Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.10.1978, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 11. október 1978 7 Skapanornir á Skriðuklaustri Páll Sigbjörnsson, Skriðuklaustri Þorsteinn Kristjánsson Jökulsá og Sigurjón Friðriksson Ytri-Hlið hafa skrifað greinargerð i Tím- ann um hugsjónir sinar og starfeaðferðir i jarðanefnd. Það er auðvitaðhverjum manni ljóst að þeir eru þar aðeins að bera I brestina og bjarga orðstirnum og það er svo sem meinalaust af okkar hálfu ef þeir telja sig hafa erindi sem erfiði. Okkur er það ekkert fagnaðarefni að standa i orða- skaki við þá félaga, en nií ber tvennt til. Annarsvegar skal á það bent, að jarðalögin nýju eru svo óljós um margt og reglugerð ekki til, að vinnubrögð jarðanefnda um land allt munu smám saman móta vissar venjur, sem siðan verða viðteknar hefðir sem stuðst verður við I málaferlum siðar meir. Jarðanefndir eru semsagtað móta lög framtiðar- innar, og þessvegna er brýn nauðsyn að ágallar fyrirkomu- lagsins komi berlega i ljós sem allra fyrst. Hinsvegar kemur það lika til, að okkur er ekki skapfellt að gera endasleppt við þá félaga i jarðanefnd, eftir allt sem á und- an er gengið, og við sjáum ekki neina ástæðu til að láta þá kom- ast upp með fyrirslátt og rang- indi til þess eins að bjarga sjálf- um sér Ur slæmri klipu. Siðareglur sveitar- öidunga Greinargerð þrimenninga hefst á klausu, sem er svo athyglisverð að við látum hana fylgja hér óbreytta: „Verkefni jarðanefnda er i stórum dráttum það, að leggja framálit sittá þvihverniglandi og jörðum, sem lausar eru til sölu og leigu, er best ráðstafað, með tilliti til hagsmuna heildar- innar, sem seljendur og leigjendur þurfa að taka tillit til. Nefndin getur ekki vikist undan þessari skyldu, en verður að taka afstöðu. Til að rækja það starf af sanngirni, hljóta nefndarmenn að skapa sér ákveðna stefnu i vinnubrögðum, sem mótar afstöðu til málefna almennt, ogþannig grundvöll að afstöðu til einstakra mála. Höfuðskilyrði til óvilhallrar álitsgerðar er að losa sig undan persónulegu 'viðhorfi til þeirra sem I hlut eiga i hverju tilfelli, og láta háværar áróðursher- ferðir hlutaðeigandi aðila sem vind um eyrun þjóta.” Viö endurbirtum þessar gullnu siðarreglur Þorsteins, Páls og Sigurjóns ekki aðeins vegna þesshveljúflega þær láta ieyrum. Þær eru lika skynsam- legar um margt og betri grund- völl að góðu og heiöarlegu trúnaðarstarfi er tæplega hægt að hugsa sér. Það er þessvegna með ólíkindum hvernig þeir hafa þverbrotið gegn sinum eigin siðareglum, og það svo herfilega að ekki er alveg ljóst, hvers vegna þeir eru að hampa þeim svona eftir á með föður- legu látbragði. t fyrsta lagi: Þeir telja verkefni jarðanefnda vera það, aðtjá sig um lönd og jarðir, sem laus eru til sölu og leigu. Þessi túlkun er eflaust ekki fjarri sanni, en f Hofteigsmáli fóru þeir langt út fyrir þennan ramma, og reyndu að hafa jarðarhluta I fullri ábúð undan lögmætum ábúanda. í öðru lagi: Alltaf hefur það yfir sér einhvern hugþekkan hugsjónablæ þegar menn fara að tala um hagsmuni heildar- innar og fórna jafnvel hags- munum einstaklinganna fyrir æðri markmið. En hugsjónir Svar til jarðanefndar Norður-Múlasýslu þær og ajðri markmið sem rætt var um yfir kaffinu á Skriðuklaustri voru nú ekki al- veg eins tárhrein og háleit og orðin ein gefa til kynna. Sú heild sem hér um ræðir og þremenn- ingarnir börðust fyrir með öll- um tiltækum aðferðum, er hvorki þjóðarheildin sjálf eða landsfjórðungurinn, ekki heldur Norður-Múlasýsla, ekki einu sinnihreppsfélagið litla á Jökul- dal, heldur hagsmunahópur rúmlega tiu bænda af þrjátiu og fjórum sem dalinn byggja. Og illum gerningum undir fögrum orðum. Álit hreppsnefndar Þrimenningarnir gera þvi skóna, að jarðanefnd hafi orðið að velja á milli hagsmuna Jökuldalshrepps og ábúanda Hofteigs. Þarna á sýnilega að gera málstað ábúanda mjög tortryggilegan fyrir lesendum Timans, og gefa I skyn að hann standi á einhvem hátt I vegi fyrir framförum i dalnum. Björg | Gunnar Karlsdóttir | Karlsson segir i bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytis til Karls Gunnarssonar bónda i Hofteigi frá 2. des. 1967: „Ráðuneytið staðfestir hér með, að að fengnum tillögum héraðsprófasts hefur það fallist á að veita yöur ábúð á kirkju- jörðinni Hofteigi I i Jökuldals- hreppi i Norður-MUlasýslu, frá Hofteigur á Jökuldal maður sá sem átti að hlunnfara er enginn ofrikismaður i héraði, heldur bóndi sem erjað hefur jörð sina i friði I rúman þriðjung aldar. Þegar settar eru fram hug- sjónakröfur um hagsmuni heildarinnar gegn hagsmunum einstaklinga, þáeralla jafna átt viö einstaklinga innan þessara sömu heildar, en ábúandi Hof- teigs hefur aldrei verið þátt- takandi i Ræktunarfélaginu og aldrei haft nein skipti við þá félaga sem veiti þeim nokkurn rétt til að ásælast land hans. i þriðja lagi: Alveg er það dásamlegt þegar menn einsetja sér að rækja störf sin af sann- girni, losasig undan persónuleg viðhorfi og semja óvilhallar álitsgerðir. En hvers konar sanngirni er það, að flæma mann af jörð sinni eftir þrjátiu og fjögurra ára búsetu? Hverskonar losun undan persónulegu viðhorfi er það, þegar jarðanefnd rekur erindi hagsmunasamtaka rúmlega tiu manna en lætur undir höfuð leggjast að leita álits þess manns sem átti að gjalda þess dýru verði? Og hverskonar óvifiiöll álitsgerð er það, sem halda verður vandlega leyndri i hálft ár til þess að ábú- andi geti ekki borið hönd fyrir höfuð sér? Ónei, Þorsteinn, Páll og Sigurjón! Það lætur enginn blekkjast af fagurgala ykkar. Þvi sannleikurinn er auðvitað sá, að siðareglur ykkar eru þá fyrst samdar og settar á prent jxigar allt er komið i hönd, hrottaskapur ykkar kominn I hámæli og þörfin.brýn að skýla Þetta er vitanlega alveg út i bláinn, og þeim hefði veriö nær að kynna sér fundargerð hreppsnefndar Jökuldals 3. ágúst 1977, en þá samþykkti hún að mæla með skilyrðislausri sameiningu jarðanna til handa ábúanda, en lögöust gegn nokk- urri skerðingu á hagsmunum hans. Nú I sumar ámálguðu Ræktunarfélagsmenn við hreppsnefnd að fá land úr Hof- teigi, en þvi var aftur visað til föðurhúsanna. Þessar aðdróttanir þrimenn- inganna eru ekki aðeins mjög ruddalegar i garð ábúanda. Þær sýna lika mjög vel hve fjarlægt það var þeim að kynna sér málavöxtu og bUskaparhætti I Hofteigi, enda hafa þeir ekki haft nein skipti við ábUanda á seinni árum, ef frá er talinn hrUtur sá er Páll ráðunautur seldi honum til að nýta við ær sinar. En þegar á skyldi herða reyndist hrUturinn ónýtur, og næst þegar ráðunauturinn riður um Jökuldal til þess að rækja störf sin með sanngirni og útbý'ta óvilhöllum álitsgerðum, þá er best að hann lfti við i fjárhúsunum i Hofteigi og hirði þar hrútinn Skalla. Eyöibýli myndast yfir kaffibollum Þremenningarnir kalla Hof- teig I eyðibýli I greinargeröinni, sennilega samkvæmt spánnýrri skilgreiningu yfir kaffibollunum á Skriðuklaustri. En orðrétt fardögum 1968”. Við viljum taka strax af öll tvimæli um þetta atriði, þvi að þremenningarnir hafa alltaf grundvallað málflutning sinn á þeirri forsendu að Hofteigur I sé eyðibýli, en sannleikurinn er sá að Hofteigur á Jökuldal'hefur verið i fullri ábúð allar götur frá landnámsöld. Misferli en ekki mistök 6. april 1977 semur landnáms- stjóri bréf stilað á jarðanefnd Norður-Múlasýslu ogsendirþað til Páls á Skriðuklaustri. Þar segir m.a. orörétt: „Landnám rikisins fer þess á leit við jarðanefnd N-Múlasýslu, aðhUn taki til afgreiðslu erindi Karls Gunnarssonar um sameiningu jarðanna...” En þegar nefndin heldur leynifundinn alræmda 16. júni 1977, þá er ekki vikið einu orði að þessuerindi, heldur er boriö upp allt annað erindi, nefnilega umsókn Ræktunarfélagsins um land úr Hofteigi, og hún er siðan samþykkt án þess að hafa minnsta samráð við ábúanda. Siðan er samþykktinni haldiö leyndri fyrir honum i hálft ár, meðan reynt var að kýla málið i gegn uppi i ráðuneyti. En þessi atburðarás tekur stórkostlegum stakkaskiptum I frásögn þrimenninganna. Þeir láta aö þvi liggja, að landnáms- stjóri hafi að visu beðið Pál um umsögn hans á sameiningu Hof- teigs og hafi hann svarað þvi góðfúslega. Siðanhafi nefndinni orðið á þau smávægilegu mis- tök, sem þeim sé vissulega ljUft að játa, að henni hafði einhvern veginn láðst aö taka þetta til umræðu á fundinum. Þarna er um að ræöa svo hrikalega fölsun að engu tali tekur. Bréf landnámsstjóra er svo skýlaustog skorinort að þar getur enginn misskilið eitt eða neitt, ef hann er þá á annað borð læs og skrifandi á islenska tungu. Landnámsstjóri var ekki að biðja um álit Páls, heldur umsögn jarðanefndar, og fram- ferði hennar er þvi ekki nein minni háttar mistök, heldur vis- vitandi misferli. Páll hefur eflaust gripið til þessara ósanninda i trausti þess að okkur væri ekki kunnugt um hið sanna í málinu, en hann skal fá að vita það, að við höfum undir höndum ljósrit af öllum bréfum sem máli skipta og allur hans blekkingavaðall skal rek- inn öfugur ofan i hann jafnharö- Við höfum meira að segja ljósrit af bréfi hans til landnámsstjóra, og þar segir orðrétt: ,,Ég hefi meðtekið bréf landnámsins til Jarðanefndar Norður-MUlasýslu varðandi umsóknKarls Gunnarssonar...” Siðan segir i svari Páls til landnámsstjóra: „Engin bUstækkun hefur orðið i' Hofteigi II siðustu árin og þvi ekki þörf fyrir aukið jarðnæði það ég veit. Hofteigur er mjög stór jörð og hvor hluti um sig er fullgóð jörð fyrir eitt bú.” Ekkert sýnir betur en þessi litla klausa, hve vandlega ráðunauturinn hefur undirbúiö atlöguna. Hann gefur enn i skyn að Hofteigur I sé eyðibýli og talar um aukningu jarönæðis, þegar um er að ræða land sem ábúandi hefur nytjað til fulls i þrjátiu og fjögur ár og er að mikluleyti undirstaða búskapar hans. Og fyrir hver ja er hvor helm- ingur Hofteigs fullgóð jörð fýrir eitt bú? Ekki fyrir nútimabænd- ur og nútímabUrekstur, svo mikiðer vist.Þar að auki verður ekki séð að jarðgæði Hofteigs sé nein afsökun fyrir rangri máls- meðferð. Það skal enn itrekað, að vinnubrögð jarðanefnda munu smám saman móta venjur og hefðir sem dæmt verður eftir i framtiðinni. Það er þvi mikil- vægtað yfirvöldslái þvi föstu aö málsmeðferð jarðnefndar var frá upphafi andstæð öllum lög- um um almenn mannréttindi. Þrimenningar fárast mjög yfir „fráleitri kröfu” okkar um nýjan fund með varamönnum nefndarinnar. En krafan sú var ekki fráleitari en svo að hUn var komin fram aö ráði landnáms- stjóra, vegna þess að öllum var ljóst hvernig staðiö var að sam- þykkt leynifundarins á sínum tima. Svona menneigaekkiað móta lög og rétt þessa lands, og þeir eiga ekki að sitja lengur yfir kostum annarra eins og einhverjar skapnornir, sem hafnar eru yfir lög guðs og manna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.