Tíminn - 25.06.1978, Síða 17
Sunnudagur 25. júni 1978
17
l'ii&iii'!
Skoðanakannanir sem
stj órnmálalegt
áhrifatæki
Það er ein grundvallarstaö-
reynd sem menn hafa komizt að :i
visindum, aðmeð tilraun eruhöfð
áhrif á það sem rannsakað er.
Skoðanakönnunertilraun, tilraun
tii þess að spá fyrir um þaö sem
óoröiö er á grundvelli upplýsinga-
söfnunar um afstööu fólks. En
spádómur getur lika verkað sem
sefjun eða uppástunga, orðið að
áhrinisorðum eins og sagt var
forðum. Sumir spádómar upp-
fylla sig sjálfir.hefur veriðhaftað
orði af eigi löngu látnum sál-
fræðingi. Allar tilraunir til þess
að spá fyrir um framtiðina hafa
þvi tvær hliðar, þær gefa llkur
fyrir aö ákveðnir atburöir gerist á
grundvelli fyrirliggjandi upplýs-
inga og almennra lögmála og þær
spár virka san sefjun.þær auka
likurnar á þvi að þaö sem spárnar
segja til um skjóti rótum I hugum
fólks og veröi að raunveruleika.
Þegar skoðanakönnunum er beitt
á stjórnmálasviðinu eru þær þvi
orðnar stjórnmálalegt áhrifa-
tæki, leiötil viðbótar öðrum liðum
til þess að hafa áhrif á afstöðu
fólks til bókstafakennitákna
framboðslistana.
Við fyrstu sýn virðist þetta
e.t.v. ekkert annað en það sem
önnur tæki til málflutnings I
stjórnmálabaráttu gera, en þó er
einn veigamikill munur: skoð-
anakönnunin hefur á sér yfir-
bragð þess að hún sé mæling,
jafnvel fræðilega útreiknuð mæl-
ing.Fólk yfirleitt veit hér litið um
hversu ónákvæmar skoöana-
kannanir eru sem mælitæki og
hversu mikla vinnu og kostnað
þarf að leggja I það að fram-
kvæma þær og vinna úr niður-
stöðunum, ef ekki á aö skakka
mjög miklu. Það er svo að kann-
anir Dagblaösinsog Visiserutak-
markaðar kannanir hvað þátttak-
endafjölda snertir, 600 og 1200
þátttakendur, en þyrftu að vera
a.m.k. 2000 til þess að sæmilega
öruggar likur fengjust um afstöðu
alls þorra fólks á þvi augnabliki
sem skoðanakönnunin er fram-
kvæmd. Hvernig þeir fjölmörgu
muni kjósa, sem ekki höfðu gert
upp hug sinn viku fýrir kosning-
arnar en það voru 40 og 25% 1
skoðanakönnun Dagblaðsins og
Visis, segir þar að auki skoðana-
könnun ekkert til um né heldur
um það hversu margir muni
skipta um skoðun fram til kosn-
ingastundar. Ekki er t.d. ósenni-
legt, að meöal þess þriöjungs til
fjórðungs fólks, sem ekki hafði
ákveðið sig kringum lok slöustu
viku,séueinmittmargir,sem eru
I vafa um hver valkostur sé bezt-
ur, e.t.v. vegna ónógra upplýs-
inga um hvað flokkarnir ætli sér
raunverulega að gera I einstökum
málum eftir kosningar, vegna
vonbrigða meö stjórnmálaflokka
og stjórnmálamenn á síöustu ár-
um, vegna skorts á persónulegum
tengslum við þá menn, sem eru I
baráttusætum kosninganna,
ónógri reynslu af þeim, og svo
mætti lengi telja.
Þegar við setjum þessar stað-
reyndir uin ónákvæmni þessara
skoðanakannana I samhengi við
sefjunaráhrif þeirra verður ljóst
af hverju fólk þarf aö vara sig á
þvi að láta niðurstööur skoðana-
kannana takmarka valfrelsi sitt.
Skoðanakannanir eins og þær
sem Visir og Dagblaðið hafa
framkvæmt fyrir nýafstaönar og
fýrirliggjandi kosningar eru þvi
sem áhrifavaldar i kosningabar-
áttunni tvleggjað sverði. Þær eru
áhrifavaldar hvort sem aðstand-
endur þeirra hafa gert sér grein
fyrir þvi eða ekki og þjóna þeim
aðiljum, sem að viðkomandi blöð-
um standa. Höfuöiínurnar I þess-
um áhrifum siödegisblaðanna
tveggja hafa verið svipuð, van-
mat á fylgistapi Sjálfstæðis-
flokksins, vanmat á fylgisaukn-
ingu Alþýðubandalagsins, van-
mat á fylgi Framsóknarflokksins
og ofmat i fylgi Alþýðuflokksins.
Frá þessu yoru viss frávik, en
höfuðlinurnar sýnast mér þessar.
Ef þessar höfuölinur eru slðan
túlkaðar mætti segja að hin
stjórnmálalegu áhrif skoðana-
kannana Visis og Dagblaðsins
stefni í hægri &tt, efling hlutar
gömlu samstarfsflokkanna, Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks, á
kostnað hinna.
Hluti af þessu á rætur slnar að
rekja til þess, að I sveitunum eru
áhrif Framsóknarflokksins hlut-
fallslega meiri en I þéttbýli og
opnar sveitalínur gera það að
verkum, að fólk þar gefur siður
upp stjórnmálaskoðanir slnar.
Annar veigamikil áhrifavaldur
þessara tilhneigingar skoðana-
kannana væri svo sefjunar-
ahrifin sem ég áöur nefndi,
Rósenthal-áhrif svo nefnd yfir
visindanám við Harvard Háskól-
ann. Þetta er ekki viljandi gert.
Hjá þeim sem framkvæmdu eöa
skipulögðu kannanirnar, það hef
ég sannfærzt um viö samtöl við
fólk bæöi á Dagblaðinu og Visi, en
tilraunir Rosenthal hafa marg
sinnis sýnt að þessi sefjunaráhrif
eruháðómeövitaðri afstöðu, ekki
siður en þvi sem meðvitað er, og I
dulvitundinni búa margar óskir,
sem rætast vilja.
Það hvernig eitthvað er sagt,
blæbrigði raddar og tónn, segja
meir a e n orðin tóm sem töluð eru
og tilraunir hafa sýnt, að röddin
er öflugasta flutingstæki sefj-
unaráhrifanna.
Ég er með ofangreindu ekki að
segja að skoðanakannanir Visis
og Dagblaösins gefi alrangar
niðurstöður, éger fyrst og fremst
að benda á, að þær eru liður I
stjórnmálalegri skoðanamyndun,
þær hafa áhrif, bæði á þá sem
spurðir eru og aöra sem sjá
niðurstöður. Þær eru þvi vopn I
stjórnmálabaráttunni, ekki að-
eins spá um væntanlegar niður-
stöður.
Að lokum aðeins þetta!
Island stendur á timamótum.
Kosningarnar á sunnudaginn
hafa miklar afleiðingar fyrir land
og þjóð, fyrir þig sem einstakling.
Hvaða stefna veröur tekin I at-
vinnu og efnahagsmálum?
Hvernig verður tekizt á við verð-
bólgu og erlenda skuldasöfnun?
Hverjar breytingar verða geröar
á stjórnarskrá og hvernig verður
staðið að nýtingu orku- og auð-
linda? Hvers konar Islandi stuðl-
ar þú að meö atkvæöi þinu á
sunnudag?
Þetta eru spurningar, sem
margir hugsa um nú og áður en
ákveðnum flokki er greitt atkvæöi
er nauðsynlegt að hugsa út I þær
breytingará þingliðisem atkvæði
þitt stuðlar að. Hverja afstöðu
hefur t.d. Jón Skaftason til ofan-
greindra mála og hverja hafa
keppinautar hans eins og t.d.
Kjartan Jóhannsson eða Steinunn
Finnbogadóttir? Eða Ingi
Geir V. Vilhjálmsson.
Tryggvason samanborinn við
Braga Sigurjónsson eða Sofflu
Guömundsdóttir á Norðurlandi
eystra? Hvaða áhrif hefur það
varðandi stefnuna I ofangreind-
um málum ef Vilmundur Gylfa-
son og Ólafur Ragnar Grlmsson
kæmu i staðinn fyrir Þórarinn
Þórarinsson og Magnús Torfa
Ólafsson á þingi? Slíkum spurn
ingum vill hugsandi fólk velta
fyrir sér, en þá vantar fólk oft
nægilega greinargóðar upplýs
ingar frá og um frambjóðendui
og innsæið eða tilfinningin fyrir
frambjóðandanum sem mann
eskju verður aö ráöa.
Ennþá kostar AMIGO
aöeins kr.1.420 þúsund
SKODA AMIGO
Fremstir í 40 ár!
í 40 ár hafa sérfræðingar GROHE-fyrirtækisins unnið að þvi að fullkomna
blöndunartæki, sem henta við allar aðstæður.
Nýjungarnar koma fyrst frá GROHE. Það er ekki aðeins utlit GROHE-
tækjanna, sem sker Sig úr, heldur fyrst og fremst gæði þeirra.
Þessi spindiil er nýjasta uppfinningin, sem GROHE hefur fengið einkaleyfi
á. Hann er sjálfsmurður, svo kranarnir verða ekki stífir og það ískrar ekki í þeim,
heldur alltaf eins og nýir. Þessi spindill er hjarta hvers blöndunartækis og það
hjarta slær reglulega.
Það er ekki tilviljun að fjórða hvert blöndunartæki i Evrópu er frá GROHE.
Það er árs ábyrgð á öllum GROHE-tækjum.
Fullkomin varahjutaþjónusta. Umboðsmenn um allt land.
GROHE umboðsmenn
um land allt
Nú er rétti tíminn
til aó fjqrfestq -
góó qreióslukiör
Geir Viðar Vilhjálmsson: