Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 46
2
Svart og elegant
Eins og víðar í húsbúnaðarverslunum er svarti liturinn
áberandi þegar komið er inni í Lene Bjerre í Bæjarlind 6 í
Kópavogi.
Carlton-stellið er með platínumrönd og þolir að fara í uppþvottavél. Ódýr-
asti hluturinn í því er forréttadiskur á 1.200 og dýrast er stórt fat á 10.100.
Platínumrönd setur líka svip á glösin og karöflurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Smíðajárnslugtir
fyrir kerti eru flott-
ar í skammdeg-
inu. Þessi kostar
5.200.
Borðbúnaður, lugtir, lampar og dúkar eru meðal þess sem mætir augum í
Lene Bjerre. Allt er það í rómantískum stíl. Tinbakkar og skálar sem líta út
fyrir að vera arfur frá langömmu er meðal þess sem er nýkomið í hillurn-
ar, að sögn afgreiðslukvennanna Áslaugar og Fjólu. Einnig postulínsstellið
Carlton sem er með glæsilegri platínumrönd og þolir að fara í uppþvotta-
vél. Þunnar gluggatjaldalengjur, beinhvítar, svartar og brúnar í nokkrum
tónum hanga á rá. Aðspurð segir Áslaug þær vinsælar, einkum þær svörtu.
„Við höfum varla haft undan að panta,“ segir hún. Svefnherbergisvörur
svo sem sængurföt og sloppar finnast þarna líka svo og bæði hlutir og
handklæði á baðherbergið.
Allt er danskt í Lene Bjerre nema garðhúsgögnin sem eru frá Kanada
og það er samnefnd kona, Lene Bjerre, sem er hönnuður þessara fallegu
hluta. -gun
Tinbakkar og skálar er með því nýjasta
sem boðið er upp á í búðinni þótt það líti
út fyrir að vera gamalt góss. Allt er það úr
málmblöndu sem ekkert fellur á. Stór bakki
er á 8.200 og skálarnar á 3.100 og 3.250.
Mjúkar heimilisvörur fást líka í Lene Bjerre. Stærri púðinn er á 4.900 og sá minni er á
3.800.
Stærsti dúkurinn í búðinni er 180X320 cm.
Hann er úr polyester og kostar 13.500.
Lampi með fæti
úr blöndu af
kopar og tini
sem kostar
8.850 og skermi
á 5.880.
Eftir að amerísk rúm fóru að ná
vinsældum eru fæst rúm með göfl-
um. Oftast er dýnum komið fyrir
á grind og því er ekki um neinn
gafl að ræða. Mörgum þykir þó
gott að hafa gafl og þá fást gaflar
sem annaðhvort er hægt að festa á
vegginn við rúmið, eða á grindina.
Ef fólk vill bara hafa gafl útlitisins
vegna er stórsniðugt að útbúa gafl
með veggfóðri aftan við rúmið. Þá
er ekki um raunverulegan gafl að
ræða, heldur rammar þetta rúmið
af á veggnum.
Veggfóður
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Margar konur eiga mikið og gott safn af fallegum skóm, og er alger
synd að loka þá alla inn í skáp. Þá er tilvalið að útbúa sérstakan
skóskáp með glerhurðum í svefnherberginu. Mikið af skápum eins og
þessum sem sést á myndinni er að finna á antiksölum og einnig fást
skápar í þessum stíl í Tekkhúsinu og Línunni, og skóhillurnar er hægt
að láta sérsmíða í skápinn. Skónum er svo hægt að raða eftir litum eða
lögun þannig að í raun verða þeir til mikillar prýði.
Í neðstu hillunni er sniðugt að koma fyrir mörgum skálum og
geyma alla skartgripina í þeim, enda eru skór og fylgihlutir oftar en
ekki valdir saman.
Skóskápur
��������
�������������
�����������
���������
��������������
�������������
����������
��������
�����������
�������������
�����������
�������������� ����������
������������������������������
���������������������������