Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 49
ÞRIÐJUDAGUR 12. september 2006 25
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Það er aldeilis líf í Stuart Mur-
doch og félögum hans í Belle &
Sebastian. Ég man að minnsta
kosti ekki eftir því að þessi sveit
hafi hljómað svona hamingjusöm
áður. Hún hefur nú svo sem aldrei
verið að spila neina jarðarfarar-
tónlist, þvert á móti, en það er
vissulega bjartara yfir þessari
plötu en yfir seinni tíma verkum
þeirra.
Á The Life Pursuit nær sveitin
að kristalla allt það sem hefur
gert þessa sveit svona vinsæla.
Þessi plata er full af lögum sem
geisla svo af hamingju að það er
auðvelt að gleyma öllum heims-
ins erjum með þessa tónlist í eyr-
unum.
Suike In the Graveyard hljóm-
ar eins og það gæti verið óður til
Davids Bowie, einskonar kven-
kynsútgáfa af Ziggy sem spilaði á
gítar. Another Sunny Day hljóm-
ar eins og það hafi verið samið í
grillveislu á sólríkum degi. Dress
You Up in You er svo falleg ball-
aða að hætti Stuarts Murdoch,
með kaldhæðnum og fyndnum
texta, eitt undarlegasta ástarbréf
sem ég hef lesið.
Belle & Sebastian er sveit sem
hefur algjörlega náð að þroskast
rétt. Byrjuðu sem skólaverkefni
sem átti bara að verða stuttlíft,
einskonar tilraun til þess að gera
tónlist bara ánægjunnar vegna.
Þróaðist svo út í það að verða
alvöru hljómsveit þar sem egó
rákust saman og liðsmenn gáfust
upp á leiðinni.
wÍ dag eru línurnar skýrar, og
stílinn fullmótaður og ekki annað
að heyra nema það sé mikil ham-
ingja á hljómsveitaræfingum. Ég
hef ekki haft svona gaman af
Belle & Sebastian síðan The Boy
With the Arab Strap kom út árið
1998. Birgir Örn Steinarsson
Nóg eftir af sumrinu
BELLE & SEBASTIAN
THE LIFE PURSUIT
Niðurstaða: Vinir Emilíönu Torrini voru að
skila af sér sinni bestu plötu í lengri tíma. The
Life Pursuit er full af sólríkum popplögum eins
og Belle & Sebastian gera best.
Uppistandsgrínarinn Rökkvi
Vésteinsson gerði góða ferð til Kan-
ada í síðasta mánuði þar sem hann
tók þátt í og sigraði í fyrstu umferð
The Great Canadian Laugh off
uppistandskeppninni í Ottawa.
„Keppnin er haldin af Yuk Yuk´s
grínklúbbakeðjunni sem er víst ein
sú stærsta sinnar tegundar í heim-
inum,“ segir Rökkvi vígreifur og
fullyrðir að hann hafi unnið keppn-
ina með yfirburðum.
Keppnin teygir sig yfir Kanada
þvert og endilangt en með sigrin-
um öðlaðist Rökkvi rétt til að keppa
til úrslita í Ottawa í byrjun október.
Sigri hann þá umferð kemst hann í
landskeppnina þar sem hann mun
þá etja kappi við reynda atvinnu-
menn í gríninu.
„Ég bjó og starfaði í Kanada árið
2005 og byrjaði þá að reyna fyrir
mér í uppistandinu og er orðinn
sæmilega þekktur í ákveðnum
kreðsum í Ottawa og Montreal. Það
var síður en svo auðvelt að komast
að en eftir að ég samdi sérstakt
prógramm fyrir Kanada náði ég
eyrum áhorfenda og hef fengið að
troða reglulega upp síðan.“
Rökkvi segir það ekki vænlegt
til árangurs að flytja íslenskan
húmor út hráan þar sem áheyrend-
ur séu miklu viðkvæmari í Kanada
en hér heima.
„Ég er miklu grófari á Íslandi en
það sem þykir í góðu lagi hér getur
stuðað fólk úti. Þar er fólk miklu
viðkvæmara fyrir þessu,“ segir
Rökkvi sem fór flatt á þessu í frum-
raun sinni í Kanada þar sem hann
talaði eins og hann stæði á sviðinu á
Gauknum. „Þegar þetta gerist fer
maður bara heim með skottið milli
lappanna og hugsar sinn gang sem
ég og gerði.“ - þþ
Íslenskt grín of gróft
fyrir Kanadamenn
RÖKKVI VÉSTEINSSON Hitti í mark hjá
kanadískum grínklúbbagestum eftir að
hann tónaði sig niður. Nú gerir hann
óspart grín að sjálfum sér og smæð
íslensku þjóðarinnar með góðum árangri.
David Hasselhoff vill láta jarð-
setja sig í glerbúri undir Holly-
wood-stjörn-
unni sinni
þegar hann
deyr. Strand-
vörðurinn
fyrrverandi
vill ómögulega
að fólk gleymi
honum þegar
hann fer yfir
móðuna miklu.
„Ég vil vera í
glerbúri horf-
andi upp svo
að fólk geti
litið niður og
séð mig rotna,“ sagði Hoffarinn í
léttu gríni.
Hann segist einnig vera með
háleitar hugmyndir um hvað eigi
að standa á legsteini hans, „Góður
vinur, góður faðir. Skemmti sér
vel,“ er ein þeirra.
Grafinn í
glerbúri
DAVID HASSELHOFF
Vill láta grafa sig í
glerbúri svo að fólk
geti séð hann rotna.
Kvikmyndin Death of a President,
sem fjallar um það þegar George
W. Bush Bandaríkjaforseti er
myrtur, fékk góðar viðtökur þegar
hún var frumsýnd á kvikmynda-
hátíðinni í Toronto.
Í myndinni eru alvöru myndir
af Bush settar yfir andlit leikara
sem er skotinn til bana af leyni-
skyttu í Chicago árið 2007.
Repúblikanaflokkurinn í Band-
aríkjunum hefur gagnrýnt mynd-
ina harðlega og segir hana fara
langt yfir strikið.
Gabriel Range, leikstjóri
myndarinnar, segir að margir hafi
dæmt hana fyrir fram. Bætir hann
því við að myndin upphefji ekki
dauða forsetans. „Það kemur aug-
ljóslega fram í myndinni að það yrði
hryllilegur atburður,“ sagði Range.
„Ég held að enginn myndi fá þá hug-
mynd að ætla að myrða Bush eftir
að hafa horft á þessa mynd.“
Fær góðar
viðtökur
GEORGE W. BUSH Forseti Bandaríkjanna
er myrtur í kvikmyndinni Death of a
President.
Það á ekki af Bítilnum Paul
McCartney að ganga. Hann stend-
ur sem kunnugt er í skilnaði við
eiginkonu sína, Heather Mills, en
nú er hann líka kominn í stríð við
yfirvöld í Bretlandi.
Áætlað er að leggja neðanjarð-
arlest undir hljóðver hans í Lond-
on. McCartney er hræddur um að
hávaði og titringur frá lestinni
eyðileggi vinnu í hljóðveri sínu í
Soho og hefur sent þingmönnum
bréf vegna málsins. Þar krefst
hann skaðabáta, gangi lagning
járnbrautarinnar eftir.
Þykir þetta mál vekja upp
óþægilegar minningar fyrir Paul
en Cavern-klúbburinn í Liverpool,
þar sem Bítlarnir slógu í gegn, var
rifinn og járnbraut lögð í staðinn.
Í stríð við
yfirvöld
PAUL MCCARTNEY Þarf nú að kljást við
yfirvöld í Bretlandi vegna lagningu neðan-
jarðarlestar undir hljóðver hans.