Fréttablaðið - 12.10.2006, Page 2

Fréttablaðið - 12.10.2006, Page 2
2 12. október 2006 FIMMTUDAGUR SPURNING DAGSINS Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 AÐALATRIÐI Í SKÝRSLU I Verndar- og nýtingaráætlun 1. Alþingi samþykki lög um vernd og nýtingu auðlinda eigi síðar en 2010. 2. Víðtækt samráð verði um mótun verndar- og nýtingaráætlunar með skipun starfshóps sem í verði fulltrúar forsætisráðuneytis, Orku- stofnunar, Íslenskra orkurannsókna, náttúruverndarsamtaka, Samorku og Sambands íslenskra sveitar- félaga. 3. Áætlunin um vernd og nýtingu auðlinda verði gerð með tilliti til niðurstaðna rannsókna og mats á hugsanlegum virkjunarkostum. 4. Stjórnvöld tryggi fjármuni til að ljúka grunnrannsóknum vegna rammaáætlunar um nýtingu vatns- afls og jarðvarma árið 2009. II Framtíðarstefna mörkuð 1. Í gildi eru sjö rannsóknarleyfi vegna jarðhita, þar af tvö vegna hitaveitna. Meirihluti nefndarinnar telur að leyfishafar eigi að fá að halda áfram rannsóknum sínum og fram- kvæmdum. 2. Tólf umsóknir vegna jarðhitarann- sókna og níu umsóknir vegna vatnsaflsrannsókna. 3. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki skuli veita leyfi til rannsókna og nýtinga á öðrum kostum til raforkuöflunar nema að undan- gengnum rannsóknum og mati, og með samþykki Alþingis. III Breyting á afgreiðsluferli 1. Lögfestar verði verklagsreglum um hvernig staðið verði að afgreiðslu milli umsókna um rannsókna- og nýtingarleyfi auðlinda. 2. Landeigendur ráða því við hvaða aðila þeir semja um rannsóknir og nýtingu auðlinda, á þeirra landi. 3. Úthlutun rannsókna- og nýtingar- leyfa færist til Orkustofnunar. 4. Auglýst skal eftir umsóknum um leyfi til rannsókna á nýtingarmögu- leikum og setja í þær lágmarkskröf- ur um fjárhagslegt bolmagn. 5. Gjald verði tekið fyrir nýtingu auðlinda í þjóðlendum og landi í ríkiseigu. Ef fleiri en einn sæki um verði tekið hagkvæmasta tilboði. Það er, hæsta boði. 6. Sú meginregla gildir að rannsóknar- leyfi geti falið í sér forgang til nýtingar. AUÐLINDIR Auðlindanefnd leggur til, í skýrslu sem kynnt var í gær, að Alþingi samþykki verndar- og nýtingaráætlun fyrir jarðvarma og vatnsafl á Íslandi eigi síðar en árið 2010. Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, sagðist vonast til þess að efni skýrslunnar, sem ber heitið „Framtíðarsýn um verndun og nýtingu auðlinda í jörðu og vatnsafls“, legði grunninn að meginlínum stefnumótunar sem gæti skapað „farveg þjóðar- sáttar“ um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði að um tímamót væri að ræða. „Þetta eru mikilvæg og ánægjuleg tímamót sem verða við það að nefndin nær heildrænu samkomulagi um þessi mikilvægu atriði, sem er undir- búningur að gerð áætlunar um nýtingu og vernd auðlinda lands- ins. Í þessu felst meðal annars að búa til vandaðar reglur um hvern- ig á að velja úr umsóknum um rannsóknar- og starfsleyfi, og hvaða viðmiðum á að fylgja þang- að til heildaráætlunin verður til- búin en hún getur orðið til innan þriggja ára, samkvæmt markmið- um nefndarinnar.“ Kolbrún Halldórsdóttir, þing- kona Vinstrihreyfingarinnar − græns framboðs, segist ekki líta á skýrslu nefndarinnar sem tíma- mótaframlag í umræðu um nýt- ingu og vernd orkuauðlinda. „Þetta er ekki tímamótasátt í mínum huga. Menn virðast ekki hafa metnað til að nýta tímann framundan til þess að klára áætl- unina, heldur er það vilji stjórn- valda að koma orkufyrirtækjun- um í skjól með öll sín áform, áður en skrefið verður tekið til fulls. Að auki hefur rammaáætlun ríkis- stjórnarinnar aldrei hlotið sam- þykki eða um hana verið rætt á málefnalegum nótum á Alþingi. Á bak við þá áætlun eru ófullnægj- andi gögn og hún er því ekki góður grundvöllur til leyfisveit- inga í þessum efnum. Metnaðar- fyllsta skrefið, og um leið það ábyrgðarfyllsta, hefði verið að stoppa af framkvæmdir vegna áforma um álver vítt og breitt um landið. Aðeins þannig hefði verið hægt að skapa raunverulega sátt um málið.“ Í nefndinni sátu Karl Axelsson formaður, Agnar Olsen, Albert Albertsson, Arnbjörg Sveinsdótt- ir, Birkir Jón Jónsson, Hjörleifur B. Kvaran, Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir, Jóhann Ársæls- son, Kolbrún Halldórsdóttir og Sigfús Ingi Sigfússon. Þrír nefnd- armenn, Agnar, Albert og Hjör- leifur, voru tilnefndir af Samorku en formaður nefndarinnar var til- nefndur af iðnaðarráðherra. magnush@frettabladid.is Alþingi semji áætlun um nýtingu auðlinda Skýrsla um verndun og nýtingu orkuauðlinda í jörðu og vatnsafls var kynnt í gær. Tímamótasátt, segir Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra. Metnaðarlaust þar sem orkufyrirtækin komast í skjól með sín áform, segir Kolbrún Halldórsdóttir. FRÁ FUNDINUM Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, skýrði frá meginatriðum skýrslunnar á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Nefndarmenn eru ekki allir sammála um að skýrslan feli í sér sköpun farvegs að þjóðarsátt um auðlindanýtingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍRAK, AP Samkvæmt nýrri breskri rannsókn, sem birt er í læknatímaritinu Lancet, hafa nærri 655 þúsund Írakar látið lífið af völdum stríðsátakanna frá því að Bandaríkjaher gerði innrás í landið ásamt bandamönnum sínum í mars árið 2003. Þetta er meira en tíu sinnum hærri tala en venjulega hefur verið nefnd um mannfall af völdum átakanna í Írak. Flestir hafa talað um að tala látinna Íraka geti verið um það bil 50 þúsund. Rannsóknin er þó umdeild, því hún er ekki byggð á beinum upplýsingum um tölu látinna, heldur á viðtölum við fjölskyldur í Írak og er út frá þeim dregin ályktun um mannfallið. Þetta er sams konar aðferð og beitt er þegar hjálparstofnanir meta mannfall af völdum náttúruhamfara. Ríkisstjórn Íraks sagði í gær að þessi tala væri „ýkt“ og „langt frá sannleikanum“. Stjórnin nefndi þó ekki neina tölu um mannfallið, og hefur reyndar aldrei gert það. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær hafna þessari tölu um mannfallið, hann teldi rann- sóknina „ekki trúverðuga“. Fyrir einu ári sagði Bush að 30 þúsund Írakar hefðu fallið, en hann hefur ekki nefnt aðra tölu um mannfallið síðan þá. - gb ÍRASKUR HERMAÐUR KANNAR UMMERKI BÍLASPRENGJU Tveir vegfarendur létust og sextán særðust þegar sprengja sprakk í þessari bifreið í gær, fyrir utan lögreglustöð í Bagdad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Breskir fræðimenn birta áætlun um mannfall í Írak: Nær 655 þúsund látnir í Írak Lækkaði símreikningur utan- ríkisráðuneytisins ekki umtals- vert við þessa uppgötvun, Jón? „Jú, reyndar, þökk sé leyniþjónustu Sjálfstæðisflokksins.“ Jón Baldvin Hannibalsson upplýsti á dögunum að sími hans í utanríkisráðu- neytinu hefði verið hleraður. VIÐSKIPTI Tryggingaálag á skuldabréf bankanna (CDS) er nú sambærilegt við stöðuna áður en halla tók undan fæti í umræðu um þá og efnahagslífið. Forstöðu- maður alþjóðlegrar fjármögnun- ar Glitnis býst við hægum bata. Í gær var álag á bréf Glitnis 37 punktar, 46 á bréf Landsbankans og 56 á bréf Kaupþings. Hinn 9. febrúar var álagið á bréf Glitnis það sama, 37 punktar, 44 á bréf Landsbankans og 47 punktar á bréf Kaupþings. Almenn banka- vísitala Iboxx sem sýnir fjár- mögnunarkostnað í Evrópu ber hins vegar með sér að almennt hafi þar ríkt stöðugleiki, þótt kjör íslensku bankanna hafi sveiflast. - óká / sjá síðu 28 Tryggingaálag á bréf bankanna: Svipuð staða og var uppi í febrúar UTANRÍKISMÁL Valgerður Sverris- dóttir og Geir Haarde funduðu í gær með Condoleezzu Rice, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington. Eftir fundinn, sem var „stuttur, en vinsamlegur“ að sögn Valgerðar, var skrifað undir samkomulag um framtíðarhlut- verk Bandaríkjanna í vörnum Íslands. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra var viðstaddur,. Á fundinum var frekari sam- vinna þjóðanna rædd, til dæmis í viðskiptum og á sviði endurnýjan- legrar orku. Í samtali við Frétta- blaðið sagðist Valgerður hafa nýtt sér tækifærið til að bjóða Condol- eezzu Rice velkomna í heimsókn til Íslands og að ráðherrann banda- ríski hefði þekkst boðið. Valgerður lýsti einnig yfir ánægju með fund sinn fyrr um daginn með Paul Wolfowitz, for- seta Alþjóðabankans. Á honum voru rædd þróunarmál og hugsan- legt samstarf bankans og Íslands á því sviði, sérstaklega við fisk- veiðar og orkunýtingu. „Það eru gríðarlegir möguleikar og mikil þörf í ýmsum þróunarlöndum sem eiga auðlindir en kunna ekki að vinna úr þeim. Það væri verðugt verkefni að Íslendingar kæmu þar að málum en við gerum það ekki án samstarfs við bankann,“ sagði Valgerður. - kóþ Sendiför forsætisráðherra, utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra til Washington: Undirrituðu nýtt varnarsamkomulag VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR, CONDOLEEZZA RICE OG GEIR HAARDE Fundurinn fór fram í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMGÖNGUMÁL Búið er að leggja lokahönd á breytingar á Löngu- hlíð og er gatan nú aðeins með einni akrein í hvora átt en ekki tveimur eins og áður var. Stefán Finnsson, deildarstjóri mann- virkja í Reykjavíkurborg, segir ástæðu breytinganna hafa verið þrýsting íbúa í hverfinu. Mörg börn fari þar um til að komast í skólann og nauðsynlegt hafi verið að bæta öryggi þeirra. Einhverjar kvartanir hafi borist vegna þess að bílastæðum var ekki fjölgað samhliða breytingunum. Það hafi þó ekki verið mögulegt þar sem þau valda oft hættu fyrir börn þar sem þau eigi til að skjótast á milli kyrrstæðra bíla. Því hafi verið kosið að setja upp hjólarein í staðinn. Varðstjóri umferðar- deildar lögreglu segir þessar breytingar af hinu góða þó að einstaka ökumaður hafi kvartað vegna þeirra. - kdk Lokahönd lögð á Lönguhlíð: Segja öryggi barna aukið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.