Fréttablaðið - 12.09.2006, Síða 16
12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Ég held að áhrifin séu miklu djúp-
stæðari og meiri en við gerum okkur
grein fyrir,“
segir Unnur
Jökulsdóttir
rithöfundur
um áhrifin af
hryðjuverk-
unum 11.
september
2001. „Maður
finnur áhrifin
beinast í því
að ferðalög hafa breyst mikið og
eru orðin torveldari. Nú er líka alltaf
þessi ógn undirliggjandi að eitthvað
hræðilegt sé við það að gerast og
fólk tortryggir allt og alla. Óvinurinn
er þessi ósýnilegi hryðjuverkamaður
sem hvenær sem er getur látið til
skarar skríða og paranojan er slík
að t.d. þriðjungur Bandaríkjamanna
telur að þarlend stjórnvöld hafi
staðið að baki atburðunum til að
auka hervæðingu og fá hjólin til að
snúast. Ég held að því miður eigi
áhifin af 11. september eftir að vara
lengi enn.“
SJÓNARHÓLL
ÁHRIFIN AF 11. SEPTEMBER 2001
Tortryggni
aukist mikið
UNNUR JÖKULSDÓTTIR
RITHÖFUNDUR
Aðeins sjálfsmörk
„Mér finnst því helst hægt
að líkja þessu stríði gegn
hryðjuverkum við fótboltalið
sem gerir mjög mikið af
mörkum en nær eingöngu
sjálfsmörk.“
JÓN ORMUR HALLDÓRSSON
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SEGIR
STRÍÐIÐ GEGN HRYÐJUVERKUM
HAFA MISTEKIST. FRÉTTABLAÐIÐ,
11. SEPTEMBER.
Ljós hörmung
„Það er ljóst að afleiðingar
slyss þar sem risaolíuskip á í
hlut yrðu hörmulegar.“
GÍSLI VIGGÓSSON, FORSTÖÐU-
MAÐUR HJÁ SIGLINGASTOFNUN,
SEGIR ÍSLAND EKKERT SÉRLEGA
VEL BÚIÐ UNDIR MENGUNARSLYS.
FRÉTTABLAÐIÐ, 11. SEPTEMBER.
Í gegnum tíðina hafa
margir makað krókinn á
veru Varnarliðsins á Mið-
nesheiði. Nú fer hver að
verða síðastur því stutt er
í að Kaninn fari með sitt
hafurtask til mikilvægari
hernaðarsvæða. Valtýr
Björn Thors er einn af
þeim síðustu til að komast
í feitt.
Valtýr hefur verið að vinna í
brotajárnsmóttöku Hringrásar í
Helguvík en þangað keyra nú
varnarliðsmenn ruslið sitt í
stríðum straumum.
„Þetta er ótrúlegt magn sem
kemur hingað,“ segir Valtýr.
„Það sem er smíðað fyrir herinn
virðist vera úr skriðdrekastáli
og vegur skrilljón tonn. Það er
því ekki lógískt að fljúga með
þetta úr landi. Við erum að taka
á móti allskyns dóti, innrétting-
um, húsgögnum og tölvubúnaði;
allt saman gæða stöff og öllu
hent.“
Valtýr segist hafa sett sér
mörk þegar hann byrjaði að
vinna hjá Hringrás um hvað
hann ætlaði að hirða. „Ég bý í 45
fermetra íbúð með konu sem
hefur annan skítastöðul en ég
svo ég ákvað að hirða bara það
sem gæti nýst mér við tónlistar-
sköpun. Ég hef m.a. hirt mixer,
baritónhorn og risastórt hátal-
arabox sem hefur eflaust hangið
neðan úr þyrlu einhvern tímann
og blastað klassískri tónlist yfir
hrísgjónaakra. Ég hef líka hirt
allskyns framandi gosdrykki og
endalaust af ógeðsnammi, svona
stöff sem Kaninn er sólginn í.
Einn daginn var komið með
sjálfssala sem ég reif í sundur.
Þar voru allskyns niðursuðudós-
ir með tilbúnum réttum, en mér
leist ekkert á þetta og gaf vinum
mínum. Ég sá fyrir mér „silent
treatment“ hjá konunni ef ég
hefði dregið þetta heim.“
Valtýr segir mikinn áhuga á
ruslinu. „Við erum rekandi fólk í
burtu allan daginn og það eru
sko engir fátæklingar á horrim-
inni heldur menn á nýlegum
Land Cruiser jeppum. Þegar við
lokum kl. 18 koma jakkafata-
mennirnir og klifra yfir girðing-
arnar til að róta í ruslinu. Þetta
er eiginlega stórt vandamál því
við erum ábyrgir fyrir svæðinu.
Þarna eru bílastæður sem menn
eru að klifra í og hver veit hvaða
ógeð leynist þarna. Við settum
meira að segja upp skilti og
báðum fólk vinsamlegast að
hætta að sniglast þarna, en það
gekk nú ekki betur en svo að
daginn eftir var búið að kúka í
kaffibollana okkar.“
gunnarh@frettabladid.is
Valtýr einn af þeim síðustu til
að græða á veru Varnarliðsins
VALTÝR MEÐ HLUTA GÓSSINS Hefur ekki undan að reka í burtu jakkafatamenn sem
vilja komast í draslið. FRETTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Nýr íslenskur bjór er væntanleg-
ur í búðir ÁTVR í byrjun október.
Hann heitir Kaldi og er lagaður í
nýju brugghúsi Bruggsmiðjunnar
á Árskógssandi. Agnes Sigurðar-
dóttir og eiginmaður hennar, Ólaf-
ur Ólafsson, eru eigendur Brugg-
smiðjunnar og hún segir að
hugmyndin hafi kveiknað fyrir
þrem árum þegar hún sá frétt um
smábrugghús, svokölluð Micro-
Brewery, í sjónvarpinu.
„Maðurinn minn hafði slasast í
hné á sjónum og við vorum að leita
að einhverju sem við gætum gert í
staðinn. Við erum mikið dreifbýl-
isfólk í okkur og við vildum helst
ekki flytja. Mér fannst þetta upp-
lögð hugmynd og viku síðar vorum
við komin til Danmerkur til að
kynna okkur málið. Tveim mánuð-
um síðar vorum við svo í Tékk-
landi og gerðum tilboð í tæki.“
Frá Tékklandi fengu þau
ekki bara tæki heldur
bruggmeistarann líka.
Hann heitir David Masa
og þykir með þeim efni-
legustu í bruggbransan-
um.
Kaldi er með 5%
alkóhólmagn, gerður úr
tékknesku hráefni en
vatnið er úr lind í Sólar-
fjalli í Eyjafirði. Bjórinn
er án allra aukaefna og
sykurs og er ekki gerilsneyddur,
sem Agnes segir að geri gæfu-
muninn. „Manneldisráð Evr-
ópu hefur gefið út að það
geti beinlínis verið hollt
að drekka einn lítra af
ógerilsneyddum bjór á
dag. Kaldi er ferskvara
með fjögurra mánaða líf-
tíma í stað eins árs sem
aðrar íslenskar tegundir
eru með. Svo verður
þetta eini íslenski bjórinn í
brúnum glerflöskum, sem
Tékkarnir segja að fari
mun betur með bjórinn en
grænar flöskur.“
Agnes vonar að Kaldi festi sig í
sessi og miklar vonir eru bundnar
við bjórinn því þeim hefur verið
boðið á heimssýningu framleið-
anda í Þýskalandi í nóvember. „Við
erum ekki fólk sem hefur tekið
svona skyndiákvarðanir áður og
hvorki verið með laxeldi né refa-
rækt. Við tókum bara sénsinn og
lögðum allt í sölurnar. Þetta hefur
verið erfitt og við höfum oft rekist
á hindranir. En nú þegar hillir
undir að fyrsta lögunin verði til-
búin getum við ekki annað en verið
bjartsýn.“ - gh
Hollur íslenskur bjór á leiðinni
KALDI LAGER BJÓR
Svona lítur flösku-
miðinn út.
FRÁ BRUGGSMIÐJUNNI Á ÁRSKÓGSSTRÖND David Masa og Agnes Sigurðardóttir bíða
spennt eftir fyrstu löguninni.
„Það er sáralítið að frétta af gömlu fólki,
en maður hefur nóg að gera,“ segir
Jón R. Hjálmarsson, rithöfundur og
fv. fræðslustjóri. Þrátt fyrir meint tíð-
indaleysi fór Jón, sem varð 84. ára
síðastliðið vor, í tvær ferðir sem leið-
sögumaður í sumar. „Ég fór norður Kjöl
með Ferðaklúbbi eldri borgara. Gist var
fyrstu nóttina í Skagafirði en síðan
haldið upp í Laugafell, sem er
merkilegur staður við Hofsjökul.
Þarna er jarðhiti og þjóðsagan
segir að þegar svarti dauði gekk
yfir landið hafi Þórunn ríka hafst
þarna við með sitt fólk. Hún var
mikil hreinlætismanneskja, lét
höggva til þró í móbergsklöpp
og tók sér þar bað daglega. Þróin
stendur enn en það er bannað að baða sig í
henni.“ Áfram hélt ferðin m.a. til Grímseyjar
og á Fiskidaginn mikla á Dalvík.
Í næstu ferð fór Jón fyrir hópi Félagi
kennara á eftirlaunum upp að Kárahnjúkum.
„Það var geysilega áhrifamikið og stíflufram-
kvæmdirnar eru svo risavaxnar að maður
áttar sig varla á umfanginu.“
Jón er fróðleiksbrunnur
um land og sögu og hefur
skrifað fimm Þjóðvega-
bækur, svokallaðar. „Næst
í röðinni er bókin „Þjóð-
kunnir menn við þjóðveg-
inn,“ sem ég á von á að
komi út hjá Skjaldborg
fyrir jólin,“ segir hann að
lokum.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓN R. HJÁLMARSSON RITHÖFUNDUR
Fór fyrir eldri borgurum um landið
��������������������������������������������������
���������
��������������
��������������
����������������������������������������
�������������������������������
���������������
��� ���������������� �����������������������������������������������������
������������������������������ ������������ �����������������������������
�������������������������������������������������������������� �� �������
�����������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
��������������
������������������������������������
������������������������������
������������������������������������
Búdapest
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
��
�
��
�������������������
������������������
����������������
�����������������������������
��������������������
���������������������������
��������������������
���������������������������
��������������������
AÐ LOKNUM HÁTÍÐARHÖLDUM Þessu
risavaxna líkneski fílaguðsins Ganesha
var kastað í hafið við Mumbai á Ind-
landi, Ganesha til dýrðar. NORDICPHOTOS/AFP