Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 12
 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | s: 569 7700 | f: 569 7799 | nyherji@nyherji.is www.lenovo.is 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 Nýherji stofnaður með samruna IBM á Íslandi og Skrifstofuvéla og verður umboðsaðili IBM. IBM kynnir fyrstu fartölvuna sem vegur minna en 2kg. IBM hefur selt 100 milljón tölvur út um allan heim. Einkatölvuhluti IBM og tölvuframleiðandinn Lenovo renna saman í eitt fyrirtæki undir nafninu Lenovo. IBM kynnir fyrstu einkatölvuna til sögunnar. Hún var með 4,7MHz örgjörva og 16K í minni. Fyrsta færanlega tölva IBM kemur á markað, hún var aðeins 14 kg. Fyrsta fartölvan frá IBM kemur á markaðinn. Þetta er fyrsta fartölvan á markaðnum með litaskjá og pinnamús. 25 árum síðar víkkar Lenovo út vörulínuna. Auk Lenovo ThinkPad kemur Lenovo 3000 fartölvulínan á markað sem setur nýja staðla í gæðum og verðum. Í tilefni 25 ára afmæl isins bjóðum við 25.000 kr óna afslátt af Lenovo ThinkPad T60 fartöl vu Tilboðsve rð: 239.900 k r. Verð áður: 264.900 k r. Nýherji fagnar því að í ár eru 25 ár síðan hóf tölvubyltinguna með því að setja fyrstu einkatölvuna á markaðinn. Kíktu í verslun Nýherja og skoðaðu afmælistilboðin. Hamraborg 1 Kópavogi s: 554 4011 15% september afsláttur til 16. september FÓLKSFLUTNINGAR Fram á mitt þetta ár fluttu 3.262 til landsins en allt árið í fyrra fluttu 3.680 manns hingað til lands. Flestir sem flytjast frá útlöndum setjast að á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi. Ólöf Garðarsdóttir, deildarstjóri mannfjölda- deildar Hagstofu Íslands, segir það koma á óvart hversu mikil fjölgunin sé. „Þetta er mesta fjölgun sem við höfum séð af erlendu vinnuafli fram til þessa en stór hluti þess mun að öllum líkindum hverfa af landi brott eftir að virkjanaframkvæmd- um lýkur fyrir austan.“ Þegar kynjahlutfall aðfluttra er skoðað kemur í ljós að breytingar hafa orðið á hlutfalli kynjanna í flutningi erlendra ríkisborgara. Á árunum 2004-2006 fluttust fleiri konur en karlar til landsins en á fyrstu sex mánuðum þessa árs var hlutfall aðfluttra erlendra karlmanna hærra en erlendra kvenna í öllum landsfjórðungum nema á Norðurlandi vestra. Mestur er kynjamunurinn á Austurlandi en þangað fluttust 1.274 erlendir karlar en aðeins 103 erlendrar konur á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi voru erlendir karlar sem fluttu til landsins um það bil helmingi fleiri en konur. - hs Erlendu vinnuafli fjölgar mest á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi: Fleiri karlar flytja til Íslands VIRKJANAFRAMKVÆMDIR Flestir sem flytjast frá útlöndum setjast að á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi. STJÓRNMÁL Tillögur uppstillingar- nefndar Vinstri grænna um fyr- irkomulag til röðunar á fram- boðslista flokksins á höfuðborgarsvæðinu fyrir kom- andi kosningar verða kynntar í kvöld. Athygli vekur að sam- kvæmt þeim nær forvalið yfir bæði Reykjavíkurkjördæmin og Suðvesturkjördæmi, eða hinn svokallaða Kraga. Ýmsir flokks- menn hafa af því áhyggjur að jafnræði muni ekki ríkja milli Kragans og Reykjavíkur verði þessi háttur hafður á. Þorleifur Gunnleifsson, for- maður kjördæmisráðs VG í Reykjavík, segist hafa verið efins í fyrstu þegar hann heyrði tillög- urnar en sé þó kominn á þá skoð- un að þetta sé rétta leiðin. „Ástæð- an fyrir því að það er verið að skoða þessa hluti er sú að höfuð- borgarsvæðið er orðið eitt svæði bæði atvinnulega séð og íbúalega séð. Þetta er orðið svæði án sjá- anlegra landamæra og samvaxið í alla kanta. Þarna er um að ræða íbúa á sama svæðinu sem hafa sömu hagsmuna að gæta.“ Í sama streng tekur Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti VG í Kópavogi. „Þetta er spennandi tilraun til að horfast í augu við þá staðreynd að þetta er orðið eitt svæði. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli hvar á svæðinu þing- menn hafa búsetu og því ættu íbúar alls svæðisins að hafa áhrif á listann.“ Ólafur segir að hann hafi vissulega heyrt efasemdir um tillöguna og segir þær áhyggj- ur virðast fyrst og fremst stafa af óróa um að Reykvíkingar muni hafa áhrif á hverjir séu í fram- boði í Kraganum. Hann telur þó að fyrirkomulag forvalsins ætti að koma í veg fyrir slíkt því upp- stillingarnefndin mun hafa vald til að raða mönnum framar á listana svo lengi sem þeir hafa fengið til þess kjörgengi. Ólafur segist sjálfur ekki hafa miklar áhyggjur af því ef það hittist svo á að fleiri góðir frambjóðendur eigi heima í Reykjavík en í Krag- anum. „Þá er það bara flokknum til góða og hann kemur fleiri góðum frambjóðendum fram.“ Sigurður Magnússon, bæjar- stjóri Vinstri grænna á Álftanesi, segir að það sé ekki úr háum söðli að detta varðandi uppstillingar- mál í Kraganum því samstöðu hafi almennt skort hjá flokks- deildunum í kjördæminu. Hann segist hafa orðið var við áhyggj- ur í kjördæminu en telur að fyr- irkomulagið geti ekki orðið annað en til bóta. thordur@frettabladid.is Stillt upp á lista VG á höfuðborgarsvæðinu Vinstri græn stefna að sameiginlegu forvali fyrir kjördæmin á höfuðborgar- svæðinu. Tillögurnar verða kynntar flokksmönnum í kvöld. Efasemdir eru uppi um aðferðina á meðal flokksmanna sem óttast vald Reykvíkinga. SAMEIGINLEGT FORVAL Ef tillögur uppstillingarnefndar ná fram að ganga munu reykvískir flokksmenn Vinstri grænna geta haft áhrif á uppstillingu lista Suðvestur- kjördæmis og öfugt. SIGURÐUR MAGNÚSSON ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON ÓLAFUR ÞÓR GUNNARSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.