Fréttablaðið - 11.09.2006, Síða 20
11. september 2006 MÁNUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
ARVO PÄRT FÆDDIST ÞENNAN DAG
Mannsröddin er allra
fallegasta hljóðfærið.
Arvo Pärt er þekktasta tónskáld
Eistlands.
MERKISATBURÐIR
1755 Jarðskjálfti verður
norðanlands. Flest hús á
Húsavík hrynja.
1962 Ringo Starr spilar í fyrsta
sinn í upptökum sem
meðlimur í Bítlunum.
1976 Farþegaþota frá TWA, sem
rænt var í innanlandsflugi
í Bandaríkjunum, hefur
tveggja stunda viðdvöl
á Keflavíkurflugvelli á
leið til Parísar. Þar gáfust
ræningjarnir, sem voru
króatískir, upp.
2001 Þúsundir láta lífið þegar
hryðjuverkamenn fljúga
tveimur flugvélum á
tvíburaturnana í New
York. Þriðju vélinni er
flogið á Pentagon í
Washington og sú fjórða
hrapar til jarðar nálægt
Pittsburgh.
Á þessum degi árið 1971 lést Nikita Krúsjoff, fyrrver-
andi formaður sovéska kommúnistaflokksins.
Krúsjoff fæddist í Rússlandi árið 1894. Snemma varð
hann heillaður af boðskap komm-
únismans en það var ekki fyrr en
á fjórða áratugnum sem hann
tók að klífa upp metorðastigann í
flokknum. Þá kom hollusta hans
við Stalín sér vel í hreinsununum
miklu. Þótt hann forframaðist enn
frekar á stríðsárunum þótti ólíklegt
að hann kæmist til æðstu metorða
eftir að húsbóndi hans féll frá
1953, en mörgum að óvörum hafði
hann tryggt sér völdin í flokknum
innnan tveggja ára.
Krúsjoff boðaði mildari afstöðu gagnvart Bandaríkja-
mönnum og breytingar frá stefnu Stalíns. Frægastur
er hann sjálfsagt fyrir „leyniræðuna“ árið 1956, þar
sem hann fordæmdi Stalín og voðaverk hans. Hann
var mikið í sviðsljósinu á sjötta áratugnum og var
fyrsti leiðtogi Sovétríkjanna til að
heimsækja Bandaríkin árið 1960.
Sama ár vakti hann líka athygli og
kátínu margra þegar hann klæddi
sig úr skónum og barði með
honum í púltið í fundarsal SÞ eftir
að hafa brotið fundarhamarinn.
Þá lék Krúsjoff lykilhlutverk í
Kúbudeilunni árið 1962 og þótt
kjarnorkustríði hafi verið afstýrt
missti hann stuðning heima fyrir
og árið 1964 var hann settur af.
Krúsjoff lifði afskiptur og gleymdur það sem eftir
var þar til hann lést af völdum hjartaáfalls 77 ára
að aldri.
ÞETTA GERÐIST: 11. SEPTEMBER 1971
Kommúnistaleiðtogi deyr
AFMÆLI
Kristinn R.
Ólafsson í
Madríd er 54
ára.
ÚTFARIR
13.00 Þórunn Elísabet
Björnsdóttir kaupkona,
Blönduhlíð 29, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni
í Reykjavík.
13.30 María Rósa Jakobsdóttir,
Eyrarvegi 9, Akureyri,
verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
FÆDDUST ÞENNAN
DAG
D.H.
Lawrence
rithöfundur
1885.
Ferdinand
Marcos,
fyrrverandi
forseti
Filippseyja,
1917.
Brian
DePalma
kvikmynda-
leikstjóri
1940.
Moby, tón-
listarmaður,
1965.
Harry
Connick Jr.
kvikmynda-
leikari með
meiru, 1967.
Ludacris
rappari 1977.
Ó. Johnson & Kaaber fagnar hundrað ára afmæli
sínu í ár en fyrirtækið er elsta heildsala landsins
og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá
upphafi. Helga Guðrún Johnson er stjórnarfor-
maður fyrirtækisins í dag en hún er afkomandi
Ólafs Þ. Johnson sem stofnaði fyrirtækið árið
1906 ásamt Ludvig Kaaber.
„Möguleikinn á að hafa beint samband við
aðrar þjóðir opnaðist árið 1906, þegar ritsíminn
var tengdur og þá hófust Ólafur Þ. Johnson og
Ludvig Kaaber handa við að kaupa inn matvörur
og aðrar nauðsynjavörur fyrir landsmenn,“ segir
Helga um upphaf og stofnun fyrirtækisins.
„Ludvig Kaaber gerðist Landsbankastjóri árið
1918 og þurfti þá að selja sig út úr fyrirtækinu en
það má segja að hann hafi tryggt það að fólk
myndi eftir honum þar sem nafnið hans er enn í
dag í nafni fyrirtækisins og á Kaaber-kaffinu
líka.“
Fyrirtækið Ó. Johnson & Kaaber stofnaði
kaffibrennslu árið 1924 en fyrirtækið hefur stað-
ið í ýmiss konar framleiðslu um árin þrátt fyrir
að grunnurinn sé alltaf heildsala. Á tímabili var
meðal annars framleiddur kaffibætir, sem var
notaður til að drýgja kaffið en þótti ekki sérlega
bragðgóður.
Fjölskyldufyrirtæki
Sonur Ólafs Þ. Johnson, Friðþjófur tók við fyr-
irtækinu af föður sínum en Friðþjófur lést ungur
að aldri og þá tók sonur hans við fyrirtækinu,
Ólafur Ó. Johnson. Eftir hans dag hefur rekstur
fyrirtækisins verið í höndum barna Ólafs; Frið-
þjófs, Ólafs og Helgu og hafa þau öll verið stjórn-
arformenn þess um einhvern tíma. „Það eru ekki
mörg fyrirtæki á þessum vettvangi sem ná svo
háum aldri. Í stað þess að líta á fyrirtækið sem
einhvern öldung, þá höfum við kosið að tileinka
okkur orð Emily Dickinson: „Við verðum ekki
eldri með árunum, heldur nýrri með hverjum
deginum“.“
Frá skóreimum upp í bíla
Ó. Johnson & Kaaber hefur komið víða við á
þessum hundrað árum og flutt inn allt frá
skóreimum upp í bíla. „Hin síðari ár höfum við
fært okkur meira til baka í dagvöruna, sem er
matvara og hreinlætisvörur sem við bæði flytj-
um inn og framleiðum og seljum um allt land,“
segir Helga og bætir við: „Það má segja að við
séum að færa út kvíarnar um þessar mundir af
því að fyrirtækið Sælkeradreifing var sameinað
Ó. Johnson og Kaaber á dögunum og það er mjög
stór samningur. Annars er nú alltaf eitthvað að
gerast.“
Helga segir viðskiptaumhverfið hafa breyst
mikið á hundrað árum og heildsölur ekki með
sama sniði og þá. „Við höfum gert áherslubreyt-
ingar í gegnum tíðina og reynt að aðlagast breyttu
umhverfi, enda ætlum við að vera við lýði í að
minnsta kosti í hundrað ár enn,“ segir Helga Guð-
rún Johnson, stjórnarformaður Ó. Johnson &
Kaaber.
HELGA GUÐRÚN JOHNSON: HEILDSALAN Ó. JOHNSON & KAABER HUNDRAÐ ÁRA
Ætlum að vera að í að minnsta
kosti hundrað ár í viðbót
FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI Í HUNDRAÐ ÁR Heildsalan Ó. Johnson & Kaaber fagnaði hundrað ára afmæli fyrir helgina. Helga
Guðrún Johnson, stjórnarformaður fyrirtækisins, er hér með bræðrum sínum Friðþjófi og Ólafi. Þeir hafa líka gegnt
stjórnarformennsku í fyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Bára Magnúsdóttir, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Dansræktar JSB,
fagnar um þessar mundir fjörutíu
ára starfsafmæli sínu. Bára hefur
rekið djassballettskóla og líkams-
ræktarstöð í fjóra áratugi og er ekki
á leiðinni að hætta.
Bára stundaði nám í Bretlandi.
Hún hóf að kenna líkamsrækt jafn-
hliða djassballettkennslu eftir að
hún kom heim frá námi. Starfsemi
Báru hefur svo vaxið jafnt og þétt
allar götur síðan. Í gær var haldið
veglegt opnunarteiti hjá Dansrækt
JSB í Lágmúla þar sem því var fagn-
að að húsnæðið hefur verið stækkað
um ríflega helming og glæsileg lík-
amsræktaraðstaða fyrir konur á
öllum aldri hefur verið innréttuð.
„Við vorum fyrir löngu búnar að
sprengja gamla húsnæðið utan af
okkur og það er mikið tilhlökkunar-
efni að geta boðið viðskiptavinum
okkar þá þjónustu sem þeir eiga svo
sannarlega skilið,” segir Bára sem
er svo sannarlega ánægð með breyt-
ingarnar. Hún slær meira að segja á
létta strengi: „Þótt okkar vinna snú-
ist að miklu leyti um að halda vext-
inum í skefjum, þá var komin mikil
þörf fyrir að bæta við aðstöðuna og
því má segja að stundum sé líka
bráðnauðsynlegt að stækka á réttu
stöðunum.”
40 ára starfsafmæli hjá Báru
BÁRA MAGNÚSDÓTTIR Hefur rekið djassballettskóla og líkamsræktarstöð í fjóra áratugi.
Hún fagnar starfsafmælinu með því að breyta og bæta húsnæðið í Lágmúla.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA