Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 11. október 1978 3 Geir Hallgrfmsson: „Stjórnin hefur eng- an vanda leyst — miklu fremur aukið þann vanda sem fyrir var” HEI — „Ég tel mörg mjög mikiivæg verkefni liggja fyrir þessu þingi, þótt enn sem fyrr hljóti efnahagsmálin að gnæfa yfir önnur mál” sagði Geir Hallgrimsson eftir setningu Alþingis I gærdag er hann var spurður hvernig honum litist á nýbyrjað þing. —„Ég tel að núverandi rfkis- stjórn hafi ekki leyst neinn vanda, miklu fremur aukið við þann vanda sem fyrir var með þeim hætti að hann verði erfiðari og erfiðari viöureignar eftir þvi sem timinn líður. Þess vegna hlýtur að koma til kasta þingsins, að fjalla um þessi mál, ekki eingöngu hvað snertir bráðabirgðalög rlkisstjórnar- innar og fjárlög heldur og þann vanda I heild, sem viö er að glima. Auk þess er nauösynlegt að við hyggjum að mörgum öðrum málum sem þjóðina varða miklu. —Reiknar þú með átökum á þessu þingi? —Ég skal engu spá um það. Við sjálfstæðismenn munum veita ákveðna en jákvæöa stjórnarandstöðu. —En helstu mál sem þiö munuð berjast fyrir? —Þau koma I dagsljósið eftir þvi sem timar líða. Ólafur Jóhannesson: Eins líklegt að þeir vilji láta á sér bera... — ungu þingmennirnir HEI — „Þetta þing leggst nú bara sæmilega i mig", sagði Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráöherra eftir setningu Alþingis i gærdag. — Helstu málin verða efna- hagsmál, fjárlögin svona eins og venja er fram undir jólin, bráðabirgðalögin og fleira. — Býst þú viö aö þetta þing veröi óvenju fjörugt? — Það er ekki gott að vera með spádóma um það fyrir- fram. Að visu koma núna óvenjulega margir nýjir menn, en maður veit ekki hvernig það verkar. Ef til vill verða þeir hægari en þeir eldri, en þó er einsliklegt að þeir vilji láta eitt- hvað á sér bera. — En stjórnarandstaöan? — Ég á ekki von á aö hún fari á staö meö neinum ósköpum, heldur taki þetta málefnalega. — Nú sagöi Geir Hallgrimsson hér rétt áöan aö rikisstjórnin heföi engan vanda leyst, miklu fremur aukiö hann. — Já. já, þá er botra fyrir hann aö fara varlega, ef stjórnin skyidi lenda á honum innan tiöar. Benedikt Gröndal: Ávonávið- burðariku, fjörugu og skemmti- legu þingi HEI — „Þetta er mjög merki- legt þing eins og fram hefur komiö eftir kosningar og miklar breytingar á skipan þingliðsins og styrkleika flokka, svo þaö er aö sjálfsögöu forvitni um hvernig þaö muni starfa” sagöi Benedikt Gröndal, utanrfkis- ráöherra aö loknum fyrsta fundi Alþingis í gær. „Eins og mörg önnur þing þá mun það sjálfsagt eiga erfiöast með efnahagsmálin, en ég tel að það sé ekkert sem heitir, að rikisstjórnin verði að taka fast á málunum og ná valdi á þeim, þótt of snemmt sé að spá nokkru um árangur af þvi. I stjórnarsáttmálanum er fjölda margt af fyrirheitum um þjóðfélagsbreytingar til hins betra og hreinsun á þvi sem okkur finnst vera óhreint i islensku þjóðlifi. En ég vænti þess að rikisstjórnin láti ekki efnahagsmálin kaffæra sig alveg heldur gefi sér tima til að sinna þessum umbótamálum. Að hún vinni að þvi að gera þjóðfélagiö frjálsara, réttlátara og að draga úr öllum sérrétt- indum. Ekki sist að hún geti unnið gegn skattsvikum og öðru sem veldur sundrungu meöal manna. Ég á von á þvi að nýju þing- mennirnir muni verða mjög starfsamir og róttækir. Þeir munu ekki láta binda sig flokk- Framhald á bls. 19. Hjörleifur Guttormsson: Sé hér hinn ágætasta hóp manna SS — „Ég býst viö þvf, aö framan af veröi þaö efna- hagsmálin og I þvi sambandi þau bráöabirgöalög sem sett hafa veriö, sem umræöur hér á Alþingi munu einkum standa um. Ég á von á því, aö rlkis- stjórnarandstaöan hafi sitt- hvað viö bráöabirgöalögin aö athuga”, sagöi Hjörleifur Guttormsson iönaöarráöherra i samtali viö Timann 1 gær aö lokinni setningu Alþingis. ,,Þá má búast við að ýmis mál, sem stefnumið ríkis- stjórnarinnar gera ráð fyrir að unnið verði að, setji svip á þetta þing. t þvi ráðuneyti, sem ég veiti forstöðu er nú unnið að undirbúningi ýmissa mála og ég vonast til að geta lagt fram á næstunni stefnu- markandi þingsályktunartil- lögu um iönþróun.” Um stutta veru sina á Alþingi sagöi Hjörleifur: „Mér likar hér ágætlega þaö sem af er. Ég þekki ýmsa sem hér eiga sæti og sé hér hinn ágætasta hóp manna. Þaö má segja aö það sé einkennileg til- finning að setjast hér á ráð- herrastól, nú þegar ég tek sæti á Alþingi i fyrsta sinni.” Páll Pétursson: Vona að þetta verði brúklegt samstarf SS — „Sjálfsagt mun efnahagsmálin bera hæst á þessu þingi þegar fram i sækir. Kringumstæðurnar i þeim efnum eru ekki mjög þægilegar” sagði Páll Pétursson þing- maður Norðurlands- kjördæmis vestra i samtali við Timann eftir setningu Alþingis i gær. „Fyrstu dagana a.m.k. má búast bið þvi, að ýmis mál hverfi i skuggann af frum- vörpum, sem ráðherrarnir væntanlega luma á.” Um stjórnarsamstarfiö sagði Páll: „Ég vona aö þetta veröi brúklegt samstarf hjá stjórnarflokkunum og ef menn leggja sig fram, þá má ráöa einhverja bót á þeim efnahags- vanda sem við er að glima. En þetta tekst ekki nema með góðvild og samhug.” Veiðileyfis- gjafi Kirkju- fellsvatns: Var að verja vatnið vanveiði Sovétmennirnir viö veiöarnar meöan allt lék I lyndi Kás — Fyrir viku slöan var frásögn hér I Tlmanum, prýdd ágætis myndum, af sovéska sendiherranum og fylgdarliöi, þar sem hann var viö ólöglegar veiöar I Kirkjufellsvatni á Fjalla- baksleiö. Fylgdi þaö fréttinni, aö Rússarnir töldu sig vera aö veiöa þarna I sátt viö lög, enda meö veiðileyfi sem heimilaöi þeim veiöarnar. Veiöileyfiö var gefiö út af Islenskum aöila. Þaö kom hins vegar i ljós viö nánari athugun, að enginn má veiða i þessu vatni nema Ibúar Holta- og Landmannahrepps, þar sem ekki hefur verið stofnað veiðifélag um veiðiréttindin i vatninu. En Kirkjufellsvatn ligg- ur á mörkum tveggja sýslna, þ.e. Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallarsýslu. Hitt liggur einnig fyrir, að Sovétmennirnir eru búsettir i hvorugum þessara hreppa, þannig að auð- sætt er að hér er um veiðilagabrot að ræða. Þegar Timinn hafði tal af um- ræddum aðila, sem undirskrifað hafði veiðileyfi þeirra austan- tjaldsmanna, viðurkenndi hann að hér hefði verið um mistök aö ræða af hans hendi. Hann hefði ekki neitt leyfi til útgáfu veiðileyfisins. Að gefnu tilefni sagði hann ekki heföi komið til neinnar greiðslu fyrir leyfið. Það sem fyrir honum hefði vakið, væri aðeins að verja vatnið vanveiöi, en hún væri núna að eyðileggja vatnið. Guöni Kristjánsson, bóndi I Skarði á Landi, hefur sagt i viðtali viö Timann, en hann er hreppstjóri Landmannahrepps, að geröar hafi veriö ráöstafanir til þess aö atvik sem þetta endur- taki sig ekki. Af öllum málavöxtum þessa máls er augljóst að brýn nauösyn er til þess, að sem fyrst verði stofnað veiðifélag um veiðirétt- indi vatnsins. A.m.k. virðist þaö skásta leiðin til að verja vatniö björgunarleiðöngrum útlendinga (þ.e. vegna vanveiöi) um næstu framtið. Ef veiðifélag yröi stofn- að, fengju þeir að minnsta kosti að borga fyrir þá björgun

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.