Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 54
10
Spænskur stofusófi. Engillinn á myndinni er íslenskur, en Anna kaupir mikið af íslensku handverki og nytjalist. Mynd eftir þekkta
málara prýða veggina.
Ástæðan að baki útgáfu bók-
arinnar er meðal annars sú að
mér fannst vanta enskar þýð-
ingar á íslenskum ljóðum,“
byrjar Anna á að útskýra.
„Áður hafði fjórða ljóðabók
mín, „Skilurðu steinhjartað“,
verið þýdd á ensku af Karli
Guðmundssyni, en var þá
óútgefin. Síðan fór Hallbjörn
Hallbjörnsson að þýða ljóð
eftir mig sem birtust í erlend-
um tímaritum. Með hliðsjón af
þessu tvennu fór mig að langa
til að gefa út úrval ljóða minna
á ensku. Þannig varð „By the
Seaside“ til.“
Þetta er í fyrsta sinn sem
ljóðabók eftir Önnu er gefin út
á ensku. Nokkur ljóðanna voru
á ensku og dönsku í „Skilurðu
steinhjartað“, en sú bók er nú
ófáanleg. Sum þeirra voru
frumsamin á erlenda tungu og
hið sama gildir um lokaljóð í
„By the Seaside“, sem nefnist
„The Journey“, en það vann til
verðlauna í samkeppni á Ítalíu.
„Ítalía hefur í seinni tíð
skipað nokkuð stórt hlutverk
í mínu lífi,“ segir Anna. „Ég
missti manninn minn þar fyrir
nokkrum árum og eignaðist
einnig ítalska vini sem eru mér
mjög kærir. Ég lýk einmitt „By
the Seaside“ með heilræði um
vináttuna, hversu nauðsynlegt
vinum sé að gefa og þiggja,
jafnvel þótt þeir verði ferðast
langt.“
Anna segist hafa byrj-
að seint að skrifa miðað við
það sem almennt tíðkast, þótt
skáldskaparhæfileikarnir hafi
ávallt blundað í henni. „Ég
byrjaði ekki að skrifa fyrr en
ég var orðin 35 ára og fyrsta
ljóðabókin eftir mig kom út
þegar ég var fertug,“ segir hún.
„Samt var ég fædd ljóðskáld og
hef í raun aldrei þurft að hafa
mikið fyrir því að yrkja. Ljóð-
Ljóðin leita til mín
Anna S. Björnsdóttir ljóðskáld gaf nýverið út ljóðabókina „By the Seaside“ og leggur
fljótlega upp í ferðalag til Kanada til að kynna hana. Þangað til safnar hún orku og
lætur fara vel um sig í Nóatúni þar sem hún býr í fallegri íbúð.
Anna S. Björnsdóttur er á leiðinni til Kanada þar sem
hún mun kynna nýútkomna bók, By the Seaside.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kommóða sem var áður í eigu móðursystur Önnu, en henni áskotnaðist hún fyrr á
þessu ári. Stólarnir eru spænskir hægindastólar.
Spænsk kommóða með spegli í stofunni, sem Anna lýsir sem hálfgerðu altari, því í henni
geymir hún krossa og önnur trúartákn.
Borð frá afasystur Önnu, sem var ráðskona
hjá Thor Jensen. Málverk eftir óþekktan
málara, af skógarrjóðri.
Franskt borðstofusett úr kirsuberjaviði. Þetta er uppáhaldsstaður Önnu í stofunni, við borðið
skrifar hún ljóðin sín.
Þessar vönduðu karöflur, eru fjórar talsins, eða jafn
margar og börn Önnu enda ætlar hún þeim þær í arf.
Gamlar ljóðabækur sem voru áður í
eigu foreldra Önnu.
FRAMHALD Á SÍÐU 12
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■