Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 32

Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 32
32 Sunnudagur 25. júnl 1978 Anthon Mohr: Árni og Berit FERÐALOK barnatíminn Ævintýraför um Kyrrahafið og Suður-Ameríku seint. Nú sáu þeir ekki handa sinna skil. Vind- staðan var lika óviss og var sem stormurinn kæmi úr öllum áttum. Uppstreymi var svo mikið að Ámi varð að gæta sin með það að missa ekki fótanna. Að leita að sporum þeirra frá uppgöngunni án leiðarmerkju væri álika erfitt og finna saumnál i garðheyi. Það var öllum ljóst að hér voru þeir i hættu staddir. Ef illviðrið héldist áfram gat verið um lifið að tefla. Þeir voruallslausir höfðu hvorki tjöld eða vistir. ll. Nú var klukkan orðin sjö að morgni og kominn albjartur dagur en ekk- ert rættist úr. Þeir sáu ekki handa sinna skil i hriðinni. Allir voru þeir svangir helkaldir og sárþreyttir. Ekki bætti það heldur úr skák að Sinchi sem var þeirra öruggastur i hverri þraut hafði undið á sér annan fótinn s vo að hann átti mjög erfitt með gang. Hvert skref var honum sár þraut. Þeir urðu heldur ekki sam- mála um stefnuna og hver hélt fast við sina skoðun. Þegar þessu hafði fram farið um stund þá ákvað Grainger að allir skyldu reyna að halda hópinn og vera hér kyrr- ir nema Clay verk- fræðingur hann skyldi binda um sig taug eins langa og hægt væri að útbúa og svo skyldi hann freista þess að finna spor þeirra i hjarnið, eða pilviðarkvistina sem leiðin var fyrst merkt með. Clay fór þegar af stað og hvarf strax sjón- um i hriðinni Langur timi leið — eilifðartimi fannst Árna. — Klukkan var farin að ganga niu og enn var sama veður. Að lokum kom Clay aftur örmagna og von- laus með klakastöngla i skegginu. Hann hafði ekki hitt á að finna leiðarmerki. Ef til vill hafði snjórinn hulið kvistina eða vindurinn feykt þeim. Hvergi gat hann heldur séð fyrir sporum þeirra i hjarnið. Vitanlega hafði snjóað yfir þau. Ekki leit þetta vel út. Þeir höfðu búizt við að það tæki þá aðeins nokkra klukkutima að ganga á tindinn þennan morgun og þess vegna tekið með sér örlitið nesti. Þennan nestisbita höfðu þeir borðað við gjána og nú fór þá alvar- lega að svengja. Hvað áttu þeir að gera? Ekki gátu þeir lengi staðið hér hreyfingarlausir þá yrðu þeir helkaldir. Lifshætta væri fyrir þá að dreifa sér og reyna að finna leiðarmerkin enda væru pilviðarkvistimar liklegast foknir út i veður og vind fyrir löngu. Að lokum urðu þeir ásáttir um að reyna að leita sér skjóls og biða i von um að veðrið lægði. En hað tæki við ef illviðrið feéldist? Árni stakk upp á að þeir skyldu reyna að finna klöppina þar sem þeir skyldu hylkið eftir i sprungunni — þar væri ofurlitið hlé fyrir veður- ofsanum. Þessi tillaga var samþykkt og eftir dálitla stund voru þeir svo heppnir að rekast á klöppina en vitanlega i allt aðra átt enÁrni taldi hana vera. Litið skjól var þarna og hriðarstrokurnar upp úr gjánni voru ægilegar en þó var þarna skárra en á bersvæði. Ef það var rétt að dagurinn væri langur og erfiður þá mátti segja að nóttin væri heil eilifö. Að lokum höföu þeir þó getað grafið sig dálitið ofan i hjamskaflinn en snjóbyrgðið var ekki stærra en það að fætur þeirra voru út úr byrg- inu. Árni óttaðist það mest að fætur hans myndu kala. Þegar hann vann i blýnámunum i Verchojansk þá hafði hann séð mörg alvarleg tilfelli slik og þessvegna vissi hann hve kal var hættulegt. ,,Nei, nú er ekki rétt að liggja lengur”, hugsaði Árni. Hann brauzt á fætur þótt hann væri stirður og dof- inn og fór að plampa i kringum snjóbyrgið. Honum hlýnaði dálitið við þetta en nú fór sulturinn að segja til sin. í vasanum fann hann nokkra brjóstsykurmola og skipti þeim jafnt á milli manna og komu þrir i hlut. En þetta hafði litið að segja. Loksins fór aftur að birta en veðrið lægði ekki. Árna fannst jafn- vel rokið enn meira en um kvöldið. Clay var dauðhræddur um að hann væri farið að kala á fæturna. Félagar hans fóru þá að nudda þá og liðka til og fannst honum þá allt lagast aftur. ,,Hann segir þetta að- eins til að hugga sig og okkur” hugsaði Árni. Nú voru tveir dugleg- ustu fjallgöngu- mennirnir Sinchi og Clay miður sin. Varla myndu þeir þola einn sólarhring enn. Árni var undrandi er hann sá framan i félaga sina i morgunskimunni. Þeir voru óhreinir og skeggjaðir, með klaka- dröngla i skegginu og liktust meira félögum hans i fangabúðum Verchojansk en hraust- um djarfhuga fjall- göngumönnum. Vitan- lega voru þeir ekki i hlekkjum og hér voru engir fangaverðir en hengiflug og ókleifir klettar á alla hliðar komu i stað hlekkjanna og illviðrið var verra en nokkur fangavörður. Þrátt fyrir allt var Árni hressastur af þeim félögum og átti hann það að þakka æsku sinni og ágætu heilsu fari. Grain- ger stakk þvi upp á þvi að Árni gerði tilraun til að finna leiðarmerkin, þótt litil von væri að það tækist. ,,Þú ræður þvi vitan- lega sjálfur hvað þú ger- ir,” sagði Grainger ,,en þar sem þú ert eini maðurinn i þessum hópi sem ert nokkurn veginn ferðafær þá finnst mér að þú ættir að gera til- raun. Enginn okkar er fær um það.” Metnaður Árna óx við það að félagar hans byggðu von sina um björgun á honum sem var þó þeirra yngstur, en hann vissi það lika eins vel og þeir að ef honum tækist þetta ekki þá væri úti um þá. Nú reið á fyrir hann að at- huga sig vel áður en hann legði af stað. ,,Ég held að það hafi verið rangt að festa taugina sem Clay batt sig i efst uppi á hæðinni þá náði hún miklu skemmra niður i hliðarnar. Hálfhringur- inn sem hann gat komizt varð þvi miklu þrengri” sagði Árni eftir litla um- hugsun. ,,Ég held að við höfum komið upp dálitið austar.” Félagar hans litu spyrjandi hver á annan. ,,Ef til vill hafði Árni rétt fyrir sér.” ,,Við skulum koma dá- litinn spöl i þessa átt”, sagði Ámi og benti þeim aðkoma á eftir sér. ,,Við festum siðan taugina rétt hjá gjánni og ég reyni þar fyrst.” Árni gekk sföan af stað á undan hópnum i norð-austur-átt og athugaði áttavitann nákvæmlega. Á barmi gjárinnar festu þeir taugina vandlega. Árni lagði siðan aleinn af stað, bundinn i taugina. Hún var um 40 metra löng. Taugin var gefin eftir jafnóðum og hann fjarlægðist. Ef hann fyndi ekki leiðarmerkin, þá átti hann að kippa tvisvar i vaðinn, og yrði hann þá strax dreginn upp. Þetta var ákveðið merki. Fyrst var brattinn ekki meiri en það, að ■ Árni gat haldið jafnvæg- inu með þvt að styðja sig við exina. Seinna versnaði þetta. Árni byrjaði austast, næst gjánni og fikraði sig svo norður eftir og skyggndist stöðugt eftir leiðarmerkjunum. Ekki var hann langt kominn, er hann sá það, að svo austarlega hefðu þeir ekki komið upp. Klettarnir voru þarna ókleifir. Hann varð að leita norðar. Ekki gat hann fært sig til utan i hjarnskirðunni þótt hann væri bundinn i festina, heldur varð hann að láta draga sig upp og klifra niður aftur. Þeir ákváðu þá að flytja festarhælinn 20 metmm norðar í annað sinn paufaðist Árni af stað niður brattann. Nú var hann heppnari. Hér var ekki hengiflug eins og á fyrri staðnum. Hann gat komizt eins langt niður og taugin náði, en hvernig sem hann skimaði og leitaði, þá varð hann hvergi var við pilviðargreinamar. Annað hvort voru þær á kafi i snjó eða stormur- inn hafði feykt þeim. Árni hafði nú fundið uppnýttmerkjakerfi. Ef hann kippti þrisvar i festina, þá áttu þeir ekki að draga hann upp, en þokast með hann i fest- inni norður eftir. Þetta merki gaf hann stöðugt um leið og hann klöngraðist i sömu átt og þeir, sem með vaðinn voru uppi. Þarna var snarbratt. Ofan á var djúpur nýfallinn snjór, en undir glerhart, flughált hjarn- ið, og var þvi erfitt að ná fótfestu. Án festarinnar hefði verið ómögulegt að komast þetta og með festinni var það mjög erfitt. Þessi svangi og dauðþreytti drengur, einbeitti sér sem kraftar hans leyfðu, en stundum fannst honum eins og hann svifi i þokukafi. En nú mátti hann ekki vera sljór, ef hann ætlaði að finna kvistina. Hann herti sig þvi upp sem hann gat og starði út i hriðina, en sá aðeins örskammt frá sér. Lik- lega voru leiðarmerkin alveg glötuð. Nú var Árni kominn i bratta skriðu, og varð hann að beita öxinni við hvert skref, þótt hann hengi i festinni. Enn sveiflaði hann öxinni ofan i snjó- inn, en i þetta sinn rótaði öxin pilviðargrein upp úr snjónum. Ámi þreif i greinina, eins og hann væri hræddur um að hún rynni úr höndum sér.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.