Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 23
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Guðrún Jóhannsdóttir hefur á undanförnum árum náð góðum árangri í skylmingum bæði hér heima sem og erlendis. „Við vinkonurnar rákum augun í auglýsingu frá Skylmingafélagi Reykjavíkur fyrir mörgum árum sem vakti áhuga okkar og varð til þess að við fórum að æfa,“ segir Guðrún um tilurð þess að hún fór að skylmast. Tveimur árum seinna tók hún sér hlé frá skylmingum en segir áhugann þó hafa blundað áfram í sér. „Svo lét ég verða af því að fara að æfa aftur fyrir um það bil átta árum,“ segir Guð- rún, sem skipti þá svokölluðu stingsverði út fyrir höggsverð. „Munurinn á þessu tvennu er sá að með stingsverði er reynt að stinga í líkama mótherjans, en ákveðinn þrýstingur þarf að vera á snertingunni svo að stigið sé skráð,“ segir hún. „Með höggsverði þarf maður að vera sneggri í snúningum en það nægir að snerta líkama andstæðingsins ofan mittis.“ Að þessum átta árum liðnum hefur Guð- rún náð góðum árangri í skylmingum, meðal annars unnið nokkur Norðurlandamót og gengið vel á mótum í Kanada, þar sem hún býr nú, og á heimsbikarmótum, en hún komst meðal annars í 32 manna úrslit á heimsmeistaramótinu í Leipzig í fyrra. Guðrún segir lykilinn að velgengninni liggja í stífum æfingum, en hún æfir skylm- ingar 3-4 sinnum í viku á sumrin og 5-8 í viku á veturna. „Maður skýst ekki upp á stjörnuhimininn á einni nóttu, heldur verð- ur maður að leggja rækt við marga þætti ætli maður sér að ná langt. Öðruvísi gengur þetta ekki.“ roald@frettabladid.is Ber brandinn hátt Guðrún komst í 32 manna úrslit á heimsmeistaramótinu í skylmingum í Leipzig á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR KORTHAFAR GETA ÆFT Í HEILSURÆKTARSTÖÐVUM Í EIGU WORLD CLASS. Í kjölfar þess að World Class hefur, ásamt fjárfestum, keypt keðju heilsuræktarstöðva í Danmörku geta World Class korthafar æft þarlendis í allt að hálfan mánuð í senn. Stöðvarnar heita Equinox og eru 13 talsins. Samkvæmt heimasíðu World Class eru Equinox heilsuræktarstöðvarnar í hæsta gæðaflokki. Þær eru staðsettar víðs vegar um Danmörku, flestar á Jótlandi en stærsta stöðin er staðsett í Kaupmannahöfn. World Class í Danmörku World Class æfingakort gilda nú í Equinox heilsuræktarstöðvunum í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI GÓÐAN DAG! Í dag er þriðjudagurinn 22. ágúst, 234. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.39 13.31 21.20 Akureyri 5.15 13.15 21.13 Líkamsrækt. Í lok sumars bjóða líkamsræktarstöðvar upp á sérstök tilboð. Af nægu er að taka og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í flórunni. Vítamín. Maraþon fjölvítamín og steinefni fyrir íþrótta- og athafnafólk er auðugt af andox- unarefnum, svo sem beta-karót- íni, E- og C-vítamín. Þau ásamt B-vítamínum og stenefnum verja vefi og frumur líkamans gegn skemmdum vegna skaðlegra efna í umhverfinu. Esjan. Það er frábært að njóta tilkomumikils sólarlagsins ofan af toppi Esjunnar. Það er þægi- legt og skemmtilegt að labba upp Esjuna og er aðgengi að henni orðið mjög gott. ALLT HITT HEILSA HANDBOLTI Á STRÖNDINNI Strandhandknattleikur á auknum vinsældum að fagna. HEILSA 2 ALLIR ERU SIGUR- VEGARAR Þúsundir sprækra krakka sprettu úr spori í Latabæjarhlaupi um helgina. HEILSA 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.