Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 12
28. október 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.3711 -1,59% Fjöldi viðskipta: 456
Velta: 21.933 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,30 -1,36% ... Alfesca
4,99 +0,00% ... Atlantic Petroleum % ... Atorka 6,32 -1,86% ...
Avion 34,30 +0,00% ... Bakkavör 60,80 +0,17% ... Dagsbrún 4,94
-1,20% ... FL Group 23,00 -1,71% ... Glitnir 23,00 -1,71% ... Kaup-
þing 853,00 -1,73% ... Landsbankinn 26,00 -1,89% ... Marel 79,50
+0,00% ... Mosaic Fashions 16,60 -2,35% ... Straumur-Burðarás
16,60 -2,35% ... Össur 123,00 -1,60%
MESTA HÆKKUN
Bakkavör +0,17%
MESTA LÆKKUN
Nýherji -5,66%
Tryggingamiðstöðin -2,44%
Mosaic -2,35%
Kaupþing hagnaðist um 67,2 millj-
arða króna á fyrstu níu mánuðum
ársins sem er nærri tvöföldun frá
sama tíma í fyrra. Allt árið í fyrra
hagnaðist bankinn um 49,3 millj-
arða króna. Hagnaður bankans á
þriðja ársfjórðungi einum nam
35,4 milljörðum króna og jókst um
265 prósent á milli ára.
Arðsemi eigin fjár það sem af
er ári er 47,2 prósent á ársgrund-
velli borið saman við 32,3 prósent í
fyrra.
Þar með hefur Kaupþing skilað
mestum hagnaði íslensks fyrir-
tækis á einu ári og slegið hagnað-
armet í Kauphöll á einum ársfjórð-
ungi. Fyrra metið átti Exista en
það síðara Burðarás.
Helsta skýringin fyrir þessari
góðu afkomu bankans á þriðja árs-
fjórðungi liggur í sölu á eignarhlut
í Exista og skráningu þess félags á
markað í september. Nam gengis-
hagnaður á þriðja ársfjórðungi
37,3 milljörðum króna, sem er 681
prósenti meira talið frá sama tíma
í fyrra, en gengishagnaður af
Exista var 26 milljarðar.
Rekstrartekjur Kaupþings
fyrstu níu mánuðina voru 126
milljarðar króna og jukust því um
82 prósent. Þær námu tæpum sex-
tíu milljörðum króna á þriðja árs-
fjórðungi einum. Þegar þriðji árs-
fjórðungur er borinn saman við
annan ársfjórðung sést samdrátt-
ur í hreinum vaxtatekjum vegna
minni verðbólgu en einnig dragast
þóknunartekjur saman.
Tekjur af verðbréfastarfsemi
aukast hins vegar verulega, eins
og áður sagði. Heildargjöld voru
13,8 milljarðar á þriðja ársfjórð-
ungi og gerist það í fyrsta skipti
um langa hríð að þau dragast
saman á milli samliggjandi árs-
fjórðunga. Kostnaðarhlutfall var
lágt, um 32,6 prósent.
Heildareignir Kaupþings voru í
lok september komnar í 3.663
milljarða króna og höfðu vaxið um
44 prósent frá byrjun árs. Eigið fé
bankans stóð á sama tíma í 267,7
milljörðum króna en hefur síðar
lækkað þar sem bankinn greiddi
út aukaarð í formi hlutabréfa í
Exista. Eiginfjárhlutfall (CAD)
var 14,1 prósent í lok september
samanborið við 12,2 prósent í byrj-
un árs.
Stjórnendur bankans hafa
unnið að því hörðum höndum að
dreifa fjármögnun bankans á síð-
ustu vikum meðal annars með
útgáfu skuldabréfa á nýjum mörk-
uðum, í Bandaríkjunum og Japan.
eggert@frettabladid.is
ÞEIR SIGURÐUR EINARSSON OG HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON HAFA RÍKA ÁSTÆÐU TIL
AÐ BROSA Kaupþing hagnaðist meira á fyrstu níu mánuðum ársins en áður hefur
þekkst í sögu íslensks athafna- og viðskiptalífs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kaupþing slær
Íslandsmet
Hagnaður fyrstu níu mánuðina er meiri en áður
hefur þekkst. Gengishagnaður af Exista skýrir met-
hagnað bankans á þriðja ársfjórðungi.
UPPGJÖR KAUPÞINGS
Á 3. ÁRSFJÓRÐUNGI*
Hagnaður 35.393
Spá Glitnis 39.346
Spá Landsbankans 31.059
Spá um meðaltalshagnað 35.202
*í milljónum króna
Kaupþing skilaði meiri hagnaði á þriðja
ársfjórðungi en allir stóru sænsku bankarnir
að Nordea, langstærsta fjármálafyrirtæki
Norðurlanda, undanskildu. Allt eru þetta
samkeppnisaðilar á norrænum fjármála-
mörkuðum.
Ef hagnaðartölur bankanna fyrir skatta
eru skoðaðar kemur í ljós að Nordea skilaði
langmestum hagnaði á þriðja ársfjórðungi
eða 91,4 milljarði. Hagnaður Kaupþings,
43,2 milljarðar fyrir skatta, dugar bankanum
til að skjótast upp fyrir SEB, Handelsbanken
(SHB) og Swedbank sem skiluðu 28-36
milljörðum í hús á þriðja ársfjórðungi.
Kaupþing er með hæstu arðsemi eigin fjár á ársgrund-
velli, ríflega 47 prósenta arðsemi borið saman við 19-23
prósent hjá hinum bönkunum.
Sænsku bankarnir eru þó nokkuð stærri en Kaupþing,
bæði hvað varða í markaðsverðmæti og eignir. Nordea er
um þrisvar sinnum verðmætara en Kaupþing.
- eþa
Slá stóru sænsku bönkunum við
Kaupþing með meiri hagnað en SEB, SHB og Swedbank á síðasta ársfjórðungi.
KAUPÞING OG SÆNSKU BANKARNIR
– HAGNAÐUR FYRIR SKATTA OG AÐRAR TÖLUR
3. ársfjórð. Allt árið Arðsemi Markaðsvirði
Nordea 91,4 245,4 22,6% 2.540
SEB 35,9 106,4 19,9% 1.320
Handelsbanken 27,9 112,8 20,1% 1.160
Swedbank 34,8 96,5 19,2% 1.130
Kaupþing 43,2 80,6 47,2% 567
Allar upphæðir í milljörðum króna
99 kr.
190 kr.
290 kr.
390 kr.
490 kr.
590 kr.
690 kr.
790 kr.
890 kr.
990 kr.
40-
90%
afs
látt
ur
Opnunartími:
Virka daga kl. 12-18
Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 12-17
www.fjolvi.is
Sími: 565 6500
BÓKAVEISLA
NÚ Á AÐ TÆMA LAGERINN!
Missið ekki af einstöku tækifæri til að
gera reyfarakaup á frábærum bókum.
Bækur fyrir alla fjölskylduna:
Barnabækur - Teiknimyndasögur - Landakort - Tímarit
Listaverkabækur - Heilsubækur - Ljóðabækur
Skáldsögur - Ævisögur - Ferðabækur
og margt fleira
FJÖLVA
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, græn gata
Allir sem kaupa fá bók í kaupbæti!
Allir sem kaupa 3 eða fleiri
Tinnabækur fá Tinnabol
í kaupbæti!
Kaupið jólagjafirnar
fyrir alla fjölskyldunaá einu bretti
FJÖLVI
Krónan lækkaði um 2 prósent í
25,3 milljarða króna viðskiptum í
gær. Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, segir þetta tals-
verða lækkun en innan marka.
Edda segir gengið hafa verið
sterkt undanfarið og líklegt sé að
fjárfestar hafi selt krónur og tekið
út hagnað. Þá geti orðrómur haft
áhrif á gengið en um helgina birt-
ist umfjöllun um íslenskt við-
skiptaumhverfi í danska blaðinu
Ekstrabladet þar sem gefið er í
skyn að rússneska mafían standi á
bak við velgengni íslensks fjár-
málalífs. „Ef margir haga við-
skiptum sínum eftir orðrómi þá
getur þetta spilað inn í,“ segir
Edda. - jab
Krónan veiktist í gær
MARKAÐSPUNKTAR...
Vöruskiptajöfnuður í september var
óhagstæður um 7,6 milljarða króna. Alls
voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða
og inn fyrir 29,9 milljarða. Það er lægsti
mánaðarhalli á vöruskiptum frá því í
október á síðasta ári.
Sextándu ÍMARK-verðlaunin voru veitt í
gær. Icelandair stendur fremst íslenskra
fyrirtækja í markaðssetningu og Björn
og Dísa í World Class eru klárustu
markaðsmenn landsins í dag að mati
félagsmanna ÍMARK.
Össur birtir ársfjórðungsuppgjör á
mánudaginn. Spár greiningardeilda
bankanna um hagnað félagsins á þriðja
ársfjórðungi eru á bilinu 337 til 357
milljónir króna.
Margt á prjónunum
Bakkavör kynnti nýtt merki félagsins sam-
hliða því sem birt var gott uppgjör síðasta
ársfjórðungs. Nýja merkið er sérlega stílhreint
og gegnum hugsað. Ö er vandræðastafur á
alþjóðamarkaði. Lausnin felst í að breyta Ö
í disk með gaffli. Þar við bætist að Bakkavör
hugsar sér til vaxtar í Asíu og því er myndin
þannig að auðveldlega má sjá matprjóna á
diski út úr merki félagsins. Prjónarnir geta svo
auðvitað
auð-
veldlega
vísað til
þess að
stofn-
endur félagsins, þeir Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir, eru þekktir fyrir það í viðskipt-
um sínum að hafa jafnan eitt og annað á
prjónunum.
Danir í aðra atlögu
Extra Bladet birtir á morgun mikla grein um
íslenskt viðskiptalíf. Þar er boðuð afhjúpun á því
hvaðan íslensku peningarnir komu. Í kynningu
segir Extrablaðið: „Hefurðu átt viðskipti við Sterl-
ing, Merlin eða Magasin? Og viltu vita hvert pen-
ingarnir fara? Eða hefurðu lesið Nyhedsavisen
nýlega og vilt vita hvaðan peningarnir koma?“
Blaðið lofar svo því að svara þessum spurning-
um og leitar fanga til Rússlands, Lúxemborgar
og Jómfrúaeyja. Það
verður auðvitað fróðlegt
að sjá hvaða tökum
málin verða tekin, en
alveg er ljóst að Danir
kaupa ekki þær skýringar
sem nærtækastar eru um árangur íslenskra
kaupsýslumanna og telja að hann hljóti að vera
sprottinn af öðru en útsjónarsemi og greiðum
aðgangi að fjármagni.
Peningaskápurinn