Fréttablaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 6
6 28. október 2006 LAUGARDAGUR KJÖRKASSINN Innri friður - Innri styrkur Sjálfsefl ing - lífsstíll til framtíðar Helgarnámskeið fyrir konur verður haldið í náttúruvænu og heimilislegu umhverfi að Fögruhlið í Fljótshlíð helgina 3-5 nóvember. Helstu markmið eru að: • Byggja upp grunnundirstöðu í sjálfsþekkingu • Auka innri styrk • Efl a samskiptahæfni • Kynnast mætti fyrirgefningar og kærleikans í samskiptum • Læra að leysa árekstra með lausnarmiðaðri sýn • Upplifa áhrifamátt kyrrðar og hugarróar • Kveðja það liðna með jákvæðu hugarfari • Læra að lífa ,,í Núinu” Eftirfylgd Þátttakendum er boðið upp á mánaðarlega fundi í Kópavogi, í þrjá mánuði. Styrkir V.R. ásamt fl eiri stéttarfélögum, styrkir félagsmenn til þátttöku á námskeiðinu Nánari upplýsingar á www.liljan.is og í síma 863 6669. VINNUMARKAÐUR Hnattvæðingin og íslenskur vinnumarkaður, var yfirskrift ársfundar ASÍ nú í vikunni. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði í setning- arræðu sinni að grundvallarfor- sendan fyrir því að geta nýtt þau tækifæri sem felast í hnattvæðing- unni væri stöðugleiki í efnahagslífi og á vinnumarkaði. „Ólga í efnahagsmálum og á vinnumarkaði á undanförnum árum er ekki síst til komin vegna þess að stjórnvöld hafa litið hlutina öðrum augum. Stefna ríkisstjórnarinnar hefur þannig beinlínis ýtt undir neikvæðar afleiðingar hnattvæðingarinnar,“ sagði hann. - ghs Forseti ASÍ: Stöðugleiki er forsendan GYLFI ARNBJÖRNS- SON, FORSETI ASÍ. VINNUMARKAÐUR Tillaga um skipulagsbreytingar á Alþýðu- sambandi Íslands, ASÍ, var felld á ársfundinum í gær. Tillagan hlaut 61 prósent atkvæða, rúmlega 30 prósent voru á móti, en 66,7 prósent atkvæða hefði þurft til að hún næði fram að ganga. Aðalsteinn Baldursson, formaður verkalýðsfélags Húsavíkur, segir að þetta hafi ekki komið sér á óvart. „Þessar breytingar hefðu þýtt að vægi landsbyggðarinnar hefði minnkað og konum hefði fækkað í æðstu stjórnunarstörfum ASÍ. Ég fann fyrir andstöðu víða á landsbyggð- inni. Við þetta gátu margir ekki unað,“ segir hann. - ghs Ársfundur ASÍ: Tillaga um nýtt skipulag felld HEILBRIGÐISMÁL Ákvörðun um að leggja niður áhættumeðgöngu- vernd á vegum Miðstöðvar mæðra- verndar er harðlega mótmælt af hálfu Ljósmæðrafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Talsmenn félaganna, sem hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þessa, benda á að Miðstöð mæðra- verndar sinni nú um 700 konum á ári hverju. Langflestar séu þær í áhættumeðgöngu. Þá sinni mið- stöðin ráðgjafaþjónustu fyrir heilsugæslustöðvar, auk annarra fræðsluverkefna. Fram kom á fundi sem ljós- mæður höfðu óskað eftir með framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í gær, að fyrirhugað sé að stofna nýja deild innan Landspítala - háskólasjúkra- húss fyrir konur í áhættumeð- göngu. Talsmenn félaga ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga benda á að þegar einungis þrjár vikur séu til stefnu liggi ekki ljóst fyrir hvar sú starfsemi verði né hvernig henni verði háttað. Ljósmæður lýsa enn fremur yfir áhyggjum af þeirri óvissu sem skapist hjá skjólstæðingum Miðstöðvarinnar með áframhald- andi mæðravernd, þegar starf- semi hennar verði lögð niður í núverandi mynd eftir einungis þrjár vikur. - jss ÁHÆTTUMEÐGANGA Langstærstur hluti þeirra sjö hundruð kvenna sem Miðstöð mæðraverndar sinnir á ári hverju er í áhættumeðgöngu. Ljósmæðrafélag Íslands og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga: Mótmæla harðlega breyting- um á áhættumeðgönguvernd AÐSTOÐ Í BAUGSMÁLINU 4. mars 2004 og 23. apríl 2004 Embætti ríkislögreglustjóra óskar eftir því að lögregluyfirvöld í Lúxemborg aðstoði við rannsókn á hendur Tryggva Jónssyni og Jóni Ásgeir Jóhannessyni. Í réttarbeiðninni eru Tryggvi og Jón Ásgeir sagðir meðal annars grunaðir um fjárdrátt, fjársvik, innherjasvik og peningaþvætti í tengslum við viðskipti við Kaupthing Lúxemborg. 12. júlí og 26. júlí 2004 Francois Prum, lögfræðilegur aðstoðar- maður Baugs Group hf., sendir Martine Solovieff, saksóknara í Lúxemborg, bréf þess efnis að nauðsynlegt sé að ítreka það við embætti ríkislögreglustjóra að aðeins sé hægt að nota gögnin sem aflað var í Lúxemborg í tengslum við áðurnefnd sakarefni. 3. ágúst 2004 Saksóknari í Lúxemborg sendir ítrekun- arbréf til embættis ríkislögreglustjóra, þar sem tekið er sérstaklega fram að ekki sé hægt að nota gögnin sem aflað var í Lúxemborg í málum sem ekki snerta fyrrnefnd sakarefni. Embætti ríkislögreglustjóra hefur ekki svarað ítrekunarbréfinu. 23. október 2006 Jón Ásgeir afhendir lögregluyfirvöld- um bréf, stílað á Jón H.B. Snorrason, í yfirheyrslu vegna meintra brota á skatta- lögum sem snerta starfsemi Fjárfestinga- félagsins Gaums ehf. og Baugs Group hf. árið 2004. Jón Ásgeir biður embætti ríkislögreglustjóra að upplýsa um það, hvaða gagna var aflað í aðgerðunum í Lúxemborg árið 2004. 28. október 2006 Martine Solovieff, saksóknari í Lúxem- borg, segir í Fréttablaðinu að það sé óheppilegt að lögregluyfirvöld hafi ekki svarað bréfi hennar. Jón H.B. Snorrason segir bréfið ekki hafa gefið tilefni til svars. BAUGSMÁL Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir bréf Martine Solovieff, saksóknara í Lúxemborg, ekki hafa gefið tilefni til þess að því væri svarað efnis- lega. Eins og greint var frá í Frétta- blaðinu sagðist Martine aldrei hafa fengið svar frá embætti rík- islögreglustjóra við bréfi sínu þar sem hún ítrekaði að ekki væri hægt að nota gögnin, sem aflað var í Lúxemborg árið 2004, nema vegna þeirra sakarefna sem frá var greint í réttarbeiðni íslenskra lögregluyfirvalda. Í henni kemur fram beiðni um aðstoð vegna gruns um að Tryggvi Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannes- son hafi gerst sekir um peninga- þvætti, fjárdrátt, innherjasvik og fjársvik. Jón H. B. Snorrason segist hafa verið í stöðugu sambandi við sak- sóknara í Lúxemborg. „Þetta til- tekna bréf, sem saksóknari sendi 3. ágúst 2004, gaf ekki tilefni til þess að því væri svarað sérstaklega. Saksóknari sendir bréfið, eftir kvartanir frá lögmanni Baugs. Embætti ríkislögreglustjóra hefur verið í stöðugu sambandi við sak- sóknara og yfirvöld í Lúxemborg, vegna málsins og samstarfið hefur verið byggt á lagalegum og fagleg- um grunni og gengið vel.“ Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, segir það einkennilegt að lögregluyfirvöld hér á landi skuli ekki sjá sér fært að svara bréfum yfirvalda í Lúxemborg. „Út af fyrir sig, er það alvarlegur hlutur ef íslensk lögregluyfirvöld, sem fengu aðstoð frá lögregluyfirvöld- um í Lúxemborg á grundvelli saka- refna sem tiltekin eru í réttar- beiðni, skuli ekki sjá sér fært að svara bréfum sem koma frá yfir- völdum í Lúxemborg. Það eru ekki fagleg vinnubrögð í stóru máli eins og þessu.“ Martine segir það alvarlegt mál ef í ljósi komi að gögnin hafi verið notuð í öðrum tilgangi en tiltekið er í réttarbeiðninni. „Ef í ljós kemur að gögnin hafi verið notuð í tengslum við önnur sakarefni, en nefnd eru í réttarbeiðninni, þá getur það verið alvarlegt mál. En ég hef engar forsendur til þess að meta það hvernig gögnin hafa verið notuð í málinu, þar sem ég hef ekki fengið upplýsingar um það frá embætti ríkislögreglustjóra.“ magnush@frettabladid.is Efni bréfs saksóknara í Lúxem- borg gaf ekki tilefni til svars Jón H. B. Snorrason yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra segir ítrekunarbréf saksóknara í Lúxemborg frá 3. ágúst 2004 ekki hafa gefið tilefni til svars. Einkennilegt að lögregluyfirvöld svari ekki bréfinu, segir Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. SAKSÓKNARI AFHENDIR MÁLSGÖGN Í HÉRAÐSDÓMI Málsgögn, sem aflað var í Lúx- emborg árið 2004, hafa valdið deilum. Saksóknari í Lúxemborg segir það óheppilegt að ítrekunarbréfi hans hafi ekki verið svarað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Ungur maður slasaðist við vinnu sína í sláturhúsi SS á Selfossi um hálf tólfleytið á fimmtudagskvöldið. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var maðurinn að færa 450 kg kassa, sem í voru frosnir hryggir, með staflalyftara og datt kassinn ofan á hann úr um þriggja metra hæð. Lögreglan vinnur nú að frekari rannsókn á slysinu. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi en var fluttur þaðan á bráðamót- töku LSH í Fossvogi. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan mannsins. - ifv Starfsmaður SS slasaðist: Fékk 450 kg ofan á sig AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA LÖGREGLUMÁL „Ég sé ekki beint ástæðu til þess að förum að spyrjast fyrir um málið,“ svarar Matthías Halldórsson landlæknir aðspurður hvort embætti hans rannsaki mál Þórðar Einars Guðmundssonar sem fannst látinn í farþega- ferjunni Norrænu fimmtudaginn 19. október. Þórður velti nýlegum Fiat bíl sínum í sunnanverð- um Berufirði seint á þriðjudagskvöldið 17. október. Bíllinn endastakkst áður en hann endaði á hjólunum úti í skurði. Maður sem kom þar að ók Þórði á Djúpavog en þar var enginn læknir svo hann var fluttur með sjúkrabíl á heilsugæsluna á Egilsstöðum. Eftir stutta skoðun á heilsugæslunni þar sem ekkert alvarlegt kom í ljós hélt Þórður um nóttina niður á Seyðisfjörð og steig um borð í Norrænu. Um borð í Norrænu deildi Þórður klefa með nokkrum öðrum farþegum. Hann mun hafa lagst til svefns á miðvikudagskvöldið. Hann var látinn þegar ferjan kom til Þórshafnar í Færeyjum á fimmtudeginum. Lögreglan á Austurlandi hefur ekki fengið upplýst frá yfirvöldum í Færeyjum hver dánarorsök Þórðar er talin hafa verið. Í fréttum NFS á fimmtudag var hins vegar haft eftir barnsmóður hans að hún hefði fengið þær upplýsingar frá Færeyjum að komið hefði í ljós við krufningu að gat hafi verið á milta Þórðar og að sá áverki hafi dregið hann til bana. „Það er alþekkt í læknisfræðinni að einkenni geta komið fram eftir nokkra daga eftir áverka sem ekki er hægt að sjá fyrir. En ef einhver óskar eftir athugun á málinu þá munum við náttúrlega gera hana,“ segir Matthías landlæknir. - gar Landlæknir um manninn sem lést um borð í Norrænu: Einkenni áverka geta birst síðar NORRÆNA Maður lést um borð í Nor- rænu á siglingu til Færeyja. KJÖRKASSINN Geta borgarbúar gengið öruggir um götur? Já 31,5% Nei 68,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú keyrt bíl undir áhrif- um áfengis? Segðu skoðun þína á visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.