Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 78
 11. september 2006 MÁNUDAGUR38 HRÓSIÐ FÆR … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 FRÉTTIR AF FÓLKI Ofurtala 6 29 31 33 34 6 22 23 33 35 37 3 41 8 2 8 7 8 5 0 4 4 4 1 6.9.2006 Einfaldur 1. vinningur næsta laugardag 1. vinningur gekk ekki út 25 9.9.2006 Einfaldur 1. vinningur næsta laugardag 1. vinningur gekk ekki út LÁRÉTT: 2 hljóðfæri 6 í röð 8 bók 9 mánuður 11 guð 12 slagsmál 14 andlitslitur 16 skóli 17 sigti 18 fiskur 20 tveir eins 21 stígur. LÓÐRÉTT: 1 þurrka út 3 klukka 4 forði 5 óhreinka 7 heykvísl 10 vætla 13 maðk 15 inn- yfla 16 blástur 19 kusk. LAUSN: LÁRÉTT: 2 Túba, 6 Fg, 8 Rit, 9 Maí, 11 Ra, 12 Áflog, 14 Farði, 16 Ma, 17 Mið, 18 Áll, 20 Rr, 21 Slóð. LÓÐRÉTT: 1 Afmá, 3 Úr, 4 Birgðir, 5 Ata, 7 Gaffall, 10 Íla, 13 Orm, 15 Iðra, 16 Más, 19 Ló. Fegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er stödd í Póllandi þar sem hún lýkur starfs- skyldum sínum sem feg- ursta kona heims. Unnur Birna greinir samvisku- lega frá ævintýrum sínum og uppák- omum á bloggsíðu sinni, unnurbirna. blog.is. Um helgina kom þar fram að hún hefði hitt sjálfan Lech Walesa, merkan mann að hennar sögn sem gaman var að hitta. „Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er hr. Walesa nokkurskonar „Nelson Mandela“ Evrópu og hefur í gegnum tíðina margoft skráð nafn sitt á spjöld sögunnar,“ skrifar fegurðardrottn- ingin um fund sinn og Walesa. Grímur Hákonarson kvikmynda- gerðarmaður undirbýr nú næstu mynd sína. Hermt er að umfjöllun- arefni hennar verði íslensk glíma, nánar tiltekið íslenskir glímumenn á ferðalagi. Fangbrögð íslenskra glímumanna og tignarlegur dans með forboðnum undirtónum ættu að verða forvitnilegt umfjöllunarefni, ekki síst eftir vinsældir kvik- myndarinnar Brokeback Mountain. Grímur neitar því þó að mynd sín eigi eitt- hvað skylt við þá kvikmynd, segist hið minnsta hafa fengið hugmynd sína fyrir margt löngu. Aðdáendur Björgvins Halldórs- sonar hafa fengið sitt fram og þriðju stórtónleikum kappans hefur nú verið bætt við í lok mánaðarins. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá seldist fljótt upp á fyrri tvo tónleikana og gríðar- legur áhugi hefur verið fyrir þriðju tón- leikunum. Þeir verða daginn eftir áður fyrir- hugaða tónleika, sunnudaginn 24. september klukk- an 20. Miðasala hefst á föstudag og Bó býður aðdáendum sínum sem fyrr aðeins upp á það besta, númeruð sæti og besta mögulega hljóðkerfi landsins. -hdm Kvikmyndin Börn eftir Ragnar Bragason og leikhópinn Vesturport var forsýnd fyrir fullum sal í Háskólabíói á laugardag, Valinn maður er í hverju rúmi en að öðrum ólöstuðum stendur hinn fjórtán ári gamli Andri Snær Helgason upp úr með frábærri frammistöðu í erfiðu hlutverki. „Systir mín reddaði mér hlutverk- inu,“ segir Andri um það hvernig það kom til að hann lék í myndinni, en systir hans er Nína Dögg Fil- ipusdóttir og leikur móður hans í myndinni. Spurður hvernig það hafi verið að leika son systur sinn- ar skellir Andri upp úr og segir að það hafi verið gaman. „Við nátt- úrulega þekkjumst vel svo þetta var bara létt.“ Í myndinni leikur Andri elsta son einstæðrar fjögurra barna móður sem þarf að takast á við byrði þess að vera elstur auk þess sem hann er lagður í einelti í skól- anum. Skemmst er frá því að segja að hann skilar rullunni af mikilli sannfæringu og öryggi. „Ragnar og hinir leikararnir leiðbeindu mér mikið, töluðu við mig og útskýrðu alveg hvernig ég átti að vera. Ég reyndi svo bara að gera eins og þau sögðu.“ Áður hefur Andri leikið í nokkr- um auglýsingum og eftir að tökum á myndinni lauk lék hann í nokkr- um atriðum í Stelpunum. Hann kveðst hins vegar ekki vera búinn að ákveða hvort hann ætli að leggja leiklistina fyrir sig, enda hefur hann nægan tíma til að hugsa um hvað hann ætlar að verða. Aðal- áhugamál hans er hins vegar knatt- spyrna og hann spilar fótbolta með 3. flokki Fjölnis í Grafarvogi. Andri fær nasasjón af lífi fræga fólksins því eftir hálfan mánuð flýgur hann út til Spánar ásamt aðstandendum myndarinnar, til þess að vera viðstaddur kvik- myndahátíð þar sem myndin verð- ur sýnd. „Þetta er næstum því eins og að vera orðinn kvikmynda- stjarna,“ segir hann og hlær. „Mér fannst bara skemmtilegt að sjá sjálfan mig á hvíta tjaldinu,“ bætir hann við og tekur velgengninni augljóslega af fyllstu hógværð. Andri gengur í Foldaskóla og segir að krakkarnir í skólanum séu áhugasamir um myndina. „Það eru margir búnir að spyrja mig út í hana og það væri gaman að geta farið með þeim að sjá hana við tækifæri,“ segir leikarinn ungi að lokum. Kvikmyndin Börn verður frum- sýnd í Háskólabíói föstudaginn 15. september. bergsteinn@frettabladid.is ANDRI SNÆR HELGASON: FJÓRTÁN ÁRA Í BURÐARHLUTVERKI Skemmtilegt að sjá sjálfan sig á hvíta tjaldinu ANDRI SNÆR Hefur ekki hugmynd um hvort hann langi til að verða leikari en fótbolti er aðaláhugamálið. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 15 sentímetrum. 2 Völundur Snær Völundarson 3 Slaufur sem Jones hannar sjálfur „Þetta er auðvitað heilmikil keppni og ég neita því ekki að það hefði verið skemmtilegra að vinna. En ég er ekkert með böggum hildar yfir þessu,“ segir fréttamaður- inn Logi Bergmann Eiðsson. Logi varð að gera sér annað sætið að góðu í árlegu móti golfklúbbs- ins Stulla, tapaði fyrir stór- söngvaranum Stefáni Hilmarssyni. „Ég gaf aðeins eftir í lokin og var til dæmis ekki með í síðasta mótinu. En Stebbi er vel að sigrinum kom- inn, hann er búinn að vera á mik- illi siglingu í sumar,“ sagði Logi í gær, en ekki náðist í Stefán. Alls eru 20 manns í golf- klúbbnum Stullum. Auk Loga og Stefáns eru fleiri nafntogaðir menn félagar í klúbbnum, svo sem Kristinn Geirsson, framkvæmda- stjóri Ingvars Helgasonar, Bjarni Bene- diktsson alþingis- maður og Skúli Gunn- steinsson, forstjóri IMG og fyrrverandi handboltamaður. Logi segir að grunnur hópsins séu gamlir vinir úr Réttarholtsskóla en síðan hafi bæst við félagar úr ýmsum áttum. „Það er mikill félags- skapur í kringum þetta. Bæði eru fleiri mót eins og bikarkeppnin og svo er auðvitað árshátíð,“ segir Logi Bergmann, silfurverðlauna- hafi í Stullamót- inu 2006. - hdm Stebbi Hilmars Stullameistari 2006 LOGI BERGMANN Hafnaði í öðru sæti í Stullamótinu. STEFÁN HILMARSSON Stullameistarinn árið 2006. Vel að sigrinum kominn, að sögn Loga. BJARNI BENEDIKTSSON Hafnaði í 7.-10. sæti. Listneminn Símon Birgisson lenti í miður skemmtilegri uppákomu fyrir helgina þegar fartölvu hans var stolið. Símon stundar nám við Listaháskóla Íslands og brá sér frá í stuttu stund. Þegar hann sneri til baka hafði óprúttinn aðili látið greipar sópa og var horfinn á brott með vélina. Símon er síður en svo sáttur. „Þetta er alveg ömurlegt, sér- staklega þar sem við nemar erum nú ekki vel stæðir. Svo hafði tölv- an auðvitað tilfinningalegt gildi, enda er ævistarf manns þarna inni,“ segir Símon. Hann segir að í tölvu sinni hafi verið handrit og uppköst að smásögum sem hann er búinn að vinna að síðustu tvö eða þrjú árin auk þúsunda ljós- mynda, meðal annars þeirra sem hann tók fyrir Skákfélagið Hrók- inn á Grænlandi. Símon segir að hann hafi feng- ið þær upplýsingar hjá lögregl- unni að litlar líkur séu á því að hann endurheimti tölvuna sína. Hjá tryggingafélaginu er engar bætur að fá. „Það er ekkert hægt að gera nema tölvan finnist í ein- hverju dópbæli. Mér er sagt að þetta sé að verða ein algengasta tegund þjófnaðar, þessir gaurar ganga bara inn í skólana, ná sér í tölvu og rjúka út aftur. Á endan- um getur maður þó bara kennt sjálfum sér um og þetta verður dýr lexía,“ segir Símon sem varar alla nema við fartölvuþjóf- unum. Fólk eigi að passa upp á eigur sínar: „Maður má ekki skilja tölvuna neins staðar eftir og þarf helst að taka hana með sér á klósettið.“ Símon segir að viðbrögð Lista- háskólans hafi þó verið til mik- illar fyrirmyndar. Umræða hafi farið fram um málið innan veggja skólans og eftirlit hafi verið aukið. Til að mynda hafi verið settur hengilás á matsal skólans til að varna þjófum aðgang. Símon biður alla þá sem geta veitt sér einhverjar upplýs- ingar um málið að hafa samband við sig. Netfang hans er sim- on06@lhi.is. -hdm Fartölvu stolið af fátækum listnema FORVIÐA LISTNEMI Símon Birgisson er ekki sáttur við að fartölvu hans var stolið í skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ... frændsystkinin Margrét Jónasdóttir förðunarfræðingur og Nonni í Quest hárgreiðslu- maður en þau vöktu mikla lukku á förðunarsýningu í Svíþjóð á dögunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.