Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 45
ÞRIÐJUDAGUR 12. september 2006 21
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.101 +0,10% Fjöldi viðskipta: 348
Velta: 7.980 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,80 -0,31% ... Alfesca
4,77 +0,42% ... Atlantic Petroleum 572,00 +0,00% ... Atorka
6,35 +0,79% ... Avion 32,80 -1,21% ... Bakkavör 54,30 -0,91% ...
Dagsbrún 4,91 -0,81% ... FL Group 20,50 +0,00% ... Glitnir 19,80
+0,00% ... KB banki 833,00 +0,00% ... Landsbankinn 25,90
+1,17% ... Marel 77,50 -0,64% ... Mosaic Fashions 17,90 +0,56% ...
Straumur-Burðarás 16,80 +0,60% ... Össur 120,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
Landsbankinn +1,17%
Atorka +0,79%
Straumur-Burðarás +0,60%
MESTA LÆKKUN
Tryggingamiðstöðin -3,62%
Avion -1,21%
Bakkavör -0,91%
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, hefur aukið hlut sinn í FL
um tæp 1,5 prósent í gegnum eign-
arhaldsfélagið Oddaflug. Nam
fjárhæð viðskiptanna um 2.350
milljónum króna.
Hlutabréf í FL hækkuðu um
tæp tólf prósent á föstudaginn í
síðustu viku í miklum viðskiptum.
Má reikna með að Oddaflug hafi
átt bróðurhlutann í þeim viðskipt-
um og hreyft við gengi bréfanna.
Félag Hannesar er eftir sem
áður stærsti hluthafinn í FL með
um fimmtungshlut af heildar-
hlutafé.
Greiningardeild KB banka
gagnrýndi í gær kaup Hannesar
og sagði óheppileg þar sem stutt
væri í að niðurstaða uppgjörs
þriðja ársfjórðungs lægi fyrir
innan félagsins. Að auki gætu nú
legið fyrir einhverjar viðkvæmar
upplýsingar um stöðu og fyrir-
ætlan varðandi skráningu Ice-
landair Group í Kauphöllina. - eþa
Hannes kaupir
í FL Group
HANNES SMÁRASON, FORSTJÓRI FL
Kaupir fyrir um 2,2 milljarða í FL Group.
Fulltrúar aðildarríkja OPEC, sam-
taka olíuútflutningsríkja, sam-
þykki á fundi sínum í gær að halda
olíuframleiðslu óbreyttri þrátt
fyrir að hætta sé á að hátt olíu-
verð geti dregið úr hagvexti. Hins
vegar var haldið þeim möguleika
opnum að draga úr framleiðslunni
síðar á árinu.
Aðildarríki OPEC eru 11 talsins
en þau framleiða 28 milljón tunn-
ur af hráolíu á degi hverjum.
Verð á olíu fór hæst í rúma 78
dali á tunnu um miðjan júlí og
hafði olíuverð aldrei verið hærra.
Verðið hefur lækkað talsvert síðan
og stendur nú í tæpum 64 dölum á
tunnu. Slíkt verð hefur ekki sést
síðan í mars á þessu ári. - jab
OLÍUVINNSLUSTÖÐ Ekki er búist við að
OPEC geri breytingar á olíuframleiðslu
fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári.
Óbreytt olíu-
framleiðsla
Mosaic Fashions hefur nú lokið áreiðan-
leikakönnun á bókum bresku smásölukeðj-
unnar Rubicon Retail og hefur skrifað undir
bindandi samning þess efnis að kaupa öll
hlutabréf í keðjunni. Heildarvirði viðskipt-
anna er um 320 milljónir punda, sem jafn-
gildir um 43 milljörðum íslenskra króna.
Til þess að samningurinn geti gengið í
gegn er nú beðið samþykkis hluthafa og
breskra samkeppnisyfirvalda. Í fréttatil-
kynningu frá Mosaic Fashions segir að því
verði væntanlega lokið innan 45 daga frá
undirskrift samningsins og verður kallað til
hluthafafundar hjá Rubicon Retail innan
skamms.
Rubicon rekur meðal annars Shoe
Studio, sem hefur mörg þekkt vörumerki á
sínum snærum, auk kvenfatamerkjanna
Warehouse og Principles. Með samrunan-
um verður til ein stærsta kvenfatasmá-
sölukeðja Bretlandseyja, með um 1.700
verslanir í 27 löndum. Áætlað er að heild-
arársvelta sameinaðs félags verði um 818
milljónir punda, sem nemur um 110 millj-
örðum íslenskra króna. - hhs
DEREK LOVELOCK Derek er forstjóri Mosaic
Fashions, en fyrirtækið hefur nú lokið áreiðanleika-
könun á Rubicon Retail.
Mosaic yfirtekur Rubicon
Viðræður eru sagðar hafnar um
hugsanleg kaup bandaríska verð-
bréfamarkaðarins Nasdaq á OMX-
markaðnum, sem rekur kauphallir
í Stokkhólmi, Helsinki, Kaup-
mannahöfn og Eystrasaltslöndun-
um.
Ekki eru taldar líkur á að af
kaupum verði fyrr en Nasdaq
hefur tekið ákvörðun um næstu
skref varðandi Kauphöllina í
Lúndunum en Nasdaq hefur átt
rétt rúman fjórðung bréfa í henni
síðan á vordögum þessa árs.
Lundúnakauphöllin hafði einn-
ig áhuga á samruna við OMX í
fyrra, en þær viðræður runnu út í
sandinn í nóvemberlok þegar
Lundúnakauphöllin varðist óvin-
veittri yfirtöku ástralska fjárfest-
ingarbankans Macquarie. - jab
Horfa til OMX
AUGL†SINGASÍMI
550 5000