Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2006, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 22.08.2006, Qupperneq 47
Stórleikararnir Matt Dillon og Marisa Tomei eru væntanleg hing- að til lands í næstu viku á vegum IFF - kvikmyndahátíðarinnar sem hefst 30. ágúst. Hollywood-stjörn- urnar verða viðstaddar frumsýn- ingu kvikmyndarinnar Factotum sem þau leika bæði í en þetta verð- ur opnunarmynd hátíðarinnar. Leikstjórinn Bent Hamer mun einnig koma til landsins auk fram- leiðanda myndarinnar, Íslands- vinarins Jim Stark, en hann fram- leiddi Á köldum klaka eftir Friðrik Þór Friðriksson. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins ætla þau Dillon og Tomei að dveljast fram yfir helgi hér á landi og verður þeim væntanlega boðið á Bessa- staði eins og öllum öðrum stór- stjörnum sem hingað koma í „opin- berum“ erindagjörðum. Factotum er byggð á sam- nefndri sögu hins heimsþekkta rithöfundar Charles Bukowski en aðalpersóna myndarinnar, Hank Chinaski, er lauslega byggð á ævi skáldsins. Chinaski er að reyna lifa af með því að vinna hin ýmsu skíta- störf svo lengi sem þau trufla ekki hans einu sönnu köllun, ljóða- og sagnaskrif. Á sama tíma þarf hann að berjast við annars konar truflanir í formi kvenna, drykkju og veðmála. Matt Dillon hefur lengi verið einn virtasti leikari Hollywood og á að baki kvikmyndir eins og The Outsiders, Rumble Fish og Crash en hann hlaut Óskarstilnefningu fyrir hlutverk sitt í síðastnefndu myndinni. Marisa Tomei fékk Ósk- arinn fyrir leik sinn í kvikmynd- inni My Cousin Vinny og hefur leikið í myndum á borð við Chapl- in, The Paper og Welcome to Sara- jevo. - fgg Stjörnufans á IFF MATT DILLON Hefur leikið í kvikmyndum á borð við Rumble Fish og Crash en hann leikur aðalhlutverkið í Factotum, opnunarmynd IFF. MARISA TOMEI Fékk Óskarinn fyrir leik sinn í My Cousin Vinny og hefur leikið í kvik- myndum á borð við Chaplin og The Paper. ÍSLEIFUR B. ÞÓR- HALLSSON Hefur veg og vanda af komu stórstjarnanna hingað til lands. Leikarinn Owen Wilson hótar að kæra alla þá sem saka hann um að vera valdur að skilnaði leikkon- unnar Kate Hudson. Aðeins nokkr- um dögum eftir að Hudson sagði frá skilnaði sínum og eiginmanns síns til sex ára, Chris Robinson, fóru af stað sögusagnir um meint ástarsamband hennar og Wilsons. Talsmenn leikaranna vilja ekki staðfesta orðróminn en fullvissa að Wilson hafi ekki átt neinn þátt í skilnaðinum. Wilson er búinn að ráða lögfræðing sem sér um að kæra alla þá sem halda öðru fram. Hótar að kæra OWEN WILSON Leikarinn hefur verið orðaður við leikkon- una Kate Hudson sem skildi á dögunum við mann sinn til sex ára. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS Hljómsveitin Jakobínarína mun halda tónleika í King´s College í London þann 12. september næst- komandi ásamt sænsku hljóm- sveitinni Love is All og Tilly and the Wall frá Bandaríkjunum. Allar þessar sveitir munu koma fram á Iceland Airwaves-hátíðinni sem verður haldin í áttunda sinn dag- ana 18. til 22. október og eru tón- leikarnir hugsaðir sem kynning á hátíðinni. Bera þeir yfirskriftina A Taste of Iceland Airwaves, eða Forsmekkurinn af Iceland Airwa- ves. Á meðal annarra hljómsveita sem hafa boðað komu sína á hátíð- ina eru Kaiser Ciefs, The Go! Team, Brazilian Girls og The Cribs. Upphitun í London JAKOBÍNARÍNA Hafnfirska hljómsveitin Jakobínarína spilar í London þann 12. september. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Nýjasta smáskífulag stúlknasveit- arinnar Nylon, Closer, fer í útvarpsspilun bæði hér á landi og í Bretlandi á fimmtudag. Þetta er annað smáskífulag Nylon en lagið Losing a Friend naut mikilla vinsælda hér á landi og náði auk þess 29. sæti breska vin- sældalistans. Fór sá árangur fram úr björtustu vonum sveitarinnar. Áætlað er að ný plata frá Nylon komi út þann 23. október. Ný smáskífa frá Nylon NYLON Nýjasta smáskífulag Nylon nefnist Closer. Poppkorn er ekki bara gott, það er líka fallegt. Ef þú átt nál og tvinna er lítið mál að búa til flotta perlufesti. Gerðu mikið úr litlu! F í t o n / S Í A 2 fyrir 1 í Sambíóin alla þriðjudaga  Skráðu þig í Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins og þú færð Bíókort – 4 x frítt í bíó og margt fleira.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.