Tíminn - 25.06.1978, Side 30
30
Sunnudagur 25. júni 1978
Nútíminn ★ ★ ★
\
Led Zeppelin
Robert Plant
John Paul Jones
John Bonham
Jimmy Page
Ferill
þeirra
hefur
verið
óslitin
sigur-
ganga
hafa ekki sungið sitt síðasta
Brezka rokk hljómsveitin Led Zeppelin er nú mætt til leiks að nýju eftir nokkurt
hlé og hafa þeir félagarnir í hljómsveitinni unnið að því hörðum höndum undan-
farinn mánuð að semja efni á nýju hljómplötu hljómsveitarinnar og þegar er haf-
inn undirbúningur að hugsanlegri hljómleikaferð seinna á þessu ári.
Led Zeppelin hafa litið sem
ekkert leikið saman né komið
fram opinberlega siðan i júli á
siðasta ári, þegar lát sonar Ro-
bert Plants, söngvara hljóm-
sveitarinnar batt enda á vel
heppnaða hljómleikaferð um
Bandarikin og þvi hlýtur það að
vera sérstakt fagnaðarefni fyrir
alla Zeppelin aðdáendur að
hljómsveitin ætli að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið
fyrir tæpu ári siðan.
En svo að vikið sé nánar aö
þvi sem Zeppelin eru að gera
nú, hafa þeir verið við æfingar
fjóra daga vikunnar undan-
farinn mánuð i Clearwell
kastala á Englandi en æfingar
þessar tóku enda um siðustu
mánaðamót. Að sögn talsmanns
Swan Songs, sem er hljómplötu-
fyrirtæki Led Zeppelin er ekki
enn búið að ákveða endanlega
hvert verður næsta skref Led
Zeppelin. Að hans sögn koma
þrjú atriði sterkiega til greina
og vist er að þau verða öll fram-
kvæmd þó að siðar verði en þau
eru: I fyrsta lagi ný hljómplata
frá Led Zeppelin sem hljóðrituð
yrði i hljómveri. I ööru lagi
hljómplata (tvöföld eða þreföld)
sem spanna myndi allan feril
Led Zeppelin og myndi þá verða
um hljómleikaupptökur að ræða
og i þriðja lagi gæti fyrsta
skrefið orðið sólóplata frá
Jimmy Page gitarleikara
hljómsveitarinnar en upptökur
á henni hófust i fyrra og hefur
Page unnið meira og minna að
henni siðan i sinu eigin hljóm-
veri i Plumpton i Englandi.
Auk þess sem Page hefur unn-
ið að sinni eigin plötu þá hefur
hann hlustað á gamlar upptökur
með Led Zeppelin sem ekki hafa
áður komið út á plötum en upp-
tökur þessar hafa verið teknar á
hljómleikum hljómsveitarinnar
á undanförnum árum og ná allt
aftur til ársins 1969 þegar
Zeppelin komu fram á hljóm-
Led Zeppelin
■Þar sem það virðist svo að Led Zeppelin séu i brennidepli á nýjan leik er ekki úr
vegi aðrifja aðeins upp feril hljómsveitarinnar og fer hér á eftir útdráttur úr grein
sem rituðvar um Led Zeppelin ítímaritið SHE
Eyrir u.þ.b. tiu árum merkti
orðið Zeppelin i hugum manna
loftskip en nú á timum tengja
flestir það einni af þeim fáu
stórhljómsveitum sem uppi
standa nefnilega brezku rokk
hljómsveitinni Led Zeppelin.
Saga Led Zeppelin er fáum
öðrum lik og fáar hljómsveitir
hafa átt jafn dæmafárri vel-
gengni að fagna sem Led
Zeppelin. Siðan Zeppelin komu
fram á hljómleikum i háskólan-
um i Surrey 15. október 1968 þar
sem þeir slógu i gegn hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og þeir
Robert Plant, Jimmy Page,
John Bonham og John Paul
Jones hafa svo sannarlega ekki
þurft að kvarta undan þvi að
plötur þeirra hafi ekki selzt i
risastórum upplögum. Led
Zeppelin er ein af fáum hljóm-
sveitum sem getur sagt það að
allir miðar að hljómleikum
þeirra, hvort sem um er að ræða
hljómleika i Bandarikjunum,
Evrópu eða Japan hafa alltaf
selzt upp löngu fyrir hljómleik-
ana og geri aðrir betur.
Hljómsveitin Led Zeppelin
var stofnuð árið 1968 á rústum
hljómsveitarinnar Yardbirds
sem hafði lagt upp laupana i júli
það ár. Jimmy Page var þá
aðalgitarleikari Yardbirds, en i
þeirri hljómsveit höfðu verið
ekki ómerkari menn en Eric
Clapton og Jeff Beck, og einnig
hafði Page unnið sem „session”
hljóðfæraleikari með mönnum
eins og Van Morrison og Joe
Cocker og hljómsveitum eins og
Kinks og The Who. Page ákvað
eftir að Yardbirds hættu að
halda áfram með hljómsveit
undir nafninu New Yardbirds og
fyrstan fékk hann til liðs við sig
Jphn Paul Jones sem hann hafði
hitt þegar Jónes vann við
upptöku á plötu Donovans,
,,Hurdy Gurdy Man” en Jones
var vanur „session” maður sem
unnið hafði með kröftum eins og
Rolling Stones og Dusty Spring-
field. Jones tók við bassaleik i
hljómsveitinni en saman réðu
þeir Page, Robert Plant, fyrr-
um söngvara Alex Corner Blues
Band sem söngvara New Yard-
birds en Plant stakk siðan upp á
þvi aö gamall vinur hans John
Bonham eða öðru nafni
„Bonzo” gengi I hljómsveitina
sem trommuleikari.
New Yardbirds hljóðrituðu
snemma sina fyrstu og siðustu
plötu og á hljómleikaferðalagi
um Skandinaviu þetta sama ár
breyttu þeir nafni hljómsveitar-
innar i Led Zeppelin og tveim
mánuðum siðar hafði Peter
Grant umboðsmaður hljóm-
sveitarinnar, skipulagt hljóm-
leikaferð um Bandarikin en
Grant þessi hafði áður verið
umboðsmaöur Yardbirds.
Siðan þetta gerðist hafa Led
Zeppelin aldrei litið um öxl og
saga þeirra hefur verið eins og
áður segir ævintýri likust.
Margir hafa brotið heilann
um það hvaö það hafi verið sem
gerði Led Zeppelin svo vinsæla
sem raun ber vitni. Ein skýring-
in sem gefin hefur verið á þvi er
sú að þeir séu meistarar á sinu
sviði og að á hljómleikum noti
þeir fjölbreytt úrval hljóðfæra
sem ekki væri á annarra færi að
nota t.d. notar Jimmy Page
yfirleitt sex gitara, þrjá Gibson
Les Pauls, einn Gibson SG
tveggja hálsa einn Dan Electro
og einn Fender Stratocaster.
John Paul Jones notar, Fender
fretless Bass, Fender Jazz Bass
samstæður af Fender bassafót-
stigum og W Dunne fótstigum,
Mellotron, Fender Rhodes
piano, átta strengja bassa og
siöast en ekki sizt stórt Stein-
way hljómleikapíanó. John
Bonham er þekktur fyrir að
nota sitt fullkomna Ludwig
trommusett auk annarra
ásláttarhljóðfæra til þess að
halda út allt að hálftima
trommusóló og um Robert Plant
þarf vist ekki að fjölyrða, það
þekkja vist flest allir röddina i
honum.
1 dag eru'Led Zeppelin mjög
vel staddir fjárhagslega. Auk
hinna miklu tekna sem þeir hafa
af sölu hljómplatna sinna, eiga
þeir hljómplötufyrirtækið Swan
Song sem hefur á slnum snær-
um, auk Zeppelin krafta eins og
Bad Company, Dave Edmunds,
Pretty Things og Maggie Bell og
þvi má segja að Led Zeppelin
hafa hvergi nærri sungið sitt
siðasta.
—ESE
- þrjár
plötur á
leiðinni
leikum i Royal Albert Hall. Sagt
er að lengdin á þeim upptökum
sem Page hefur farið I gegn um
skipti hundruðum klukkutíma
en markmið hans með þessu er
það aö vinna úr upptökunum
efni sem sóma myndi sér á fyrr-
nefndri heimildarplötu um feril
Led Zeppelin.
Jimmy Page — Það er ekkert litið sem hvllir á heröum hans þessa
dagana þvi að hann ber hitann og þungann af útgáfu þriggja
hljómplatna frá Led Zeppeiin.
★ ★★★★ +
★ ★ ★ ★
★ ★★★★ +