Fréttablaðið - 12.09.2006, Síða 10
10 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
FÍLAPÓLÓ Í TAÍLANDI Bandarískur
leikmaður reynir að verja boltann
ásókn ítalska keppinautarins í Kon-
unglegu fílapólókeppninni sem haldin
var í fjöllunum við yfirráðasvæði
Gullna þríhyrningsins. NORDICPHOTOS/AFP
MENNTAMÁL „Er þetta bókmennta-
þjóðin, hér geta blind börn ekki
einu sinni fengið að læra að lesa,“
þessa setningu segir Halldór Sævar
Guðbergsson, formaður Blindrafé-
lagsins, hafa hrokkið upp úr stjórn-
anda sænsku þekkingarmiðstöðv-
arinnar í málefnum blindra þegar
honum varð ljóst hvernig mennta-
málum blindra er háttað á Íslandi.
Starfshópurinn Novir, eða Nord-
ic Visually Impaired Research, var
stofnaður fyrir ellefu árum og
hefur síðan þá verið í samstarfi við
þekkingarhópa um málefni blindra
á Norðurlöndum. Ísland er eina
Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur
slíka þekkingarmiðstöð. Engu að
síður voru átján fulltrúar frá átta
slíkum miðstöðvum staddir hér á
dögunum til að kynna það sem er
að gerast í sínum löndum og sjá
hvernig staðan er annars staðar.
Halldór segir að erlendu gest-
irnir séu furðu lostnir á því hvern-
ig málum er háttað hér á landi.
„Ísland stendur langt að baki þeim
og reyndar flestum þjóðum Evr-
ópu. Hér er ekki boðið upp á neina
kennsluþjónustu fyrir blind börn,“
segir hann og nefnir sem dæmi að
hérlendis njóti aðeins einn nem-
andi blindrakennslu í grunnskóla.
Blind og alvarlega sjónskert börn
fái því ekki tækifæri til að læra að
lesa þó að sá réttur sé lögbundinn.
Hér sé ekki boðið upp á námskeið
fyrir foreldra, börn eða kennara,
námsefnið sem ætlað er blindum
sé ekki yfirfarið af blindrakennur-
um til að ganga úr skugga um að
það nýtist, auk þess sem engar
kennsluleiðbeiningar fylgi til kenn-
ara.
„Foreldrar og kennarar sem
mættu á fundinn hjá okkur voru
slegnir þegar þau heyrðu af þjón-
ustunni sem talið er sjálfsagt að
börn njóti annars staðar en á
Íslandi,“ segir Halldór.
Halldór segir fyrst hafa verið
fjallað um þessi mál fyrir um tíu
árum en síðan hafi ekkert gerst
nema hvað nefnd hafi verið skipuð
ofan á aðra nefnd og allar skýrslur
orðið að því sem hann kallar
skúffuskýrslur. Einn blindrakenn-
ari hafi sinnt ráðgjöf fyrir blinda í
Reykjavík en til þess fékk hann
fimm tíma á viku. Hann sé nú hætt-
ur störfum og enn sem komið er
hafi enginn verið ráðinn í hans
stað.
Óopinbert vilyrði liggi þó fyrir
um að ráðið verði í stöðuna og Hall-
dór vonast því til þess að eitthvað
sé að þokast í þessum málum á
næstunni. Hann bendir á að
Blindrafélagið eigi von á tveimur
breskum sérfræðingum sem ætli
að fara yfir málin og gera tillögur
til úrbóta.
„Ég er bjartsýnn en ég hef lært
að brýnustu verkefni geta þvælst
ótrúlega lengi í kerfinu. Engu að
síður er ekki annað hægt en að
vona og hvetja fólk til að prófa að
setja sig í spor þeirra sem þurfa að
sætta sig við að börnin þeirra fái
ekki að læra að lesa heldur sagt að
þeim nægi að hlusta á hljóðbækur,“
segir hann að lokum.
karen@frettabladid.is
Bág aðstaða blindra
hneykslar sérfræðinga
Eini ráðgjafi um málefni blindra hjá Reykjavíkurborg er hættur störfum. Önn-
ur sveitarfélög gátu keypt þjónustu af honum. Enginn hefur verið ráðinn í hans
stað. Sérfræðingar á Norðurlöndum eru slegnir yfir stöðunni hér.
EITT BLINT BARN FÆR KENNSLU. Aðstaða blindra barna á Íslandi vekur furðu erlendra
sérfræðinga en ekki er boðið upp á kennsluþjónustu fyrir blind börn hér á landi.
FLÓÐ Stórstreymt var í Hafnar-
fjarðarhöfn á föstudaginn var.
Ekki mátti miklu muna að
sjórinn flæddi yfir bryggjuna.
Flóðhæðin var rúmir fjórir metr-
ar þegar mest var.
„Þetta er ekkert óalgengt. Það
kemur fyrir að sjórinn flæði upp
á bryggjuna,“ segir Viggó
Þorsteinsson, hafnsögumaður í
Hafnarfjarðarhöfn.
Hann segir enga hættu
skapast þegar sjórinn flæðir
svona hátt. „Þetta varir ekki
lengi, það getur verið í einn, tvo
daga sem sjórinn fer upp að
bryggjunni eða yfir hana á stöku
stað.“ - sþs
Stórstreymt í Hafnarfirði:
Flóðhæð rúmir
fjórir metrar
MÜNCHEN, AP Benedikt XVI páfi
sagði Vesturlandabúum til
syndanna í útimessu í Þýskalandi
á sunnudaginn. Hann er þar í sex
daga heimsókn á heimaslóðum
sínum í Bæjaralandi og hefur
hlotið feiknagóðar móttökur.
Í útimessunni á sunnudaginn,
sem um 250 þúsund manns sóttu,
sagði páfi að fólk á Vesturlöndum
þjáðist af heyrnarleysi þegar guð
væri annars vegar.
„Við erum ekki lengur fær um
að heyra í guði,“ sagði hann. „Það
sem sagt er um Guð finnst okkur
vera frá því áður en vísindin
komu og henta ekki lengur okkar
tímum.“ - gb
Benedikt páfi í Bæjaralandi:
Í heimsókn á
heimaslóðum
BENEDIKT SEXTÁNDI Hann er þessa dag-
ana í heimsókn á heimaslóðum sínum í
Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÍSTUNDAHEIMILI Enn bíða 587
börn eftir að komast að á frí-
stundaheimilum í Reykjavík.
Steingerður Kristjánsdóttir,
verkefnastjóri hjá ÍTR, segir búið
að útvega 1.850 börnum pláss en
umsóknir á frístundaheimilin eru
300 fleiri í ár en í fyrra. „Enn
vantar 68 starfsmenn til starfa á
frístundaheimilin, flesta í
Árbæinn en þar bíða einnig flest
börn eftir að komast að.“
Steingerður segir stöðuna hjá
mörgum foreldrum mjög erfiða
vegna þess að börn þeirra komast
ekki að. - hs
587 börn bíða vistunar:
68 starfsmenn
vantar til starfa
FRÍSTUNDAHEIMILI Enn bíða hátt á
sjötta hundrað barna eftir plássi á
frístundaheimili.
Umferðaróhapp varð á Vestfjarða-
vegi neðan við Skógskot í Miðdölum
snemma í gær. Talið er að ökumaður
hafi sofnað undir stýri með þeim
afleiðingum að hann ók jeppabifreið
sinni ofan í skurð. Manninn sakaði
ekki en samkvæmt lögreglunni í Búð-
ardal er bíllinn töluvert skemmdur.
LÖGREGLUFRÉTT
Sofnaði undir stýri
VIÐSKIPTI Endurskoðað yfirtökutil-
boð bandaríska lyfjafyrirtækisins
Barr Pharmaceuticals, sem lagt
var fram í allt hlutafé í króatíska
samheitalyfjafyrirtækið Pliva síð-
asta föstudag, hljóðar upp á 820
kúnur á hlut.
Miðað við þetta síðasta útspil
Barr nemur kaupverð Pliva
tæpum 180 milljörðum íslenskra
króna.
Tilboðið var birt á vef HANFA,
króatíska fjármálaeftirlitsins í
gær, en birting þess var háð sam-
þykki eftirlitsins.
Tilboð Barr er 25 kúnum hærra
en nýtt yfirtökutilboð Actavis,
sem síðast bauð 795 kúnur á hlut,
eða um 176 milljarða króna fyrir
fyrirtækið. Þremur prósentum
munar á tilboðunum.
Actavis brást ekki samdægurs
við ákvörðun Barr, en ekki er ólík-
legt að fyrirtækið kynni í dag
ákvörðun sína um næstu skref.
Fyrirfram var búist við að Barr
myndi hækka boð sitt.
Actavis á rétt rúman fimmtung
bréfa í Pliva með beinum eða
óbeinum hætti. Verði af samein-
ingu Actavis og Pliva er gert ráð
fyrir því að til verði þriðji stærsti
framleiðandi á samheitalyfja-
markaði í heimi.
Það sama á svo einnig við, sam-
einist Barr og Pliva. Áætlað er að
tilboðsferlinu í Pliva ljúki 11.
næsta mánaðar.
- jab/óká
RANNSÓKNASTOFUR PLIVA Gengi bréfa
Pliva lækkaði í gær, en sérfræðingar á
mörkuðum telja fjárfesta horfa til þess
að lokaverð bréfa fyrirtækisins verði 850
kúnur á hlut. MYND/PLIVA
Barr býður 25 kúnum betur en Actavis fyrir hvern hlut í slagnum um Pliva:
Actavis hugsar málið um sinn
ATVINNUMÁL Yfir helmingur
stjórnenda á Íslandi vinnur meira
en 50 klukkustundir á viku en
meðalvinnuvika launafólks er um
42 klukkustundir. Mun fleiri
karlkyns stjórnendur vinna svo
langa vinnuviku en konur í
sambærilegum stöðum. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í
könnun VR meðal stjórnenda á
íslenskum vinnumarkaði.
Í könnuninni kemur fram að
þriðjungur stjórnenda vinni yfir
60 klukkustundir að meðaltali í
hverri viku. 22 prósent karla
vinna yfir 60 klukkustundir á
viku á móti 7 prósentum kvenna.
- hs
Fleiri karlar vinna lengur:
Stjórnendur
vinna lengur