Fréttablaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 59
ÞRIÐJUDAGUR 12. september 2006 35
FÓTBOLTI Eiður Smári og félagar
hans í Barcelona byrja titilvörn
sína á heimavelli gegn Levski
Sofia frá Búlgaríu en Barcelona
stefnir á að vera fyrsta liðið í
sautján ár til að vinna Meistara-
deildina tvö ár í röð. Síðasta liðið
til að afreka það var AC Milan,
sem vann keppnina sem þá hét
Evrópukeppni meistaraliða, á
árunum 1989 og 1990.
„Þetta snýst ekki bara um leik-
inn gegn Chelsea, heldur líka um
leikina gegn Werder Bremen og
Levski. Við þurfum að spila eins
vel og við getum í öllum leikjum
og ef við vinnum þá alla þá erum
við í góðum málum,“ sagði Eiður
Smári um riðilinn.
Leikmenn Liverpool eru stadd-
ir í Hollandi og mæta PSV. John
Arne Riise er eini leikmaður
Liverpool sem fór ekki með til
Hollands en hann meiddist á ökkla
um síðustu helgi í grannaslag
gegn Everton. Þessi lið hafa aldrei
áður mæst í Evrópukeppnum en
Ronald Koeman, þjálfari PSV, var
við stjórn hjá Benfica á síðustu
leiktíð þegar Benfica sló Liver-
pool út úr Meistaradeildinni. PSV
hefur misst nokkra lykilmenn frá
síðustu leiktíð en meðal leik-
manna sem félagið hefur fengið
til sín er Jan Kromkamp sem áður
lék með Liverpool. Philip Cocu er
í leikbanni og það munar um
minna hjá PSV.
„Við fengum á okkur þrjú
klaufaleg mörk gegn Everton á
laugardaginn og það er ljóst að
við þurfum að bæta varnarleik-
inn hjá okkur. Á síðustu leiktíð
var varnarleikurinn hjá okkur
frábær og við þurfum að rifja það
upp og byrja upp á nýtt,“ sagði
Rafa Benitez í gær.
Ensku meistararnir í Chelsea
fá þýska liðið Werder Bremen í
heimsókn í kvöld. Chelsea hefur
alltaf unnið opnunarleik sinn í
Meistaradeildinni en þetta er í
fjórða skiptið sem félagið tekur
þátt. Búist er við því að Claude
Makalele verði í liðinu í kvöld en
hann var hvíldur um helgina og
einnig er búist við því að Joe Cole
verði orðinn heill, en hann meidd-
ist fyrir tímabilið og hefur ekkert
leikið í deildinni til þessa. Arjen
Robben er hins vegar enn frá
vegna ökklameiðsla. Töluverð
meiðsli eru í herbúðum Werder
Bremen, markvörðurinn Tim
Wiese er veikur og leikur ekki
með og þá er óvíst hvort þrír aðrir
leikmenn geta verið með, en það
eru þeir Miroslav Klose, Tim Bor-
owski og Torsten Frings. Þetta
eru allt burðarásar í liði Bremen
og því mikil blóðtaka fyrir Þjóð-
verjana ef þeir verða ekki með í
kvöld.
Michael Ballack, þýski miðju-
maðurinn hjá Chelsea, sagði að
stefnan hjá Chelsea væri að vinna
Meistaradeildina. „Ég hefði aldrei
komið hingað ef ég teldi Chelsea
ekki nógu sterkt til að sigra Meist-
aradeildina. En það verður mjög
erfitt og það er alltof snemmt að
spá okkur í úrslitaleikinn,“ sagði
Ballack.
Bayern München tekur á móti
Spartak frá Moskvu í kvöld en
Franz Beckenbauer, forseti Bay-
ern, lét nýlega hafa eftir sér að
Bayern væri ekki með nógu sterkt
lið til að vinna Meistaradeildina.
Inter Milan hefur styrkt sig
mikið fyrir komandi leiktíð en
félagið á erfiðan leik fyrir hönd-
um í kvöld gegn Sporting í Lissa-
bon.
- dsd
Barcelona hefur titilvörnina í Meistaradeildinni á heimavelli í kvöld gegn Levski:
Eiður Smári varar við kæruleysi
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Það verður fróðlegt að sjá hvort Eiður fær að spreyta sig
í kvöld þegar Barcelona tekur á móti Levski í Meistaradeild Evrópu.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
A-riðill:
BARCELONA - LEVSKI SOFIA
CHELSEA - WERDER BREMEN
B-riðill:
BAYERN MÜNCHEN - SPARTAK MOSKVA
SPORTING LISBON - INTER
C-riðill:
GALATASARAY -BORDEAUX
PSV EINDHOVEN - LIVERPOOL
D-riðill:
OLYMPIAKOS - VALENCIA
ROMA - SHAKTAR DONETSK
LEIKIR KVÖLDSINS
FRJÁLSAR Líklegt þykir að hlaupa-
drottningin Marion Jones muni
keppa í heimsbikarkeppninni í
frjálsum íþróttum sem fram fer í
Aþenu um næstu helgi. Jones
hefur mikið verið á milli tann-
anna á fólki síðustu dagana en
hún var sýknuð af ásökunum um
inntöku ólöglegra lyfja á dögun-
um. Hún hefur þó ekki enn
samþykkt boð um þátttöku á
mótinu.
„Jones er inni í áætlunum
okkar í 100 metra hlaupi og við
gerum ráð fyrir að hún mæti til
leiks,“ sagði framkvæmdastjóri
bandaríska frjálsíþróttaliðsins,
Sandy Snow.
Marion Jones hefur þegar
tryggt sér þátttökurétt á mótinu
um næstu helgi en hún á þrjá af
fimm bestu tímum sem settir
hafa verið á þessu ári. - dsd
Marion Jones:
Keppir líklega
um næstu helgi
MARION JONES Er líkleg til sigurs ef hún
tekur þátt í 100 metra hlaupi um næstu
helgi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ashley Cole, leikmaður
Chelsea, sagði frá því í gær að
ástæðan fyrir því að hann hefði
yfirgefið Arsenal væri sú að stjórn
félagsins hefði ekki sýnt nógu
mikinn áhuga á að halda honum
hjá félaginu. Cole vildi fá 60 þús-
und pund, rétt rúmar 8 milljónir
íslenskra króna, á viku í laun hjá
Arsenal en stjórn Arsenal hefði
aðeins verið tilbúið að bjóða
honum 55 þúsund pund á viku,
sem eru um 7,5 milljónir íslenskra
króna.
„Ég trúi ekki að stjórnin hafi
haft nokkurn áhuga á því að halda
mér fyrst þeir voru ekki tilbúnir
að hækka boðið um 5 þúsund
pund,“ sagði Cole.
Cole telur líka að stjórnin hafi
ekki sýnt sér álíka áhuga og hún
sýndi Thierry Henry, sem endaði
með að framlengja samning sinn
við Arsenal. „Félagið gekk á eftir
Henry með grasið í skónum og
sagði opinberlega að það vildi að
hann yrði áfram. En hvað með
mig? Ég var aldrei boðaður á
fund og fékk aldrei símtal frá
neinum. Þannig er mál með vexti
og á síðasta tímabili sýndi
Arsenal aldrei áhuga á að halda
mér,“ sagði hinn bitri Ashley
Cole. - dsd
Ashley Cole hefur ekki sagt sitt síðasta:
Stjórn Arsenal vildi
ekki halda mér
SÁR VIÐ STJÓRN ARSENAL Arsenal var eingöngu tilbúið til að bjóða Ashley Cole
sultarlaun sem hann var ekki sáttur við.NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES