Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 73
LAUGARDAGUR 28. október 2006
Franski eðlisfræðingurinn Jean
Bernard Léon Foucault, sem yfir-
leitt gekk undir nafninu Léon Fou-
cault, fæddist í París 18. septemb-
er 1819. Hann hlaut ekki þjálfun í
vísindastörfum en var óvenju
næmur að skilja náttúruna og
jafnframt gæddur rómaðri hand-
lagni. Þessar gáfur gerðu honum
kleift að gera ýmsar krefjandi og
nákvæmar tilraunir.
Foucault missti föður sinn
ungur en bjó alla tíð hjá móður
sinni í París. Hann varð snemma
einrænn en móðir hans vildi veita
honum góða menntun og setti hann
í bestu skóla Parísarborgar. Fou-
cault hafði þó ekki áhuga á skóla-
göngu og kennararnir töldu hann
latan við námið enda var hann alla
tíð seinvirkur. Móðir hans reyndi
að bæta úr þessu með því að fá
honum sérkennara og bar
það talsverðan árangur.
Pilturinn lauk þó ekki
háskólanámi eins og að
var stefnt.
Foucault féll í
yfirlið
Í stað þess að
sinna skóla-
bókunum
fór Fou-
cault að
sýna aðra
hæfileika.
Á unglings-
árum smíð-
aði hann
ýmis leik-
föng, tæki
og tól á borð
við gufuvél og
ritsíma. Hand-
lagni hans varð til þess
að móðir hans vildi gera
úr honum lækni og hann
innritaðist í læknaskóla í
París tvítugur að aldri. Hann tók
góðum framförum í fyrstu og
vakti athygli kennara síns, Alfreds
Donné (1801-1878). En svo kom að
því að stúdentinn varð að heim-
sækja spítala í náminu og sá blóð.
Við það féll hann í yfirlið og gerði
sér í framhaldinu grein fyrir því
að hann mundi aldrei geta unnið
læknisstörf. Kennarinn sá að engu
að síður væri hægt að nýta hæfi-
leika hans í þágu læknavísindanna
og réð hann til sín sem aðstoðar-
mann.
Foucault eignaðist fáa vini en
þó vildi svo til að nokkrir æskuvin-
ir hans urðu síðar frægir vísinda-
menn, einkum þó eðlisfræðingur-
inn Armand Hippolyte Louis Fizeau
(1819-1896). Þegar þeir félagar,
Fizeau og Foucault, voru um tví-
tugt hélt franski uppfinningamað-
urinn Louis-Jacques Daguerre
(1787-1851) fyrirlestra í París um
brautryðjandi aðferðir sínar við
ljósmyndun. Þeir hófust þegar
handa um tilraunir og endurbætur
og Foucault fann meðal annars
aðferð til að taka ljósmyndir í smá-
sjá á rannsóknarstofu Donnés.
Vísindaritstjóri
Donné var á þessum árum vísinda-
ritstjóri dagblaðs í París en lét af
því starfi árið 1845 og fékk Fou-
cault til að taka við. Er skemmst
frá því að segja að þessi feimni og
pasturslitli ungi maður sinnti
þessu starfi með miklum ágætum.
Verkefnið fólst bæði í því að gera
störf vísindamanna skiljanleg og
aðgengileg almenningi og eins í að
leggja mat á hvers kyns nýjungar
og nýmæli.
Frakkinn Francois Arago (1786-
1853), sem hafði upphaflega getið
sér gott orð fyrir mælingar á
lengdarbaugnum sem liggur um
París og þar með á stærð jarðar-
innar, tók eftir ljósmyndunartil-
raunum Fizeaus og Foucaults.
Hann fékk þá til að reyna að taka
ljósmyndir af sólinni, sem þeim
tókst fyrstum manna og sýndu
myndir þeirra sólblettina vel.
Eftir þetta lagði Arago fyrir þá að
mæla hraða ljóssins í vatni. Þeir
hófust handa en skömmu síðar
skildu leiðir þeirra. Engu að síður
gerðu þeir báðir tilraunir sem
hafa orðið frægar í sögu ljós-
fræðinnar og varða bæði hraða
ljóssins og innsta eðli þess.
Pendúll Foucaults í húsi Orku-
veitunnar
Eftir merkar tilraunir í ljósmynd-
un og ljósfræði sneri Foucault sér
að tilraunum og mælingum sem
varða snúning jarðarinnar um
möndul sinn. Hann smíðaði fyrst
pendúl sem var þannig
hengdur upp að hann gæti
hreyfst eða sveiflast
jafnt í hvaða stefnu
sem er. Hann gerði sér
grein fyrir því að jörð-
in myndi snúast undir
pendúlnum og því
myndi okkur sýnast
sveiflustefnan
breytast í sífellu.
Hægt er að skoð-
að pendúl af
þessu tagi í
húsi Orku-
veitu
Reykjavík-
ur á Bæjar-
hálsi.
En Fou-
cault lét ekki
hér við sitja
heldur hélt
áfram að rannsaka
snúning jarðar með
því að smíða svokallaðan
snúð (e. gyroscope). Þá
er snældu eða skopparakringlu
komið þannig fyrir að ás hennar
getur snúist miðað við jörð án
mótstöðu. Þessi uppgötvun hafði
ekki mikið nytjagildi þegar Fou-
cault gerði hana um miðja 19. öld
en nú á dögum er snúðurinn notað-
ur til dæmis í flugvélum og við
stýringu stjörnusjónauka, bæði á
jörðu niðri og úti í geimnum í
Hubble-sjónaukanum.
Foucault heiðraður
Þó að Foucault ynni mörg og merk
vísindaafrek var á brattann að
sækja fyrir hann í samfélagi vís-
indanna í heimalandinu vegna
menntunarskortsins. Þegar honum
var loksins sýndur heiður í Frakk-
landi var það ekki vísindasamfé-
lagið sem þar var að verki heldur
Napóleon þriðji keisari en hann lét
stofna handa Foucault stöðu eðlis-
fræðings við Keisaralegu stjörnu-
athugunarstöðina í París.
Á árunum eftir 1860 var Fou-
cault sýndur margvíslegur heiður
og sómi, bæði innan Frakklands
og utan. En þegar líða tók á 7. ára-
tuginn fór heilsu hans að hraka,
hann fann til dofa í höndum og
ágerðist sjúkdómurinn ört. Talið
er hugsanlegt að veikindin hafi að
hluta til stafað af því að Foucault
fékkst alla ævi við sterk og eitruð
efni á borð við kvikasilfur, en einn-
ig kunna erfðir að hafa komið við
sögu. Þessi frægi og eftirminni-
legi vísindamaður, „furðufugl vís-
indanna“ eins og hann hefur verið
kallaður, lést á heimili sínu í París
11. febrúar 1868, einungis 49 ára
að aldri.
Þetta er stytt útgáfa af mun
ýtarlegra svari sem hægt er að
lesa á Vísindavefnum.
Þorsteinn Vilhjálmsson, próf-
essor í vísindasögu og eðlisfræði
Jean Bernard Léon
Foucault (1819-1868).
Hver var vísindamað-
urinn Léon Foucault?
�������������
���������������
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau
nefnast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Slóð Vísindavefsins
er www.visindavefur.hi.is.