Fréttablaðið - 12.09.2006, Side 56
32 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
3
3
6
2
SKJÁREINN næst í gegnum Skjáinn og Digital Ísland
Í kvöld kl. 20.00 á SKJÁEINUM
Queer Eye for the Straight Guy
Á sunnudaginn gerðu ÍBV og FH 1-1 jafntefli í Vestmannaeyj-
um og í marki ÍBV stóð enginn annar en Guðjón Magnússon.
Töluverð umræða hefur verið í gangi að undanförnu vegna
stöðu Guðjóns hjá ÍBV en í leik liðsins gegn KR í umferð-
inni á undan var kallað í Birki Kristinsson til að standa á
milli stanganna. Birkir treysti sér hins vegar ekki til að
spila á sunnudaginn og því fór svo að Guðjón varði
markið og stóð sig með prýði.
Guðjón hefur vermt varamannabekkinn hjá ÍBV
í langan tíma en var mjög ánægður að fá tæki-
færið gegn FH. „Þetta var bara mjög góð
tilfinning og ég er ánægður með frammi-
stöðuna, allt liðið var að spila vel,“ sagði
Guðjón.
Guðjón er ekki í vafa um að þetta gefi honum
aukið sjálfstraust fyrir komandi leiki, en ÍBV á tvo
erfiða leiki eftir í deildinni, gegn ÍA á Akranesi og
heimaleik gegn Fylki. „Þetta gefur manni að sjálf-
sögðu aukið sjálfstraust en á laugardagskvöldið
hafði Birkir Kristinsson líka samband við mig og við áttum gott spjall
saman. Hann leiðbeindi mér í gegnum þetta. Það voru forréttindi að
hafa fengið að æfa með honum og alltaf gott að eiga jafn góðan mann
og Birki innan handar til að leiðbeina sér,“ sagði Guðjón. Staðan
sem upp er komin er engin óskastaða fyrir Guðjón en hann var
kokhraustur og sagðist treysta sér í verkefnið.
Birkir Kristinsson hefur fulla trú á Guðjóni. „Ég treysti
honum vel til að klára þessa leiki sem eftir eru. Ef ég
ge r ð i það ekki þá hefði ég nú reynt einhverja hluti til þess
að spila sjálfur. En ég held að hans tími sé bara kominn, hann er
búinn að sitja lengi á bekknum og tími til að hann fái að spreyta sig.
Þetta eru hins vegar erfiðir leikir sem hann er að koma inn í,“ sagði
Birkir.
Birkir kvaðst vera í ágætu formi sjálfur og hafi ekki kennt sér mein
eftir leikinn gegn KR á dögunum en hann væri samt sem áður ekki
100% klár. Hann meiddist á öxl í fyrra og hefur aldrei náð sér að fullu
eftir það. „Ég hef nú aðeins verið að lyfta og grípa inn í æfingar og þá
finn ég vel fyrir öxlinni. Á meðan svo er þá er ekki sniðugt að vera að
spila,“ sagði Birkir.
GUÐJÓN MAGNÚSSON: FÉKK LOKSINS TÆKIFÆRI MEÐ LIÐI ÍBV OG ÞÓTTI STANDA SIG MJÖG VEL:
Birkir treystir Guðjóni fullkomlega til að standa í markinu
HANDBOLTI Geir Sveinsson segir
varaformann handknattleiksdeild-
ar Fram, Hjálmar Vilhjálmsson,
hafa verið undir dulnefni á spjall-
borði Vals þar sem hann hafi skap-
að óróa innan félagsins. Hjálmar
neitar sök en gögn sem Valur býr
yfir sýna að einstaklingurinn á
spjallborðinu hafði ítrekað skrifað
inn á spjallið af vinnustað Hjálm-
ars.
Aðili sem gekk undir nafninu
„Rieg“ á spjallborði Vals skapaði
mikinn usla á spjallborði Hliðar-
endamanna undir lok síðasta vetr-
ar með ummælum sínum. Þegar
smellt var á notandann til að fá
frekari upplýsingar kom í ljós að
maðurinn notaði tölvupóstfangið
geirisveins@yahoo.se og var einn-
ig sagður búa í Eskihlíð þar sem
Geir Sveinsson býr. Þess utan er
„Rieg“ nafnið Geir skrifað aftur á
bak.
Valsmaðurinn Geir Sveinsson
stóð ekki að baki þessum skrifum
og var afar ósáttur við að þessi
aðili væri að skapa usla í skjóli
síns nafns og fleiri menn innan
Vals voru einnig ósáttir enda lágu
margir þeirra undir grun um að
vera þarna að verki. Ein aðalá-
stæðan fyrir því að Geir og aðrir
fóru af stað í málinu var sú stað-
reynd að „Rieg“ gekk mjög hart
fram í því að kalla sig stuðnings-
mann Vals og lét menn sem efuð-
ust um heilindi hans gagnvart
félaginu heyra það. Margt af því
sem „Rieg“ skrifaði var svo gróft
að það hefur verið fjárlægt af
spjallborðinu.
Þegar ip-tala þessa notanda var
rakinn kom í ljós að flest skilaboð
„Rieg“ komu úr tölvu i fyrirtæki
sem Hjálmar Vilhjálmsson, vara-
formaður handknattleiksdeildar
Fram, starfar hjá. Fréttablaðið
hefur undir höndum gögn sem
staðfesta ip-töluna. Geir fór í kjöl-
farið á stúfana í fyrirtækið og hitti
þar Hjálmar að máli.
„Ég vildi nú ekki trúa því að
Hjálmar hefði þarna verið að
verki en ég fór til hans, skellti
blöðum á borðið hans og spurði
hvort hann stæði virkilega á bak
við þetta. Hann gat ekki neitað þar
sem sönnunargögnin töluðu sínu
máli og hann játaði fyrir mér að
hafa skrifað þetta,“ sagði Geir
Sveinsson sem fór skömmu síðar á
fund Guðmundar B. Ólafssonar,
formanns Fram, og óskaði þess að
Hjálmar bæði sig sem og Val
afsökunar á framkomu sinni.
„Hann hafði gert marga menn
grunsamlega og reynt að skapa
óróa innan félagsins sem er ótrú-
legt að maður í trúnaðarstarfi hjá
öðru félagi geri.“
Hjálmar gekkst hins vegar ekki
við skrifunum við formann Fram
og því fékk Geir ekki afsökunar-
beiðnina sem hann var að leita
eftir. Aðspurður vildi Hjálmar
ekki ræða málið að neinu leyti efn-
islega en sagði sögu Geirs ekki
vera sanna. Þegar Fréttablaðið
spurði Hjálmar að því að hvort
Geir Sveinsson hefði heimsótt
vinnustað hans og spurt hvort
hann stæði á bak við skrifin neit-
aði Hjálmar að svara.
Þar sem Hjálmar bar af sér
sakir í málinu hafði Fréttablaðið
samband við framkvæmdastjóra
fyrirtækisins sem hann starfar
hjá, og ip-talan var rakin til, og
spurði að því hvort einhver annar
innan fyrirtækisins kæmi til
greina að vera höfundur þessara
bréfa en alls eru sex starfsmenn
skráðir hjá fyrirtækinu sam-
kvæmt heimasíðu þess. Aðspurð-
ur sagði framkvæmdastjórinn að
enginn í fyrirtækinu, fyrir utan
Hjálmar, hefði vit eða áhuga á
handbolta.
Geir segir að eftir að hann hafi
gengið á Hjálmar með málið hafi
hvorki heyrst hósti né stuna frá
„Rieg“ á spjallborði Vals. Hann
óttast þó að Hjálmar hafi ekki
alveg látið af athæfi sínu því nýr
notandi á spjallborði Vals sé kom-
inn fram og hafi sömu ip-tölu og
„Rieg“.
Sá notar nafn Stefáns Karlsson-
ar, formanns handknattleiksdeild-
ar Vals, í innskráningu spjallsins
en Stefán sagði í samtali við
Fréttablaðið ekki vera á bakvið
notandanafnið.
Bæði „Rieg“ og þessi nýi aðili,
sem kallar sig „Valur1911“, hafa
ip-tölu fyrirtækisins sem Hjálmar
starfar hjá og lykilorðið sem þeir
nota er einnig það sama.
henry@frettabladid.is
Varaformaður handknattleiksdeildar
Fram borinn þungum sökum
Geir Sveinsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handbolta, sakar Hjálmar Vilhjálmsson, varaformann hand-
knattleiksdeildar Fram, um að fara huldu höfði á spjallborði Vals þar sem hann hafi skapað óróa innan
félagsins. Hafi hann notað nafn Geirs í því sambandi. Hjálmar vísar ásökunum á bug.
SAMI AÐILINN? „Rieg” og „Valur1911” á
spjallborði Vals hefur verið að skrifa frá
sömu ip-tölu. Það sem ýtir enn frekar
stoðum undir að þar sé sami aðili á
ferðinni er sú staðreynd að notað er
sama lykilorðið en það er ekki sýnt á
myndinni.
HJÁLMAR VILHJÁLMSSON Öll spjót standa nú á varaformanni handknattleiksdeildar
Fram. Hjálmar vildi ekki ræða málið í gær en sagði sögu Geirs Sveinssonar ósanna.
> Einar til starfa hjá EHF
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssam-
bands Íslands, hefur verið ráðinn í vinnu hjá evrópska hand-
knattleikssambandinu. „Ég er í
markaðsvinnu fyrir sambandið
sem tengist Meistaradeildinni.
Starfið felst í að koma að
umgjörð leikjanna í deildinni en
það er búið að selja sjónvarps-
réttinn og komnir peningar
inn í mótið. Það er ákveðinn
hópur sem var fenginn í þetta
verkefni,“ sagði Einar en hann
mun áfram sinna starfi framkvæmdastjóra HSÍ enda ekki um
fullt starf að ræða. Að vera boðin slík staða er engu að síður
viðurkenning fyrir Einar sem hefur unnið verulega gott starf
fyrir handboltann á Íslandi.
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Sigurbjörn Hreiðarsson hefur
framlengt samning sinn við Val
til ársins 2008. Sigurbjörn átti eitt
ár eftir af samningi sínum en
fannst tímabært að framlengja.
„Ég átti næsta ár eftir. Ég á
ennþá eitthvað eftir í þessu og
mun allavega vera hjá Val næstu
tvö ár,“ sagði Sigurbjörn í gær en
hann verður 31 árs síðar á þessu
ári.
Sigurbjörn sagði það væri
hugur í Valsmönnum þegar litið
er til framtíðar. „Við ætlum bara
að byggja ofan á það sem við
höfum verið að gera síðustu þrjú
ár og halda ótrauðir áfram.“
Valsmenn fengu fleiri góðar
fréttir í gær því framherjinn
Garðar Jóhannsson mun klára
tímabilið með félaginu þar sem
undanþága um félagaskipti til
Fredrikstad fékkst ekki sam-
þykkt af alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, FIFA. - dsd
Gleði hjá Valsmönnum:
Sigurbjörn
framlengir
SIGURBJÖRN HREIÐARSSON Fyrirliði
Vals hefur framlengt samning sinn við
félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.