Fréttablaðið - 12.09.2006, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 12. september 2006 3
Fyrir þá sem hafa tilhneigingu til
þess að vera með poka undir aug-
unum getur verið gott að nota
næringu kringum augun sem
hefur fyrirbyggjandi áhrif og
dregur úr þeim.
Í kringum tuttugu ára aldur er
talið óhætt að fara að nota augn-
krem. Til þess að losa sig við
bauga er einnig gott húsráð að
bleyta tepoka, setja í ísskáp og
kæla hann í smástund og setja loks
á augun. Þetta kemur fram á
heimasíðu Lyfju, www.lyfja.is.
Pokana burt!
Tepokar gætu virkað vel á
pokana og er þá ekki átt við
Prada-pokana heldur þessa
leiðinlegu undir augunum.
Tepokar virka til að viðhalda frísklegu
útliti.
Eldri borgar eru líklegri til að
verða lyfjamistökum að bráð.
Ný rannsókn sýnir að eldri
borgarar eru í meiri hættu en
aðrir á að ruglast á lyfjaskömmt-
um, en það getur haft lífshættu-
legar afleiðingar í för með sér.
Niðurstöðurnar voru kunngerðar
á ráðstefnu breska lyfjaeftirlits-
ins í Manchester.
Við framkvæmd rannsóknar-
innar var eftirlit haft með 695
eldri borgurum á aldrinum 78 til
86 ára sem bjuggu á vernduðum
heimilum.
Um það bil helmingur þátttak-
enda tók að meðaltali inn fimm
ólíkar lyfjategundir á degi hverj-
um. Einn af hverjum fimm tók
síðan inn minnst tólf mismunandi
lyf og fjórtán prósent þeirra
neyttu lyfja sem líkleg eru til að
valda einhvers konar eituráhrif-
um. Líklegra er að slíkur lyfja-
fjöldi valdi ruglingi og skapi því
hættu.
Einnig kom í ljós að tíðar breyt-
ingar á lyfjaskömmtum eldri
borgara eru líklegar til að auka
hættuna á mistökum og óhöppum.
Einn af hverjum tíu þátttakend-
um tilkynnti að lyfjaskammtar
sínir hefðu breyst að minnsta
kosti fjórum sinnum á tólf mánuð-
um.
Talið er að í það minnsta eitt til
tvö prósent innlagna megi rekja
til lyfjamistaka af einhverju tagi,
þar sem aldraðir koma oft við
sögu. Er nú stefnt að því grípa til
viðeigandi ráðstafana til að sporna
við þessari þróun. Frá þessu er
greint á vefsíðu BBC, www.bbc.
co.uk.
Aldraðir í meiri hættu
Aldraðir eiga á hættu að ruglast á lyfja-
skömmtum. GETTY IMAGES
Í nýlegri grein blaðsins um
breska rannsókn á bólusetningu
gegn krabbameini urðu leið mis-
tök við þýðingu.
Í greininni segir að rannsókn-
in hafi bent til þess að dauðsföll-
um úr ákveðinni tegund krabba-
meins mundi fækka um 75 pró-
sent ef allar tólf ára stúlkur
fengju bólefni gegn því. Við þýð-
ingu gekk blaðamaður út frá því
að um krabbamein í hálsi væri
að ræða en hið rétta er að rann-
sóknin náði til krabbameins í leg-
hálsi, sem skýrir af hverju
stúlkubörn áttu ein að vera bólu-
sett.
Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Leiðrétting:
Legháls en ekki háls
Niðurstöður breskrar rannsóknar mælir
með því að stúlkubörn séu bólusett
gegn krabbameini í leghálsi, en ekki
hálsi eins og sagt var frá fyrir skömmu.
Lille Collection