Fréttablaðið - 28.10.2006, Qupperneq 72
28. október 2006 LAUGARDAGUR24
Fáir hafa fengið jafn mikla umfjöll-
un í gulu pressunni að undanförnu
og leikarinn Tom Cruise (1962),
sem virðist hafa tekið við sæti
umdeildustu stjörnunnar eftir að
Michael Jackson hvarf til Austur-
landa. Pressan hefur velt sér upp
úr sögusögnum er varða inngöngu
Cruise í Vísindakirkjun, samband
hans við leikkonuna Katie Holmes
og dóttur þeirra Suri, en á tímabili
voru jafnvel getgátur uppi um að
barnið væri tilbúningur til að vekja
frekari athygli á þeim skötuhjúum.
Segja má að Cruise eigi sinn þátt í
þeirri óvild sem hann hefur skapað
sér. Ekki hvað síst eftir undarlega
hegðun sem hann sýndi í viðtali við
þáttastjórnandann Opruh Winfrey,
þar sem hann hoppaði upp í sófa
til að lýsa yfir ást sinni á Holmes.
Síðan hefur Cruise gert ýmislegt
til að bæta ímynd sína, því enda
þótt myndir hans hafi flestar fengið
góða dóma hafa þær nýjustu goldið
fyrir illt umtal um einkalíf hans.
1. Born on the Fourth of July
(1989). Hermaður snýr heim úr
Víetnamstríðinu með breytta
afstöðu til lífsins. Þessi mynd
sannaði að Cruise væri meira til
lista lagt en að hnykla vöðvana,
enda uppskar hann mikið lof fyrir
frammistöðu sína og fékk fyrstu
tilnefninguna til Óskarverðlauna.
2. Magnolia (1999). Sögur ólíkra
persóna, í leit að hamingju og
tilgangi, fléttast saman. Cruise er
sannfærandi í hlutverki sjálfshjálp-
argúrús með heldur vafasaman
boðskap. Fyrir hlutverk sitt uppskar
hann sína þriðju tilnefningu til
Óskarsverðlauna, nú fyrir bestan
leik karls í aukahlutverki.
3. Collateral (2004). Leigubílstjóri
flækist inn í áform leigumorðingja,
sem hyggst meðal annars myrða
kærustu hans. Cruise er töluvert
breyttur í hlutverki illmennisins,
sem hann leikur af stakri snilld.
Góður samleikur hans og Ósk-
arsverðlaunahafans Jamies Foxx
heldur myndinni uppi.
4. Interview with the Vampire
(1994). Lífs ungs manns í sjálfs-
morðshugleiðingum tekur stakka-
skiptum þegar vampíra bítur hann.
Margir áttu erfitt með að ímynda
sér Cruise í hlutverki skúrksins,
blóðsugunnar Lestat. Jafnvel
höfundur sögunnar setti sig upp á
móti ráðningu hans. Cruise sýnir að
áhyggjurnar voru ástæðulausar.
5. Eyes Wide Shut (1999). Maður
í hjónabandserfiðleikum leitar út í
villt næturlíf með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Mörgum þótti þessi
svanasöngur leikstjórans Stanlesy
Kubrick hvorki fugl né fiskur, en
Cruise sýnir góða takta í hlutverki
ráðvillta eiginmannsins. Talið er að
myndin hafi gengið af hjónabandi
hans og Nicole Kidman dauðu, en
hún fer með hlutverk eiginkon-
unnar.
TOPP 5:TOM CRUISE
WINFREY OG CRUISE VORU KYNNAR Á
FRIÐARVERÐLAUNAAFHENDINGU NÓBELS Í ÓSLÓ ÁRIÐ 2004.
Önnu S. Björnsdóttur skáldkonu, sem gaf nýverið út
ljóðabókina „By the Seaside - Icelandic Poems in English“,
dreymir um notalega helgi í Vínarborg, þar sem hún ætti
endurfundi með horfnum ástvini, eiginmanni sínum Einari
Aðalsteinssyni. „Helgin er svolítið lituð af þeirri ósk Einars
barnabarnsins míns um að sækja afa sinn í flugvél til að
gleðja hana ömmu,“ bætir hún við til útskýringar.
„Okkur hjónunum þótti gaman að ferðast á meðan
hann var á lífi en gafst því miður ekki nógu mörg tækifæri til
þess,“ segir Anna. „Í Vínarborg gistum við á góðu hóteli og
snæddum fyrsta kvöldið á veitingastað í óperuhúsinu Stadt
Opera. Svo lægi nú beint við að fara á óperusýningu í léttari
kantinum.“ Að sýningu lokinni fengju hjónin sér góðan
göngutúr og enduðu á American Skybar, þaðan sem er að
sögn Önnu einstakt útsýni yfir borgina.
„Þar sem þetta er draumahelgi yrði hún nálægt aðventu
og daginn eftir færum við á útivörumarkað og keyptum
okkur jötu,“ segir hún. „Við færum í ferð í hestvagni þegar
dagur væri að kveldi kominn og fengjum okkur jólaglögg í
miðbænum að henni lokinni.“
Daginn eftir myndi Anna skreppa yfir til Ungverjalands
með Einari. Þangað hefur hún aldrei komið en er þess þó
fullviss að hafa verið þar í fyrra lífi. „Ég myndi vilja athuga
hvort ég fyndi fyrir einhverjum staumum,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við að hún myndi kaupa sér gott handverk
í leiðinni. „Svo kveddum við Einar hvort annað, eftir vel-
heppnaða helgi,“ segir hún að lokum.
-rve
DRAUMAHELGI
Endurfundir með ástvini
ANNA VÆRI TIL Í AÐ HEIM-
SÆKJA VÍNARBORG, MEÐAL
ANNARS TIL AÐ UPPLIFA
MENNINGARLÍFIÐ.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sex vikna námskeið hjá Goran Kristófer, íþróttafræðingi,
er hannað til að koma þér af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins er að koma
þér á æðra stig hvað varðar líkamlega og andlega
heilsu.
Ef þú vilt:
Léttast
Styrkjast
Efla ónæmiskerfið
Bæta meltinguna
Hormóna jafnvægið
Andlega vellíðan
Auka minni og einbeitinguna
Auka orkuna
Komast í form
Bæta heilbrigði
Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar
fitubrennslu, hvernig þú átt að glíma við matar -og
sykurþörfina, hvernig þú ferð a því að brenna meira
og léttast.
Fimm tímar í viku – Brennsla, styrking og liðleiki
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar
Slökun og herð anudd í pottum að æfingu lokinni
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Karlar kl. 7:30
Konur kl. 6:30, 7:30, 10:00,
13:00, 16:30 og 18:30
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is. Námskeið greiðist við
skráningu.
Rýmingarsala vegna flutnings – Mikill afsláttur
Eldaskálinn | Brautarholti 3 | 105 Reykjavík
eldaskalinn@eldaskalinn.is | www.invita.com
Invita eldhúsinnréttingar – baðinnréttingar – fataskápar – heimilistæki o.fl.
Opið laugardag og
sunnudag kl. 10–14
Við flytjum í næstu viku
... og ýmsar aðrar gerðir
Sý
ni
ng
ar
in
nr
ét
tin
g
til
í
hv
ítu