Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 15
Miövikudagur 11. október 1978
15
Dwyer út af og
þá small Vals-
liðið saman
Valur Reykjavikurmeistari í körfu
eftir 91:83 sigur yfir Fram
Valsmenn urðu i gær Reykja- Framarar voru ákaflega
vikurmeistarar í körfuknattleik taugaóstyrkir i byrjun leiksins og
er þeir sigruöu Framara nokkuö áður en varði höfðu Vaismenn
örugglega 91:83 eftir aö staðan komist i 9:0. Framarar smásöx-
haföi veriö 42:38 Val í hag i hálf- uöu á forskot Valsmannanna og
framarar taka „tima” og skipuieggja leik sinn. Johnson er lengst til
vinstri á myndinni.
leik. Það, sem gerði sigur Vals-
manna enn eftirtektarverðari, en
Framarar voru álitnir mun sigur-
stranglegri fyrir leikinn, var aö
Tim Dwyer, Bandarikjamaöur-
inn i liði Vals, varð aö fara út af
snemma i seinni hálfleik meö 5
villur. Valsmenn léku þvi án hans
það sem eftir var leiktimans, en
þaö kom ekki aö sök þvi leik-
mennirnir léku bara af helmingi
meiri krafti og ákveöni en áöur.
bilið varð aðeins þrjú stig 14:17
fyrir Val. Omar Þráinsson átti
stórleik i fyrri hálíleiknum og
hann náði forystu fyrir Fram i
fyrsta skiptið i leiknum — 28:27.
Framarar náðu siðan fjögurra
stiga forskoti 33:29, en Valsmenn
sigu siðan fram úr og höfðu náð
fjórum stigum yfir þegar flautað
var til hálfleiks — 42:38.
Það var greinilegt strax i upp-
hafi seinni hálfleiks, að Framar-
EKKERT AFRAÐIÐ
—Þaö hefur enn ekkert veriö ákveðið i sambandi við
Pétur sagði faðir hans Pétur Elísson er blm. hitti hann
að máli á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi. Pétur viidi sem
allra minnst um málið segja# en greinilegt var að ekki
voru menn komnir að niðurstöðu því ýmist hristu þeir
feðgar höfuðið eða þá P. Stephan frá Feyenoord.
Greinilegt er á öllu að Pétur Pétursson hyggst ekki flana að neinu og
vill hafa allt ,,á hreinu” i sambandi við félagaskiptin. Liklegt er þó, að
hann gangi að tilboði Feyenoord seinna i vikunni, en allt er óráðið enn.
—SSv—
ar ætluðu að selja sig dýrt. Þegar
staðan var 46:42 Val i hag varð
Dwyer að yfirgefa leikvöllinn og
var þá kátt i herbúðum Framara,
enda töldu menn sér sigurinn vis-
an. En þvi var ekki til að dreifa
Framarar náðu að jafna metin og
komast yfir 50:48 og 56:53, en
Valsmenn hleyptu þeim aldrei
langt frá sér. Þegar staðan var
60:60 kom sá kafli i leiknum sem
skipti skopum. Á meðan Framar-
ar skoruðu aðeins tvö stig bættu
Valsmenn 12 við og staðan var
skyndilega orðin 62:72 Val i hag
og leikurinn i raun unninn fyrir
Valsmenn. Eftir þetta skiptust
liðin á um að skora, en Framarar
ógnuðu aldrei sigri Vals i lokin og
fögnuður Valsmanna var mikill
þegar flautað var til leiksloka.
Þeir höfðu sigrað Fram 91:83 og
leikið án Dwyers megnið af seinni
hálfleiknum. Vissulega athyglis-
verð frammistaða.
Framarar náðu sér aldrei
almennilega á strik og munaði
þar mestu um að Johnson réð
ekki við Dwyer, en Dwyer virtist
þegar búinn að læra á öll brögð
Johnson og hann stöðvaði skot
hans iðulega i fæðingu.
Stigahæstur Framara var að
venju Johnson — nú með 41 stig.
Ómar Þráinsson skoraði 12 stig
og átti stórgóðan fyrri hálfleik, en
datt nokkuð niður i þeim siðari.
Simon Ólafsson skoraði 9 stig,
Þorvaldur Geirsson og Þórir
Einarsson 5 hvor og Björn Jóns-
son 4.
Valsmenn léku þennan leik,
sem ein liðsheild og byggðu ekki á
einstaklingsframtakinu eins og
Framarar og það reyndist þyngst
á metunum þegar upp var staðið.
Eftir að Dwyer fór útaf, blómstr-
uðu menn eins og Kristján
Agústsson og Þórir Magnússon,
sem var i banastuöi i seinni hálf-
leiknum og sýndi gamalkunn til-
þrif. Stigahæstir Valsmanna voru
þeir Þórir og Kristján með 20 stig
hvor. Dwyer skoraði 18. Torfi
Magnússon skoraði 10, Rikharður
'Hrafnkelsson 8, Hafsteinn
Hafsteinsson 6 og Lárus Hólm 5.
— SSV —
Tim Dwyer skorar hér örugglega gegn Fram
LÉLE6 VÍTAHITTNI
Þaö vakti athygli undir-
ritaös á leik Vals og Fram i
gærkvöldi að vitahittni leik-
manna var ekki meö neinum
glæsibrag. Framarar fengu 38
vitaskot, en hittu aðeins úr 20
þeirra. Johnny Johnsson fékk
alls 19 vitaskot i leiknum og
hitti úr 15 þeirra, sem er um
75% nýting. Aðrir leikmenn
voru flcstir með herfilega
nýtingu.
Hjá Valsmönnum kom Þórir
Magnússon langbest út,
skoraöi 8 sinnum úr 9 skotum.
Sýnu verst að ráöi sinu fór
Hafsteinn ilafsteinsson, sem
fékk 10 vitaskot og skoraöi
aöeins úr 2. Alls fengu Vals-
menn 50 vitaskot og hittu úr
29. Ekki veitti af að leikmenn
legöu meiri rækt viö vita-
skotin.
—SSv—
Flugleiðír sigruðu 1 firmakeppni KR
Sigurliö Flugleiöa í firmakeppni KR
Firmakeppni KR lauk nú um siö-
ustuheigi. Niu lið höföu tryggt sér
rétt til aö leika i úrsiitakeppninni
og uröu þvi tvö fvrirtæki aö kljást
I einskonar forkeppni fyrir úr-
slitakeppnina. Þaö kom f hlut As-
fells (sem var skipuð 7 FH-ingum
, 8 leikmenn alls) og Endurskoð-
unarskrifstofu Björns E. Arna-
sonár aö bítast um 8. sætiö i úr-
slitunum. Ásfell sigraði eftir
haröa keppni.
íáttaliða úrslitunum sigraði lið
Kristjáns Ó Skagfjörð Trésmiðju
Reykjavikurborgar 5:0, Flugleið-
ir gengu örugglega frá Sements-
verksmiöju Rikisins 4:0, Shell
vann Málun naumlega 1:0 og
Asfell vann Sláturfélag
Suðurlands 4:3 i hörkuleik.
Voru þá aðeins 4 lið eftir. Asfell
vannliðKristjáns Ó Skagfjörð 3:2
i spennandi leik og Flugleiðir
tryggöu sér hitt úrslitasætið með
öruggum 3:0 sigri yfir Shell.
Var þá komið að úrslitaleiknum
ámilli Flugleiðaog Asfells. Asfell
með alia sina FH-inga hafði
aldrei roð við bráðsnöggu og
skemmtilegu liði Flugleiða, sem
hafði Þorberg Atlason i markinu
oglokatölururðu3:0Flugleiðum i
hag. Flugleiðamenn höfðu eins og
best sést á tölunum algera yfir-
burði i mótinu og fengu ekki eitt
einasta mark á sig i keppninni,
sem er glæsilegur árangur, ekki
sist þegar tekið er tillit til þess að
leikið var á litlum velli.
Sigurvegararnir fengu vegleg-
an bikar að launum, en það er
farandgripur, en auk þess fékk
liðið minnibikar tileignar og allir
leikmenn fengu fallega
verðlaunapeninga. Lið Asfells
fékk einnig bikar til eignar og
leikmenn þess verðlaunapeninga.
I leiknum um þriðja sætið I mót-
inu sigraði lið Kristjáns Ó Skag-
fjörð lið Shell nokkuð örugglega
4:2 og fengu KÓS-menn einnig
eignarbikar.
Firmakeppni KR var einn alls-
herjar „success” og óhætt er að
segja að þetta framtak KR-inga
hafi verið vel þegiö af öllum, eins
og best kom fram á þátttökunni.
KR-ingum er mikill sómi að
mótinu og æskilegt er, að mót
þetta veröi árlegur viðburður.
Ekki spillti það fyrir að allt
skipulag var eins og best var á
kosið.og verðlaunin voru vegleg
og ekki af lakari endanum. Til
hamingju, KR-ingar, með
frábærlega vel heppnaö mót.
—SSv—