Tíminn - 31.10.1978, Page 6

Tíminn - 31.10.1978, Page 6
6 mmm Þriðjudagur 31. október 1978 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvœmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjóru og' augiýsingar Si&umúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blabamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110. Áskriftargjald kr. 2.200 á mánuöi. Blaöaprent h.f. J Erlent yfirlit Völd Tengs virðast stöðugt fara vaxandi Hua virðist ekki eins traustur í sessi Skattalög Matthíasar Mathiesen Sjálfstæðisflokkurinn er nú aftur orðinn skatta- lækkunarflokkur. Sú var ekki tiðin, hvað snerti tekjuöflunarmál sveitarfélaga, þegar flokkurinn hafði meirihluta i borgarstjórn Reykjavikur. Sú var heldur ekki tiðin, þegar flokkurinn fór með fjár- stjórn rikisins i valdatið viðreisnarstjórnarinnar. Siðustu árin, sem hún fór með völd, var skattvisi- talan slitin úr sambandi við framfærsluvisitöluna og hvað eftir annað fölsuð á þann hátt til að hækka tekjuskattinn. Þessi var heldur ekki tiðin siðustu fjögur árin, þegar Matthias Matthiesen var fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. A siðasta þingi voru sett ný skattalög að frumkvæði Matthiasar og voru þau m.a. miðuð við það, að Sjálfstæðisflokkurinn yrði áfram i rikisstjórn. Þessi lög eru enn ekki komin til framkvæmda, en samkvæmt ákvæðum þeirra yrði bæði eignaskattur og tekjuskattur á fyrirtækjum hærri en nú, þótt reiknað sé með bráðabirgðalög- unum. Tómas Árnason fjármálaráðherra rakti þetta i ræðu, sem hann flutti þegar stefnuræða forsætisráðherra var til umræðu i þinginu. Fjár- málaráðherra sagði: ,,Þegar á heildina er litið er núverandi eignar- skattur að viðbættum eignarskattsaukanum skv. bráðabirgðalögunum léttbærariá atvinnurekstri en eignarskattur væri samkvæmt nýju skattalögunum, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði forystu um að setja á s.l. vetri. Nokkru erfiðara er að gera samanburð á skatt- lagningu atvinnurekstrarins samkvæmt núgildandi lögum auk bráðabirgðalaganna og nýju skattalög- unum, sem lagt verður á samkvæmt 1980. Skatt- hlutfall félaga er 45% af hreinum tekjum skv. nýju lögunum miðað við staðgreiðslu, en skv. núgildandi lögum 53% miðað við eftirágreiðslu næsta árs. Ljóst er, miðað við þá verðbólgu,- sem hér hefur verið, að þungbærara verður fyrir félög að greiða skatta skv. skattstiga hinna nýju skattalaga hátt- virts þingmanns Matthiasar Á. Mathiesen, en skattstíga núgildandi laga, og það jafnvel þótt 6% bráðabirgðalaganna verði bætt ofan á.” Ljóst er af þessari frásögn fjármálaráðherra, að eignarskattsgreiðendur myndu ekki hagnast, ef skattalög Matthiasar Mathiesen kæmu til fram- kvæmda. Sama er að segja um þá, sem greiða skatta af atvinnurekstri. Þannig hugsa Sjálfstæðismenn sér skattana aðra og hærri, þegar þeir reikna með að vera i stjórn, en þegar þeir eru komnir i stjómarandstöðu. Hver tek- ur slika stjórnarandstöðu alvarlega? Hinn Matthíasinn í greininni hér á undan, er vikið að Matthiasi Mathiesenog skattalögum hans. En svo er það hinn Matthiasinn, Matthias Bjarnason, sem einnig átti sæti i siðustu rikisstjórn. Þar var það verkefni hans að hlutast sérstaklega til um málefni aldraðs fólks. Nú flytur Matthias Bjarnason tillögu um að undan- þiggja aldrað fólk eignarskattshækkuninni. Á sið- asta þingi, þegar fjallað var um skattalög Matthias- ar Á. Mathiesen, mundi Matthias Bjarnason ekkert eftir gamla fólkinu þótt hann ætti þá sérstaklega að gæta hagsmuna þess. Svona snúast ýmsir stjórnmálamenn oft eftir þvi hvort þeir eru i stjórn eða stjórnarandstöðu. Þ.Þ. svo fyrsta tækifæri til aö snú- ast gegn þeim eftir fráfall Maos. Þaö voru þessir menn, sem raunverulega múnu hafa ráöiö úrslitum, þegar i odda skarst milli „þorparanna fjögurra” og hinna eldri og Ihaldssamari leiötoga kommúnista, en i þeim hópi munu flestir forustumenn hersins hafa veriö. Tækifæris- sinnarnir svonefndu fylktu sér þá um Hua, enda mátti raunar telja hann einn af þeim og tryggöu honum sigurinn. Þeir eru taídir hafa haft illan bifur á Teng og átt þátt i hinu siö- ara falli hans. Gömlu leiötog- arnir fylgdu hins vegar Teng og knúöu þaö fram, aö Hua varö aö endurreisa hann. SIÖ- an hafa völd Tengs alltaf virzt fara vaxandi. SÍÐUSTU mánuöina viröist auösýnilega hafa veriö unniö markvist aö þvl, aö vikja tæki- færissinnum úr embættum og skipa skoöanabræöur Tengs i staöinn. Þekktasta dæmiö um þetta er brottvíkning Wu Teh úr embætti borgarstjóra i Peking. Wu Teh mun á sinum tima hafa stutt „þorparana fjóra” en snerist á sveif meö Hua, þegar á reyndi, og átti vafalitiö drjúgan þátt I þvi, aö hann var valinn eftirmaöur Maos sem formaöur flokksins. Hann mun hins vegar ailtaf hafa veriö andstæöingur Ten- gs. Algerlega hefur honum þó ekki veriö steypt af stóli, þvi aö hann heldur enn sæti sinu i framkvæmdanefnd flokksins og þykir liklegt, aö Hua hafi tryggt honum þaö, hvaö lengi sem þaö veröur. Fréttaskýrendur gizka á, aö Teng njóti yfirleitt stuönings hinna gömlu flokksleiötoga, sem voru i hjarta sinu andvíg- ir menningarbyltingunni, en dönsuöu nauöugir meö. i þess- um hópi er sennilega aö finna flesta foringja hersins. Þeir studdu Hua á sinum tima, en vildu þó fá Teng aftur og virö- ast hafa fylkt sér um hann aö nýju. Margt bendir nú til, aö Teng ráöi oröiö mestu, en vafasamt er þó, aö hann taki formlega völdin. Hann er orö- inn 74 ára. Framtiö Hua sem flokksleiötoga getur oltiö á þvi, hvort Teng treystir hon- um til aö framfylgja þeirri stefnu aö gera Kina aö mesta iönaöarveldi heims á sem stytztum tima og setja hana ofar kenningum Maos. Þ.Þ. Hua Kuo-feng MARGT þykir nú benda til þess, aö bak viö tjöldin I Kina fari fram valdabarátta milli þeirra Hua Kuo-feng, for- manns kommúnistaflokks Kina, annars vegar og Teng Hsiao-ping, fyrsta varafor- sætisráöherra. Deila þessi snúist ekki eingöngu um persónuleg völd, heldur lika um þá stefnu, sem fylgja skal. Þessi skoöun er allvel rök- studd i grein eftir þekktan bandariskan prófessor, Kenneth Lieberthal, sem hef- ur sérstaklega kynnt sér mál- efni Kina og ritaö bækur og greinar um þau. Hann hefur siöustu árin fariö árlega til Kina. Grein þessi birtist i mai- júni-hefti bandariska mán- aöarritsins Problems of Communism, en ýmislegt af þvi, sem hefur skeö siöan virö- iststyrkja skoöun Lieberthals. i stuttu máli er þaö skoöun Lieberthals, sem hann byggir á tilvitnunum I ræöur þeirra Hua og Tengs, aö þeir séu báö- ir sammála um aö hraöa beri efnahagslegri uppbyggingu i Kina og hafa um þaö sam- vinnu viö vestræn riki. Hins vegar séu þeir ósammála um, hversu hratt skuli fara. Teng leggi alla áherzlu á aö ná þvi marki á sem stytztum tima aö Kina veröi eitt mesta eöa mesta iönaöarveldi heims, en þvi myndi aö sjálfsögöu fylgja, aö þaö gæti oröiö eitt mesta eöa mesta herveldiö. Hua vilji hins vegar ekki fara eins hratt, þvi aö þaö geti orö- iö til þess aö raska hinum kommúnistlska grundvelli. Til þess aö ná marki þvi, sem Teng stefnir aö, sé hann reiöubúinn til aö vikja frá öll- um kenningum Maos, sem geta staöiö i veginum, og stimpla þær úreltar. Hua vill hins vegar ekki ganga svo langt og ekki vikja frá höfuö- þáttunum i kenningum Maos. Frá sjónarmiöi Tengs viröist þaö skipta höfuömáli aö gera Kina aö voldugu riki, en án þess aö þaö gerist á kostnaö kommúnismans. EINS og áöur segir, hefur sitt- hvaö gerzt i Kina, sem viröist styrkja þessa skoöun eöa kenningu Lieberthals. Augsjáanlega er hafinn áróöur fyrir þvi, aö draga úr • áhrifum Maos og gera litiö úr ýmsum kenningum hans, þvi aö þær samrýmist ekki nýjum tima. Þessi áróöur viröist alltaf magnast og bera þess merki, aö hér ráöi Teng meira en Hua. Siöustu fréttir benda til þess, aö búiö sé aö bann- færa hiö rauöa kver Maos, sökum þess aö þaö þykir oröiö túlka úreltar skoöanir. Annaö þykir einnig bera þess vott, aö Teng veiíi öllu betur en Hua. Þeir Hua og Teng virðast hafa verið sam- mála um aö ryöja úr vegi öll- um þeim, sem stóöu framar- lega I menningarbyltingunni svonefndu og fastast fylgdu fram þeirri kenningu Maos, sem hún var byggö á, þ.e. aö kommúnismanum yröi ekki haldiö hreinum nema meö stööugum byltingum, þvi aö annars gæti skapazt kyrrstaöa, sem myndaöi jarö- veg fyrir kapitalisma. En Teng hefur viljaö ganga lengra en þetta. Hann hefur lika viljaö ryöja úr vegi miöjumönnunum svonefndu eöa tækifærissinnum, sem hann hefur kallaö þá, en hér er átt viö þá, sem fylgdu leiötog- um menningarbyltingarinnar á sinum tima, þótt þeir væru þeim ekki sammála, en gripu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.