum
áöur en leikur Argentinu og Perú
hefst i B-riölinum. Þeir segja, að
það sé ófært, aö úrslit i leik þeirra
liggi fyrir, þegar keppinautar
þeirra, Argentinumenn, hefja
leik. Argentlnumenn geta þannig
keppt viö markamismuninn, sem
liggur fyrir og komizt þannig i úr-
slit.
Tveir aðrir leikir verða leiknir i
1. deildarkeppninni — Framarar
leika gegn Keflavik i Keflavik, en
þar hefur Keflavikurliðið ekki
unnið leik á keppnistimabilinu.
Keflvikingar ætla sér örugglega
að gera breytingu þar á þegar
þeir leika gegn Fram kl. 8.
Þriðji leikurinn fer fram i
Hafnarfirði og mæta FH-ingar
Vikingum á Kaplakrikavellinum
kl. 8.
Skagamenn
til Eyja
t»rir leikir i 1.
deildarkeppninni■■■^^
í kvöld
Sepp Maier, markvöröur V-
Þjóöverja setti nýtt heimsmet
i HM-keppninni. Maier var bú-
inn aö halda marki V-Þjóö-
verja hreinu i 475 min. I HM-
keppni, þegar Arie Haan skor-
aöi hjá honum á 26. mín. leiks
V* Þýzkalands og Hollands.
Maier fékk siöast á sig mark
I HM-keppni 1974, þegar
Johann Neeskens skoraöi úr
vitaspyrnu hjá honum á fyrstu
min. úrslitaleiks HM i
MQnchen.
Gordon Banks átti fyrra
metiö — 438 min.