Tíminn - 14.11.1978, Side 6

Tíminn - 14.11.1978, Side 6
6 ■ Otgefandi Framsóknarílokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Eitstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og- auglýsingar Síöumiila 15. Simi 86300. " , Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110.00. Áskriftargjald kr. 2.200 á' mánuöi.__________ __________Blaöaprent h.f. j Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert lært Lengi munu i minni höfð viðbrögð stjórnarand- stöðuflokkanna á vorþinginu 1974. Sjálfstæðis- flokkurinn, Alþýðuflokkurinn og meirihluti Sam- taka vinstri manna og frjálslyndra, voru þá i stjórnarandstöðu. Ljóst var þá, að mikil verðbólgu- holskefla var framundan, þar sem viðskiptakjör fóru versnandi og febrúarsamningarnir höfðu verið byggðir á of mikilli bjartsýni. Vinstri stjórnin, sem þá fór með völd, sá að hverju fór og ákvað að beita sér fyrir viðtækum og raurúiæfum aðgerðum til að afstýra þeim háska, sem framundan var. Hún lagði tillögur um þetta fyrir Alþingi. Ef þær hefðu verið samþykktar, hefði verið hægt að hemja verðbólg- una að mestu. Efnahagsástandið myndi vera allt annað i dag, ef farið hefði verið eftir þessum tillög- um. Það var ekki gert. Ástæðan var sú, að Sjálf- stæðisflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og meirihluti, Samtaka vinstri manna og frjálslyndra beittu stöðvunarvaldi sinu á Alþingi til að koma i veg fyrir það. Það var ekki aðalatriðið hjá þessum flokkum að hemja verðbólguna, heldur að gera rikisstjórn- inni örðugt fyrir og koma henni á kné. Þess vegna komst verðbólgan upp i 40-50% á árinu 1974 og hefur aldrei verið fullkomlega hamin siðan. Það má segja, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi að vissu leyti sopið seyðið af þátttöku sinni i þessu ó- happaverki, þegar hann tók við stjórnarforustunni sumarið 1974 og þurfti að fara að glima við verð- bólguvandann. Þá fékk hann lika að reyna hvilikur skaðvaldur óbilgjörn og ábyrgðarlaus stjórnarand- staða getur verið. Þótt Alþýðubandalagið og Al- þýðuflokkurinn væru þá ósammála um flest, eins og enn er, voru þessir flokkar innilega sammála um eitt. Það var að gera allt sem i þeirra valdi stóð, til þess að láta efnahagsaðgerðir stjórnar Geirs Hall- grimssonar misheppnast. 1 þeim tilgangi beittu þeir óspart áhrifum sinum i launþega-hreyfingunni. Þeir létu það lönd og leið hvað þjóðinni væri fyrir beztu. Höfuðmál þeirra var að gera rikisstjórninni allt til miska og þó alveg sérstaklega að eyðileggja allar aðgerðir hennar til að ná tökunum á verðbólgunni. Illu heilli varð þeim allt of mikið ágengt i þeim efnum og súpa nú sjálfir seyðið af þessum verkum sinum i glimunni við verðbólguna. Hún væri nú minni og viðráðanlegri, ef þeir hefðu unnið af meiri ábyrgð, þegar þeir voru i stjómarandstöðu, og hefðu metið meira þjóðarhag en að vinna gegn rikisstjórninni. Atvikin hafa orðið þau, að Sjálfstæðisflokkurinn er nú aftur kominn i stjórnarandstöðu. Ætla mæ^ti, að hann hefði eitthvað lært af óhappaverki sinu vorið 1974 og að hann léti vinnubrögð Alþýðubanda- lagsins og Alþýðuflokksins á undanförnum fjórum ámm verða sér til varnaðar. Þvi miður er ekki sliku að heilsa. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert lært. Hann er jafnóábyrgur nú og hann var vorið 1974. Það er augljóst, að óhjákvæmilegt verður að gera sérstakar viðnámsráðstafanir fyrir næstu mánaða- mót. Innan verkalýðshreyfingarinnar er vaxandi skilningur á þvi. Ef Sjálfstæðisflokkurinn væri þjóð- hollur flokkur og ábyrgur, myndi hann styðja slika viðleitni. Það gerir hann ekki. Þvert á móti reynir hann og málgögn hans að gera tortryggilega þessa afstöðu verkalýðshreyfingarinnar og brigzla henni um svik og undanhald. Það getur vart hjá þvi farið, að þessi framkoma Sjálfstæðisflokksins veki at- hygli þjóðarinnar og fái þann dóm, sem hún verð- skuldar. Þ.Þ. Þriöjudagur 14. nóvember 1978 Erlent yfirlit Nýja þingið getur orðið Carter erfitt Þó er vart taægt að tala um bægri sveiílu ÚRSLIT kosninganna i Bandarikjunum, sem fóru fram siöastliöinn þriöjudag, eru enn helzta umræöuefni fjölmiöla vföa um heim. Einkum er rætt um, hvaöa áhrif þau muni hafa á stjórnmál Bandarikjanna á komandi tveggja ára kjörtlma- bili. Úrslitin breyttu litlu um styrkleikahlutföll flokkanna i þinginu, því aö repúblikanar bættu aöeins viö sig tólf þing- sætum I fulltrúadeildinni og þremur i öldungadeildinni. Demókratar hafa þvi áfram öruggan meirihluta I báöum deildum, þeir hafa 276 þing- menn I fulltrúadeildinni og 57 þingmenn I öldungadeildinni en repúblikanar hafa 158 I fulltrúa- deildinni og 41 i öldungadeild- inni. Eftir þessu aö dæma ætti Carter ekki aö þurfa aö hafa áhyggjur af þvi,aö hann muni skorta stuöning á þinginu. Þetta segir hins vegar ekki alla söguna. Meirihluti hinna nýju þingmanna i báöum flokk- um er talinn hallast meira til hægri en fyrirrennarar þeirra. Þvi þykir liklegt/aö Carter reyn- ist erfiöar aö koma fram ýms- um umbótamálum en áöur. Eins megi hann vænta aukinnar andstööu gegn samningum viö Rússa um takmörkun kjarn- orkuvopna. Þingiö hefur þannig færzt heldur til hægri.en frétta- skýrendur telja þessa breytingu þó ekki þaö mikla aö hægt sé aö tala um hægri sveiflu. Þaö vakti llka athygli aö tillögur um skattalækkanir, sem vlöa voru bornar undir atkvæöi kjósenda i sambandi viö kosningarnar, fengu minna fylgi en búizt var viöog voru meira aö segja felld- ar i sumum fylkjanna. TVENNT festa fréttaskýr- endur einkum augu viö, þegar þeir ræöa um kosningarnar. Annaö er aö algert los viröist nú komið á flokkaskipunina. Báöir flokkarnir tefldu bæöi fram frjálslyndum mönnum og ihaldssömum. Sumirhinna nýju þingmanna repúblikana eru taldir vel frjálslyndir, en meöal hinna nýju þingmanna demó- krata er aö finna allmarga sem eru taldir alllangt til hægri. Af þessu leiöir þaö aö Carter veröur I mörgum málum aö treysta á stuöning frjálslyndra repúblikana, ef hann á aö koma málum slnum fram .þvl aö stór hluti demókrata er ltklegur til aö veröa andvlgur honum. Þetta er aö visu ekki nýtt. T.d. heföi Carter ekki fengiö Panama- samningana samþykkta I öldungadeildinni ef nokkrir þingmenn repúblikana heföu ekki snúizt á sveif meö honum. 1 hópi þeirra repúblikana sem greiddu atkvæöi meö samning- unum var Howard Baker frá Tennessee, formaöur repúblik- ana I öldungadeildinni. Hann Nancy Landon Kassebaum var endurkosinn meö riflegum meirihluta og þykir koma mjög til greina sem forsetaefni repú- blikana. Hitt.sem vekur sérstaka at- hygli.er lltil þátttaka I kosning- unum. Hún hefur aldrei verið minni I Bandarikjunum um langt skeiö,einkum þó meðal ungs fólks. Ýmsar skýringar eru gefnar á þessu. Ein er sú aö munurinn á flokkunum sé oröinn svo litill aö mörgum þyki erfitt aö greina á milli þeirra. Þá hafi ekkert mál vakið sér- staka athygli kjósenda og ýtt undir aö þeir neyttu atkvæöis- réttarins. Ýmsir höföu spáö þvi aö meiri þátttaka yröi I þeim fylkjum, þar sem atkvæöi voru greidd um tillögur til skatta- lækkana.en sú varö ekki raunin. ÝMSIR fréttaskýrendur hafa veriö aö velta vöngum yfir þvi, hvaöa ályktanir megi draga af úrslitum kosninganna um fylgi Carters forseta og möguleika hans til aö ná endurkosningu eftirtvö ár. Niöurstaöan er helzt sú,aö ekki veröi dregnar neinar ályktanir um þetta af úrslitun- um. Þó megi búast viö aö repú- blikanir fái þá betri útkomu en i þingkosningunum. Þetta er dregið af þvi, aö repúblikanir unnu meira á I kosningunum til fylkisþinga og I rlkisstjóra- kosningunum. Þeir hafa nú sex rlkisstjórum fleira en áður. Al- ger óvissa rlkir enn um þaö hver frambjóöandi þeirra veröur,en liklegast þykir ef prófkjör færu fram hjá þeim nú, aö Ronald Reagan yrði fyrir valinu, þó aldraöur sé oröinn. Skoöana- kannanir benda til.aö hann hafi meira fylgi en Ford fyrrv. for- seti. Veröi hvorugur þeirra fyrir valinu er helzt talaö um Baker, sem áöur er nefndur, eöa Thompson rlkisstjóra I Illinois. sem var endurkjörinn nú meö miklum meirihluta. Heltist Carter úr lestinni af einhverjum ástæöum, þykir Brown rikisstjóri i Kalifornlu hafa styrkt stööu slna sem for- setaefni demókrata, en hann var endurkjörinn nú meö mikl- um meirihluta. Hins vegar varö hann fyrir þvi áfalli,að meö- frambjóöandi hans sem vara- rlkisstjóri féll og aö Rose Elisa- beth Bird,sem hann haföi skipaö sem forseta hæstaréttar, rétt skreiö og hlaut minna fylgi en dæmi er um varöandi fyrirrenn- ara hennar. Edward Kennedy þykir þó liklegri til aö hljóta út- nefningu demókrata en Brown, ef hann gefur kost á sér. Sérstaka athygli vakti þab,aö eini blökkumaöurinn sem átt hefur sæti I öldungadeildinni Edward R. Brooke, féll i kosningunum og réði þar senni- lega miklu aö hann haföi lent I vafasamri fjárútvegun I sam- bandi viö hjónaskilnaðarmál. Annars var hann I góöu áliti. Enginn blökkumaöur á nú sæti I öldungadeildinni. Hins vegar náöi ein kona, Nancy Landon Kassebaum, kosningu til öldungadeildarinnar. Hún er talin fyrsta konan.sem hefur náb kosningu þangaö af eigin ramleik. Þrjár konur hafa veriö kosnar þangaö áöur,en þær nutu allar eiginmanna sinna eba rétt- ara sagt fóru I framboð þegar þeirféllu frá,og nutu þannig vin- sælda þeirra. Nancy naut þess hins vegar aö eiga frægan fööur, Alf Landon, sem keppti viö Roosevelt I forsetakosningunum 1936,og tók talsveröan þátt I kosningabaráttu dóttur sinnar, þótt hann sé kominn á 10. ára- tuginn. Þ.Þ. Edward R. Brooke

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.