Tíminn - 04.11.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.11.1978, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 4. nóvember 1978 iOtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumóla 15. Sfmi 86300. Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á mánuöi. Blaöaprenth.f. Staða verzlunarinnar Fyrir skömmu birtist grein hér i blaðinu eftir Jón Kristjánsson á Egilsstöðum, þar sem hann ræddi sérstaklega um málefni verzlunarinnar og þá erfiðu aðstöðu, sem hún býr nú við, og þó einkum i dreifbýlinu. Jón Kristjánsson segir i upphafi greinar sinnar, að oft gæti mikils ókunnugleika á málefnum verzl- unarinnar. Menn komist stundum svo að orði, að verzlunin taki furðumikið i sinn hlut fyrir að rétta vöruna yfir búðarborðið. Þetta sé ekki eins einfalt og ýmsir ætla i fljótu bragði. Auk smásalans, vilji heiidsalinn, flutningsaðilinn og rikið fá sítt. Verzl- unin sé með mikla fjárfestingu i húsnæði og gifurlega mikla i vörubirgðum, einkum þó lands- byggðarverzlunin, ásamt þeirri skyldu, að hafa opið eðlilegan vinnutima. Verzlunin hafi litinn að< gang að föstum lánum til fjárfestingar i húsnæði og hún hafi engan aðgang að föstum lánum út á vörubirgðir, sem séu hluti af fjárfestingu hverrar búðar. Jón Kristjánsson vikur svo að þeim tekjum, sem verzluninni er ætlaður til þess að standa undir öllum þessum kostnaði : ,,Álagning i smásölu er nú á algengum neyzlu- vörum frá 16,2% upp i 37,5 % samkvæmt nýjum verðlagsákvæðum, sem gefin voru út eftir siðustu gengisfellingu. Á þessu ári hafa verið tvær gengis- fellingar og i bæði skiptin hefur verið beitt svo- kallaðri 30 % reglu, þ.e. álagningarprósentan hefur verið lækkuð þannig, að verzlunin fær ekki fulla álagningu á aukna krónutölu. Nemur þessi lækkun allt að 7,6% frá 24. nóv. 1977 eða á tæplega einu ári. Þessi lækkun álagningar kemur til framkvæmda strax eftir gengisfellingar og ekkert tillit er tekið til þess hvort varan sem verið er að kaupa sé vara, sem heildsalinn hefur keypt á gömlu eða nýju gengi. Þetta verkar þvi fyrst i stað i mörgum tilfellum sem bein lækkun álagningar. Og fyrst tekur steininn úr á þessu ári með tveimur gengisfellingum. Gengisfellingar hafa i för með sér hækkun inn- flutningsverðs eins og menn vita. Það þýðir að verzlunin þarf mun meira fjármagn til þess að afla sér sömu vörubirgða á nýju verði og hún selur á þvi gamla. Að hækka verð gamallar vöru i verzl- unum kallar almenningsálitið þjófnað, en i við- skiptum manna á milli hefur hver einasti ein- staklingur þennan hátt á. Hverjum mundi til hugar koma að selj.a bilinn sinn á þvi verði sem hann keypti hann á, svari hver fyrir sig. Þessi staðreynd veldur verzlunum óbærilegum erfiðleikum og rekstrarfjárskorti, og getur beinlinis valdið vöruskorti hjá þeim sem eru verst settir. Hins vegar er það svo, að skerðing álagningar nær einkum til smásala. Ekki hefur heyrzt að ýmis umboðslaum séu neitt skert þrátt fyrir hækkandi verð þess sem verzlað er með. Þóknun bilasala er sú sama, þóknun fasteignasala sú sama og áreiðan- lega mætti lengur telja. Þó hækka þær eignir sem þama er verzlað með nær sjálfkrafa i verði með vaxandi verðbólgu”. Jón Kristjánsson lýkur grein sinni með þvi að benda á, að sæmilega stödd verzlun sé ein af undir- stöðum blómlegrar byggðar. Fari svo, að verzlun leggist niður á ýmsum smærri stöðum út um landið, og fólki fækkar þar af völdum þess, geti fljótt komið brotalöm i annað það, sem hefur viðhaldið byggð- inni á þessum stöðum. Grein Jóns Kristjánssonar er glögg ábending um, að landsfeðurnir þurfa að taka málefni verzl- unarinnar til endurskoðunar og úrbóta, og þó einkum verzlunina á hinum smærri stöðum út um landið. Þ.Þ. William Safire: Geta hefndaraögerðir Tengs náð til Hua? Teng gerir upp sakir við „vindhópinn” WBliam Safire er i hópi þekktustu bandarlskra blabamanna, sem rita um alþjóðamál. Greinar hans birtast I mörgum blöðum I Bandartkjunum. t skrifum slnum hefur hann yfirleitt veriö hlynntur Kfnverjum, en andvigur Riíssum. 1 eftirfarandi grein ræðir hann um fall Wu borgar- stjóra I Peking og „hreins- anir” þær, sem nú fara fram I Kina. Hann telur þær gerðar að undirlagi Tengs og geti þær reynst Vestur- veldunum óheppilegar en hagstæðar Riissum. Engin þjóð er jafn andvig tækifærisstefnu og Kfnverjar. Viö kjósum aö stjórnmála- maöur geti sýnt sveigjanleika og fögnum þvl ef hann snýst á sveif með okkar málstaö. En I Klna eru fest upp veggspjöld, þar sem hinum ólánsömu mönnum, sem skipa sér mitt á milli fylkinga, er skipað I „vind-hópinn. Dagblað Frelsishersins I Peking lýsti eitt sinn liðs- mönnum „vind-hópsins ” svona: „Þeirerueins og gras, sem vex uppi á vegg og sveig- ist til þeirrar áttar, sem vind- urinn blæs. Þeir eru eins ó- stöðugir og skýin eða regnið. Hálsi þeirra má Ukja við spotta neðan i blöðru og brjóstum þeirra við teygju- band og þeir hafa fest vind- mæli á höfuð sér.” Þessi ólgandi hrisgrjóna- skammtur af mælsku var hit- aður upp að nýju i siðustu viku þegar Wu Teh var rekinn Ur starfi sinu sem borgarstjóri i Peking. Arum saman haföi Wu Teh verið miöjumaður og fremstur i hópi þeirra, sem af óvinum slíkra manna hafa veriö kallaöir „Vind-hópur- inn.” Fall Wu Teh gefur til kynna aö ókyrrt sé f þeim smáa hópi manna, sem hefur yfir heilli billjón manna að segja. Wu borgarstjóri settist á valdastól sinn um 1965 og naut i þvi „Menningar-byltingar- innar,” undir forystu róttæk- ustu fylgismanna Maos for- manns. TIu árum seinna, þegar hinir hugsjónaiega hreinu „fjórmenningar” réöu lögum og lofum, slðustu mán- uöina sem Maolifði, — var það I höndum Wu Teh að halda uppi lögum og reglu i Peking. Þegar minna róttæk öfl efndu til mikilla uppþota á Tienanmentorgi, hljóp Wu á sig. Fyrir það fyrsta lét hann sem markmið ólátamanna væri aö votta sorg sina vegna fráfalls Chou-En-lai og i öðru lagi hausbraut hann nokkra, svo sem til þess að sýna fram á að fylgismenn Chou og hægri hönd hans Teng Hsiao-ping, færu ekki meö völdin I land- inu. Nokkrum mánuöum siðar gekk Wu and-róttæklingum á hönd, þegar vindur tók aö snú- ast í átt aö þeim. Þegar „Shanghai-hópurinn” fór fram á óskoruö völd, gekk Wu i liö meö samsærismönnum Hua Kuo-feng (yfirmanni leynilögrelgu Maos og eftir- manni) þegar fjórmenning- arnir vorutældir til Peking og handteknir. Með þvi móti hugöist Wu geta talið sér til tekna að hann hefði átt þátt i falli þeirra. En Teng Hsiao-ping, 74 ára, ognúnæstæösti maöur I Kina, haföiekki gleymt fyrri afstöðu Wu á dögum „Menningarbylt- ingarinnar.” Sama gilti um þá sem staðiö höföu aö uppþotinu á Tienanmen-torgi. Þeir mundu vel hver sett hafði fót- inn fyrir aögerðir þeirra. Á siöasta ári, þegar ég var staddur i Samkomusal alþýö- unnar I Peking, spuröi ég hátt settan flokksmann hvers vegna leyft væri að uppi héngju veggspjöld, sem for- dæmdu WuTeh. Hann svaraði þvi, aö i Kina væri málfrelsi og þvi mættu hatursfullir fylg- ismenn Tengs láta Wu fá það óþvegiö, enda ættu þeir um sárt að binda frá þvi á dögum fjórmenninganna. Loks varþaö fyrir tveim eða þrem vikum, sem Teng taldi sig nógu sterkan til þess að kref jast höfuöleöursins af Wu og Hua f ormaður lét til skarar skriða. Og þá er komiö aö megin atriðinu: A hvaða hátt varða þessar innanflokkser jur klnverskra kommúnista okkur. Fall Wu sýnir svo ekki verð- ur um villst, að hinir siður rót- tæku fylgismenn Tengs eru engan veginn sáttir viö þá auömýkingu sem æðstu menn máttu þola af „vind-hópnum”, sem nérinefiþeirra viö svörð- inn fyrir skömmu. Af þessu má einnig sjá, að þúsundir forystumanna mega eiga von á því aö veröa slitnir uppmeö Wu Teh rótum og að óflekkaöir menn setjist I sæti þeirra. ÆÚa mætti að þessi þróun væri Vesturlöndum kærkom- in. Lítamá áaö Teng hyggur á aukna verslunvið Vesturveld- in og kappkostar að ná upp olíuiðnaöi og iðnvæöingu. Teng mun bjóöa velkominn orkukónginn James Schles- inger innanskamms, þvi báðir hafa lýst yfir áhuga á auknum viðskiptum og einingu gagn- vart útþenslustefnu Sovétrlkj- anna. Þó veldur það áhyggjum I hvllikum hefndarhug Teng hópurinn er. Menn um sjötugt, sem þvingaöir voru til aö hverfafrá fyrir tiuárum, vilja nú refsa sér yngri mönnum. Timinn vinnur gegn Teng. 1 staö þess að leggja hinn yngri „vind-hóp” við annað liö sitt, rekur hann f leyg milli hans og sjálfs sin. Þetta er liklegt til þess að valda þungum undir- straumum, sem biða munu tækifæris til þess að grafa undan hinni öldruöu forystu- sveit og hafna hugmyndum hennar. Sérhver sem reynir aö spá um þróun mála I Klna, les I te- lauf, en hér er leiö til að lesa i þau, eftir aö Wu var steypt af stóli: Foringjar þeir sem nú hafa yfirhöndina, eru aö gera þaö sem „fjórmenningarnir,” sem þeir steyptuheföu lika gert, — þeir krefjast afdráttarlausrar afstöðu. Engir miðjumenn eru umbornir. En hér er rangt aft farið. Hua formaður, sem ekki fór svo illa út úr „menningarbylt- ingunni,” hlýtur að kenna geigs þegar Teng deilir út endurgjöldunum. Löngunin til hefnda og fjar- læging miðjumanna, gerir mál I Kina örðug að spá i og ó- útreiknanleg og þaö kemur sér illa fyrir Bandarikjamenn, en vel fyrir Rússa. Þegar til lengdar lætur mun brottrekst- ur „vind-hópsins” magna kraft annarra vinda, sem oröiö geta sibreytilegir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.