Tíminn - 04.11.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.11.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. nóvember 1978 13 RÚMRUSK Þaraa vantar herslumuninn LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Austurbæjarbló RUMRUSK Gamanleikur I tveim þáttum eftir Alan Ayckbourn Þýðing: Tómas Zoega Leikstjórn: Guðrún Asmundsdóttir Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Búningar: Andrea Oddsteinsdóttir Lýsing: Gissur Pálsson og Daniel Williamsson Siðastliðinn laugardag, og reyndar langt fram á sunnu- dagsmorgun, frumsýndi Leikfé- lag Reyl.javikur gamanleikinn eða ærsltleikinn — Rúmrusk, eftirAlan Vyckbourn, en verkið er á miðr.ætursýningu, byrjar 23.30 og endur klukkan tvö um nóttina, og tr auk annars kassa- stykki handc.' borginni, sem er að byggja leikhús. Þetta er dálitið undarlegur sýningatimi, en hann ber þó eftirvæntinguna inn á sér fyrir mina kynslóð. Miðnæturtónleikar, mið- nætursýningar voru algengar hér áður i Gamla o£ Nýja biói og við börnin sáum þetta i æsandi og dularfullum bjarma. Listin að skemmta sér Það er vist engum blöðum um það aö fletta, að sambúð leik- húsa og gagnrýnenda er örðug þegar leikrit eiga aö vera skemmtileg, eða hlægileg. Gagnrýnendur taka allt of hátiðlega og þeim stekkur ekki bros, þótt almenningur veltist um að hlátri. Það kann þvi aö þykja nokkuö sigiö á menning- arhliðina hjá undirrituðum ef hann segir aö Rúmruskiö I Austurbæjarbió sé nú ekki nógu hlægilegt. Maður getur fellt sig viö að til séu og sýnd leikrit, sem aöeins hafa þaö markmið að fá áhorfendur til þess að gleyma stund og staö og hlæja svolitið ærlega á riöuveikitím- um og verðbólgutimum alvör- unnar. Maður getur lika fellt sig viö að leikrit hafi ekki dýpra inntak, eða flytji mönnum sér- stakan boöskap, en það verður þó aö vera hlægilegt — er það ekki? Rúmrusk er einmitt þess kon- ar leikrit, innihaldslaust, en græskulaust gaman, en mér finnst það bara ekki nógu skemmtilegt til aö eyöa tveim stundum og hálfri betur i að reyna að hlæja. Samt er það langt frá þvi að vera misheppnað, það hefur upp á að bjóða góða spretti, og á sumum bekkjum var stuð. Leikurinn segir frá venjulegu fólki, eldri hjónum, sem eiga einkennilegan son, sem er i ófriði viö konuna. Hjónum, þar sem konan er fyrrverandi kær- asta, sonar fyrrnefndu hjón- anna, en maður kærustunnar fyrrverandiliggur I þursabiti og má sig hvergi hræra. Haldið er partý hjá þriðju hjónunum, en þau eru að friða húsið, gera þaö upp, en eru ekki búin, og maðurinn kaupir ósam- sett húsgögn og þrælar þeim siö- an saman með tólum, sem hann sækir út í bil. Hjónin sem eru ósátt byrja að rifast og partýiö leysist upp, og þá hefst andvökunótt i rúmun- um þrem, þvi málin kalla á að- kallandi lausnir, þvi hjóna- bandsmálin hafa algjöran for- gang. Sviðin eru þrjú, og öll eru tvi- breið rúm. Þetta er söguþráðurinn í sem skemmstu máli; og þótt hann sé ekki burðugur, verður hann þó meö smá misskilningi ööru hverju að góðlátlegu gamni. fólk í listum — Helga Stephensen og Jón Hjartarson I hlutverkum Kate og Mal- colms Menn koma inn i herbergi á óhentugum tima, og saklaus ævintýr, taka á sig dularfullar myndir og örlagarikar. Tal er tvirætt á köflum, en þó langt innan ramma hegningarlag- anna. Höfundur, leikarar og leikstjóri. Leikfélag Reykjavikur kynnir höfundinn meö þessum orðum: „Alan Ayckbourn höfundur Rúmrusks er meöal þekktustu núlifandi leikritahöfunda Breta. Hann er fæddur áriö 1939 og skrifaði fyrsta leikrit sitt um tvitugt. Siðan hefur hann verið óvenjuafkastamikill höfundur og vinsæll að sama skapi. Þess eru dæmi að leikrit hans hafi verið sýnd i þrjú ár i striklotu i stórleikhúsum Lundúna. Alls eru þau orðin 11, en Rúmrusk (Bedroom Farce) er þeirra nýj- ast. Leikrit Ayckbourns hafa verið þýdd og leikin viöa um lönd, en hér er hann kynntur á islenzku leiksviði I fyrsta sinn. 1 leikritum sinum þykir hann bregöa upp einkar litrikum myndum af samborgurum sin- um bæöi i gleði og sorg, og vera mikill kunnáttumaöur á sigildar leikfléttur. Alan Ayckbourn er leikhús- stjóri I Scarborough þar sem hann setur sjálfur fyrst á svið alla sjónleiki sina. Á siðustu ár- um hefur hann veriö meðal Edda Þórarinsdóttir, Kjartan Ragnarsson og Pétur Einarsson f hlutverkum Jennýar, Trevors og Nicks. „hirðskálda” breska þjóðleik- hússins. Þar hefur Rúmrusk verið sýnt undanfarið v.ð mikl- ar vinsældir”. Að visu eru leikhúsin nú f kki vön að klipa utanaf heimfrægð manna, en eigi að siður virðist þetta vera einkar áheyrilegur æviferill, eða skáldskaparferill, svo ekki sé meira sagt, og sá grunur læöist að manni, að leik- urinn kunni að hafa aflagast I flutningi til Islands. Ærslaieikir lifa á bláþræði i leikstjórn, texti slikra leikja oft á orðaleikjum og smæstu blæbrigðum. Ef rétt er fariö að I einu og öllu, skemmta menn sér konunglega, rifna af hlátri, en annars — tr ekkert gaman lengur. An þess að hafa séð enska textann, viröist þýöing Tómasar Zoega vera á ágætu máli, og við drögum enskukunnáttu hans ekki i efa, en kannske skilst þetta ekki allt þrátt fyrir allt? Leikstjórn Guðrúnar Asmundsdóttur er lifandi og frjáls, og ekkert sparað til að fá fram grin og hlátur, sem oft tekst vel, og hraði er ágætur og nokkurt öryggi. A frumsýningu kann að hafa vantað einhvern herslumun, og þá er að skoöa og skilgreina aö nýju. Af leikendum komu þær Helga Stephensen og Edda Þór- arinsdóttir mest á óvart. Þær eru prýðilegir gamanleikarar. Sama er að segja um Jón Hjart- arson, sem stendur sig lika afburða vel. Hinir eru venju- legri. Þaö er gaman að sjá ný andlit, en hrókeringar stóru- leikhúsanna skilur maður ekki alltaf fremur en annað, sem er háleitt i þessu lifi. Við sjáum a.m.k. ekki sérstakt tilefni til mannalána milli húsa aö þessu sinni. Ný andlit hefðu komið sér betur, þótt þau séu ekki „innan fjölskyldunnar”. Rétt er þó aö leyfa Pétri Einarssyni að leika, þvi staða hans krefst stöðugra verkefni á leiksviði, það er gott fyrir hann sjálfan og nemendur hans i Leiklistarskóla Islands. Nú, hér hefur verið fundið að einu og ööru. Ærslaleikir eru sér á parti, en ekki undanþegnir almennri leiklistargagnrýni. Alit vort er að þarna vanti herslumun. Jónas Guðmundsson St. Jósefsspítalinn Landakoti Eftirtaldar stöður eru lausar til umsókn- ar: Hjúkrunarfræðinga vantar á skurðstofu, sérmenntun æskileg. Einnig eru laus 2. námspláss á skurðstofu. Deildarritara vantar i fullt starf á hjúkrunardeild, einhver starfsreynsla æskileg. Starfskraft með kunnáttu i saumaskap vantar i fullt starf á saumastofu. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá hjúkrunarforstjóra sem gefur allar nánari upplýsingar i sima 19600 milli kl. 11 og 14. Reykjavik 2. nóvember 1978 St. Jósefsspitalinn Landakoti Starf forstöðumanns við dagheimilið Viðivelli i Hafnarfirði er laust til umsóknar. Til greina kemur ein heil staða eða tvær hálfar stöður. Fóstrumenntun er æskilegust en önnur uppeldisfræðileg menntun eða reynsla kemur einnig til greina. Upplýsingar um starfið veitir forstöðu- maður i sima 53599 á dagheimilinu og félagsmálastjóri i sima 53444 á Félags- málastofnun Hafnarfjarðar. Umsóknar- frestur er til 20. nóvember n.k. Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar. Útibússtjórastarf Starf verslunarstjóra við útibú Kaup- félags Árnesinga, Þorlákshöfn er laust til umsóknar. Húsnæði fyrir hendi. Umsóknarfrestur er til 1. desember n.k. Umsóknir sendist til aðstoðarkaupfélags- stjóra Guðna B. Guðnasonar Selfossi er einnig veitir upplýsingar i sima 99-1207 Kaupfélag Árnesinga Prentarar athugið Viljum ráða vanan pressumann nú þegar. Mötuneyti á staðnum. Talið við Gunnar Gissurarson yfirprent- ara. Fyrirspurnum ekki svarað i sima. Kassagerð Reykjavikur, Kleppsvegi 33 Viðskiptaráðuneytið, 3. nóvember 1978 .aus staða Staða deildarstjóra i viðskiptaráðu- neytinu er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna rikisins. Umsóknin ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðu- neytinu fyrir 1. des. n.k. m

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.