Fréttablaðið - 22.08.2006, Qupperneq 44
22. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR32
Á föstudaginn hélt hinn alræmdi
dansflokkur Chippendales
sýningu á Broadway. Konur
flykktust á sýninguna og
ekki varð betur séð en að
fullt hús hafi verið að horfa
á dansflokkinn.
Chippendales lofuðu
góðri sýningu fyrir
kvöldið og sögð-
ust ætla að trylla
íslensku kven-
þjóðina. Vöðva-
stæltu karlmönnunum
tókst það enda voru kon-
urnar gjörsamlega
stjórnlausar þegar fol-
arnir stigu á svið og
beruðu sig í takt við
háværa teknótónlist.
Chippendales tjöld-
uðu öllu til í sýning-
unni sem stóð í
tvær klukkustund-
ir og notuðu ýmsa
kynæsandi
aukahluti á borð
við mótórhjól,
rúm og
slökkviliðs-
búninga. Ekki
sýndu þeir
þó sitt allra heilagasta en spröng-
uði um sviðið á g-strengnum
einum klæða sem leit þó út
fyrir að vera grunsamlega stór
að framan.
Konum gafst kostur á því að
versla sér hlýraboli merkt-
um dansflokknum á
sýningunni og voru þá
teknar upp á svið. Þar
klæddu dansaranir
þær úr sínum bolum
og í hlýrabolinn við
mikinn fögnuð
áhorfenda. Þær
konur sem fóru
upp á svið gjör-
samlega slefuðu
yfir hreyfingum
dansarana og hik-
uðu ekki við að káfa
á stæltum og olíju-
bornum vöðvum
dansaranna. Skiptar
skoðanir hafa verið
um uppátæki
Chippendales en
fólk getur dæmt
fyrir sjálft eftir
að hafa skoðað
meðfylgjandi
myndir.
Vöðvatröllin trylltu kvenþjóðina
MIKIÐ STUÐ Þessi var heppin enda ekki hver sem er sem fær að dansa við einn úr
Chippendales.
HÁTTA SIG Dansararnir hikuðu ekki við að hrista bossann framan í áhorfendur.
SLÖKKVILIÐSMENN Strákarnir sýndu mikil
tilþrif á sviðinu og brugðu sér meðal ann-
ars í gervi slökkviliðsmanna.
SUNGIÐ OG DANSAÐ Atriðin voru mjög vel
æfð hjá karlmönnunum enda þeir orðnir
sjóaðir í að sýna sig.
HATTURINN Hér settu þeir höfuðföt fyrir sínu allra heilagasta og dönsuðu í takt við tónlist-
ina.
Magni „okkar“ Ásgeirsson syngur
lagið Smells Like a Teen Spirit
eftir grunge-kónganna í Nirvana í
Rock Star: Supernova þættinum
sem sýndur verður í beinni útsend-
ingu á Skjá einum í kvöld en Magni
verður annar á sviðið.
Magni ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur því söngvari Nir-
vana, Kurt Cobain, er
mikil goðsögn í
rokkheiminum en
þess má til gamans
geta að annar
íslenskur söngv-
ari hefur reynt
sig við lagið,
sjálfur Raggi
Bjarna.
Magni syng-
ur Nirvana
MAGNI Þarf að spýta
í lófana til að forðast
að lenda meðal þriggja
neðstu aftur.
Poppprinsessan Britney Spears
kom aðdáendum sínum og áhorf-
endum á verðlaunahátíðinni „Teen
Choice awards“ á óvart þegar hún
steig á svið til að kynna atriði eig-
inmanns síns, Kevins Federline.
Stúlkan er komin átta mánuði á
leið en leit þrátt fyrir það vel út á
sviðinu. „Þessi verðlaun komu
sjálfri mér á kortið á sínum tíma
og ég vona að þau eigi eftir að gera
það sama fyrir næsta mann sem
stígur á svið,“ sagði Spears með
bros á vör þegar hún kynnti Fed-
erline til leiks þar sem hann söng
lag af nýrri plötu sinni.
Slúðurblöðin í Bandaríkjunum
telja þessa framkomu Spears vera
vísir að því að hún ætli að koma
aftur í bransann eftir barneign
númer tvö.
Kom
óvænt fram
BRITNEY SPEARS Kom óvænt fram á „Teen
choice awards“ þar sem hún kynnti atriði
eiginmanns síns, Kevins Federline.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
GÓÐUR
Þessi félagi
var hvergi bang-
inn þegar hann stóð
í g-streng í amerísku
fánalitunum einum
fata fyrir fullu húsi æstra
kvenna.
Þáttur Simpsons-fjölskyldunnar,
The Seemingly Neverending
Story, hlaut Emmy-verðlaunin
sem besti teiknaði sjónvarpsþátt-
urinn í bandarísku sjón-
varpi. Báru hinir gulu
fjölskyldumeðlimir sig-
urorð af háðsdeilu
South Park um Vís-
indakirkjuna og
Tom Cruise en
trúarsöfnuðurinn
hótaði framleið-
endum þátt-
anna lögsókn
og meiðyrða-
málum.
Þetta er
í níunda sinn
sem Simp-
sons-fjölskyldan fer heim með
þessi eftirsóttustu verðlaun teikn-
aðra þátta en íbúar Springfield
hafa skemmt sjónvarpsáhorfend-
um í
rúm sautján ár. Einn framleiðandi
þáttanna, Al Jean, sló á létta
strengi þegar hann tók við verð-
laununum og sagði að svona hlutir
gerðust bara þegar maður gerði
ekki grín að vísindakirkjunni, við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Verðlaunaafhendingin er hugs-
uð fyrir þætti sem skarta mikilli
tæknivinnu og fékk Elizabeth I,
sem er samstarfsverkefni HBO og
Channel 4, alls fimm verðlaun.
Aðalhátíðin fer fram þann
27. ágúst og mun Conan O‘Brien
stjórna veislunni.
Simpsons besti þátturinn á Emmy
AÐSTANDENDUR SIMPSONS Hlutu verðlaun
sem besti teiknaði þátturinn í bandarísku
sjónvarpi og báru sigurorð af hinum mjög
svo umdeilda þætti, South Park.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
FJÖLSKYLDAN FRÆGA Simpsons-
fjölskyldan hefur skemmt sjón-
varpsáhorfendum í sautján ár.
Viltu læra aðferðir sem raunverulega breyta lífi þínu?
Námskeið í NLP tækni.
Upplýsingar á www.ckari.com & í síma: 894-2992
Hugurinn ber þig alla leið