Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 26
28. október 2006 LAUGARDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1492 Kólumbus finnur Kúbu og
slær eign sinni á hana
fyrir hönd Spánar.
1636 Harvard-háskóli í
Bandaríkjunum er
stofnaður. Skólinn er ein
virtasta menntastofnun
heims.
1848 Dómkirkjan í Reykjavík er
vígð.
1922 Benito Mussolini, leiðtogi
fasista, tekur við völdum.
1943 Einar Ólafur Sveinsson
hefur lestur á Njálu en
það er í fyrsta sinn sem
Íslendingasaga í fullri
lengd er flutt í útvarpinu.
1987 Þátturinn á Tali hjá Hemma
Gunn er í fyrsta sinn á
dagskrá Sjónvarpsins. Á
tali var vinsælasti þáttur
í íslensku sjónvarpi um
árabil.
BILL GATES ER 51 ÁRS Í DAG
Ég fæ ruslpóst eins og aðrir.
Yfirleitt er verið að benda mér á
leiðir til að losna við skuldir eða
verða ríkur á skömmum tíma.
Gates er eigandi tölvurisans Microsoft og
sá ríkasti í heimi.
Á þessum degi árið 1886 vígði Grov-
er Cleveland, forseti Bandaríkjanna,
frelsisstyttuna í höfninni í New York.
Styttan, sem er 46 metra há, var gjöf
frá Frökkum til Bandaríkjamanna.
Hugmyndin að styttunni kom frá
franska sagnfræðingnum Edouard
de Laboulaye til að minnast sam-
starfs Frakka og Bandaríkjamanna í
uppreisninni gegn Bretum.
Styttan var hönnuð af Frederic-Aug-
uste Bartholdi og er af konu sem
lyftir kyndli til himins. Hið geysistóra
stálvirki styttunnar var hannað
meðal annars af Alexandre-Gustave
Eiffel sem hannaði Eiffelturninn í
París.
Í maí árið 1884 lauk gerð styttunnar
í Frakklandi og þremur mánuðum
síðar var lagður hornsteinn að undir-
stöðum hennar á Bedloe-eyju
við New York. Í júní 1885
kom styttan í bútum til Nýja
heimsins. Uppsetningu stytt-
unnar lauk þann 28. október
1886 í vígslu sem forsetinn
leiddi.
Á stalli styttunnar er ljóð eftir
Emmu Lazarus sem býður
innflytjendur velkomna til
Bandaríkjanna en árið 1892
varð Ellis-eyja í New York-
höfn skráningarmiðstöð fyrir
innflytjendur.
Árið 1924 var styttan gerð að
minnismerki og árið 1956
fékk Bedloe-eyja nafnið
Liberty-eyja. Miklar endur-
bætur voru gerðar á styttunni
á níunda áratugnum.
ÞETTA GERÐIST: 28. OKTÓBER 1886
Frelsisstyttan vígð
AFMÆLI
Egill
Eðvarðsson
framleiðslu-
stjóri hjá
RÚV er 59
ára.
Guðmundur
Steingríms-
son tónlistar-
maður er 34
ára.
Steinn
Ármann
Magnússon
leikari er 42
ára.
40 ára afmæli
Hjörtur Lúðvíksson
tekur á móti gestum
í Kíwanishúsinu við fl ugvöllinn
í Mosfellsbæ frá kl 20.00 til 24.00 í dag.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Valgerður Jóna Pálsdóttir
frá Sunnutúni, Eyrarbakka, Baugstjörn 6
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 26. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingunn Hinriksdóttir Sigurður Ingólfsson
Jón Halldórsson Svana Pétursdóttir
Stefán Halldórsson Erna Friðriksdóttir
Páll Halldórsson Ingibjörg Eiríksdóttir
Anna Oddný Halldórsdóttir Jón Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Kennarablokkin á Hjarðar-
haga í Vesturbænum, sem
teiknuð var af Skúla Nordal
arkitekt, er fimmtíu ára á
þessu ári. Í tilefni þess efna
íbúar blokkarinnar til
hátíðahalda í dag. „Saga
hússins verður rifjuð upp og
Reynir Jónasson harmon-
ikkuleikari spilar gömlu
lögin frá sjötta áratugnum
til að koma gestum í stemn-
ingu. Svo hefur Auðunn
Bragi Sveinsson samið
hátíðaljóð sem verður sung-
ið við lagið „Hvað er svo
glatt“,“ sagði Halldór Reyn-
isson, íbúi í blokkinni og
einn skipuleggjenda hátíð-
arinnar í samtali við Frétta-
blaðið. Hann segir alla sem
tengjast sögu hússins vera
velkomna á skemmtunina.
„Við viljum helst sjá gamla
íbúa líta við, þá bjóðum við
þeim upp á pylsu og kók,“
sagði hann, en á dagskránni
eru einnig gamlir leikir. „Við
ætlum að kenna krökkunum
leiki eins og Fallin spýta og
Hlaupið í skarðið og endur-
vekja leikjahefðina,“ sagði
Halldór.
Þorsteinn Sigurðsson
kennari hefur búið í blokk-
inni frá því að hún var
byggð. Hann segist ekkert
hafa hugsað sér til hreyf-
ings á þessum fimmtíu
árum. „Það er alveg stór-
kostlegt að vera hér. Húsið
er mjög skemmtilegt og á
góðum stað.“ Byggingasam-
vinnufélag barnakennara
byggði blokkina og kemur
nafnið Kennarablokkin
þaðan, en Þorsteinn var með
í ráðum þegar blokkin var
byggð. „Þegar við fengum
blokkina voru nokkrir
braggar úr Tripolikampi
hérna á lóðinni. Til að koma
einu af þessum fimm húsum
fyrir þurftum við að flytja
braggann á eigin kostnað,“
sagði hann. Saga blokkar-
innar er nokkuð rík, eins og
von er til, og er hún og hverf-
ið í kring til dæmis sögusvið
Djöflaeyjunnar eftir Einar
Kárason. „Bókin gerist
hérna úti í garði hjá okkur,“
sagði Sigurður, en hús þeirra
Jósefínu frá Nauthól og
Halldórs fisksala, sem Einar
gerði ódauðlegt, stóð inni á
lóð Kennarablokkarinnar.
Þorsteinn segir blokkar-
samfélagið hafa verið mjög
náið. „Það er þægilegt leik-
svæði hér og krakkarnir úr
blokkinni léku sér mikið
saman. Það hefur auðvitað
breyst, skólatíminn, við-
fangsefni æskulýðsins og
samfélagið allt,“ sagði Þor-
steinn. Hann sagðist gjarn-
an vilja sjá fleiri börn að
leik í garðinum. „Það eru
allt of fáir við leiki þar, en
það er fyrst og fremst af því
að þau hafa í öðru að snú-
ast,“ sagði hann.
sunna@frettabladid.is
KENNARABLOKKIN Á HJARÐARHAGA: FIMMTÍU ÁRA Á ÁRINU
Sögusvið Djöflaeyjunnar
ÞORSTEINN SIGURÐSSON VIÐ KENNARABLOKKINA Segir mikla hugsuði hafa verið á bak við hönnun hússins, en þar var meðal annars gert ráð
fyrir sorpbrennsluofni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Kvöldmessur með yfir-
skriftinni hjónaband og
sambúð eru hafnar í Garða-
sókn en önnur messan verð-
ur á morgun. Jóna Hrönn
Bolladóttir, sóknarprestur í
Garðasókn, segir messurnar
kjörna leið til upplyftingar
fyrir fólk sem er í hjóna-
bandi eða sambúð. „Margir
líta á þetta eins og stund til
að rækta hjónabandið alveg
eins og að fara í leikhús, út
að borða eða í helgarferð til
London,“ segir Jóna Hrönn
sem telur Íslendinga vera
opnari fyrir leiðsögn í dag
en áður fyrr. „Stærsti hluti
minnar sálgæslu sem prest-
ur er hjónaráðgjöf en þá er
fólk að koma vegna erfið-
leika og vill leita sér hjálpar
áður en vandinn er orðinn of
stór. Þetta er mjög já-
kvætt.“
Í messunum koma hinir
ýmsu fyrirlesarar til með að
uppfræða söfnuðinn og á
morgun verða þær Erla
Grétarsdóttir, sálfræðingur,
og Berglind Guðmundsdótt-
ir, sem var að ljúka doktors-
námi í Bandaríkjunum með
fyrirlestur. „Þær hafa búið
til fyrirlestur í sameiningu
um áhrif áfalla á hjónabönd
og sambönd og ætla að fjalla
um það í messunni á morg-
un,“ segir Jóna Hrönn og
bendir á að þarna tengist
saman helgihaldið og hrein
fræðsla. - sig
Helgihald og fræðsla
HJÓNAMESSUR Í GARÐASÓKN Séra Jóna Hrönn Bolladóttir segir hjóna-
messurnar vera kjörnar fyrir fólk til að rækta hjónabandið, rétt eins og
að fara í leikhús eða út að borða.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI