Fréttablaðið - 11.09.2006, Side 74

Fréttablaðið - 11.09.2006, Side 74
34 11. september 2006 MÁNUDAGUR Hásteinsvöllur, áhorf.: 533 ÍBV FH TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 19–14 (6–7) Varin skot Guðjón 6 – Daði 3 Horn 9–5 Aukaspyrnur fengnar 15–19 Rangstöður 1–0 FH 4–4–2 Daði 7 Guðmundur 6 Siim 6 Nielsen 7 Hjörtur 6 (78. Matzen -) Atli 7 (89. Ólafur Páll -) Tryggvi 7 Ásgeir 7 Baldur 6 Dyring 6 Matthías 6 *Maður leiksins ÍBV 4–4–2 Guðjón 7 Garner 6 Schulte 7 Mwesigwa 6 (82. Pétur -) Bjarni Hólm 7 Long 7 Bjarni Geir 6 (70. Drost 5) Ingi Rafn 6 Bjarni Rúnar 6 (67. Sævar 5 Atli 6 Andri* 8 0-1 Atli Guðnason (56.) 1-1 Andri Ólafsson (92.) 1-1 Egill Már Markússon (7) FÓTBOLTI „Þetta er ótrúlega svekkj- andi. Nú töpum við í fjórða skiptið í blálokin, annað sinn á móti KR. Við áttum að vera fimm mörkum yfir í hálfleik, þetta er auðvitað algjör brandari. Ég er bara fúll og hef ekki meira að segja um leikinn,“ sagði svekktur þjálfari Víkinga, Magnús Gylfason, eftir að vara- maðurinn Skúli Jón Friðgeirsson hafði tryggt KR sigur gegn Víkingu með marki á 89. mínútu leiksins. Víkingar eru fyrir vikið enn í tals- verðri fallhættu en KR-ingar hafa um stundarsakir skotið sér í annað sæti deildarinnar. Víkingar hófu leikinn af miklum krafti og strax á annarri mínútu fengu Víkingar vítapyrnu. Sigþór Júlíusson handlék knöttinn eftir að Höskuldur Eiríksson gaf inn á teig KR-inga og var Húsvíkingurinn dæmdur brotlegur. Viktor Bjarki Arnarsson tók vítið og skaut í utan- verða stöngina. Heimamenn stjórnuðu leiknum algjörlega í upphafi hans og komu tólf skotum að marki á fyrstu 30 mínútum leiksins. Örskömmu síðar áttu KR-ingar loksins sitt fyrsta skot að marki og fóru upp frá því að vinna sig inn í leikinn. Það var þó Sigþór Júlíusson sem var næst því að skora mark í fyrri hálfleik er hann var næstum búinn að senda boltann í eigið mark. Bolt- inn fór af Sigþóri, yfir Kristján en Vigfús Arnar Jósepsson náði að hreinsa boltann af marklínunni á síðustu stundu. Úrhellisrigning og hvassvirði tók á móti leikmönnum í upphafi síðari hálfleiks. En það skipti engum togum, leikmenn héldu áfram að sækja á báða bóga. Teitur Þórðarson þjálfari KR ákvað að reyna að ná undirtökum á miðjunni með því að skipta Skúla Jóni Friðgeirssyni inn fyrir Björgólf Takefusa. Skúli fór á hægri kantinn og Cyzmek færði sig framarlega á miðjuna. Á þessum kafla átti Grétar þrjú góð skot að marki en alltaf varði Ingvar. Um miðbik síðari hálfleiks hafði KR náð að vinna sig það vel í leik- inn að þeim tókst að byggja upp ágætar sóknir en Víkingar höfðu ekki náð skoti að marki fyrr en á 30. mínútu leiksins. Það tókst þeim ekki fyrr en á 85. mínútu er Davíð skaut að marki úr þröngu færi en Kristján varði. Var þetta ein af fáum sókn Víkings í síðari hálfleik. Eina mark leiksins kom svo í blálokin er Bjarnólfur Lárusson átti góða sendingu inn á Skúla Jón sem hljóp af sér vörn Víkings og skoraði með laglegu skoti í fjær- hornið. Skipting Teits Þórðarsonar hafði borið árangur og fært KR- ingum þrjú dýrmæt stig í barátt- unni um Evrópusæti. Grétar Sig- finnur fékk svo gullið tækifæri til að jafna metin skömmu síðar en skaut yfir af stuttu færi. Leikurinn var vel leikinn þrátt fyrir slæmar aðstæður og voru heimamenn klaufar að færa sér ekki eitt af þeim fjöldamörgum færum í fyrri hálfleik í nyt. Það varð þeim af falli þar sem að KR- ingar uppskáru eftir skynsamlegan leik í síðari hálfleik. „Þetta var mjög ljúft. Við stjórn- uðum leiknum undir lokin eftir mikla baráttu og það var frábært að ná þessum þremur stigum,“ sagði hetja KR-inga, Skúli Jón, eftir leik. - esá SÆTT SIGURMARK Leikmenn KR fagna marki Skúla Jóns Friðgeirssonar vel og inni- lega enda þrjú dýrmæt stig í húfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Magnús Gylfason hundsvekktur er Víkingar fóru illa að ráði sínu gegn KR á heimavelli: Áttum að vera fimm mörkum yfir í hálfleik Víkingsvöllur, áhorf.: 1420 Víkingur KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 15–12 (6–7) Varin skot Ingvar 6 – Kristján 5 Horn 5–7 Aukaspyrnur fengnar 6–6 Rangstöður 2–0 KR 4–4–2 Kristján 7 Sigþór 7 Tryggvi 7 Gunnlaugur* 8 Vigfús 6 Cizmek 7 (80. Ágúst -) Kristinn 6 Bjarnólfur 6 Sigmundur 7 Grétar 7 Björgólfur 5 (65. Skúli Jón 7) VÍKINGUR 4–5–1 Ingvar 8 Höskuldur 7 Grétar 7 Glogovac 7 Andri Tómas 6 Stefán Kári 6 (80. Perry -) Jón G. 4 Daníel 5 Viktor Bjarki 7 Arnar Jón 7 Davíð Þór 6 *Maður leiksins 0-1 Skúli Jón Friðgeirsson 0-1 Ólafur Ragnarsson (7) LANDSBANKADEILDIN STAÐAN FH 16 9 5 2 26-13 32 KR 16 8 2 6 18-25 26 VALUR 15 6 6 3 22-14 24 KEFLAVÍK 16 6 5 5 28-17 23 VÍKINGUR 16 5 5 6 20-13 20 FYLKIR 16 5 5 6 21-22 20 BREIÐABLIK 16 5 4 7 24-31 19 GRINDAVÍK 15 4 6 5 22-20 18 ÍA 16 5 3 8 22-27 18 ÍBV 16 4 3 9 14-35 15 ÚRSLIT LEIKJA Enska úrvalsdeildin WEST HAM-ASTON VILLA 1-1 0-1 Liam Ridgewell (4.), 1-1 Bobby Zamora (52.). Championship - England LEEDS-WOLVES 0-1 Gylfi Einarsson á við meiðsli að stríða og var því ekki með Leeds. Belgíska úrvalsdeildin GENK-GENT 3-1 LOKEREN-BEVEREN 2-0 Rúnar Kristinsson kom inn á sem varamaður á 64. mínútu í liði Lokeren. Danska úrvalsdeildin SILKEBORG-MIDTJYLLAND 0-2 NORDSJÆLLAND-AC HORSENS 0-0 RANDERS-VEJLE 2-1 ODENSE-VIBORG 2-0 Þýska bikarkeppnin LÜBECK-1860 MÜNCHEN 1-0 CARL ZEISS JENA-KÖLN 1-2 ROSSBACH/WIED-GLADBACH 1-4 PFULLENDORF-ARMINIA BIELEFELD 2-1 Helgi Kolviðsson lék allan leikinn fyrir Pfullendorf. SAARBRÜCKEN-MAINZ 1-0 DARMSTADT-HERTHA BERLÍN 0-1 Ítalska úrvalsdeildin ATALANTA-ASCOLI 3-1 1-0 Zampagna (32.), 2-0 Ventola (38.), 3-0 Ven- tola (44.), 3-1 Bjelanovic (59). SAMPDORIA-EMPOLI 1-2 1-0 Bonazzoli (9.), 1-1 Busce (26.), 1-2 Saudati (51.) AC MILAN-LAZIO 2-1 1-0 Inzaghi (27.), 2-0 Oliviera (69.), 2-1 Makinwa (72.). CAGLIARI-CATANIA 0-1 0-1 Corona (55.). CHIEVO-SIENA 1-2 1-0 Pellissier (31.), 1-1 Brevi (74.), 1-2 Chiesa (89.) MESSINA-UDINESE 1-0 1-0 Zanchi (73.). PALERMO-REGGINA 4-3 1-0 Bresciano (11.), 2-0 Biava (17.), 3-0 Corini (27.), 3-1 Bianchi (42.), 3-2 Bianchi (55.), 4-2 Amauri (67.), 4-3 Bianchi (79.). TÓRÍNÓ-PARMA 1-1 0-1 Budan (55.), 1-1 Stellone (90.). Spænska úrvalsdeildin REAL BETIS-ATHLETIC BILBAO 3-0 1-0 Juanito (19.), 2-0 Edu (39.), 3-0 Capi (83.) REAL SOCIEDAD-SEVILLA 1-3 0-1 Renato (8.), 0-2 Kanoute (75.), 0-3 Sjálfsmark (89.), 1-3 Diaz de Cerio (90.). REAL MALLORCA-DEPORTIVO 0-0 VILLARREAL-RECREATIVO HUELVA 0-1 0-1 Santi Cazoria (81.). GETAFE-RACING SANTANDER 1-0 1-0 Guiza (59.). LEVANTE-REAL MADRID 1-4 0-1 Van Nistelrooy (16.), 0-2 Cassano (26.), 1- 2 Ettien (35.), 1-3 Van Nistelrooy (57.), 1-4 Van Nistelrooy (90.). GIMNASTIC-CELTA VIGO 1-2 0-1 Baiano (48.), 1-1 Portillo (67.), 1-2 Nene (74.) Hollenska úrvalsdeildin AJAX-VITESSE ARNHEM 3-0 UTRECHT-WALLWIJK 5-0 NEC NIJMEGEN-AZ ALKMAAR 0-2 Grétar Rafn Steinsson kom inn á í hálfleik fyrir AZ en var skipt út af á 70. mínútu. Jóhannes Karl Guð- jónsson var ekki leikmannahópi AZ. SPARTA ROTTERDAM-FEYENOORD 1-4 GRONINGEN-HERACLES 2-1 Norska úrvalsdeildin TROMSÖ-LYN 1-2 Stefán Gíslason lék allan leikinn fyrir Lyn. MOLDE-VIKING 3-1 Marel Baldvinsson var í byrjunarliði Molde en var skipt af velli á 56. mínútu. VÅLERENGA-FREDRIKSTAD 5-1 Árni Gautur Arason lék allan leikinn fyrir Vålerenga og varði víti í leiknum. HAM-KAM-ODD GRENLAND 3-0 SANDEFJORD-ROSENBORG 0-2 START-LILLESTRÖM 1-0 Jóhannes Harðarson var ekki í hópnum hjá Start. STAÐAN ROSENBORG 19 10 6 3 30-18 36 BRANN 18 10 4 4 27-18 34 LILLESTRÖM 19 9 6 4 33-25 33 STABÆK 18 7 7 4 30-21 28 VÅLERENGA 19 8 4 7 30-24 28 ODD GRENL. 19 7 7 5 27-24 28 LYN 19 8 4 7 26-27 28 START 19 7 6 6 20-23 27 HAM-KAM 19 6 4 9 24-33 22 SANDEFJORD 19 6 4 9 24-33 22 FREDRIKSTAD 19 5 6 8 27-35 21 MOLDE 19 6 2 11 21-31 20 TROMSÖ 19 4 5 10 22-30 17 VIKING 19 4 5 10 17-27 17 Sænska 1. deildin FALKENBERG-NORRKÖPING 2-0 Garðar Gunnlaugsson og Stefán Þórðarson léku báðir allan leikinn fyrir Norrköping. FÓTBOLTI Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var sáttur við sína menn í leikslok og fannst þeir hafa átt meira skilið. „Mér var farið að finnast undir lokin að við gætum spilað hérna í fjóra tíma í viðbót án þess að skora. Það var alla vega gleðilegt að fá þetta mark undir lokin en ég er á því að við hefðum svo sannarlega átt að vinna þennan leik,“ sagði Heimir „Það er ekki hægt að bíða endalaust eftir að framherjarnir skori og mér fannst kominn tími til að reyna eitthvað nýtt. Andri skoraði og mér fannst hann spila mjög vel í framlínunni og er mjög ánægður með hans vinnuframlag í leiknum.“ En hvernig metur Heimir stöðuna núna þegar eingöngu tvær umferðir eru eftir. „Eftir önnur úrslit í þessari umferð er ljóst að við þurfum að vinna báða leikina sem við eigum eftir ef við ætlum að eiga möguleika. Það er enn líflína sem við getum hangið í en við erum í langerfiðustu stöð- unni, það er alveg ljóst,“ sagði Heimir. - jiá Heimi Hallgrímssyni fannst sínir menn eiga meira skilið úr leiknum: Getum enn hangið í líflínunni FÓTBOLTI FH-ingar voru tveimur mínútum frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á Hásteins- velli í Vestmannaeyjum í 16. umferð Landsbankadeildarinnar. Andri Ólafsson, sem að þessu sinni lék í fremstu víglínu hjá ÍBV, kom hins vegar í veg fyrir það með frá- bæru skallamarki utan úr teig, þegar vallarklukkan sýndi 92 mín- útur. Þar jafnaði hann leikinn eftir að Atli Guðnason hafði komið FH yfir með skallamarki í upphafi seinni hálfleiks hinum megin á vellinum. Lokatölur leiksins urðu 1-1. Það var greinilegt strax á upp- hafsmínútunum að bæði liðin ætl- uðu sér öll þrjú stigin en ÍBV þurfti svo sannarlega á þeim að halda í fallbaráttunni á meðan FH-ingar gátu tryggt sér meistaratitilinn með sigri. Sóknarbolti var það sem rúmlega fimm hundruð áhorfend- um á Hásteinsvelli var boðið upp á og mátti vart á milli sjá hvort liðið væri á botni eða toppi deildarinnar . Á heildina litið var það botnliðið ÍBV sem var atkvæðameira upp við markið en Eyjapeyjar áttu alls nítján skot á markið í leiknum á meðan Hafnfirðingarnir áttu þrett- án tilraunir. Það vakti athygli að Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hafði sett framherja liðsins á bekk- inn og setti miðjumennina Atla Jóhannsson og Andra Ólafsson fremst. Það kom ágætlega út og sérstaklega var Andri hættulegur upp við mark FH þar sem hann skaut meðal annars í stöng og skall- aði svo í netið á lokamínútunum. FH-ingar léku ágætis fótbolta oft á tíðum með Tryggva Guð- mundsson sem sinn besta mann á miðjunni. Þeim gekk hins vegar illa að koma knettinum framhjá Guðjóni Magnússyni, góðum mark- verði ÍBV. Leikurinn var í heild góð skemmtun fyrir áhorfendur og mörkin hefðu vel getað orðið fleiri, en FH-ingar verða að bíða að minnsta kosti þar til í næstu umferð til að tryggja sér titilinn sem Tryggvi Guðmundsson segir reynd- ar vera langt í. „Ég met þetta þannig eftir þennan leik að það skortir ákveðinn karakter í þetta lið hjá okkur. Við erum tveimur mínútum frá því að landa titlinum hér í Eyjum og við drullumst ekki til að halda markinu hreinu. Mér fannst við vera mikið betri í þess- um leik og áttum að landa sigri hér,“ sagði Tryggvi Guðmundsson sem var mjög svekktur að hafa ekki staðist pressu Eyjamanna á lokamínútunum. „Þeir tóku mann úr vörninni og settu Bjarna Hólm upp á topp undir lokin og fóru að senda langa bolta. Það skilar sér oft í mörkum og það gerði það því miður núna,“ sagði Tryggvi sem er ósáttur við gengi sinna manna að undanförnu og er ekki viss um að FH-ingar muni landa titlinum í næstu umferð þegar þeir taka á móti Víkingum í Hafnarfirði. „Þetta er nú ekkert allt of bjart núna. Við þurfum að fá þetta sigur- bragð og tilfinninguna aftur ef við ætlum að klára þetta, það er langt í titilinn hjá okkur eins og staðan er í dag,“ sagði Tryggvi. - jiá FH tvær mínútur frá titlinum Andri Ólafsson var hetja ÍBV er hann tryggði liðinu sínu annað stigið gegn FH í gær og frestaði því um leið hátíðahöldum FH-inga um eina viku að minnsta kosti. ÍBV er enn á botni deildarinnar þar sem þó allt getur enn gerst. EINN AÐ STÍGA UPP OG HINN Í GRASINU Matt Garner Eyjamaður ætlar sér boltann en FH-ingur liggur í grasinu eftir viðskipti þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN INGI SKALLAEINVÍGI Úr leik ÍBV og FH.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.