Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 14

Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 14
14 Miðvikudagur 11. október 1978 Fóstra eða þroskaþjálfari óskast til starfa strax að dagheimilinu Selásborg. Einnig óskast starfskraftur til barnagæslu. Upplýsingar gefur forstöðukona i sima 84816, eftir hádegi. Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöð — sjúkrahús Egilsstöðum óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra frá og með 1. jan. 1979 eða eftir samkomulagi. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist formanni sjúkrahús- stjórnar Guðmundi Magnússyni sveita- stjóra Egilsstöðum fyrir 15. nóv. 1978. Keflavík Timinn óskar eftir að ráða umboðsmann fyrir blaðið i Keflavik. Upplýsingar i sima 92-1373 eða hjá af- greiðslustjóra i sima 86300 Reykjavik. Vélstjóri Fyrirtæki í fóðurvörum óskar að ráða vélstjóra með vélvirkjaréttindi: Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Góðir stjórnunarhæfileikar nauðsynlegir. Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist blaðinu fyrir 17. þessa mánaðar, merktar, „Vélstjóri”. RÍKISSPÍTALARNIR :l(\usar stöður LANDSPITALINN Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við handlækningadeild spitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist til eins árs frá 1. jan. 1979. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital- anna fyrir 10. nóv. n.k. Upplýs- ingar veita yfirlæknar deildar- innar. KÓPAVOGSHÆLI STARFSFÓLK óskast til vakta- vinnu á deildum-Starfið gæti reynst hentugur undirbúningur undirnám á félagssviði. Upplýsingar veitir forstöðumaður i sima 41500. Reykjavik, 10.10.1978. SKRlFgTÖFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000 Knattspyrnu- menn settir í átthagafj ötra Nú siðustu daga hafa félaga- skipti ungra knattspyrnumanna til eriendra félagsliða verið mikið í sviðsljósinu og hafa forráöamenn félaga, eins og Vikings og Vals staðið sigri hrósandiyfir þvi, að þeir fengu góðar peningasum mur frá belgfska félaginu Lokeren, — „fyrir að hafa alið upp knatt- spyrnumenn þá”, sem hafa skrifað undir atvinnusamning við þetta belgiska félag. Viking- ur fékk 6-8 millj. fyrir Arnór Guðjohnsen og Vaiur fékk 700 þús. krónur fyrir Skotann James Bett, sem náði þvi að ieika 11/2 leik með Valsliðinu i sumar. Vikingurog Valur samþykktu ekki félagaskipti hina ungu leik- nanna sinna, sem vildu freista gæfunnar erlendis, fyrr en félögin voru búin að fá dágóðar peningaupphæðir fyrir. Það hef- ur komið fram, að aðalástæðan fyrir þvi að félögin fóru fram á peningagreiðslur, væri að þau ættu rétt á að fá greiðslur fyrir beinan kostnað, sem þau hafa þurft að greiða fyrir æfingar, þjálfun og fleira, sem viðkom leikmönnunum. Félög geta engar kröf- ur gert Óneitanlega kemur þetta sjónarmið spánskt fyrir sjónir, þvi að þegar að er gáð eru leik- mennirnir aðeins áhugamenn og á engan hátt skuldbundnir þeim félögum, sem þeir æfa og leika með — þeir borga sín árs- gjöld og þeim er frjálst að fara hvert sem þeir vilja, án þess að félögin geti lagt stein I götu þeirra á nokkurn hátt og orðið þannig þröskuldur fyrir fram- tiðaráætlanirþeirra, með þvf að neita þeim um aö samþykkja félagaskipti, þegar þeir fara fram á það. Leikmenn fórna sér fyrir félög sin Forráðamenn félaganna eru alltaf aö hamra á þvi, að félögin hafi greitt svo og svo mikinn kostnað við þjálfun leikmanna. A sama tima gleyma þeir hvað miklum peningum og fritímum leikmennirnir hafa fórnað á knattspyrnuferli sinum — fyrir félögin sfn. Þessu hafa forráða- menn félaganna lokaö augunum fyrir. Þegar að er gáð, þá fórna knattspyrnumenn okkar mörg hundruð þúsund krónum á ári hverju fyrir félögin sin. Þeir sleppa aukavinnu á vinnustöö- um sinum og þar að auki eru leikmenn alltaf að biðja vinnu- veitendur um fri — i tima og ótima, til að geta æft og keppt fyrir hönd félaga sinna um land allt og jafnvel erlendis. Fyrir utan þetta eru leikmenn jafnvel að byggja yfir fjölskyld- ur sínar og eru þá oft i stór- skuldum. Langtimum saman að heiman Það bitnar óneitanlega mikið á fjölskyldum leikmanna, þegar þeir æfa og leika knattspyrnu — leikmenn eru sjaldan heima hjá sér, þvi að þeir fara beint úr vinnu á æfingar hjá félögunum og koma ekki heim til sin fyrr en seint á kvöldin — þetta 4-5 sinn- um i viku, og siðan eru þeir aö pp fi'i i ^JSr §1 SÉS '‘V'i ARNÓR GUÐJOHNSEN... hefur gefiö þá yfirlýsingu, aö hann muniaidreiklæðastfélagsbúningiVIkings aftur, eftir framkomu félagsins við hann. Víkingar græða 6-8 millj. króna fyrir þennan unga leikmann, sem þeir segja aö séu „skaöabætur”!!! Víking- ar hijóta að vera ánægöir þessa dagana. Við horn- fánann leika með félögum sinum um helgar og eru langtimum saman að heiman frá konu og börnum — oft á erfiðum timum. Já, knattspyrnumenn okkar stunda erfiða „kvöldvinnu” á félags- svæðum félaganna, án þess að fá borgað fyrir — koma slðan heim til sin seint á kvöldin, yfir sig þreyttir. Leikmenn þurfa jafnvel að fara langan veg til að komast á æfingar — úr Breiöholti, frá Kópavogi og Hafnarfirði. Þeir ferðast þetta 15-20min. til og frá æfingastað, án þess að fá túskilding fyrir. Eitt sinn sagði kunnur Iþróttamaður við undir- ritaðan, að ofthafi hann hugsað, hvort allt þetta, sem menn leggja á sig fyrir íþróttina, sé árangursins virði. Einkennilegur hugs- unarháttur NU er viðhorf félaganna gagn- vart félagsmönnum öðruvísi en áður var — þegar mönnum voru þökkuð hin fórnfúsu störf þeirra, til að halda merki félaganna á lofti. Hugsunarhátt- urinn er nú sá hjá forráðamönn- um félaganna, að leikmenn eigi að koma til þeirra að þakka þeim fyrir, að hafa mátt mæta á æfingar og fengið að vera með. Leikmönnum er frjálst að fara hvert sem þeir vilja, án þess að félög reyni að leggja stein i götu þeirra. Það hefur oft komið fram, að leikmenneru ekkert á móti þvi, að félög þeirra fá peninga frá þeim erlendu félögum, sem þeir fara til — en þeim er ekki sama hvernig er unnið að málunum. Þá eru þeir orðnir leiðir á þvi, að forráðamenn félaganna séu sifellt að hamra á þvi, hvað félögin hafa gert mikið fyrir leikmennina, á sama tíma og þeir minnast ekkert á, hvað leikmennirnir hafa gert fyrir félögin. Þaðværi ekkertfélag til hér I landi, ef enginn leikmaður værii'þeim —og það erufélögin sem þrlfast á leikmönnum, en ekki leikmennirnir á þeim. Farið með menn eins og dauða hluti Það er nú orðið svo hér á landi, að leikmenn mega ekki skreppa i sumarfrí með eiginkonum sinum þegar þeim hentar og ef þeir gera ekki það sem forráðamönnum félaganna er að skapi, eru þeir settir i leikbann og forráðamennirnir hringja jafnvel til fréttamanna dagblaðanna, til að básúna það út a ð þessi og þessi leikmaður sé ileikbanni, fyrir þaðað þeir hafi ekki hegðað sér eins og þeir viidu. Iþróttamenn okkar eru komnir iátthagafjötra og þaðer byrjað aö fara með þá eins og dauða hluti, en ekki eins og áhugamenn, sem æfa og leika sér til gamans og ánægju. —SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.