Fréttablaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 6
6 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR HARMLEIKURINN 11. SEPTEMBER KJÖRKASSINN Manst þú hvar þú varst 11. september 2001? Já 95% Nei 5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Horfðir þú á bikarúrslitaleik Vals og Breiðabliks í knatt- spyrnu kvenna? Segðu skoðun þína á visir.is BANDARÍKIN, AP Bandaríkjamenn minntust þess í gær að fimm ár voru liðin frá hryðjuverkárásun- um sem urðu 2.749 manns að bana. Minningarathafnir voru haldn- ar víða og voru einnar mínútu þagnir haldnar fjórum sinnum í New York þar sem Tvíburaturn- arnir áður stóðu, til að minnast þess þegar flugvélarnar rákust á þá og þegar þeir hrundu. Fjöl- margir ættingjar hinna látnu voru samankomnir í New York og héldu á myndum af ástvinum sínum, báðust fyrir og grétu hljóðlega á meðan nöfn allra hinna látnu voru lesin upp. George W. Bush Bandaríkja- forseti og eiginkona hans, Laura, mættu á staðina þrjá þar sem flug- vélunum var eytt, í New York, í varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna í Washington og á túnið í Pennsylvaníu, þar sem fjórða vélin hrapaði eftir að talið er að farþegum hafi tekist að yfirbuga hryðjuverkamennina. Atburðanna var jafnframt minnst víða um heim, enda hafa þeir og eftirleikur þeirra markað spor í nútímasöguna. Sagði for- sætisráðherra Nýja-Sjálands, Helen Clark, að heimurinn hefði síður en svo orðið öruggari síðan í september árið 2001 og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði að „umburðarlyndi og virð- ing gagnvart öðrum menningar- hópum“ yrði að marka veginn í alþjóðlegri baráttu gegn hryðju- verkum. - smk Fórnarlambanna minnst Minningarathafnir voru haldnar í Bandaríkjunum í gær í tilefni þess að fimm ár voru liðin frá hryðjuverk- unum sem urðu nær 3.000 manns að bana. FÓTSPOR TURNSINS Minningarathöfnin var haldin þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FORSETAHJÓNIN George W. Bush Bandaríkjaforseti og kona hans, Laura, tóku þátt í athöfninni í New York í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP RÆÐUR HALDNAR Dick Cheney varafor- seti hélt ræðu í Pentagon í gær. Við hlið hans er Donald Rumsfeld varnarmála- ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MINNINGARATHÖFN Patricia Smith missti móður sína í hryðjuverkaárásun- um. Patricia tók þátt í minningarathöfn- inni í New York . FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓRNARLAMBA MINNST Slökkviliðs- menn tóku þátt í minningarathöfnum víða um Bandaríkin í gær. Þessi mynd er tekin í Fíladelfíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ENN FLEIRI FÓRNARLÖMB Lítið reyndist eftir af fjórðu farþegavélinni sem talið er að hryðjuverka- menn hafi rænt, en vélin hrapaði á túni í Pennsylv- aníu. Allir um borð, 45 manns, fórust. NORDICPHOTOS/AFP PENTAGON Hryðjuverkamenn- irnir eru sagðir hafa rænt annarri vél og flogið henni á Pentagon skömmu eftir að árásirnar voru gerðar á Tvíburaturnana. NORDICPHOTOS/AFP FLOGIÐ Á TURNANA Hryðjuverkamenn rændu tveimur farþegaflugvélum og flugu þeim á turnana tvo með þeim afleiðingum að þeir hrundu. NORDICPHOTOS/AFP Þetta eru vinnubrögð sem ekki er hægt að sætta sig við. ÖGMUNDUR JÓNASSON ÞINGMAÐUR VG Í blaðinu í gær var ekki rétt sagt frá stóðréttum í Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra. Stóðið verður réttað laugardaginn 7. október, en daginn áður verður því smalað til byggða af Víðidalstunguheiði. LEIÐRÉTTING Afmæli, ekki ártíð Í frétt um Yoko Ono í gær var 9. októ- ber næstkomandi misnefndur sem 66. ártíð Johns Lennon heitins. Hið rétta er að 9. október er 66. afmæli Johns Lennon. LEIÐRÉTTING KÓLOMBÓ, AP Minnst fimmtíu tamílskra barna og ungmenna er saknað eftir átökin á Jaffna-skaga í ágústmánuði, segir yfirmaður mannréttindanefndar Srí Lanka á Jaffna. Óttast er að mörgum þeirra hafi verið rænt. Ættingjar margra barnanna segja að öryggissveitir stjórnarhersins hafi komið heim til þeirra og handtekið börnin. Alls 67 ungmenni týndust í mánuðinum og er vitað um afdrif sautján þeirra. Þau féllu ýmist fyrir hendi óþekktra vígamanna eða létust í gæslu stjórnarhersins og í flóttamannabúðum. Fátítt er að þeir sem ræna börnum á Jaffna-skaga séu ákærðir, því almenningur óttast hefndaraðgerðir brotamanna, að sögn mannréttindanefndarinnar. - kóþ Mannréttindasamtök á Jaffna: Tamílskum börnum rænt BÖRN Á SRÍ LANKA FYLGJAST MEÐ Foreldrarnir óttast hefndaraðgerðir barnaræningjanna og kæra þá því ekki. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir manni sem grunaður er um brot á höfundar- lögum og lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Hann var handtekinn þann 10. ágúst síðastliðinn og 250 gígabæta harður diskur gerður upptækur. Við yfirheyrslur viðurkenndi maðurinn að hafa afritað gögn af netþjóni yfir á harða diskinn. Rannsókn á disknum stendur nú yfir og verður maðurinn yfir- heyrður aftur í tengslum við hana. Því var hann dæmdur í farbann til fimmtudagsins 21. september. - sþs Grunur um höfundarlagabrot: Farbann staðfest í Hæstarétti STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, vék af fundi iðn- aðarnefndar Alþingis í gær eftir að forsvarsmenn Landsvirkjunar sögðust tilbúnir að ræða um endur- skoðað arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar á fundinum gegn því að nefndarmenn færu með upp- lýsingarnar sem lagðar voru fram sem trúnaðarmál. Þessu var Ögmundur ekki til- búinn að fara eftir. „Að undan- förnu hafa komið fram sjónarmið frá ýmsum sérfræðingum sem gefa tilefni til þess að skoða vandlega arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar. Landsvirkjun fór fram á það að farið væri með upp- lýsingarnar sem lagðar voru fram sem trúnaðar- gögn. Þetta eru vinnubrögð sem ekki er hægt að sætta sig við. Það eru stöðugt að koma fram upplýs- ingar sem gefa tilefni til þess að allar upplýsingarn- ar verði lagðar á borðið og bornar undir óháða sér- fræðinga,“ sagði Ögmundur og lagði áherslu á að það væru forkastanleg vinnubrögð hjá Landsvirkjun að krefjast trúnaðar. „Þetta er eins ólýðræðislegt og hugsast getur.“ Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar, sagði það alveg ljóst að raforkuverð vegna Kárahnjúkavirkjunar væri trúnaðarmál. „Það var farið yfir endurskoðað arðsemismat, og þar með raf- orkuverð. Það liggur fyrir að þær upplýsingar eru trúnaðarmál,“ sagði Þorsteinn. - mh Ögmundur Jónasson vék af fundi iðnaðarnefndar Alþingis í gær: Blöskraði slæm vinnubrögð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.