Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 36

Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 36
■■■■ { börnin okkar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10 Í leikskólanum Hlíðarborg er leirað og litað, sungið og spilað, leikið og lært. „Það er valtími í leikskólanum Hlíðarborg þegar Fréttablaðsfólk er þar á ferð um hálf tíuleytið einn morguninn. Hafragrauturinn er kominn upp í munn og ofan í maga, þangað sem allur matur á að fara, eins og kunnugt er. Rólegar samverustundir á hverri deild fyrir sig eru líka afstaðnar. Nú hefur at- hafnasemin tekið völdin hjá flest- um og meðan sumir leira eru aðrir að lita og enn aðrir hafa snúið sér að eldhússtörfum, byggingum eða öðrum veigamiklum viðfangsefn- um. Kennararnir hafa góðar gætur á öllu og leiðbeina ungviðinu eftir þörfum. Svona valtími er fastur liður í dagskipulaginu fyrir hádegi, að sögn Heiðu Bjargar Scheving leikskólastjóra, og markmiðið er að börnin velji sér sjálf viðfangsefni og beri ábyrgð á þeim. Fimmtíu börn eru í leikskólanum í þremur deildum á Hlíðarborg og þau eru á aldrinum eins og hálfs til fimm ára. Deildirnar heita Álfahlíð, Drekahlíð og Tröllahlíð. Auk þess er salur sem ber heitið Gáskahlíð og er samnýttur af öllum deildum og Listahlíð er stofa sem myndlistin er kennd í. Lautin er svo stofa fyrir ýmis elstubarnaverkefni og þar er úrval af spilum í hillunum. Yngstu börnin halda til í Álfa- hlíð og þegar blaðafólkið er á ferð- inni eru þau að komast á stjá eftir morgunhvíldina. Svo er útiverutími fram undan og það tekur sinn tíma að koma öllum í viðeigandi galla. Þar sem enn er hlýtt í veðri er úti- veran stærri liður í dagskránni en þegar líða tekur á haustið, að sögn Heiðu Bjargar. „Vetrardagskrá- in okkar tekur gildi smám saman á næstu dögum. Við höfum verið að taka inn marga nýja nemendur eins og ævinlega á þessum árstíma og aðlögunin tekur sinn tíma. Svo kemst bráðum allt í enn fastari skorður,“ segir hún. - gg Valtími er fastur liður Alexander Már, bak við hann er Þóra Rún sem er að leika við Kjartan í köflóttu skyrtunni og Katrín Inga situr þar fyrir aftan. Þau eru að hefja daginn eftir morgunhvíld. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Áki Hlynur, Arnór Tjörvi, Máni og Róbert sinna heimilis- og uppeldisstörfum. Kjartan og Maríus Alvin leira. Tara Líf fann sér gott næði til að hugsa um eitthvað skemmtilegt. Elísabet Thelma, Íris Björk og Erna Katrín spá í spilin. „Mér finnst töluverður munur á þessari meðgöngu og þeirri fyrstu,“ segir María Heb,a sem er komin sex mánuði á leið, en fyrir á hún sautján mánaða dreng. „Mér finnst meðgangan erfiðari í þetta sinn, þótt hún sé jafn yndis- leg og tilhökkunin eins mikil,“ segir hún til útskýringar. „Ætli munur- inn sé ekki helst sá að ég get ekki slappað af þegar ég kem heim af æfingum á Gunnlaðar sögu eins og ég gerði þegar ég gekk með soninn, heldur verð ég að sinna honum af fullum krafti.“ Maríu Hebu finnst hún af þeim sökum vera svolítið sundurtætt á milli vinnunnar og einkalífsins, þótt hún sé ekki þreytt á því að standa á sviðinu svona langt komin á með- göngu. „Ég elska vinnuna mína og finnst streðið af þeim sökum þess virði,“ segir hún. „Meðgangan hefur hins vegar kennt mér að ofurkonur eru ekki til, að minnsta kosti ekki eins og þeim hefur verið lýst,“ segir María Heba. „Ofurkonur eru einfaldlega konur sem vinna mikið og fá góða aðstoð, hvort sem það er frá ættingjum, vinum eða dagmömmum. Sjálf er ég heppin að eiga góðan mann sem passar upp á mig og yndislegt sam- starfsfólk sem tekur tillit til mín.“ „Meðganga er að vissu leyti svo- lítið eins og sköpun leiksýningar, hún er og á að vera gleðiefni og ég er full tilhlökkunar að hitta þessa nýju manneskju,“ segir hún glöð í bragði. -rve Ofurkonur ekki til María Heba Þorkelsdóttir leikkona fer með tvö hlutverk í Gunnlaðar sögu og lætur það ekki á sig fá að vera komin sex mánuði á leið. María Heba stendur í ströngu því auk þess að vera barnshafandi leikur hún í Gunnlaðar sögu sem frumsýnd verður í Hafnarfjarðarleikhúsinu á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR „Minnisstæðustu sögurnar frá barn- æsku eru Bláskjár og Óliver Tvist,“ segir Einar Már Guðmundsson rit- höfundur. „Bláskjár var oft lesinn fyrir mig þegar ég var lítill og ég man ekki efnisatriðin nákvæm- lega en ég man áhrifin og hvað allt leystist farsællega. Óliver Tvist var leikrit í útvarpinu sem hélt mér alveg í spenntri kryppu og það varð til þess að Óliver Tvist varð fyrsta bókin sem ég keypti mér. Samt er hún ekkert endilega barnabók. Kannski hef ég lesið fullorðinsbæk- ur sem barn og svo barnabækur sem fullorðinn.“ Bláskjár og Óliver Tvist Einar Már Guðmundsson, rithöfundur EFTIRLÆTIS BARNABÆKURNAR Full búð af flottum haustvörum Nýjar vörur í hverri viku ����������� ������������ ����������� Smáralind sími 517-5330 www.adams.is adams@adams.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.