Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 20

Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 20
20 28. október 2006 LAUGARDAGUR Fangbrögð, njósnir og útúrsnúningar Fór – í fyrsta sinn á ævinni – á glímukeppni. Hélt ég ætti það ekki eftir. Keppnin fór fram hjá Mjölni á Mýrargötu og glíman sem keppt var í er kölluð „gólfglíma“ en á útlensku „submission wrestling“. Þetta er fangbragðakeppni sem fer þannig fram að keppendur þreyta með sér fangbrögð uns annar aðilinn hefur náð slíku fantataki á hinum að hann biðst vægðar, gefst upp. Ég fór til að horfa á og hvetja hann Krumma minn sem var að keppa í fyrsta sinn í þessari íþrótt til til- breyting- ar frá japönsku glímunni karate sem hann hefur stundað frá því að hann fór að standa út úr hnefa. Í fyrstu glímunni sinni lenti hann á móti tröllauknum kappa sem var að minnsta kosti 50 kílóum þyngri svo að ég gerði ráð fyrir að við feðgarnir myndum eyða enn einum frídegi á slysavarðstofunni. Þær áhyggjur reyndust ástæðu- lausar því að tröllið var mjúk- hentara en ég bjóst við og Krummi komst lifandi og ómeiddur frá sinni fyrstu glímu – en ákaflega móður. Ekki naívisti! Mér sjálfum er farin að blöskra svo mín eigin ósvífni að ætla að halda málverkasýningu að ég fékk listfræðing til að koma og kíkja á málverkin mín. Það sem hann sagði róaði mig soldið. Að vísu sagðist hann ekki telja að ég væri naívisti. Það þykir mér verra. Ekki gat ég pínt hann til að greina mig nánar en hann sagði að lokum að hann hefði aldrei séð myndir sem mínar myndir líkt- ust. Það getur náttúrlega bæði vitað á gott og vont. Að villast á úlfinum og Rauðhettu Saltfiskur í kvöldmatinn. Árni Þór gaf mér fiskinn en hann er skipstjórinn minn uppi á Skaga og kann að verka saltfisk með himneskum árangri. Stundum eru fréttirnar mikið grín: „Geir H. Haarde forsætisráð- herra sakar stjórnarandstöðuna um að reyna að koma höggi á Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra með ómaklegum hætti í umræðu um símahleranir.“ Nú er búið að snúa dæminu við og spenna kerruna fyrir hestinn. Það eru ekki þeir sem njósnað var um sem eru fórnarlömb, heldur er dómsmálaráðherra landsins orð- inn píslarvottur og þeir sem eru reiðir yfir leynipukri, njósnum og landráðastarfsemi taka upp á þessu til þess eins að koma höggi á karlgreyið. Svona útúrsnúningar eru dag- legt brauð í því sem við hérna á skerinu iðkum í staðinn fyrir stjórnmálaumræðu. Ekki var fyrrverandi utanríkisráðherra fyrr búinn að upplýsa að sím- inn hans hefði verið hleraður en fram komu ásakanir um að hann hefði sjálfur látið njósna um samráðherra sinn, Svavar Gestsson, en hann langaði til að vita hvort einhver gögn um Svavar hefðu fundist í dánar- búi Stasi. Engum datt í hug að gera sér það ómak að greina mun- inn á því að spyrjast fyrir um feril einhvers og að ráða leyniþjón- ustumenn til njósna um hann. Fólk sem verið er að ráða í vinnu sér varla neitt athugavert við að vinnu- veitandi hafi sam- band við einhvern sem þekkir til viðkomandi og spyrji út í ferilinn. En ef væntanlegur vinnuveit- andi ræður einkaspæjara til að hlera síma starfsmannsins eða felur myndavél í svefnherberginu hans er hins vegar um njósnir að ræða. Furðulegt hvernig hægt er að flækja mál með orðhengilshætti og ámátlegt að forsætisráðherr- ann okkar sem ég hélt að væri réttsýnn maður skuli bregða sér í líki skógarhöggsmannsins í þessu skuggalega ævintýri – og ekki er það traustvekjandi að forsætis- ráðherrann okkar skuli ekki þekkja Rauðhettu frá úlfinum. Fitusnautt og sykur- skert froðusnakk Ef þjóðin ætti að sækja sér næringu í þá froðu sem vellur upp úr stjórnmálamönnum á öndverðum kosn- ingavetri þá þætti mönnum sem hung- ursneyð væri brost- in á og hætt við að þorri kjósenda væri fallinn úr andlegri ófeiti löngu fyrir kosningar. Það er greini- legt að stjórn- málaflokkar sem í árdaga voru hugsaðir sem uppeldisstöðvar fyrir nýstárleg- ar og fram- sæknar hug- myndir eru Slagorðasúpugutl! Í Dagbók Þráins Bertelsson ar er fjallað um fitusnautt og sykurskert slag orðasúpugutl úr prófkjörseldhúsinu. Einnig e r fjallað um glímu, njósnir, saltfisk, úlfinn og R auðhettu og spurt hvort stjórnmálaflokkar séu uppeldisstöðvar fyrir hugmyndir eða hagsm unapotara. Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar Október 21 LAUGARDAGUR Október 23 MÁNUDAGUR Október 24 ÞRIÐJUDAGUR Október 25 MIÐVIKUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.