Tíminn - 14.11.1978, Side 9
Þriðjudagur 14. nóvember 1978
9
WMm
Ólafur Jóhannesson:
Upplýsingastreymi frá stjóravöldum til
fjölmiðla og almennings er krafa timans
— samráöherrar gerðu tillögur um menn i embætti blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar
Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra kvaddi
sér hljóðs utan dagskrár
I Sameinuðu Alþingi í
gær vegna umræðna s.l.
þriðjudag um skipan
Magnúsar T. Ólafssonar
i embætti blaðafulltrúa
ríkisstjórnarinnar. Þeg-
ar umræðurnar fóru
fram i s.l. viku var ólaf-
ur staddur erlendis i
opinberum embættis-
gjörðum.
Löghelgað embætti
1 ræðu sinni sagði Ólafur að at-
hugasemdir þeirra þingmanna er
gagnrýndu stöðuveitinguna
byggðust á þeim misskilningi að
hér væri um aö ræöa nýja stöðu.
Svo væri ekki þvi embættiö hefði
veriðstofnað 13. mal 1944, þá sem
starf blaðafulltnia við utanrikis-
ráðuneytið. Siðan 1959 hefur em-
bættiö verið iöghelgað og sam-
kvæm reglug. um stjórnarráð ls-
lands sem öðlaðist gildi 1. jan.
1970 hefur embættið heyrt undir
forsætisráöuneytið.
Sagði ólafur að það skipti engu
máli þó ekki hefði veriö skipaö
eða sett i stöðuna um nokkurn
tima þar sem um væri að ræða
lögskipaöa stöðu.
Þá sagði forsætisráöherra:
„Þegar um er að ræða setningu
eða skipun i embætti sem fyrir er
og er I lögum, fer þaö mál aldrei,
ég þekki þess engin dæmi,fyrir
ráðninganefnd rikisins. Ég þekki
þess heldur engin dæmi aö það sé
gengið til fjárveitingarnefndar og
spurt um það hvort þaö megi
setja menn eða skipa i lögboðnar
stöður. Það er sá ráðherra sem
málið heyrir undir# sem tekur
ákvörðun um það og eftir atvik-
um með samþykki fjármálaráöh.
að sjálfsögðu. Sú regla sem
mönnum var tiörætt um s.l.
þriðjudag aö þaö hafi veriö geng-
ið framhjá fjárveitinganefndi
þessu efni og framhjá ráðningar-
nefnd rikisins á þvi aöeins viö ný
störf. Ég þekki engin dæmi hins.
Og það má kallast furðulegt að
hv. fjárveitinganefndarmenn
þekkja ekki þær venjur þekkja
ekki þá algildu starfshætti.”
Fjárlög breyta ekki lög-
um
„Það þarf nú varla að taka það
fram þvi aö áreiðanlega held ég
nú að allir hv. alþm. hljóti aö
þekkja þá reglu að fjárlög geta
ekki breytt lögum.” Sagði
ráöherrann að fjvn. gæti aftur á
móti haft frumkvæði aö þvl að
berafram lagabreytingar til þess
að skera niöur lögboðin störf eða
stöður, ef hún teldi ofsetiö á jötu
rikisins. Þá sagði ráðherra:
„Til þess að skipa I stöður eða
embætti sem fyrir eru, þarf auð-
vitað enga formlega samþykkt i
rlkisstj. Þær athugasemdir sem
fram komu um það efni voru þess
vegna algerlega Ut i hött, það er
ekki siður hefur aldrei tlðkast og
ég veit þessekki dæmi þau ár sem
ég hef setið I rikisstj. að ráðherra
komimeðþað inn á rikisstjórnar-
fund og leiti eftir formlegri sam-
þykkt á þvi að það skuli sett eða
skipað I eitthvert embætti sem
undir hann heyrir þó óumdeilan-
lega. Ég þekki þess ekki dæmi.
Það er einmitt allt annaö mál
að ef hefði átt aö leggja niður
þessa stöðu sem um er að ræða þá
hefði þurft að koma með það inn á
rlkisstjórnarfund og ganga frá
formlegri samþykkt þar um það
sem hefði þá getaö oröiö upphaf
að reglugerðarbreytingu I þá átt,
að leggja starf blaöafulltrúa
rikisstjórnarinnarniður að leggja
niður starf upplýsingamiðils
rikisstj. En sem betur fer hefur
nú enginn rábherra lagt það tð að
leggja sllkt starf niöur.”
Engin launung
,,Ég tel þess vegna augljóst af
þvi sem ég hef sagt að það er ekki
nokkur minnsta fjöður til að
hanga á fyrir hv. fjvn. til þess að
móðgast út af þvi aö setning
þessa manns I starf blaöafulltrúa
hafi ekki veriö borin undir hana
né heidur er nokkur ástæða til
þess fyrir hæstv. ágæta samráð-
herramlna að hneykslast á þvi að
ég skuli hafa framkvæmt þessa
embættisathöfn án þess ab hafa
kynnt þeim þaö fyrirfram form-
lega á rikisstjórnarfundi ekki
nokkur.
Hitt er jaf n rétt og satt aö ég hef
ekki lagt neina launung á það að
égætlaði að skipa blaðafulltrúa
rikisstj. Ég teldi það nauðsynlegt
aðfá mann i það starf, enda mun
það nú hafa komiö fram hér i
þessum umræðum að hæstv.
ráðherrar könnuðust við að ég
mundi hafa hreyft þvi máli og
látiö þá skoðun I ljós. Og ég hygg
að ég vil segja a.m.k. flestum ég
veit ekki hvort einhver vill
undanskilja sig þvi af mlnum
ágætu hæstv. samráðherraum
hafi verib fullkunnugt um þessa
ætlan mi'na. A.m.k. get ég sagt
það að ýmsir samráðherrar bentu
mér af góðum hug á hugsanlega
ágæta menn til þessa starfa.”
Setning en ekki skipun
„Þá kom þaö fram hér I um-
ræðum af blaöafregnum að dæma
aö hér væri um nokkuö viöur-
hlutamikið mál að tefla, þar sem
blaðafulltrúi þessi væri skipaður
til lifstiðar aö þvi er virtist og ætti
aö sitja af sér allar stjórnir en ég
vil nú leiörétta Þa nn mis-
skilning.” Las nú forsætis-
ráöherra upp bréf það sem
Magnúsi T. ólafssyni var sent,
þar sem fram kemur aö hann er
settur I starfiö.
Siðan sagði ráöherrann:
,,Hér er þvi aðeins um setningu
aö ræöa sem hægt er fýrir ein-
hvern mann mér vitrari þegar
hann tekur við af mér ab leiö-
rétta. En éghef litib svo á að það
væriæskilegt varðandiþetta starf
fyrir báða aðila, bæði blaðafull-
trúannog rikisstj., að þab fengist
nokkur reynslutimi til þess að það
væri hægt að gera það upp hvort
blaðafulltrúinn teldi starfiö
heppilegt fyrir sig og hvort rikis-
stj. teldi hann heppilegan I þessu
starfi. Hitt er svo auðvitaö mál að
áður en skipun á sér stað verður
starf þetta auglýst enda er þaö
forseti sem skipar I embætti
blaðafulltrúa rlkisstj.”
Alda mót ars jóna rm ið
„Yfirleitt létu þessir hv. þing-
menn sem hreyföu þó athuga-
semdum við þetta af þeim mis-
skilningi sem ég hef nú sýnt fram
á,þau orb falla að sá maöur sem
settur hefur veriö i þetta starf,
Magnús Torfiólafsson væri vel til
þess fallinn. Þó lét einn hv.þing-
maöur þá skoðun i ljós að þetta
væri nú nokkuö hæðin ráöstöfun,
þvi að þessi blaöafulltrúi væri
formaöur I stjórnmálasamtökum,
sem ættu ekki aöild að rikisstj.
Þetta eru nú vægast sagt, ja
hvað á ég að segja aldamóta-
sjónarmið, svo ég hafi nú ekki
stærra orð yfir þaö. Sjónarmiö
sem heföu vel getað átt sér staö
um siðustu aldamót. Þau eiga
ekki við i dag. Það á ekki að
spyrja um þaö hver er pólitisk
skoðun manns sem skipaður er i
embætti heldur hitt hvort hann er
hæfur til þess. Og þaö hélt ég satt
að segja að væriað veröa rikjandi
sjónarmiö núna á þessum timum
sem við lif um á og það verð ég að
segja þeim ungu ágætu mönnum
til hróssað þeir áttu sinnþátt i aö
skapa það viöhorf, fordæma hitt,
enda er þvi kastað fyrir róða.
En allt um það þá er sann-
leikurinn sá aðþó að þessi tiltekni
maður sé nú formaöur I stjórn-
málasamtökum, þá hafa þau
stjórnmálasamtök lýst þvl yfir,
að þau muni styðja núverandi
rikisstj. til allra góðra verka og
það er nú samskonar stuðnings-
yfirlýsing eins og viö megum una
við frá nokkrum hv. þingmönnum
stjórnarliðsins.”
Krafa timans
Nú vék forsætisráðherra aö
efnisatriðum málsins hvort rikis-
stj. væri þörf á slikum starfs-
manni og hvort til þess værival-
inn hæfur maöur. Um lagahliöina
gæti ekki leikið nokkur vafi.
„Spurningin er þessi: Er rikis-
stj. þörf á fréttamiðlun og upp-
lýsingastreymi tilfjölmibla og al-
mennings. Ég svara þeirri
spurningu hiklaust játandi. Égtel
að ég sé ekki aðfinnsluverður
fyrir það að setja i þetta starf.
Það gæti frekar verib að það
mætti finna að þvi, ab fyrrv.
rikisstj. skyldi ekki setja mann i
starf blaðafulltrúa rikisstj.
Ég tel ákaflega þýöingarmikið
að það sé sem greiðastur gangur
á milli rikisstj. og þessara abila
sem ég nefndi fjölmiðla og al-
mennings. Og við skulum segja
bara lika að það sé krafa tlmans
og ég hef að vissu marki lika beitt
mér fyrir þvi aö ýta undir það
sjónarmiö með þvi að láta undir-
búa og semja og leggja fram
reyndar í fyrra frumvarp um rétt
manna til þess að eiga aögang að
upplýsingum hjá stjórnvöldum.
Það frumvarp hefur nú veriö
endurflutt.
Þess vegna varð ég svo óskap-
lega hissa að það má nú segja
eins og málshátturinn segir að
mér duttu allar dauöar lýs úr
höfði þegar þeir sem af mestum
áhuga hafa talað um opna stjórn-
sýslu og vel sé þeim fyrir það og
að almenningur þurfi að eiga sem
greiðastan abgang ab upplýsing-
um, standa hér upp og fara ab
fetta fingur út i þaö aö settur hafi
veriö blaðafulltrúi að visu flestir
Framhald á bls. 21
LADA
i6oo
Allar tegundir af LADA fyrirliggjandi
Lada 1200 ca. kr. 2.130 þús.
Lada 1200 station ca. kr. 2.140 þús.
Lada 1500 station ca. kr. 2.230 þús.
Lada 1500 Topas ca. kr. 2.540 þús.
Lada 1600 ca. kr. 2.710 þús.
Lada Sport ca. kr. 3.570 þús.
Tryggiö ykkur LADA
á lága veröinu.
Hagstæðir
greiösluskilmálar.
Biireiðar & Landbúnaðarvélar hí.
TíbJjfN Sudurlandsbraul-14 - Heykjavík - Simt 48600