Fréttablaðið - 12.09.2006, Síða 13

Fréttablaðið - 12.09.2006, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 12. september 2006 13 (131187) Gorenje kæli -og frystiskápur Ryðfrítt stál með kámvörn 200cm á hæð 279L kælir, 86L frystir Tilboðsverð kr. 109.900 (101563) Gorenje þvottavél 1200 sn/mín Tekur 6 kg m/íslenskum merkingum Tilboðsverð kr. 65.900 (705053) Gorenje þurrkari Barkalaus m/rakaskynjara tekur 6kg Tilboðsverð kr. 64.900 (665938) Gorenje blástursofn Klukka, hreinsibúnaður, 9 kerfi Tilboðsverð kr. 49.900 (695112) Gorenje keramik helluborð 4 hellur, snertitakkar, barnalæsing Tilboðsverð kr. 55.900 (662749) Gorenje háfur 60cm, veggháfur úr burstuðu stáli Tilboðsverð kr. 14.500 SEPTEMBERTILBOÐ Reykjavík: Borgartún 24 • Sími 562 4011 Akureyri: Óseyri 2 • Sími 460 0800 Reykjanesbær: Hafnargata 52 • Sími 420 7200 Reyðarfjörður: Nesbraut 9 • Sími 470 2020 PODGORICA, AP Samsteypustjórn Milos Djukan- ovic lýsti í gærmorgun yfir sigri í þingkosn- ingunum í Svartfjallalandi, sem haldnar voru á sunnudaginn. Þetta voru fyrstu þingkosn- ingarnar í Svartfjallalandi frá því landið lýsti yfir sjálfstæði snemma í sumar. „Við fengum algjört vald í Svartfjalla- landi,“ sagði Milo Djukanovic forsætisráð- herra sigri hrósandi. „Þetta er sigur fyrir evrópskt Svartfjallaland og sönnun þess að landið er á góðri leið inn í samstæða Evr- ópu.“ Áður en endanleg úrslit höfðu verið stað- fest hafði óháð stofnun sent frá sér bráða- birgðatölur þar sem stjórnarflokkarnir fengu 41 þingsæti af 81, en tveir stjórnarandstöðu- flokkar, sem vilja ganga aftur í ríkjasamband með Serbíu, fá 23 þingsæti. Stjórnarandstöðu- flokkarnir tveir, sem létu gera eigin talningu, sögðu þessi úrslit geta staðist. „Þetta eru slæm úrslit og vonbrigði fyrir okkur,“ sagði Milorad Vojnovic, talsmaður Sósíalíska þjóðarflokksins. Fjórði flokkurinn, Hreyfing í þágu breyt- inga, sem stofnaður var til þess að berjast gegn spillingu og gera efnahagsumbætur, fær 11 þingsæti en síðan skipta smærri flokkar sex þingsætum á milli sín. Nebosja Medojevic, leiðtogi Hreyfingar í þágu breytinga, segist hæstánægður með það mikla fylgi sem þessi nýstofnaði flokkur hlaut. En jafnframt sagði hann úrslitin sýna að Svartfellingar væru ekki tilbúnir að „losa sig við“ hina „spilltu og vanhæfu“ stjórn Djukanovic, sem í raun hefur stjórnað land- inu í sautján ár. - gb SIGRI FAGNAÐ Stuðningsmenn sjálfstæðs ríkis í Svart- fjallalandi fagna sigri í fyrstu kosningunum frá því að landið fékk sjálfstæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Úrslit fyrstu þingkosninga í Svartfjallalandi frá því að landið lýsti yfir sjálfstæði liggja ljós fyrir: Ríkisstjórn Djukanovic hrósar sigri LÖGREGLUMÁL Brotist hefur verið inn í sælgætissjálfsalann sem stendur við þjóðveginn á leið til Borgarfjarðar eystri í þrígang í sumar. Í innbrotunum var öllu sælgæti úr sjálfsalanum stolið og var heildarverð- mæti þess á annað hundrað þúsund krónur. Eftir fyrsta innbrotið var myndavél komið fyrir á staðnum. Myndirnar sýndu að sami maður var að verki þegar sjálfsalinn var brotinn upp í annað og þriðja sinn og telst málið upplýst. - hs Fingralangur nammigrís: Stal sælgæti úr sjálfsala STJÓRNMÁL Hexia.net hefur opnað nýja pólitíska fréttagátt. Gáttin, sem nálgast má á vefslóðinni politik.hexia.net, safnar sjálf- krafa efni af vefjum stjórnmála- manna og annarra sem fjalla um stjórnmál. Hún flokkar þær saman og birtir heildaryfirlit á einum stað. Þórarinn Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Hex, sem á og rekur gáttina, líkir henni við fréttaþjónustu Google. „Við höfum ekkert ritstjórnarvald yfir því sem birtist. Uppfærslur á vefjum stjórnmálamannanna stýra því hvenær nýtt efni birtist.“ - sþs Hexia.net opnar stjórnmálavef: Safnar saman pólitísku efni LYFJAMÁL Lyfjastofnun varar fólk við því að kaupa lyf í netverslun- um. Stöðugt færist í vöxt að fölsuð lyf finnist í umferð í Evrópulönd- um, að því er fram kemur á vefsíðu stofnunarinnar. Einnig eykst framboð á allskyns náttúrulyfjum sem oft geta haft skaðleg áhrif á heilsu manna. Oftast má rekja þessi lyf til netverslunar og vill Lyfjastofnun því ítreka að netverslun með lyf er óheimil hér á landi enda er slík verslun í flestum tilvikum án eftirlits heilbrigðisyfirvalda. - jss Lyfjastofnun: Varar við lyfj- um í netverslun LONDON, AP David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, segir að Bretar eigi að vera „traustir en ekki þýlyndir“ í vináttu sinni við Bandaríkin. Í ræðu sem hann flutti í London í gær, þegar fimm ár voru liðin frá hryðjuverkunum í New York og Washington, hafnaði Cameron þeirri utanríkisstefnu sem bæði George W. Bush Bandaríkjaforseti og nánasti bandamaður hans, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hafa fylgt. „Við höfum aldrei, fyrr en núna nýlega, verið gagnrýnislaus- ir bandamenn Bandaríkjanna,“ sagði Cameron. - gb David Cameron: Enga þrælslund gagnvart Bush LEIÐTOGI BRESKA ÍHALDSFLOKKSINS Segist vera „frjálslyndur íhaldsmaður, en ekki nýíhald“. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Assorted jelly beans, in a child‘s hands nammi, barn, barnahendur, jellybeans, sælgæti,

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.