Tíminn - 25.06.1978, Page 29
Sunnudagur 25. júni 1978
29
„Brálium kemur betri tiö meö
blóm i haga.”
Nú hefur syrt i álinn hjá okkur
framsóknarmönnum hér i
Reykjavík. Viö höfum tapaö
manni i borgarstjórn og aöal mál-
gagn okkar hefur ekki náö þeirri
útbreiöslusem ég tel aöefniheföu
staöiö tál.
Hér þarf aö gera átök til um-
bóta og endurnýjunar. Stjórn
blahsins veröur aö breytast. Þaö
þarf aö laga blaöiö aö breyttum
aöstæöum i þjóölifinu.
En þó illa kunni aö lita út i bili
— og þó nokkurrar sundrungar
kunni aö sýnast gæta — til dæmis
frá sjónarmiöi þeirra sem nýlega
eru komnir til starfa i flokknum
— þá vil ég meö þessum oröum
leggja áherzlu á aö hér er ekki um
neitt rótarmein aö ræöa. „Menn
þurfa aö hafa hugsjónir” var eitt
sinn sagt á örlagastundu i þessum
flokki.
Hugsjónasnauðir kalkvistir
munu af sjálfu sér detta af hinum
hrausta og trausta meiöi flokks-
ins.
Pólitiskir sérgæöingar og
sykkópatar eru til i öllum flokk-
um — og ekki skulum viö hræöast
þaö þó þeirra veröi einnig litillega
vart I okkar flokki — þegar mikiö
á reynir.
Sliks veröur vart innan allra
stjórnmálaflokka.
I þvi indæla striði sem prófkjör-
iö okkar var, fékk ég staöfestingu
á þvisemég raunar áöur vissi, aö
kjarni flokksins samanstendur af
traustu og félagslega vel mein-
andi og þroskuöu fólki. Um þessa
skoðun mlna breytir engu þó ein-
hver mistök yröu i framkvæmd
prófkjörsins.
Sem sagt stofninn er traustur
oghraustur og kjarni stefriu okk-
ar er meir itakt viö timans þarfir
en nokkurs annars flokks.
Hiö mikla hlutverk miöflokks
eins og okkar er að verja þjóöina
fyrir ágangi innlends og erlends
kapitalisma sem sifellt sækir á
hana — og ekki er siöur mikilvægt
aö verja hana fyrir hinni skelfi-
legu áþján kommúnismans.
Markmiöanefndin sem nýlega
starfaöiá vegum flokksins skilaöi
góöu verki — þar sem grund-
Kristján Friðriksson:
Bráðum
kemur
betri
vallaratriði stefnu okkar eru skil-
greind.
Eg hvet menn til aö halda uppá
þaö plagg. Viö þurfum aö halda
skelegglegar á loft en gert hefur
verið, hinum skýra hugmynda-
fræöilega grundvelli stefnu okkar
— manngildisstefnunni og ræktun
frelsisins gegn taumlausri frjáls-
hyggju ihaldsafla og gegn al-
ræöishyggju sósialisma og
kommúnisma.
Viö þurfum og aukum frelsið og
ræktun þess — likt og unniö er aö
ræktun garöa túna og skóga — i
stað þess aö láta allt vaxa villt i
samræmi viö „lassier-faire”
stefnu ihaldsaflanna.
Hér þarf aö vera vel á verði.
Eftir þennan eina umtalsveröa
ósigur Framsóknarflokksins, þ.e.
hér i Reykjavik — eru and-
stæöingar ckkar strax farnir að
tala um tveggja flokka kerfi.
En þannig pólitisk þróun yröi
þaö versta sem fyrir þessa þjóö
gæti komið. — Manngildisstefnan
ein —sú sem styöst viö f jölmenna
öfluga og vel megandi millistétt,
húner þaöeinaaflsem til lengdar
getur staöiö vörö um raunveru-
legt frelsi og lýöræði.
En stefnumörkun i ýmsum
praktiskum aökallandi megin-
málum hefur veriö vanrækt aö
undanförnu aö minu mati.
Flokkurinn var i borgarstjórnar-
kosningunum aö súpa seyöiö af
þeirri vanrækslu. Hér þarf úr aö
bæta.
En ég fullvissa ykkur: Þaö
verður — og þaö frekar fyr en
siöar — mynduö hagfelld stefna i
fiskveiöimálum okkar — þannig
aö þjóöarbúiö fái sinn rétta skerf
út úr boinfiskveiöunum — en ekki
aðeins 2/3 hluta hans eins og nú.
Viö hljótum aö hætta aö drepa
fiskinn okkar hálf vaxinn — og þá
fæst fjárhagsgrundvöllur fýrir
raunhæfum kjarabótum — og þá
fæst lfka grundvöllur til aö kaupa
niöur hina hættulegu veröbólgu
sem hér geysar.
Og þaö verður mynduö ný og
hagkvæm stefna I landbúnaöar-
málum. Viö hljótum aö hætta aö
ofbeita landiö okkar.
Kristján Friðriksson.
Og þaö veröur mynduö hag- ,
kvæm stefna I iðnaöarmálum —
bæöi til leiöréttingar og treysting-
ar á byggöastefnunni og til þess
aö f ólkið okkar þurfi ekki aö flýja
land fyrir verkefnaskort — eöa
fábreytileika verkefna.
Og þaö veröur horfiö af þeirri
braut aö loka börnin okkar inni i
skólum mest allt árið — og ein-
angra þau þannig frá þjóö sinni
og þjóölifi.
Um allt þetta — og margt fleira
á Framsóknarflokkurinn aö hafa
forystu — og ég spái þvi aö þaö
muni hann hafa.
En nú erum viö i dálitiö vara-
samri stöðu — einkum hér i
Reykjavik.
En viðerum svo heppin aö eiga
þess kost aö sameina krafta okk-
ar um kosningu dugmikils og
gáfaös manns, Guömundar
Þórarinssonar. Haröskeytts og
úrræöamikils manns sem hefur
hagkvæma menntun, er efnalega
sjálfstæöur, sem er mikils viröi
manns sem hefur persónulega
reynslu af atvinnurekstri sem er
meira en hægt er aö segja um
ýmsa þá skrifboöshegra sem aör-
ir flokkar hafa upp á aö bjóöa.
Okkur ber þvi aö sameina
krafta okkar um kosningu Guö-
mundar Þórarinssonar.
Ég er bjartsýnismaöur aö eölis-
fari — og enginn stekkur lengra
en hann hugsar eins og hinn fallni
foringi okkar Hermann Jónasson
sagöi oft.
En hvaö sem auöiö veröur aö
þessu sinni, þá má ekki láta bil-
bug á sér finna.
Langti'ma markmiö flokksins
eru megin atriöi. Langtima
markmiö sem fellst 1 þvi aö
standa vörö um lýöræöi og mann-
helgi — og hafa mótandi áhrif á
stefnumörkun til bættrar efna-
hagslegrar og menningalegrar
stööu þjóöar okkar.
Ég hvet til bjartsýni — til sam-
stööu og átaka. Menn skipti meö
sér verkum.
Og ég enda þessi orö eins og ég
byrjaöi þau, „Bráöum kemur
betri tið.”
Kristján Friðriksson.
50 ÁRA
Guðmundur
Gunnarsson
verkfræðingur
t dag, sunnudaginn 25. júni, er
fimmtugur Guömundur Gunnars-
son, verkfræöingur, forstööu-
maöur Tæknideildar Húsnæöis-
málastofnunar rikisins. Þaö má
varla minna vera en aö viö, sem
vinnum aö veiöimálum, fáum
tækifæri til þess aö færa honum
þakkir og heillaóskir hér i blaöi
hans fyrir langt og gott samstarf
aö veiöimálum. í þvi efni hefur
Guðmundur markaö spor, er
lengi munu standa, en afskipti
hans aö fiskræktar- og fiskeldis-
málum hafa verið einkar farsæl.
Hann hefur veriö verkfræöilegur
ráöunautur viö byggingu lax-
eldisstöðvarinnar i Kollafiröi frá
upphafitil þessa dags: hann hef-
ur sem eins konar fiskræktar-
verkfræöingur átt hlut aö undir-
búningi margra fiskræktarmann-
virkja viös vegar um land, laxa-
stiga, eldisstööva og fiskhalds-
stööva, og gefiö mörg góö ráö á
þessu sviöi bæöi fyrr og siöar. Aö
öörum ólöstuöum, tel ég Guö-
mund þekkja manna bezttil þess-
ara mála frá öllum hliðum, enda
er hann vel gefinn, glöggur maö-
ur, sem hefur mikla reynslu i
þessum efnum, einsogfyrr segir.
Guömundur hefur fariö kynnis-
feröir erlendis og aö öðru leyti
gert sér far um aö fylgjast vel
meö á þessu sviöi, eins og áhuga-
sömum og lifandi manni er eigin-
legt. Vissulega eigum viö lengi
eftir aönjóta starfskrafta hans og
viötækrar þekkingar.
Guömundur er fæddur á Akur-
eyri 25. júni 1928, sonur Gunnars
Jónssonar, lögregluþjóns þar, og
konu hans Sólveigar Guðmunds-
dóttur. Hann varö.stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri og
lauk siöar námi i verkfræði viö
Tækniháskólann i Kaupmanna-
höfn áriö 1954. Guömundur starf-
Guðmundur Gunnarsson
aöi um árabil hjá Vita- og hafnar-
málastofnuninni. Hann gerðist
slöar einn af stofnendum og for-
vigismaöur verkfræöistofunnar
Hönnunar I Reykjavik.Þá varö
hannum tlma framkvæmdastjóri
Sveitarfélaga á Suöurlandi og á
s.l. ári var hann skipaöur for-
stööumaöur Tæknideildar Hús-
næöismálastofnunarinnar, en
hann hefúr jafnframt átt sæti I
stjórn Húsnæöismálastofhunar.
Guömundur Gunnarsson er
einkar þægilegur og góöur félagi,
hreinskiptinn og segir meiningu
slna, ai kemst vel af viö fólk
vegna þess aö hann er sanngjarn
maður. Hann er áhugasamur
stangaveiöimaöur og félagslynd-
ur framfarasinni. Hann hefur
fylgt Framsóknarflokknum aö
málum og notiö þar trúnaöar.
Aö lokum færi ég Guömundi,
hans ágætu konu, Onnu Július-
dóttur og börnum þeirra hjóna
beztu hamingjuóskir i tilefni
þessara tfrnamóta og óska þeim
allra heilla i framtiöinni. Lifiö
! Kær kveöja,
Einar Hannesson
Göngubrú á Syðri- Emstruá
opnar gönguleið milli Þórs-
markar og Landmannalauga
A s.l. tveimur árum hefur
Feröafélag lslands reist tvö litil
sæluhús á leiðinni frá Land-
mannalaugum aö Þórsmörk.
Annaö húsanna er i Hrafntinnu-
skeri en hitt á Emstrum fyrir
sunnan Hattfell. Ráögert er, aö
á þessu sumri veröi byggö
göngubrú á Syöri-Esmtruá, en
þar meö opnast skemmdleg
gönguleiö milli Landmanna-
lauga og Þórsmerkur og er þaö
fjögurra daga ganga meö hæfi-
legum dagleiöum. Allar likur
benda til þess, aö leiö þessi
veröi fjölfárin og vinsæl er tím-
ar liöa og meö þaö I huga voru
.þessi hús reist, svo aö fólk gæti
feröazt þarna um gangandi á
sem þægilegastan máta, án þess
aö þurfa aö bera með sér tjald.
Undanfarin ár hefur vaxiö sá
hópur, sem ferðast um öræfi
landsins og hafa notiö þess aö
gista i húsum félagsins. Þessi
aukning ferðamanna hefur jafn-
framt leitt til þess, aö of margir
hafa komiö samtimis I húsin til
gistingar, þannig aö til árekstra
hefur komiö. 1 slikum tilfellum
hefur fólk ekki kynnt sér eftir
hvaöa reglum fara skuli varö-
andi gistingar i húsunum, held-
ur treyst áaö fá húsrými, erþaö
bæri aö garöi.
Aö fenginni þessari reynslu
vill Feröafélagiö benda fólki á
aö þaö er nauösynlegt aö hafa
samband viö skrifstofu félags-
ins aö Oldugötu 3 i tima áöur en
lagt er upp i ferö, ef fólk vill
treysta á gistingu i skálunum.
Forráöamenn Feröafélagsins
leggja sérstaka áherzlu á reglur
þær, sem gilda fyrir þessi um-
ræddu hús I Hrafntinnuskeri og
á Emstrum. Þessi tvö hús veröa
læst i júll og ágúst, svo aö unnt
sé aö fylgjast meö nýtingu
þeirra og fyrst og fremst
tryggja aö þeir sem þess óska
geti fengiö þar gistingu.
Væntanlegir gestir veröa aö
hafa samband viö skrifstofu
félagsins, öldugötu 3, Reykja-
vlk, fá þar lykla aö húsunum og
siöan veröa skráöar gistinætur
viökomandi, en aö ferö lokinni
veröur aö skila lyklunum
annaöhvort á skrifstofu félags-
ins eða til húsvaröa i Land -
mannalaugum eöa Þórsmörk.
Þetta er algjör nauösyn ef
tryggja á örugga gistingu og
ánægjulega ferö án árekstra.
Viljum viö meö þessu bregöast
viö hinum aukna fjölda feröa-
manna I óbyggöum og beina at-
hygli fólks aö þeirri staöreynd,
aö feröalag án fyrirhyggju get-
ur orsakaö árekstra, sem unnt
er aö sneiöa hjá.
Ný bíiasaia: Bílahöllin i Kópavogi:
Nýlega var opnuö ný bilasala
aö Skemmuvegi 4 I Kópavogi,
sem heitir BQahöllin. Hún er meö
stóranog bjartansýningarsal, 960
fermetra aö stærö.
Bilahöllin veröur opin daglega
frá kl. 9-7 alla daga nema sunnu-
daga, en þá er opiö frá 1-7. Siöar
meir mun ætlunin aö opna Kaffi-
teri'u á staönum, og mun
opnunartimi þá veröa til kl. 10 á
kvöldin.
Eigendur þessarar bilasölu eru
Þórhallur Olver Gunnlaugsson,
Jóhann Guömundsson, Halldór
Gunnarsson, Þráinn Gunnarsson
og Óskar Engilbertsson.
BDahöllin að Smiöjuvegi 2, Kópa vogi. Timamynd Tryggvi