Fréttablaðið - 11.09.2006, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 11. september 2006 3
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn
á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Veggjatítla er vel þekkt á höfuð-
borgarsvæðinu en hennar hefur
líka orðið vart víða um land.
Það má segja að sumum
húsum sé hættara við ágangi
veggjatítlna en öðrum, eins og
húsum þar sem einangrun hefur
rýrnað og rakastig þar af leiðandi
hækkað. Veggjatítla þarf kjörað-
stæður til að lifa. Kjöraðstæður eru
um 22-23 stiga hiti og 30% raki í
viðnum. Þær þrífast ekki í yfir 28
stiga hita. Kjörlendi veggjatítlunn-
ar eru m.a. rök og heit háaloft í
timburhúsum, burðarvirki húsþaka
og bitar og sperrur úr tré.
Veggjatítlan er útbreidd í Evr-
ópu, austanverðri Norður Ameríku,
Grænlandi og trúlega er útbreiðsla
hennar mun meiri. Veggjatítla
þrífst illa úti í náttúrunni á norð-
urslóðum og finnur sér fyrst og
fremst bústað í tréverki, húsum og
húsgögnum. Bjöllurnar klekjast út
á sumrin og skríða úr púpunni inni
í viðnum. Þetta gerist í mestum
mæli í lok júní og fyrri hluta júlí.
Þær éta sig út á yfirborðið en við
það myndast göt, sem eru um 1-2
mm í þvermál.
Hér á landi hafa greinst nokkrar
tegundir af þessari ætt (anobiid-
ae). Ein bjallan er nefnd barkbjalla
(Ernobius mollis), en hún lifir
mestmegnis utanhúss, en hefur þó
fundist í grasasöfnum og í trjáviði
í húsum. Hægt er að greina mun á
veggjatítlum og barkbjöllum á t.d.
vængjunum en vængir veggja-
títlunnar eru langrákóttir og um
3-4 mm en vængir barkbjöllunar
rákalausir og 4-6 mm.
Fullorðnar bjöllur eru einlit-
ar, brúnar, staflaga og nokkuð
breytilegar að stærð eða um
2,8-4,8 mm. Skjaldvængir eru
tiltölulega langir, jafnbreiðir fram
og aftur, hálsskjöldur er mjórri og
kýldur upp í kryppu aftan til. Haus
er kýttur inn undir hálsskjöldinn.
Áberandi rákir með röð holupytta
liggja langs eftir skjaldvængjunum
en undir þeim eru samanbrotnir
flugvængir sem þær nota stundum
þegar þær hafa borað sig út úr
viðnum. Þær fljúga smáspöl til
þess að að kanna nýjar lendur
og sækja þá oft í birtu og safnast
fyrir í gluggum. Bjöllurnar eru
tiltölulega skammlífar, lifa vart
lengur en tvær til þrjár vikur en á
þeim tíma ná þær að makast og
kvendýrin að verpa 20-60 eggjum
í göt eða sprungur. Bjöllurnar
verpa þó eingöngu í við sem hefur
hátt rakastig. Eggin klekjast út á
3-4 vikum og litlu lirfurnar éta sig
inn í viðinn. Lirfurnar eru ljósir,
linir, krepptir, fótstuttir ormar með
harða, dökka höfuðskel. Veggjatítla
leggst á ýmsar viðartegundir, jafnt
barrtré sem lauftré en hraðastur
verður vöxtur lirfanna í trjátegund-
um eins og furu, víði og hesliviði.
Heimildum ber ekki saman um
hve lengi lirfurnar eru að vaxa upp,
sumir segja 2-4 ár en aðrir telja
ferlið vera 4-8 ár. Menn greinir
á um hvenær þær nákvæmlega
verða kynþroska, en talið er að
það sé á tímabilinu 3-8 ára.
Veggjatítlan gefur frá sér hljóð
sem minnir mjög á tif í úri og oft
eru 8-10 tif í röð. Þetta gerir hún
til að láta hitt kynið vita af sér,
sérstaklega á vorin. Dýrin rísa upp
á afturlappirnar og slá framboln-
um í viðinn. Þegar veggjatítlur
eru ónáðaðar eða verða hræddar,
draga þær að sér fætur og fálmara
og liggja grafkyrrar eins og dauðar
væru þangað til þær telja að hætt-
an sé liðin hjá en þá taka þær til
fótanna og reyna að flýja. Hér áður
fyrr hélt fólk að hljóðið frá veggja-
títlunni stafaði frá draugum og
bæði hérlendis og erlendis var það
trú manna að einhver á heimilinu
væri feigur þegar í þeim heyrðist.
Fræðist meira um veggjatítlur í
næstu viku.
Veggjatítla - fyrri hluti
(Anobium punctatum) Wood Borgin Beetles
Laufhreinsun og vetrarsnyrting
bíður garðeigenda á komandi
vikum.
„Aðalhaustverkin sem bíða garð-
eigenda eru síðasti sláttur, byrja
að hreinsa lauf úr garðinum og
svo vetrarklipping, sem fer af
stað í september,“ segir Brynjar
Kjærnested hjá fyrirtækinu
Garðlist sem sérhæfir sig í við-
haldi garða.
„Fólk er strax farið að biðja
okkur um að hreinsa laufið gróf-
lega en trén fella lauf alveg fram
í nóvember, þó mest í lok sept-
ember og byrjun október. Yfir-
leitt er bara farin ein umferð á
haustin en sumir biðja okkur um
að koma tvisvar eða þrisvar sinn-
um og fara létt yfir garðinn,“
segir Brynjar og bætir því við að
það sé frekar nýlunda en hitt að
lauf sé hreinsað að hausti, þó það
færist alltaf í aukana. „Lauf á
beði hlífir gróðri yfir veturinn og
margir vilja láta þau vera af þeim
sökum. Persónulega finnst mér
snyrtilegra að hreinsa laufið á
haustin en það er langmest að
gera í því á vorin.“
Rennur og niðurföll geta enn-
fremur stíflast af laufblöðunum
en Brynjar segir það einkum
vandamál þar sem tré eru mjög
há og gnæfa jafnvel yfir húsin.
„Eina lausnin er að hreinsa renn-
ur reglulega. Víðast hvar er þetta
samt ekki vandamál.“
Brynjar og félagar eru oft
fengnir til að snyrta trjágróður
og segir hann að það sé í raun
hægt allan veturinn. „Flestallar
trjátegundir þola það og það er
skemmtilegt að klippa trén á
haustin því þá eru þau falleg
allan veturinn. Einstaka trjáteg-
undir eru þó viðkvæmar fyrir
kali og það er oft betra að klippa
þær á vorin,“ segir Brynjar.
-elí
Haustverkin hafin
Brynjar segir fleiri og fleiri kjósa að láta hreinsa lauf úr görðum að hausti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
������������������
�������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06
���������������������������������������������������������������������������������
�����������
Svefnkollurinn er mjög þægilegur og einfaldur í
notkun. Microfiber áklæði sem er sérlega slitsterkt,
endingargott og hrindir frá sér óhreinindum.
Fáanlegir í mörgum litum. 5 sekúndur úr kolli í rúm.