Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 2
2 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
SPURNING DAGSINS
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�������������������
����������������������������������������������������������������
������
�������
�����
����
������
�
������
���
DÓMSMÁL Mál ákæruvaldsins gegn
Lofti Jens Magnússyni, sem ákærð-
ur er fyrir að hafa veitt Ragnari
Björnssyni banahögg á veitinga-
húsinu Ásláki í Mosfellsbæ í desem-
ber 2004, verður tekið til aðalmeð-
ferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í
dag.
Loftur er ákærður fyrir að hafa
veitt Ragnari hnefahögg efst í háls-
inn vinstra megin með þeim afleið-
ingum að brot kom í hálshryggjar-
lið og slagæð við hálshrygg rofnaði.
Í ákæru segir að höggið hafi valdið
mikilli blæðingu inn í höfuðkúpu
sem leiddi til þess að maðurinn lést
vegna blæðingar á milli heila og
innri heilahimna.
Aðfaranótt 12. desember veitti
Loftur Ragnari hnefahöggið og
hefur meðferð málsins því tekið
næstum tvö ár áður en það er tekið
til aðalmeðferðar í dómssal. Lofti
var sleppt úr haldi lögreglu átta
dögum eftir líkamsárásina. Í fyrstu
fór lögreglan fram á að honum yrði
haldið í gæsluvarðhaldi í sex vikur
en Hæstiréttur féllst ekki á það,
þar sem lögreglu tókst ekki að færa
viðhlítandi rök fyrir því að nauð-
synlegt væri að halda honum í varð-
haldi vegna almannahagsmuna, að
mati dómara Hæstaréttar.
Verjandi Lofts, Björn Ólafur
Hallgrímsson hæstaréttarlögmað-
ur, fór fram á að kvaddir yrðu til
matsmenn til þess að fara yfir
krufningarskýrslu Þóru Steffensen
réttarmeinafræðings. Björn Ólafur
sagði álit Þóru hafa verið litað af
skýrslu lögreglu um málið og van-
rækt hefði verið að skoða til hlítar
þætti sem gætu verið skjólstæðingi
hans til málsbóta.
Hæstiréttur féllst á að kalla til
matsmenn sem fóru vandlega yfir
álit Þóru. Með niðurstöðu sinni
sneri Hæstiréttur úrskurði Héraðs-
dóms Reykjavíkur, sem ekki var
tilbúinn til þess að verða við beiðni
ákærða og lögmanns hans. Mats-
mennirnir verða kallaðir fyrir dóm-
ara við aðalmeðferð málsins og
gera þeir grein fyrir niðurstöðum
sínum í vikunni.
Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari fór fram á það fyrir
hönd ákæruvaldsins að kröfu Lofts
og verjanda hans yrði hafnað og
sagði máli sínu til stuðnings að ekki
væri óeðlilegt þó réttarmeinafræð-
ingur hefði lögregluskýrslu undir
höndum til þess að styðjast við.
Benti Ragnheiður á að nauðsynlegt
væri að hafa til grundvallar allar
grunnupplýsingar um málsatvik
þegar unnið væri að krufningar-
skýrslu. magnush@frettabladid.is
Banaði manni með
þungu hnefahöggi
Mál ákæruvaldsins gegn 27 ára gömlum manni, Lofti Jens Magnússyni, verður
tekið til aðalmeðferðar í dag. Loftur er ákærður fyrir að hafa banað hálfsextug-
um manni með þungu hnefahöggi á veitingahúsinu Ásláki í desember 2004.
PALESTÍNA, AP Forseti og forsætis-
ráðherra Palestínumanna lýstu
yfir í gær að samkomulag hefði
náðst um nýja samsteypustjórn
Hamas-samtakanna og Fatah-
hreyfingarinnar. Fatah-hreyfingin
þykir hófsöm en Hamas-samtökin
herská og er vonast til að með nýrri
stjórn verði hægt að draga úr ein-
angrun Palestínumanna á alþjóða-
grundvelli.
Flest vestræn ríki hafa snið-
gengið heimastjórn Hamas-sam-
takanna, svo að hún hefur ekki
getað borgað um þriðjungi Palest-
ínumanna laun í sex mánuði. Mót-
mæli þessara launþega gegn
Hamas munu hafa knúið samtökin
til að ganga að samningaborðinu og
milda afstöðu sína til Ísraelsríkis.
Ekki hefur verið greint
nákvæmlega frá stjórnarsáttmála
hinnar nýju þjóðstjórnar og ekki er
vitað hversu langt verður gengið
til sátta við Ísraelsmenn, en samn-
ingurinn mun byggjast á „fangap-
lagginu“, tillögu palestínskra fanga
í ísraelskum fangelsum. Í þeirri til-
lögu var ýjað að því að tilverurétt-
ur Ísraelsríkis yrði viðurkenndur.
Eitt atriði samningsins er þó
þekkt; að krafist verði sjálfstæðs
ríkis Palestínumanna, með Jerús-
alem sem höfuðborg. - kóþ
Tilkynnt um nýja stjórn Palestínumanna:
Fatah og Hamas í eina sæng
LEIÐTOGAR PALESTÍNUMANNA Ismail
Haniyeh, forsætisráðherra og leiðtogi
Hamas-samtakanna (vinstra megin),
spjallar við Mahmoud Abbas, forseta
palestínsku heimastjórnarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Átta af tíu flugfarþegum í innanlands-
flugi segjast munu fljúga minna ef flugið verði flutt
úr Vatnsmýri til Keflavíkur. Níutíu prósent telja
flugþjónustu mjög mikilvæga fyrir byggðarlag sitt.
Þetta eru niðurstöður viðhorfskönnunar meðal 570
farþega í innanlandsflugi á leið til Reykjavíkur sem
gerð var fyrir samgönguyfirvöld.
Einnig kemur fram í niðurstöð-
um könnunarinnar að flugfarþeg-
ar fari að meðaltali um tólf til
fimmtán ferðir til höfuðborgar-
innar á ári, þar af um sjö til níu
ferðir með flugi. Flestir farþega
eru 35-50 ára karlar á leið til
Reykjavíkur vegna vinnu.
„Það hefur ekki út af fyrir sig
verið á dagskrá hjá Samfylking-
unni að flytja innanlandsflug til
Keflavíkur, nema til verulegra
samgöngubóta komi þar á milli,“ segir Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingar, um
niðurstöðurnar. „Kannanir sýna líka að lágt hlutfall
þeirra sem nota millilandsflug nýtir innanlandsflug
til að koma frá landsbyggðinni og í sitt tengiflug.
Þessi könnun nær ekki til þeirra.“
Ekki náðist í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóra vegna málsins. - sþs
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal flugfarþega á flugsamgöngum innanlands:
Fæstir vilja flugið til Keflavíkur
DAGUR B.
EGGERTSSON
VATNSMÝRIN Flugfarþegar fara að meðaltali um tólf til fimmt-
án ferðir til höfuðborgarinnar á ári. Þar af eru sjö til níu farnar
með flugi.
Benedikt, ertu titlaður sem
jólasveinn í símaskránni?
„Nei, en ég er nú orðinn hálfgerður
jólasveinn eftir allan þennan tíma.“
Benedikt Grétarsson er eigandi Jólagarðs-
ins í Eyjafjarðarsveit, sem heldur upp á
tíu ára afmæli sitt í ár.
LÍKAMSÁRÁS Mennirnir tveir sem
lögregla leitaði að vegna hnífs-
stungumáls í Select í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags gáfu sig
fram síðdegis í gær. Þeir eru
grunaðir um aðild að líkamsárás-
inni þar sem öryggisvörður var
stunginn í bakið og afgreiðslumað-
ur hlaut skurð á andliti.
Mennirnir, sem eru á tvítugs-
aldri, gáfu sig fram nokkrum
klukkustundum eftir að lögregla
sendi fjölmiðlum myndir sem
náðust af þeim í öryggismyndavél.
Yfirheyrslur hófust í gærkvöld.
Þegar blaðið fór í prentun lá ekki
fyrir hvort gæsluvarðhalds yrði
krafist. - sþs
Hnífsstungumennirnir fundnir:
Gáfu sig fram
við lögreglu
RAGNHEIÐUR
HARÐARDÓTTIR
Sækir málið fyrir
hönd ákæru-
valdsins.
ÁSLÁKUR Í MOSFELLSBÆ Líkamsárásin átti
sér stað á veitingahúsinu Ásláki í desember
2004 og hefur málið því verið til meðferðar í
næstum tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
DÓMSMÁL Erlendur maður, með
lögheimili í Barcelona á Spáni,
hefur verið dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi, skilorðsbundið,
fyrir að ganga í skrokk á sambýl-
iskonu sinni og hóta henni lífláti.
Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Maðurinn hélt hnífi við háls
konunnar og hótaði að drepa
hana, að því er konan bar við
skýrslutöku. Hann tók hana
tvívegis kverkataki, sló hana
margsinnis í andlitið og mis-
þyrmdi henni með þeim afleiðing-
um að hún marðist og bólgnaði
víðs vegar um líkamann.
Maðurinn neitaði sakargiftum
að mestu við yfirheyrslur og bar
við minnisleysi. Fyrir dómi játaði
hann hins vegar sök. Hann var
dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til
þriggja ára. Hann hafði aldrei
gerst sekur um refsiverða
háttsemi áður og hafði það áhrif á
ákvörðun refsingar. - jss
Hlaut fjögurra mánaða skilorð:
Hótaði sambýl-
iskonu dauða
LÖGREGLUFRÉTT Ökumaður keyrði
út af í Kömbum hjá Selfossi rétt
fyrir átta í gærkvöldi. Betur fór
en á horfðist því engin slys urðu á
fólki svo vitað sé.
Ekki er vitað nákvæmlega
hvað varð til þess að bíllinn ók út
af veginum en nokkru áður var
lögreglu tilkynnt um ruddaakstur
bíls á sama svæði. Bifreiðin hafi
tekið glannalega fram úr öðrum
og keyrt óspart yfir tvær hvítar
línur sem skilja akreinar að.
Samkvæmt fulltrúa lögregl-
unnar á Selfossi var orsök
slyssins því líklegast að maðurinn
hafi einfaldlega „keyrt eins og
fífl“. - sþs
Ökumaður við Selfoss:
Keyrði eins og
fífl af veginum
Innbrot í Sandgerði
Brotist var inn í þrjú fyrirtæki í Sand-
gerði í gær. Lögreglan á Selfossi gat
ekki gefið upp hvort einhverju var
stolið og þá hverju. Ekki er vitað hver
var að verki, en í öllum innbrotunum
var farið inn með því að brjóta rúðu.
LÖGREGLUFRÉTT
TEXAS, AP Lóð menntaskóla eins í
Texas var lokað í gær og lögreglan
kölluð út, eftir að vegfarandi
hringdi og tilkynnti um hryðju-
verkaárás á skólann.
Nokkrir nemendur voru að
vinna verkefni fyrir sögutíma, sem
fólst í því að endurgera árás úr
Víetnamstríðinu og taka af því
myndir. Þeir voru því vígalegir; í
grænum felubúningum og með
gerviriffla.
Almannatengill skólanefndar
héraðsins sagði að enginn bæri
sérstaka ábyrgð á uppákomunni en
að vissulega mætti setja spurning-
armerki við tímasetningu verkefn-
isins, þann 11. september. - kóþ
Skólaverkefni 11. september:
Endaði með út-
kalli lögreglu
BJÖRGUN Skipstjóri á fiskitogaran-
um Baldvin var sóttur af þyrlu
Landhelgisgæslunnar í gærmorg-
un. Hann hafði dottið og slasast
kvöldið áður og var sú ákvörðun
tekin að senda þyrlu að sækja
hann, enda lítið um læknisaðstöðu
um borð. Skipið var að veiðum
um tvö hundruð mílur norðaustur
af Raufarhöfn.
Ákveðið var að bíða með að
senda þyrluna þangað til togarinn
væri kominn nær landi. Hún fór á
loft um sjöleytið í gærmorgun og
var komin til baka með manninn
um hádegisbil. Ekki þótti ástæða
til að fara með hann á sjúkrahús
en gert að sárum hans í skýli
Landhelgisgæslunnar. - sþs
Skipstjóri á fiskitogara:
Sóttur með þyrlu
Landhelgisgæslu