Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 38
[ ]Kíkir ætti ávallt að vera með í för á ferðalögum. Einkum og sér í lagi þegar haustkvöldin eru stjörnubjört og norðurljósin braga.
27. janúar - 3. febrúar / 1 vika
Verð: 123.970 kr. á mann í tvíbýli í 1 viku
Saalbach - Hinterglemm er oft nefnt skíðaparadís Alpanna og
hefur verið valið eitt af 10 vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis.
Gist verður á 4 stjörnu hóteli í þorpinu Hinterglemm. Hótelið er
vel staðsett í jaðri bæjarins, rétt við skíðalyfturnar. Fararstjórar
dvelja allan tímann á hótelinu og skipuleggja daglegar ferðir um
skíðasvæðið. Innifalið er hálft fæði og rútuferðir til og frá flugvelli.
Fararstjórar: Sævar Skaptason & Guðmundur K. Einarsson
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
til Saalbach - Hinterglemm
Skíðaferð
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
Taktu L-lestina frá Manhattan
yfir í Vilhjálmsborg þar sem
barir og veitingahús eru á
hverju strái.
Ferðalöngum sem hyggjast leggja
leið sína til stórborgarinnar New
York er vert að benda á að hinum
megin við vatnið, í Brooklyn, er að
finna skemmtilegt hverfi sem kall-
ast Williamsburg. Þar til fyrir tíu
árum voru það mestmegnis strang-
trúaðir gyðingar sem sáust á vappi
í þessu góða hverfi, en upp úr 1996
fór listamönnum fjölgandi sem
tóku sér búsetu þar. Reyndar var
það í kringum 1970 sem listamenn
fóru að flytja frá Manhattan yfir
til Brooklyn, sökum þess hversu
dýrt húsnæðið var orðið þar á eyj-
unni, en fyrir tíu árum hækkaði
húsaleigan þar upp úr öllu veldi.
Nú er svo komið að það eru aðal-
lega listamenn sem búa í Williams-
burg, ásamt þeim sem fyrir voru í
hverfinu; gyðingum af gamla skól-
anum.
Nú er ekkert ódýrt að búa í Willi-
amsburg lengur, enda sækja marg-
ir í menninguna og fjörið sem loða
vill við listamenn. Lögmálið um
framboð og eftirspurn hefur líka
leitt til þess að í Williamsburg er
aragrúi af ótrúlega skemmtilegum
veitingastöðum, verslunum, tón-
leikastöðum, börum og skemmti-
stöðum. Sem dæmi um veitinga-
staði má nefna Relish, sem er
„diner“ af gamla skólanum en
þangað mæta listamennirnir þunn-
ir í dögurð um helgar (myndbandið
við lagið Milkshake með Kelis var
tekið upp á Relish); Sea, sem er
taílenskur staður sem margir
aðdáendur Sex and the City kann-
ast við en það er staðurinn þar sem
Samantha fann unga Absolute
Hunk kærastann sinn og Food
Swings sem selur skyndibita úr
lífrænt ræktuðu grænmeti. Að
ætla sér að telja upp allt sem er að
gerast í Williamsburg myndi fylla
heila símaskrá og er því heppi-
legra að benda áhugasömum á vef-
síðuna www.freewilliamsburg.
com þar sem hægt er að finna
greinargóðan lista yfir veitinga-
staði, bari og listasöfn í þessu
gróskumikla og skemmtilega
hverfi.
Listamenn og gyðingar í
góðum gír í Vilhjálmsborg
Williamsburg í Brooklyn er áhugaverður og skemmtilegur staður en þar búa strang-
trúaðir gyðingar og listamenn úr ýmsum stéttum, í sátt og samlyndi.
Hægt er að sigla með ferjunni
Baldri til Flateyjar allan árs-
ins hring.
Þegar siglt er yfir Breiðafjörð frá
Stykkishólmi til Brjánslækjar er
komið við í eyjunni Flatey. Eyjan
er hrífandi og oft sagt að þar
standi tíminn í stað þar sem
umhverfið er sérstakt. Bygging-
arnar eru flestar frá nítjándu öld
og því er dvöl í Flatey eins konar
afturhvarf til fortíðar.
Þó svo vetrarveður verði fljótlega
ráðandi er ekki úr vegi að skella
sér til Flateyjar í eina skemmti-
lega dagsferð. Ferjan fer frá
Stykkishólmi. Nánari upplýsingar
um ferðir út í Flatey má finna á
www.seatours.is. Upplýsingar um
eyjuna og ljósmyndir má finna á
www.flatey.is. - jóa
Dagur í Flatey
Flatey er einstaklega falleg eyja sem vert er að heimsækja allan ársins hring.
Vonarskarð
Ferðafélag Útivistar ætlar í jeppaferð inn að Vonarskarði 2. til 5. nóvember.
Gist verður í Hrauneyjum á fimmtudagskvöld. Ekið verður norður að Hágöngu-
lóni en þaðan liggur leiðin norður Vonarskarð. Við Skjálfandafljót
verður stefnan tekin til vesturs norðan Tungnafellsjökuls og
í náttstað í Nýjadal. Á laugardag liggur leiðin síðan suður
Kvíslaveituveg, um Sóleyjarhöfðavað, inn í Nautöldu
og gist í Setrinu. Heim verður annaðhvort farin
Klakksleið eða farið um Kerlingarfjöll. VHF-tal-
stöð er skilyrði í allar vetrarferðir, hægt er að
leigja talstöðvar á skrifstofunni.
Fylgjast má með nánari upplýsingum um ferð-
ina á www.utivist.is.
jeppaferð }