Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 76
28. október 2006 LAUGARDAGUR36
��� �� � �� ��� ���
��
��
�
��
�� ������� �� ���
��
��� �� � �� ��� ����� ������� �� ���
��
��
�
��
��
ALP MEHMET
Sendiherra Bret-
lands á Íslandi
„Eins og við höfum
sagt erum við á móti
hvalveiðum, Bretland
er eitt þeirra landa
sem hefur staðfast-
lega hafnað öllum
hugmyndum um að
nauðsynlegt sé að
veiða hvali, hvort
sem er í atvinnuskyni
eða undir yfirskrift vísindaveiða. Við höfum
alltaf sagt að við bregðumst við þessu sem
vinir, ekki óvinir, en við getum ekki skilið af
hverju það er nauðsynlegt að veiða hvali,
það er ekki rökrétt ákvörðun að veiða 30
hrefnur og 9 langreyðar, og fólki, sem hefur
skoðanir á þessu, stendur ekki á sama.“
IAN CAMPBELL
Umhverfisráðherra Ástralíu
„Ísland sýnir
umheiminum
fyrirlitningu með því
að hefja hvalveiðar
í atvinnuskyni. Þeir
eru í raun að gefa
heiminum fingurinn.
Um er að ræða sorg-
ardag fyrir heiminn
þegar fyrsta heims
ríki, þróað land eins
og Ísland, eyðileggur
eitt af mestu afrek-
um umhverfissinna
á síðustu öld, sem
var hvalveiðibannið. Ég held að þetta muni
vekja upp efasemdir um heim allan um
stefnu Íslands í umhverfismálum.“
EUGENE LAPOINTE
Forseti IWMC World Conversation Trust
„Andstæðingar halda
því fram að það sé ekki
nægileg eftirspurn eftir
hvalkjöti. Ef þeir hafa rétt
fyrir sér hvernig geta þeir
þá haft áhyggjur af ofveiði
hvala? Ísland mun veiða
svo lítinn hluta hvala-
stofnanna að menn hljóta
að vera með óráði ef þeir
halda því fram að veiðarn-
ar hafi langtímaáhrif á
stofnana.“
JOTH SINGHAL
Þjóðadýraverndunar-
sjóðurinn
„Hvalveiðarnar eru grimmd-
arlegar og óþarfar.“
FUMIKO SAIGA
Sendiherra Jap-
ans á Íslandi
„Það hvalkjöt sem
fellur til af vísinda-
veiðum Japana er
meira en nóg til
að anna innlendri
eftirspurn. Mér
þykir leitt að segja
það en Japanar eru
ekki í aðstöðu til að
flytja inn hvalkjöt frá
Íslandi eða nokkru
öðru landi. Við
eigum í vandræðum
með að neyta alls þessa hvalkjöts.
CHRIS CARTER
Ráðherra Nýsjá-
lendinga sem fer
með verndunar-
mál
„Ákvörðun Íslend-
inga veldur miklum
vonbrigðum. Nýsjá-
lendingar munu gera
íslenskum stjórnvöld-
um það ljóst að við
munum mótmæla
atvinnuhvalveiðum
kröftuglega og veru þeirra í Alþjóðahvalveiði-
ráðinu.“
KARSTEN KLEPSVIK
Sendifulltrúi Noregs hjá
Alþjóðahvalveiðiráðinu
„Það eru mjög góðar ástæður
fyrir því að hefja veiðar á ný.“
CARLOS M. GUTIERREZ
Viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna
„Ákvörðunin veldur von-
brigðum og Íslendingar
stefna í ranga átt í málinu.
Íslendingar telja sig óbundna
af hvalveiðibanni alþjóða
hvalveiðisáttmálans. Við
mótmælum því.“
F réttin um að Íslendingar hygðust hefja atvinnu-hvalveiðar eftir rúmlega tuttugu ára hlé fór sem
eldur í sinu um heimsbyggðina.
Allir helstu fjölmiðlar heims fjöll-
uðu um málið daginn sem veiðileyf-
ið var gefið, og síðan tók að berast
gagnrýni málsmetandi stjórnmála-
manna og málsvara umhverfissam-
taka úr öllum heimshornum. Hinn
almenni borgari hefur líka haft sitt
að segja og birtingarmynd þess er í
anda tæknisamfélagsins sem við
búum í. Bréf hafa borist ráðuneyt-
um, sendiráðum og fjölmiðlum í
tugþúsunda vís. Skilaboðin hafa
verið á einn veg að heitið getur.
Ákvörðunin og veiðarnar eru for-
dæmd og ljóst að mörgum er ofboð-
ið. Raddir þeirra sem styðja hval-
veiðar eru ekki eins háværar og
sumir þeirra vilja meina að þar fari
hinn þögli meirihluti.
Þremur sólarhringum eftir að
stjórnvöld gáfu leyfi sitt bárust
þær fréttir að Hvalur 9 hefði náð
að veiða sína fyrstu langreyði.
Daginn eftir, þegar myndir birtust
af löndun og verkun fyrsta hvals-
ins, reis mótmælaaldan að nýju af
hálfu meiri krafti en í fyrstu, og
viðbúið að skoðanaskiptin séu rétt
að hefjast.
Hvalur á
hvers manns
vörum
HELGE PEDERSEN
Sjávarútvegsráðherra Noregs
„Þetta eru góð tíðindi.
Íslendingar hafa vistfræði-
legar forsendur fyrir því
að hefja hvalveiðar að
nýju og hinn vísindalegi
þáttur málsins er alveg
skýr.Það er ánægjulegt
að önnur þjóð en við
sýnum ábyrga umgengni
um auðlindir hafsins á
þennan hátt.“
ANDREAS CARLGREN
Umhverfisráðherra
Svíþjóðar
„Framganga Íslands er
algjörlega óásættanleg
og ögrun við öll lönd
sem vilja byggja upp
hvalastofna í útrýmingar-
hættu innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins.“
FRODE PLEYM
Talsmaður Grænfriðunga
„Íslendingar hafa engan
markað fyrir hvalkjöt, en þeir
hafa feikistóran og verðmæt-
an markað fyrir hvalaskoð-
unarferðir. Í stað þess að
veðja á eins manns herferð
fyrir því að blása lífi í úrelta
og þarflausa atvinnugrein, sem getur aðeins
valdið þjóðinni álitshnekki út um allan heim,
ættu Íslendingar að færa sér vaxandi áhuga á
hvalaskoðun í nyt. Þetta brýtur augljóslega í
bága við markmið hvalveiðibannsins.“
PAUL WATSON
Forseti og stofnandi Sea
Shepherd
„Þið eruð Norður-Kórea
hvalveiðiþjóða sem sýna
almenningsáliti alls heims-
ins fyrirlitningu og hafið að
engu regluverk alþjóðalaga.
Það sem Ísland er að gera er
glæpur og við ætlum okkur að senda tvö skip
til Íslands næsta sumar til að hindra atvinnu-
hvalveiðarnar.“
RUNE FRØVIK
Leiðtogi Norðurheims-
skautssamtakanna
„Þetta er skref í rétta átt. Það
er gott að tvær þjóðir skuli nú
heimila hvalveiðar í atvinnu-
skyni.“
Þann 17. október sté Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra í ræðustól á alþingi og tilkynnti
þingheimi að hann hefði ákveðið að atvinnuveið-
ar á hval yrðu hafnar á ný. Á sama tíma skreið
Hvalur 9, gamalt en nýuppgert hvalveiðiskip Hvals
hf., út úr Reykjavíkurhöfn með stefnu setta á
Hvalfjörð. Eins og þjóðin öll hefur Svavar
Hávarðsson fylgst með atburðarásinni.
BEN BRADSHAW
Sjávarútvegsráðherra Breta
„Við teljum þetta brot á
alþjóðlegum samþykktum á
vettvangi Alþjóða hval-
veiðiráðsins. Við skiljum
ekki ástæðurnar sem liggja
að baki. ... Ákvörðunin um
hvalveiðar hefur valdið afar
mikilli reiði meðal fólks,
ekki bara á Bretlandi, heldur
um allan heim. Ég trúi ekki að Íslendingar
séu svo barnalegir að þeir ímyndi sér að
ákvörðun um að hefja atvinnuhvalveiðar
muni ekki hafa áhrif á tvíhliða samskipti
þjóðanna.“
Japan 1.233 dýr 5 búrhvalir, 100 sandreyðar,
50 skorureyðar og 1.078 hrefnur
Noregur 647 dýr 647 hrefnur
Grænland 193 dýr 13 langreyðar, 180 hrefnur
Rússland 126 dýr 124 sandlægjur og 2 norðhvalir
Bandaríkin 68 dýr 68 norðhvalir
Kandada 1 dýr 1 hnúfubakur
HVALVEIÐAR ÁRIÐ 2005