Tíminn - 23.08.1978, Qupperneq 15
Miðvikudagur 23. ágúst 1978
15
iOOOOQQOQi
Valsmenn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn á Akureyri:
KA-liðið
stöðvaði
sigurgöng
Valsmann
— með því að tryggja sér jafntefli 0:0 og dýrmætt stig
í fallbaráttunni í gærkvöldi
Valsmenn gátu ekki fagnað marki á Akureyri i gærkvöldi,
en þeir fögnuðu að sjálfsögðu tslandsmeistaratitlinum,
sem fer að Hliðarenda i 16. skipti.
Valsmenn tryggðu sér
islandsmeistaratitilinn i
knattspyrnu 1978 á Akur-
eyri i gærkvöldi, þar sem
þeir urðu að sætta sig við
jafntefli 0:0 gegn KA-lið-
KENNY DALGLISH.
I gærkvöldi.
. skoraði 2 mörk fyrir Liverpool á Portman Road
inu, sem stöðvaði þannig
hina frækilegu sigurgöngu
Valsmanna, sem höfðu
unnið alla 16 leiki sina i 1.
deildarkeptpninni fyrir
leikinn gegn KA á Akur-
eyri.
Leikmenn KA-liðsins, sem lék
án Gunnars Blöndal og Sigbjörns
Gunnarssonar, mættu ákveðnir
til leiks og voru þeir i miklum
vigahug — enda berjast þeir um
fallið. Þeir sóttu stift aö marki
Valsmanna i byrjun leiksins og
voru óheppnir að skora ekki
Withe til
Newcastle
Newcastle festi i fyrrakvöld kaup
á miðframherjanum Peter Withe
frá Nottingham Forest fyrir
200.000 sterlingspund. Sala
Withes kom ekki á óvart, þvi vit-
að er að Clough hefur ekki verið
ánægður með hann og hefur
undanfarnar vikur verið að leita
að öðrum miðframherja.
— — SSv—
mark. Sigurður Haraldsson mátti
hafa sig allan viö i marki Vals-
manna og varði hann mjög glæsi-
lega skot frá Jóhanni Jakobssyni
á 12. min.
Það var mikið barist og liðin
skiptust á að sækja. Valsmenn
náðu nokkrum skemmtilegum
sóknarlotum, en Þorbergur Atla-
son, markvörður KA, var vel á
verði i þau skipti, sem knötturinn
nálgaðist mark Akureyrarliðsins.
Valsmenn náðu aftur á móti
nokkrum hættulegum sóknum i
seinni hálfleik — Atli Eðvaldsson
komst tvisvar sinnum með stuttu
millibili i dauðafæri, en honum
brást bogalistin i bæði skiptin —
Þorbergur varði fyrst laust skot
hans, en það seinna fór framhjá
Þorbergi og til Inga Bjarnar Al-
bertssonar, sem skaut i fangiö á
Þorbergi.
Akureyringar fengu einnig góð
færi — Jóhann Jakobsson stóð eitt
sinn fyrir framan opið mark Vals,
en skot hans fór fram hjá marki
Valsmanna.
Eins og fyrr segir, var leikurinn
mikill baráttuleikur. Valsmenn
fögnuðu Islandsmeistaratitlinum
eftir leikinn, en leikmenn KA dýr-
mætu stigi, sem kemur sér vel
fyrir Akureyrarliðið i fallbarátt-
unni. —SOS
„Rauði herinn” var í
vígamóði í Ipswich
— þar sem Evrópumeistararnir unnu sætan sigur 3:0 yfir ensku
bikarmeisturunum
Það hefur haldið llfinu i
Birmingham undanfarin ár, að
þeir hafa rekið framkvæmda-
stjórana um leið og illa hefur
farið að ganga og það hefur gefið
góða raun. Liðið hefur jafnan
tekið kipp upp á við á eftir. Menn
biða nú bara eftir að Jim Smith
verði veit úr sessi.
Tommy Langiey skoraði eina
mark Chelsea gegn Úlfunum og
Chelsea vann óvæntan sigur. Það
gekk viða mikið á og 4 leikmenn
voru reknir af leikvelli. Þeir Bill
Roffeyog Wayne Entwhistlevoru
reknir af leikvelli i hörkuleik
Orient og Sunderland. Sunder-
land hafði ekkert i Orient að segja
og hljóp mótlætið i skapið á
mönnum. Nýju liðin i annarri
deildinni komu öll mjög á óvart i
gærkvöldi — unnu öll sigra. Mest
kom þó á óvart öruggur sigur
Cambridge yfir Brighton, en
Brighton var spáð mikilli vel-
gengni i vetur. Wrexham sigraði
Fulham á útivelli og Preston —
undir stjórn Nobby Stiles —
burstaði Blackburn. Luton kom
niður á jörðina með skell er þeir
töpuðu fyrir Crystal Palace.
Watford, sem sigraði með yfir-
burðum i 4. deild i vor, byrjar
timabilið heldur en ekki glæsi-
lega. A laugardag vann Watford
Walsall á útivelli 4:2 eftir að hafa
verið 0:2 undir. Ekkert minna en
5:1 sigur yfir Blackpool, sem féll
niður úr annarri deild — dugði
þeim i gær og þeir tróna nú I efsta
sæti deildarinnar.
Evrópumeistarar Liverpool
sýndu snilldartakta i gær þegar
þeir sigruðu Ipswich á Portman
Road. Liverpool hafði algera yfir-
burði i leiknum og þegar upp var
staðið höfðu meistararnir gert
þrjú mörk gegn engu. Kenny
Dalglish skoraði tvö mörk og
Graeme Souness hið þriðja —
greinilegt að Liverpool veröur
erfitt viöureignar I vetur. Arnold
Muhren — nýi leikmaöurinn hjá
Ipswich — vissi varla hvaðan á
sig stóð veðrið þegar hann og fé-
lagar hans voru leiknir sundur og
saman.
Meistarar Forest náöu marka-
lausu jafntefli á Highfield Road i
Coventry — ekki beint sannfær-
andi byrjun hjá þeim. Birming-
ham stefnir enn einu sinni á botn-
baráttuna.
Úrslit i Englandi i gær:
1. deild
Birmingham-Middlesb. 1:3
Framhald á bls. 19.
Punktar
úr Evrópu
A sunnudag lauk knatt-
spyrnumóti, sem haldið var af
Ajax í Amsterdam. Fjögur liö
tóku þátt i keppninni og sigruöu
gestgjafarnir Anderlecht i
úrslitum á vitaspyrnukeppni
eftir aö jafnt haföi veriö í leiks-
lok, 2:2. Van Dord og Ray
Clarke skoruöu fyrir Ajax, en
Martens og Ruud Geels svöruöu
fyrir Anderlecht.
I keppninni um þriðja sætiö
sigraði AZ ’67 brasillska liðið
Fluminese einnig eftir vlta-
spyrnukeppni, eftir að staðan
hafði verið 2:2 I leikslok. Lands-
liðsmaðurinn Marinho skoraöi
annað mark Fluminese.
Argentinska liðið River
Plate sigraöi italska 1. deildar-
liðið Perugia i æfingaleik um
helgina, 2:0. Leopoldo Luque,
landsliðsmiðherji Argentinu,
skoraði annað markið.
Úrslit I þýsku deilda-
keppninni á laugardag:
Frankfurt — Braunschweig 3:1
Bremen —SV Hamburg ... 1:1
Stuttgart —Ntlrnberg ... 4:0
Bochum —Dtlsseldorf. 2:2
Bayern —Duisburg ....... 6:2
Bielefeld — Schalke 04 . 3:2
Mönchengl. — Dortmund .. 2:2
Köln— Darmstadt ........ 2:1
Hertha —Kaisersl........ 0:3
SSv.—
Teitur
skoraði
|— og öster skaust
upp á toppinn I
Svíþjóð
Teitur Þóröarson kom öster á
bragöiö meögóöu marki, þegar
öster vann stórsigur, 4:1 yfir
Norrköping i „Allsvenskan” I
Sviþjóð — og með þessum sigri
skaust öster upp á toppinn, þar
sem Malmö tapaöi óvænt 1:2
fyrir neösta liöinu, VSsterás.
österog Malmö eru meö 21 stig,
en öster hefur betri markatölu.
Kalmar er I þriöja sæti — 18
stig.
Teitur er meö markahæstu
leikmönnum I „Allsvenskan” —
hefur skoraö 9 mörk.