Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 20
20 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR:
Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson
Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á
suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Í Lissabon er gamalt hverfi sem ber merki þess að það var fyrir
langa löngu byggt af fólki af
norður- afrískum uppruna. Nafn
hverfisins, Alfama, er arabískt og
mun þýða brunnur. Hverfið er í
hlíðum hæðar og þar efst trónir
kastali einn mikill, græni
Michelin gefur útsýninu þaðan
þrjár stjörnur. Hafandi verið ekið
upp að kastalanum, skoðað hann
og dáðst að útsýninu ákváðum við
hjónakorn að fá okkur göngutúr
niður hæðina.
Við lögðum af stað glöð í sinni
og dáðumst að þröngum götum
sem voru þó frekar stígar en götur
og sums staðar var hentugra að
fara niður tröppur í þröngum
sundum en að fylgja götunni.
Þarna sat fólk á bekkjum, karlar
og konur, allt hið vinalegasta fólk
og við alhress með að hafa valið
þessa leið aftur í bæinn. Eins og
sönnum fróðleiksfúsum ferða-
mönnum sæmir höfðum við með-
ferðis bók sem sagði frá staðhátt-
um.
Þegar við vorum komin aðeins
á leið var gluggað í bókina til að
fræðast um þetta skemmtilega
hverfi. Hvenær varð það til og
hverjir bjuggu þar? Þá kárnaði
hins vegar gamanið. Fólki var ein-
dregið ráðlagt að vera ekki á gangi
í þessum hluta hverfisins því þar
hefðust við hinir verstu glæpa-
menn og hyski, sem rændu og
rupluðu og gengju jafnvel endan-
lega frá saklausum vegfarendum.
Það er skemmst frá því að segja
að ásýnd góðlega fólksins sem við
höfðum séð sitjandi á bekkjum
breyttist samstundis í illmenni
sem sætu þarna fyrir okkur. Þeir
sem sáu til okkar síðasta spölinn
niður hæðina hafa frekar haldið
að við værum að æfa einhverja
tegund hraðgöngu en að við
værum í huggulegum göngutúr og
skoðunarferð.
Það eru einhver ár síðan þessi
ganga var farin. Hún rifjaðist upp
fyrir mér því líkt og ég varð þá
óttaslegnari eftir því sem ég
fræddist meira um gönguleiðina,
þá verð ég nú meira hugsi og ótta-
slegnari eftir því sem ég fræðist
meira um virkjanaframkvæmd-
irnar fyrir austan og fyrirætlanir
um vatns- og gufuaflsvirkjanir.
Ég gerði mér grein fyrir að virkj-
unin fyrir austan yrði stór, en
fyrr má nú fyrr vera. Ég gerði
mér grein fyrir að ýmis virkjana-
áform eru á borðinu, en fyrr má
nú fyrr vera.
Gamall yfirmaður minn sagði
einu sinni við mig að tölulegar
upplýsingar hefðu lítið gildi nema
þær væru bornar saman við eitt-
hvað. Það sama er uppi á teningn-
um með lýsingar á framkvæmd-
unum fyrir austan. Nú heyrast
loks lýsingar sem skiljast: lónið
sem verður til þarna fyrir austan
verður jafn stórt Hvalfirðinum,
hæðarmunur á vatnsborðinu
þegar mest er í lóninu og minnst í
því verður á bilinu 50-70 metrar,
til samanburðar er turninn á Hall-
grímskirkju 73 metrar, stíflan
sem verið er að steypa verður
hæsta stífla í heimi, hvorki meira
né minna.
Á netinu er að finna yfirlit um
orkulindir sem rammaáætlun um
virkjanir á landinu mun ná til. Í
formála segir að listinn sé ekki
endanlegur og að í fyrsta áfanga
verði athyglinni einkum beint að
jökulám og háhita nærri byggð,
„auk Torfajökulsvæðis vegna
skipulags að Fjallabaki“. Á að
skipuleggja svæðið að Fjallabaki?
Á að leiða rör um Torfajökul-
svæðið eins og þau sem nú má
augum líta á Hellisheiði ?
Í yfirlitinu um vatnsaflsvirkj-
anir í 1. áfanga rammaáætlunar
eru 28 staðir taldir upp. Þar af
eru sjö á Þjórsársvæði, þar á
meðal Urriðafoss, og fimm undir
Hvítá í Árnessýslu, þar með talið
Tungufljót við Faxa. Eftir listan-
um að dæma er verkhönnun í
gangi í Blönduveitu 2 og við Vill-
inganesvirkjun í Skagafirði. Við
allar þessar vatnsfallsvirkjarnir
bætist listi af sautján jarðhita-
virkjunum og rannsóknarboranir
eru í gangi á þrettán þessara
staða. Mér er sagt að tíu þúsund
rannsóknarholur hafi verið bor-
aðar, mér hefði fundist þúsund há
tala. Hvað ætli sé margt fólk í
vinnu við að rannsaka þetta allt
saman og búa til skýrslur? Það er
skylda stjórnmálaflokka að upp-
lýsa kjósendur rækilega um hver
stefnan er, hvað á að virkja, hverj-
um á að selja orku og á hvaða
verði. Fólk á rétt á því að vita
hvaða leið á að fara til að komast
ekki að því á miðri leið að það
hefði kosið aðra, eins og henti
okkur hjónakorn í Alfama forð-
um.
Auk þess legg ég til að eftir-
launaósóminn verði afnuminn
með lögum.
VALGERÐUR BJARNADÓTTIR
Í DAG | Virkjanir
UMRÆÐAN
Fíkniefnavandi ungmenna
Hvað getum við gert þegar við heyr-um að ellefu ára gamalt barn er
tekið með fíkniefni í fórum sínum og
upplýsir að það geti orðið sér úti um
meira? Við skulum vona að þetta barn
komist vel frá þessu og eignist gott líf.
Þegar við heyrum slíkar fréttir hljót-
um við að líta aðeins upp og velta því
fyrir okkur hvað hægt sé að gera til
koma í veg fyrir það að unglingar og
jafnvel börn fari í fíkniefnaneyslu.
Þróun síðustu ára hefur verið skelfi-
leg og vörur fíkniefnamarkaðarins hafa aukist og
margfaldast. Í fíkniefnaheiminum gilda lögmál
markaðarins alveg eins og á mörkuðum annarra
söluvara. Þegar framboðið er mikið og lagerar
fíkniefnasalann fullir verða þeir að grípa til ráð-
stafana svo þeir geti losnað við vöru sína, fljótt og
örugglega.
Fíkniefnasalarnir reyna að afla sér nýrra við-
skiptavina og stækka markaðinn. Hvar eru nýir
viðskiptavinir spyrja þeir og svarið er: Hjá börn-
um og unglingum. Þegar unglingar og jafnvel börn
halda partý getur hætta verið á ferðum.
Við verðum að auka forvarnirnar og útvíka þær.
Hvaða fræðslu fá börn og unglingar um eiturverk-
anir alkóhóls og fíkniefna á líkama
mannsins? - Hvernig virkar kannabis á
heilann? Hvernig virkar kókaín og
amfetamín á sálarlífið? Og svona mætti
lengi telja. En það eru ekki bara skól-
arnir – hér gætu íþróttafélögin líka
gegnt auknu hlutverki og hvers kyns
æskulýðsfélög. Við verðum að verja
mun hærri fjárhæðum í fræðsluna.
Þeim fjármunum sem notaðir eru til
þess að hjálpa fólki sem hefur lent í
klóm víns og eiturlyfja er vel varið.
Hér má spyrja: Hvar eru þeir sem
verst eru farnir af samskiptum sínum
við alkóhólið og hin fíkniefnin? Eru
þeir ekki í fangelsunum? Og hvað er
gert þar til að koma mönnum út úr fíkniefnaneysl-
unni? Hver er meðferðin þar? Verður umræðan
sem átti sér stað síðustu vikurnar þögnuð innan
skamms og kyrrstaðan tekin við á ný?
Það er ljóst við höfum ekki verið viðbúin þeirri
flóðbylgju fíkniefna sem skollið hefur hér á okkur.
Því hljótum við að gefa út þá yfirlýsingu sem við
getum staðið við. Setjum tvo milljarða í þennan
málaflokk og fylgjum því eftir með staðfestu. Það
mun skila sér margfalt til baka. Ekkert er verð-
mætara en lífið sjálft.
Höfundur er prestur. Greinin birtist óstytt undir
Skoðun á Vísir.is.
Tveir milljarðar í forvarnir
Um gönguferð og virkjanaáætlanir
KARL V. MATTHÍASSON
Án tölvunnar
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
opnar skrifstofu sína fyrir blaðamanni
í nýjasta tölublaði Veggfóðurs. Þar er
hann spurður hvers hann geti síst verið
án á skrifstofunni. „Ætli það sé nú ekki
síminn, það er hann sem tengir mann
við umheiminn og við aðra. En ég er
lélegur tölvumaður þannig að ég get
alveg verið án hennar. Ég hef haft
svo góða þjónustu í gegnum tíðina
að ég hef aldrei þurft að læra til fulls
á hana. Ég hef sömu aðferðir og
Kjarval, en Kjarval sagði að síminn
ætti að vera þannig að það væri
bara hægt að hringja úr honum.
Þeir tölvupóstar sem talið er
að ég eigi að fá, þurfa að
fara í gegnum kerfið hérna
og ég fæ þá útprentaða á
pappír,“ svarar Davíð.
Fullir gámar
Seðlabankastjórar þurfa auðvitað að
hafa góða tilfinningu fyrir því hvert
hagkerfið stefnir svo hægt sé að
bregðast við samdrætti eða þenslu í
tíma. Sumir segja að besta vísbend-
ingin um það fáist með því að fylgj-
ast með inn- og útflutningi. Þetta veit
Davíð Oddsson enda seðlabankastjóri
með gott útsýni yfir siglingaleiðir til
og frá Sundahöfn. „Hér get ég stað-
ið og fylgst með viðskiptahallan-
um sigla inn og út. Skipin koma
með drekkhlaðna gáma inn
og svo fara þeir tómir út,“ segir
hann í Veggfóðri. Á fimmtudag
er vaxtaákvörðunardagur
Seðlabankans. Kannski sú
ákvörðun dragi dám af
þessari tilfinningu banka-
stjórans?
Áfangaskil Indriða
Indriði H. Þorláksson lætur af emb-
ætti ríkisskattstjóra í lok september.
Þó að Indriði hafi beitt sér fyrir nokkr-
um breytingum telur hann ákveð-
ið verk óunnið. „Efla þarf starfsemi
skattyfirvalda, ekki síst skatteftirlit.
Hafa þarf í huga að virkt skatteftirlit
eykur ekki bara skatttekjur umfram
aukinn tilkostnað heldur
er það hornsteinn þess
að viðhalda jafnræði
þegnanna gagnvart
skattalögum, og for-
senda þess að þeir beri
virðingu fyrir starfsemi
skattyfirvalda,“ segir
hann í sínum síðasta
leiðara í Tíund, mál-
gagni skattyfirvalda.
bjorgvin@frettabladid.is
Fólk á rétt á því að vita hvaða
leið á að fara til að komast
ekki að því á miðri leið að það
hefði kosið aðra, eins og henti
okkur hjónakorn í Alfama
forðum.
Það vantar:
Starfsfólk í sal. - Kvöldvinna
Kokk - Dag- og kvöldvinna
Starfsmann í útkeyrslu á eiginn bíl
Góð Laun í boði
Banthai
Uppl. 896 3536
Í Barnahúsi er sinnt málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Húsið hefur starfað frá árinu 1998 og þar hefur orðið til mikil sérþekking enda hafa í
húsinu verið teknar skýrslur af 1.200 börnum frá upphafi.
Í síðustu viku hlaut Barnahús viðurkenningu alþjóðlegu samtak-
anna ISPCAN en þau samtök hafa að markmiði að vinna gegn hvers
konar ofbeldi og vanrækslu á börnum um heim allan. Viðurkenning-
in er enn ein rós í hnappagat Barnahússins sem áður hefur meðal
annars fengið viðurkenningu Evrópusamtaka Save the Children,
auk ýmissa innlendra viðurkenninga fyrir starfsemi sína.
Mesta viðurkenning Barnahússins í Reykjavík er þó fólgin í að
vera fyrirmynd sambærilegra húsa sem komið er á fót víða um
Evrópu. Í Svíþjóð starfa nú sex barnahús að fyrirmynd Barnahúss
á Íslandi og allt stefnir í að uppbyggingarstarf haldi þar áfram.
Lagt hefur verið til að hafin verði starfsemi barnahúss í Noregi og
undirbúningur að stofnun slíkra húsa stendur yfir í Danmörku, Pól-
landi og Litháen. Að auki hefur hingað til lands komið talsverður
hópur fólks til að læra af starfsmönnum Barnahúss, meðal annars
að taka skýrslur af börnum. Óhætt er því að fullyrða að í Barnahúsi
hefur verið staðið fyrir miklum útflutningi á þekkingu.
Það er því sárt til þess að vita að meira en helmingur þeirra
barna sem koma til skýrslutöku vegna gruns um að kynferðislegt
ofbeldi hafi átt sér stað fær ekki að njóta þeirrar þjónustu sem
Barnahús býður. Ástæðan er sú að stærsti héraðsdómstóll landsins,
Héraðsdómur Reykjavíkur, hefur valið að notfæra sér ekki þjón-
ustu Barnahúss og byggir ákvörðunin á lagabreytingu frá árinu
1999 sem gerði frumskýrslutöku af barni að sérstakri dómathöfn.
Rökin eru aukin skilvirkni og góður árangur og aðstaða til skýrslu-
töku í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ókostirnir við þetta fyrirkomulag eru ýmsir. Meðal annars að
barnið fær ekki þjónustu reyndustu sérfræðinga landsins í skýrslu-
töku af börnum. Alvarlegastur er þó kannski réttur sakbornings,
eða verjanda hans, til að vera viðstaddur skýrslutökuna, þótt bak
við gler sé. Sá réttur gefur honum tækifæri til að undirbúa fram-
burð sinn þegar kemur að yfirheyrslum yfir honum, auk þess sem
hann hefur svigrúm til að eyða sönnunargögnum en slík dæmi hafa
átt sér stað.
Á tíu árum hafa kynferðisbrotamál gegn börnum sem til rann-
sóknar koma liðlega tvöfaldast. Þrátt fyrir þetta hefur ákærum í
slíkum málum ekki fjölgað og segir það sína sögu um lyktir þessara
mála.
Ljóst er að hagsmunir barna eru ekki hafðir að leiðarljósi þegar
forráðamenn Héraðsdóms Reykjavíkur taka þá ákvörðun að nýta
ekki Barnahús við skýrslutöku á börnum sem grunur liggur á að
orðið hafi fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreitni. Þar eru aðrir
hagsmunir að leiðarljósi og vandséð að eðlilegt sé að þeir geti vegið
þyngra en hagsmunir barnsins. Auk þess verður ekki annað séð
en að sniðganga Héraðsdóms Reykjavíkur á þjónustu Barnahúss
brjóti í bága við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á
um að hagsmunir barna skuli ævinlega hafðir í fyrirrúmi.
Héraðsdómur Reykjavíkur kýs að nota ekki
þjónustu Barnahúss.
Reykvísk börn
gjalda
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR