Tíminn - 21.06.1978, Blaðsíða 20
Sýrð eik er
sígild eign
KIÚftGi
n
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 - SÍMl: 86822
Gagnkvæmt
tryggingaféfag
WmÚmi Miðvikudagur 21. júni 1978 129. tölublað — 62. árgangur.
n
m
Einn af farkostum Arnarflugs
Mikil aukning
á starfsemi
Arnaflugs
— heildarvelta
jókst um
300% á
einu ári
ESE —Heildarvelta Arnarflugs á
siOasta ári nam 847.828.165 krón-
um, og hafði þá aukizt um tæp-
lega 300% frá árinu áöur. A sama
tima hafði starfsmönnum félags-
ins fjölgað úr 12 i 52, sem voru
fastráðnir, en alls komust 90
manns á launaskrá á árinu.
Launagreiðslur höfðu hækkað á
þessum tlma úr rúmum 38
milljónum króna i 148.6 milljónir
og var nettórekstarágóði félags-
ins á þessu ári, samkvæmt
rekstrarreikningi, 8.249 milljónir
króna.
Þetta kom fram I máli
Vilhjálms Jónssonar, formanns
Arnarflugs, á aöalfundi félagsins
sem haldinn var s.l. mánudag en
umsvif félagsins jukust mjög á
árinu, og m.a. tók félagiö að sér
leiguflug fyrir fjölmörg erlend
fyrirtæki.
A siöasta ári feröuöust 80.360
farþegar á vegum Arnarflugs og
hafði farþegafjöldinn aukizt um
358,73% frá árinu áður, en þá voru
farþegar 17.518. Samhliða hinni
miklu aukningu á starfsemi fé-
lagsins erlendis og á erlendum
leigumörkuðum jukust verkefni
Arnarflugs mikiö innanlands, og
flutti félagið hópa islenzkra
ferðamanna á árinu 1977 fyrir
ferðaskrifstofurnar Sunnu, Sam-
vinnuferðir og Ferðamiðstöðina.
Samtals munu vélar félagsins
hafa komið til 64 flugvalla i 29
þjóðlöndum á árinu.
1 máli Vilhjálms Jónssonar
kom einnig fram, aö á næstunni
verður leitazt við að fylgjast með
þróun mála erlendis á erlendum
mörkuðum, en samkeppni á þeim
hefur harönað mjög á undanförn-
um árum, og mun félagið reyna
aö samræma starfsemi sfna og
stefnu gagnvart markaöi og yfir-
völdum I samræmi við breytingar
i þessum efnum annars staðar I
heiminum.
Atvinnuleyfislaus
Spánverji i
Fœreyjum:
Kom frá
íslandi og
verður sendur
þangað aftur
Mánudag I slðustu viku hneppti
færeyska lögreglan ungan Spán-
verja I varðhald I Klakksvlk.
Hann kom frá Islandi til Færeyja,
og hafði unnið nokkurn tima I
Klakksvik. Hann hafði ekki
atvinnuleyfi og landvistarleyfi
hans var ekki I lagi, að þvi er seg-
ir i frétt I færeyska blaðinu 14.
september.
A þriðjudag var Spánverjinn
sendur frá Færeyjum til Hafnar,
en lögreglan þar kvaðst ekkert
geta gert I máli hans og eru þvi
allar likur á að hann verði sendur
aftur til tslands, segir I blaðinu
14. september.
Stefán Ragnar Ægisson
Gunnar Jónsson
Slmon Jóhann Hilmarsson
Piltarnir f jórir taldir af
GEK — Nær fullvist er talið að
piltarnir frá Dalvik, sem leitaö
hefur veriö að siöustu sólar-
hringa, hafi farizt aðfaranótt
siöast liðins sunnudags. Nöfn
þeirra eru: Stefán Ragnar
Ægisson, Drafnarbraut 1, fædd-
ur 30. 9. 1959, Gunnar Jónsson,
Skiðabraut 11, fæddur 3.10.1960,
Slmon Jóhann Hilmarsson,
Karlsbraut 21, fæddur 31.5. 1960
og Egill Antonsson, Mimisvegi
7, fæddur 3. 5. 1962.
Svo sem skýrt hefur verið frá
tóku fjölmargir bátar úr
Eyjafirði þátt I leit að piltunum,
en leit á sjó var hætt i fyrra-
kvöld. Björgunarsveitir við
Eyjaf jörð munu halda áfram að
ganga fjörur næstu daga.
Að sögn Birnis Jónssonar i
Egill Antonsson
björgunarsveit Slysavarnar-
félagsins á Dalvlk voru um 50
manns viö leit I gær. 1 gærkvöldi
haföi sú leit engan árangur bor-
ið utan þess að þá hafði 3 tréskó
og árarblað úr bátnum rekið á
fjörur.
Prestastefna tslands 1978 hófst I gærmorgun i Dómkirkjunni i Reykjavlk. Séra Harald Hope, tslands-
vinur úr Noregi predikaöi. Hann hefur stutt Hallgrimskirkju I Reykjavik og á Skálhoitsstað meö fésöfn-
un I Noregi, og auk annars hefur hann lokiö viö að þýða passiusálmana á norsku og koma þeir bráölega
út I þýðingu hans.
Kl. 141 gær fiutti biskupinn yfir tsiandi, hr. Sigurbjörn Einarsson, yfirlitsræðu um starfsemi kirkjunn-
ar á liönu ári og setti prestastefnu formlega og var þessi mynd tekin viö það tækifæri.
Aðalefni prestastefnu aö þessu sinni er Kirkja komandi ára og höfðu prófastarnir Eirikur J. Eiríksson
og Bragi Friöriksson framsögu um það efni I gær. Prestastefnu veröur fram haldiö i dag og iýkur henni
annaö kvöld.
Bygging nýs
útvarpshúss
að hef jast
— framkvœmdum verður hraðað á næstu árum
ESE —A fundi rikisstjórnarinnar
I gærmorgun var samþykkt aö
bjóða út grunn hins nýja útvarps-
húss, sem fyrirhugaö er að risi i
nýja miöbænum, skammt frá
Borgarspita lanum.
1 tilkynningu frá rikisstjórninni
segir að útboð þetta sé ákveðið
samkvæmt tillögu byggingar-
nefndar um framkvæmdir á
þessu ári eftir þær breytingar,
sem á þeim hafa verið geröar að
undirlagi samstarfsnefndar.
Þessi verkáfangi veröur unninn I
ár og greiddur af framkvæmda-
sjóöi Rlkisútvarpsins. Þá óskar
menntamálaráöuneytið þess að
. verkið verði nú boðið út. Jafn-
framt samþykkti ríkisstjórnin aö
hraða framkvæmdum á næstu ár-
um og um fjármögnun þeirra
verði tekin ákvörðun við gerð
næstu lánsfjáráætlunar.
Eins og kemur fram I samþykkt
rlkisstjórnarinnar hefjast
framkvæmdir viö jarðvinnu þeg-
ar eftir aö afstaöa hefur veriö
tekin til þeirra tilboða, sem kunna
að berast i verkið, en I fram-
kvæmdasjóði Ríkisútvarpsins,
sem á að kosta þennan fyrsta
áfanga, eru nú um 400 milljónir
króna.
Væntanlegt Otvarpshús á I
framtiðinni að hýsa bæði útvarp
og sjónvarp og er fyrirmynd aö
húsinu sótt i Útvarpshúsið i
Dublin, sem þykir mjög fullkomið
i alla staði.
Kvalinn
hestur
— bundinn á
stalli. Gat
hvorki staðið
né legið
SV — Reykjavik Blaðið hefur
frétt eftir áreiöanlegum heimild-
um, að þekktur stóðhestur I
Skagafirði sé nú svo aðþrengdur
og bæklaður eftir illa aðbúð I vet-
ur, að álitamál er hvort rétt er að
halda i honum lifinu. Hesturinn er
i eigu Reykvikings, sem á jörð I
Skagafiröi og hefur þar margt
hrossa.
Bróðir eigandans kom i april I
hesthúsiö, þar sem hesturinn var
hýstur, og mætti honum þá ófögur
sjón. Hesturinn var bundinn á
bás, svo þröngan að hann gat ekki
lagzt, en aðrir hestar voru lausir i
húsinu og höfðu gengíð i skrokk á
honum og nagaö, svo hann var
þakinn stórum sárum.
Heimildarmenn blaðsins telja,
að þá hafi hesturinn staöið
óhreyfður á básnum I þrjá
mánuöi og var oröinn svo veikur i
fótum, að hann gat raunverulega
ekki staðið, en eins og fyrr sagði
var básinn svo þröngur að hest-
urinn gat ekki heldur lagzt. Bróö-
irinn, sem er bóndi i Skagafirði,
útvegaði strax flutningatæki og
flutti hestinn aö Hólum, þar sem
gert var aö sárum hans og hann
settur I stlu. Þar lá hann I þrjár
vikur án þess nokkurn tlma að
risa upp og honum var hjúkrað og
hann fóðraöur, þar sem hann lá i
stiunni. Nú staulast hesturinn
um, krepptur i liöum og á mjög
erfitt um gang. Eigi aö siður lét
eigandinn sækja hestinn og flytja
á bú sitt I siðustu viku, I von um
aö hann geti ef til vill gagnast ein-
hverjum hryssum, og þannig
megi enn hafa af honum nokkurt
gagn, en þessi hestur hefur verið
arðsamur eiganda sinum. Ekki er
vitað til að yfirvöld eða dýra-
verndunarmenn hafi látiö mál
þetta til sín taka.