Fréttablaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ný stundaskrá er komin fyrir
vatnsleikfimi, leikfimi og sund-
kennslu eldri borgara, að því er
fram kemur á vefsíðu Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur,
www.itr.is. Sundleikfimi fer fram
í Sundhöllinni, Laugardalslaug,
Grafarvogslaug, Breiðholtslaug
og Vesturbæjarlaug en
leikfimi í íþróttahúsi
Víkings.
Loft, ráðstefna um
tóbaksvarnir, verður haldin
í Kirkjulundi, Kirkjuvegi 25
í Reykjanesbæ, dagana 14.-15.
september 2006. Á ráðstefn-
unnar verða óbeinar reykingar
og reyklausir vinnustaðir tekin til
umfjöllunar. Nánari upplýsingar
eru á vef ráðstefnunnar: http://
www.congress.is/loft2006/
Útivist stendur fyrir göngum á
fimmtudögum. Þá er farið kl.
18.00 frá bílastæði við austur-
enda göngubrúarinnar yfir
Kringlumýrarbraut í Fossvogi og
gengið vestur með Öskjuhlíð,
um Nauthólsvík og út í Skerja-
fjörð. Sama leið er farin til baka
en gangan tekur samanlagt rúma
klukkustund. Sjá www.utivist.is
ALLT HITT
[HEILSA]
LÍÐANIN HEFUR
ÁHRIF Á ALLT
Idol-stjarnan Davíð Smári
vill hjálpa þjóðinni að
komast í form.
HEILSA 2
VINNUTENGD STREITA
Streita er ekki öll slæm, segir
Eggert Birgisson, sálfræðingur
hjá persona.is
HEILSA 4
Vísindamenn velta nú vöngum
yfir fjölgum krabbameinstilfella
í skjaldkirtli, meðal annars í
ljósi þess að dauðsföllum af
völdum tiltekinna krabbameins-
afbrigða hefur almennt farið
fækkandi að undanförnu.
Niðurstöðurnar voru kynnt-
ar í sameiginlegri ársskýrslu
bandarískra krabbameins-
félaga, en þar kemur fram að
tilfellum skjaldkirtilskrabba-
meins fjölgaði um 2,2 prósent
hjá konum á árunum 1981 til
1993, 4,6 prósent á árunum
1993 til 2000 og 9,1 prósent
frá 2000-2003. Tilfellum fjölg-
aði einnig hjá körlum en ekki í
sama magni.
Sérfræðingar telja að þessa
þróun megi meðal annars
rekja til skilvirkari sjúkdóms-
greiningar en áður hefur
þekkst. Á þessu stigi málsins
er þó ekki vitað hvort annar
þáttur spili þar einnig inn í.
Vísindamenn undrandi
AUKNING Á SKJALDKIRTILSKRABBAMEINI VELDUR HEILABROTUM.
Sólarupprás Hádeigi Sólaralag
Reykjavík 6.41 13.24 20.05
Akureyri 6.23 13.09 19.53
Hjörleifi Kristinssyni rafmagnstækni-
fræðingi finnst fjallgöngur tilvaldar til
að koma sér í gott form.
„Fjallgangan er liður í átaki sem ég fór í á
þessu ári, en ég hleyp líka og sæki stíft átaks-
námskeið fyrir karla hjá Rósu Guðmunds-
dóttur í World Class,“ segir Hjörleifur, sem
finnur á sér mikinn líkamlegan mun eftir að
hann byrjaði.
Hjörleifur hefur um nokkurt skeið farið í
miðvikudagsgöngutúra með vinnufélögun-
um hjá Opnum kerfum þar sem gamall skáti
og mikill göngugarpur leiðir hópinn.
Hann segir það þó ekki skipta höfuðmáli
fyrir hópinn að fara á fjöll, en verði það ofan
á hafi Esjan oftar en ekki orðið fyrir valinu
enda úr mörgum góðum gönguleiðum að
velja á fjallinu. „Flestir sem farið hafa á
Esjuna hafa gengið Mógilsá og þekkja þá leið
vel,“ segir hann. „Ég vil því hvetja þá og aðra
að reyna nýjar leiðir, til dæmis við Esjuberg
og Móskarðshnjúka, sem hefur raunveruleg-
an tind.“
Hjörleifur bendir á að fyrir fjallgöngu-
menn sé mikill kostur að búa á höfuðborgar-
svæðinu og nágrenni því ekki þurfi að leita
langt yfir skammt til að finna góð fjöll.
„Hafnarfell í Hafnarfirði er gott dæmi um
það, auk Úlfarsfells,“ segir hann.
Hjörleifur vill að lokum ráða mönnum
það heilræði að vera vel útbúnir ætli þeir sér
í fjallgöngu, auk þess að hafa varann á. „Máli
skiptir að hver fari á sínum hraða,“ segir
hann. „Sjálfur hleyp ég stundum Esjuna en
gæti þess þá að fara ekki of geyst á niðurleið
til að slasa mig ekki.“ roald@frettabladid.is
Finnur á sér mun
Hjörleifi finnst gaman að fara á fjöll og segir marga staði koma til greina á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
12. september, 255. dagur
ársins 2006.
Krabbameinsfrumur