Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 2
2 28. október 2006 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
ÖRYGGISMÁL „Ég var komin í and-
nauð og það mátti engu muna að
það yrði stórslys,“ segir kona sem
ekið hefur leigubifreið í fimm ár,
um árás sem hún varð fyrir nýlega
í vinnu sinni af hendi farþega.
Fréttablaðið ræddi við hana og
starfssystur hennar, sem báðar
hafa orðið fyrir alvarlegu áreiti
og ofbeldisverkum í starfi. Þær
báðust undan því að koma fram
undir nafni þar sem kærumál eru
í gangi vegna atvika sem önnur
þeirra hefur lent í.
Fréttablaðið greindi frá því
fyrr í vikunni að öryggisbúnaði í
leigubílum sé ábótavant og á
sumum leigubílastöðvum sé alls
enginn slíkur búnaður til staðar.
Forsvarsmenn tveggja leigubíla-
stöðva voru þá á einu máli um að
huga þyrfti að úrbótum í þessum
efnum vegna vaxandi áreitis og
jafnvel ofbeldisverka af hálfu far-
þega. Allir viðmælendur blaðsins
hafa hins vegar lagt áherslu á að
almennt séu viðskiptavinir prúðir
og kurteisir.
Leigubílstjórinn sem um ræðir
hér að framan var með fullan bíl
af farþegum þegar atvikið átti sér
stað. Einn þeirra þurfti að kasta
upp svo bílstjórinn bjóst til að
stöðva bílinn. Maður sem sat fyrir
aftan konuna við stýrið trylltist
þá, greip hana föstu kverkataki og
skipaði henni að aka áfram og
halda hraða, sem hún gerði. Hann
herti takið heldur en hitt og keyrði
höfuð hennar aftur. Það varð fólk-
inu til happs að sjúkrabíll sem
kom á móti stoppaði eftir að bíl-
stjórinn hafði blikkað háu ljósun-
um. Ofbeldismaðurinn lét sig
hverfa út í myrkrið, en atburður-
inn var kærður til lögreglu.
Þessi sami bílstjóri hafði áður
lent í því að farþegi kallaði hann
öllum illum nöfnum, hótaði honum
margsinnis lífláti, sló hann stöðugt
í öxlina meðan á ferðinni stóð og
braut loks vínflösku sem hann
ætlaði síðan að skaða bílstjórann
með. Bílstjórinn náði að sparka
manninum út úr bílnum þegar
hann hallaði sér út til að brjóta
flöskuna. Það atvik var einnig
kært.
Hin konan sem Fréttablaðið
ræddi við hefur einnig komist í
hann krappan. Hún hefur einnig
verið tekin kverkataki við akstur,
rifið hefur verið í hár hennar, hún
hefur verið stungin með penna í
andlitið meðan á akstri stóð, og
svo mætti áfram telja. Hún hefur
orðið fyrir því að farþegi tók
annan farþega kverkataki og herti
að þar til það fór að korra í honum,
hann blánaði upp og missti með-
vitund. Þá klöngraðist árásarmað-
urinn í framsætið og hóf að áreita
hana gróflega, þar til hinn komst
til meðvitundar. Þá fór maðurinn
aftur í aftursætið og hélt áfram
misþyrmingunum, sem enduðu
með kynferðislegu ofbeldi.
jss@frettabladid.is
TVEIR LEIGUBÍLSTJÓRAR Skora á Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að setja
reglur um skylduöryggisbúnað í leigubíla. Þær segjast vilja sjá búr úr plexigleri utan
um hvern einasta leigubílstjóra. Þeir séu óvarðir eins og búið sé að þeim í dag, en fái
stundum fólk vopnað hnífum í bílana.
Tekin kverkataki og
skipað að aka áfram
Öryggisbúnaður í leigubifreiðum er í lágmarki eða alls enginn. Tveir leigubíl-
stjórar segja hér frá atvikum sem þeir hafa upplifað í starfi. Um er að ræða
líkamlegt ofbeldi, líflátshótanir og áreiti. Þeir vilja aukið öryggi í starfi.
FRAKKLAND, AP Franska lögreglan
sendi í gær mikinn liðsauka út í
úthverfi Parísar, þar sem óttast var
að óeirðir brytust út á ný í nótt. Í
gærkvöldi voru tveir strætisvagnar
brenndir. Rétt ár er liðið frá því að
mikil óeirðaalda upphófst í
innflytjendaúthverfunum í kjölfar
þess að tveir unglingar úr norður-
afrískum innflytjendafjölskyldum
dóu af slysförum þegar þeir reyndu
að fela sig fyrir lögreglunni.
Í fyrrinótt voru um 100 bílar
brenndir í borgum landsins,
helmingurinn í Parísarúthverfun-
um. Í ofbeldisöldunni fyrir ári náðu
óeirðaseggir að brenna allt að 1.400
bíla á nótt, auk annarra skemmdar-
verka. - aa
Götuóeirðir í Frakklandi:
Bílar brenndir
ári eftir ölduna
KRÖFUGANGA Íbúar Parísarúthverfisins
Clichy-sous-Bois í kröfugöngu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÓL Jólatré hefur verið reist við
Blómaval við Skútuvog og er um
að ræða stærsta íslenska
jólatréð sem
fellt hefur
verið hér á
landi að
sögn Hreins
Óskarsson-
ar, skógar-
varðar á
Suðurlandi,
sem sá um
að velja og
fella tréð.
Tréð var
fellt í
Skógarlundi
við Kirkju-
bæjarklaust-
ur og mun
hafa verið gróðursett um eða
upp úr 1950. Það þurfti nú að
víkja vegna útsýnis að Systra-
fossi og í staðinn verður komið
upp áningarstað fyrir ferðamenn
í lundinum fyrir andvirði
trésins. - sdg
Jólin farin að gera vart við sig:
Stærsta íslenska
jólatréð reist
JÓLATRÉÐ Í SKÚTU-
VOGI Tréð er sitkagreni
og teygir sig um 16,8
metrar upp í loft.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í
Reykjavík ætlar að auka
viðbúnað í miðbænum um
helgina vegna þriggja
nauðgana sem hafa átt
sér þar stað í skjóli nætur
síðastliðnar tvær vikur.
,,Það er hægt að rífa
manneskju inn í næsta
húsagarð, nauðga henni
og enginn sér eða veit
neitt. Við þurfum að koma í veg
fyrir svona hrottaskap, Slíkar
árásir eru hins vegar fátíðar og
því kom mér á óvart
þegar ég heyrði af þess-
um þremur nauðgunum,“
segir Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn um
aukinn viðbúnað lögregl-
unnar í miðbænum um
helgina.
Einkennis- og óein-
kennisklæddir lögreglu-
menn, á merktum og
ómerktum bílum, munu vakta mið-
bæinn um helgina að sögn Geirs
Jóns. ,,Við munum beita öllum til-
tækum ráðum til að auka eftirlit
næst veitingastöðum og við mið-
borgina. Og við munum setja eins
marga menn og við getum á vakt.
Menn sem eru í þessum hugleið-
ingum geta því ekki verið öruggir
með sig; við ætlum að reyna að
koma í veg fyrir að slíkur hrylling-
ur endurtaki sig,“ segir Geir Jón.
Hann bætir því við að nauðsyn-
legt sé að koma upp fleiri öryggis-
myndavélum í miðbænum og að
samþykkt liggi fyrir því hjá
Reykjavíkurborg. - ifv
Lögreglan eykur viðbúnað í miðbænum vegna nauðgunarmála:
Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn á vakt um helgina
GEIR JÓN ÞÓRISSON
VIÐSKIPTI Öryggi gagnaflutninga stendur áætlunum
stjórnvalda um að koma hér á fót alþjóðlegri fjár-
málamiðstöð fyrir þrifum. Þetta er meðal þess sem
fram kemur í skýrslu nefndar um alþjóðlega fjár-
málastarfsemi á Íslandi. Skýrslan var kynnt á fundi
ríkisstjórnarinnar í gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu
stendur til að kynna efni hennar enn frekar á sér-
stakri ráðstefnu áður en langt um líður. Í skýrslunni
eru reifaðar margvíslegar hugmyndir um hvernig
skapa mætti hér umhverfi sem stuðlað gæti að auk-
inni fjármálastarfsemi.
„Við reyndum að vinna þetta sem hugmyndabanka
fremur en ákveðnar tillögur,“ segir Sigurður Einars-
son, formaður nefndar ráðuneytisins. „Það er svo
frekar stjórnmálamanna og löggjafans að vinna úr
þessum hugmyndum, en þær snúa fyrst og fremst að
því umhverfi sem gæti stuðlað að aukningu á fjár-
málastarfsemi hér.“ Hann segir þó bent á atriði í
almennu umhverfi hér sem stingi í augu, líkt og vönt-
un á alþjóðlegum skólum og að hér skuli ekki vera
öruggt varasamband gagnaflutninga til útlanda.
Í skýrslunni er lögð áhersla á að ekki þurfi mikið
að koma til í fjármálageiranum til að skila litlu þjóð-
arbúi eins og okkar miklum ávinningi. - óká
VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ Nefnd um Ísland sem fjármálamiðstöð
leggur til að könnuð verði alþjóðleg lífeyrissjóðastarfsemi og
stiglækkandi tekjuskattur á fyrirtæki.
Skýrsla nefndar forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi:
Tryggja þarf gagnaflutninga
LÖGREGLUMÁL Tveir Íslendingar
sitja í gæsluvarðhaldi vegna
stórfellds fíkniefnainnflutnings.
Hörður Jóhannesson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn, staðfestir að
þeir hafi verið handteknir um
síðustu helgi eftir að þeim hafi
borist pakki með ætluðum
fíkniefnum með hraðsendingu frá
Danmörku.
Á vef vísi.is í gær kom fram að
um væri að ræða tíu kíló af hassi
og að lögreglan í Reykjavík ynni
að rannsókn málsins í samstarfi
við dönsk lögregluyfirvöld.
Hörður vildi þó ekki staðfesta
slíkt né magn og tegund efnanna.
- þsj
Stórfelldur fíkniefnainnflutningur:
Tveir menn í
gæsluvarðhaldi
Konan sem lést
þegar bíll hennar
rann fram af
klettum við
heilsugæslustöð-
ina á Vopnafirði í
fyrradag hét
Stefanía
Arnfríður
Heiðar Sigur-
jónsdóttir og var til heimilis að
Kolbeinsgötu 5 á Vopnafirði.
Stefanía var fædd 21. júní
árið 1941 og því 65 ára þegar
hún lést. Stefanía lætur eftir sig
fjórar dætur og einn son.
Stefanía Sigurjónsdóttir:
Lést í bílslysi á
Vopnafirði
STEFANÍA SIG-
URJÓNSDÓTTIR
Hver er niðurstaðan í fyrsta
bindi ævisögunnar?
Hannes Hólmsteinn hefur verið blár
frá rennblautu barnsbeini; hann
drakk í sig Friedman og Hayek með
móðurmjólkinni.
Óttar Martin Norðfjörð heimspekingur
er ævisagnaritari Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar. Fyrsta bindið, ,,Nóttin
er blá, mamma“, er 2 bls að lengd og
kemur út í byrjun desember.
DANMÖRK Danska Extrabladet
birtir á morgun umfjöllun um
meint tengsl rússneskrar mafíu
við íslenskt viðskiptalíf. Þann
tíunda þessa mánaðar leitaði
Extrabladet til fimm íslenskra
nemenda sem eru við Viðskipta-
háskólann í Kaupmannahöfn,
Copenhagen Business School.
Nemendunum var sendur
tölvupóstur þar sem þeim er
boðin greiðsla fyrir þýðingar, að
skoða reikninga og „veita inn-
blástur um aðra mögulega
vinkla“.
Í bréfinu kemur fram að unnið
hafi verið í nærri mánuð að
umfjölluninni. - kóþ
Umfjöllun Extrabladet:
Leituðu til ís-
lenskra nema