Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 78
28. október 2006 LAUGARDAGUR38
F
yrsta kvikmyndin sem var gerð
um Hitler var Sigur viljans eftir
Leni Riefenstahl frá árinu 1935,
þar sem Hitler sjálfur fer með
aðalhlutverk á samkomu nas-
ista í Nuremberg. Í nokkurs
konar óbeinu framhaldi, Ólympíu frá árinu
1938, hvetur foringinn sína menn áfram á
Ólympíuleikunum í Berlín tveimur árum
áður.
Vegna frammistöðu hans í þessum kvik-
myndum en þó fyrst og fremst vegna ræðu-
hæfileika hans á sviðinu sagði Charlie
Chaplin að Hitler væri einhver besti leikari
sem hann hefði séð, enda þarf ekki lítinn
sannfæringarkraft til að sannfæra heila
þjóð um að allir skuli vera hávaxnir og ljós-
hærðir þegar maður sjálfur er lítill, dökk-
hærður og þybbinn (Hitler bætti duglega á
sig í Landesberg-fangelsinu, þar sem hann
borðaði rjómabollur og ritaði áðurnefnda
bók, Mein Kampf).
Einræðisherrann mikli
Chaplin var þó minna hrifinn af Hitler sem
stjórnmálamanni og árið 1938 réðst hann í
gerð stórvirkisins „The Great Dictator“, þar
sem hann sjálfur fer með hlutverk einræðis-
herrans Adenoid Hynkel. Stóru kvikmynda-
verin höfðu áhyggjur af því að myndinni
myndi verða dræmlega tekið á hinum mikil-
væga Þýskalandsmarkaði, og fór það því
svo að Chaplin sjálfur fjármagnaði gerð
hennar. Tökur myndarinnar tóku næstum
tvö ár og sendi Roosevelt Bandaríkjaforseti
Chaplin bréf þar sem hann hvatti hann
áfram þegar flestir aðrir höfðu snúið við
honum baki. Ætlun Chaplins var að vara
við ógninni sem stafaði af Hitler, en þegar
kvikmyndin var loks frumsýnd árið 1940
hafði Hitler þegar lagt undir sig París og
ógnin því orðin flestum ljós. „Einræðis-
herrann“ varð vinsælasta mynd Chaplins
frá upphafi þrátt fyrir að vera bönnuð í
flestum löndum á meginlandi Evrópu. Hitl-
er sá hana tvisvar og segja aðstoðarmenn
hans að hann hafi skemmt sér vel, þó ekki
hafi hann leyft almennar sýningar á mynd-
inni.
Myndin telst enn meðal heldri verka
kvikmyndalistarinnar, en hafði ekki teljandi
áhrif á seinni heimsstyrjöldina aðra en þau
að skemmta Hitler eins og eina eða tvær
kvöldstundir.
Síðustu dagarnir
Endalok Hitlers eru vinsælt efni, eins og
metsölubók Anthony Beevor, Fall Berlínar,
er til vitnis um, nú nýútkomin á íslensku.
Síðustu dagarnir í lífi Hitlers hafa oft verið
kvikmyndaðir, Alec Guinness lék hann í
myndinni Hitler: The Last Ten Days, frá
1973, meðan Anthony Hopkins lék hann í
sjónvarpsmyndinni The Bunker árið 1981.
Móðir allra mynda um síðustu daga Hitlers
er vafalaust hin þýska Der Untergang, þar
sem Bruno Ganz (annar englanna úr Der
Himmel Uber Berlin) leikur foringjann.
Flestar myndir um síðustu daga Hitlers eiga
það sameiginlegt að vera byggðar á verkum
sagnfræðinga, Last Ten Days byggir á Hugh
Trevor Roper, fyrsta sagnfræðiritinu um
endalokin, The Bunker byggir á samnefndri
bók James O. Donnell og Der Untergang er
byggð á bók Joachim Fest um lífið í byrginu.
Einnig hafa æviminningar einkaritara Hitl-
ers, Traudl Junge, haft áhrif á kvikmynda-
gerðarmenn.
Hitler og Frú dauði
Þegar kemur að fyrstu árum Hitlers hafa
menn hins vegar gefið ímyndunaraflinu
lausan tauminn, enda minna vitað fyrir víst
um líf Hitlers þá. Leikritið Mein Kampf er
hreinræktað skáldverk, aðrar persónur en
Hitler eru ekki sannsögulegar, svo sem gyð-
ingurinn Slómó og Frú Dauði.
Kvikmyndin Max gerist á mánuðunum
rétt eftir fyrri heimsstyrjöld.
John Cusack leikur
listaverkasalann
og gyðinginn Max
Rothmann sem
misst hefur aðra
hendi, og þar
með listamanns-
ferilinn, í stríð-
inu. En með hjálp
þekkingar sinnar
og fjölskylduauðæva verður hann í staðinn
áhrifamikill listaverkasali.
Að hluta til vegna samúðar með hermann-
inum Hitler, sem á í engin hús að venda, að
hluta til vegna þess að honum finnst hann í
raun efnilegur, ef ekki endilega góður lista-
maður, tekur Max það á sig að reyna að selja
verk hans með lítilli velgengni.
Stjórnmál eða list
„Hitler, þú ert maður sem erfitt er að vera
vel við, en ég ætla að reyna,“ segir Max við
hann í eftirminnilegu atriði. Hitler er hér
mikill leiðindagaur, drekkur hvorki áfengi
né kaffi og reykir ekki (Þorgrímur Þráins-
son mætir Gengis Khan), sem er sögunni
samkvæmt.
Max Rothman sjálfur er hins vegar ekki
sannsögulegur karakter, en kjarni myndar-
innar er sannur; aumkunarverðar tilraunir
Hitlers til að öðlast vinsældir sem ganga
meira að segja svo langt að hann spyr Max
eftirvæntingarfullur hvernig honum hafi
fundist ræða hans gegn gyðingum. Og hið
hrikalega lokaatriði þar sem hann þarf að
velja á milli listarinnar og stjórnmálanna. En
þá er svo komið að æstur múgurinn, tendrað-
ur af ræðum Hitlers, ræðst á Max og gerir þar
með útaf við listaferil Hitlers sjálfs.
Skoskur Hitler
Önnur mynd sem fjallar um upphafsár Hitl-
ers er sjónvarpsmyndin Hitler: The Rise of
Evil, þar sem hann er leikinn af Skotanum
Robert Carlyle. Í forgrunni er samband
Hitlers við Ernst Hanfstaengl, útgefanda
listaverkabóka, sem átti stóran þátt í að
kynna Hitler fyrir heldri fjölskyldum
Þýskalands en flúði seinna til Bandaríkj-
anna og vann þar fyrir Roosevelt. Sum
atriði í myndinni, svo sem þegar Hitler
ræðst inn á heimili Hanfstaengl-fjölskyld-
unnar og eyðileggur fyrir þeim jólin, eru
óviljandi fyndin.
Annars er allt gert til að gera Hitler að
djöfli í mannsmynd, hann er sýndur berja
hund þrátt fyrir að í raun hafi hann verið
mikill dýravinur. Þessi einhliða lýsing gerir
Hitler óskiljanlegan sem persónu og stend-
ur hún því myndum eins og Max og Der
Untergang langt að baki. Glæpaverk Hitl-
ers eru nógu mörg fyrir, óþarfi er að skálda
fleiri.
Hitler í Brasilíu
Hitler hefur einnig komið fyrir í ýmsum
öðrum myndum sem gera ekki tilkall til
sannsöguleika. Í myndinni The Boys from
Brazil frá 1978 reynir dr. Mengele að ein-
rækta Hitler í frumskógum Suður-Ameríku.
Í myndinni The Producers, sem varð seinna
að söngleik, reyna tveir leikhússtjórar að
setja á svið söngleikinn Springtime for Hitl-
er. Á hinn bóginn er þýska myndin Schtonk
frá 1992 sannsöguleg gamanmynd sem fjall-
ar um falsanir dagbóka Hitlers, en titillinn
er vísun í ræðu Chaplins í Einræðisherran-
um.
Helstu áhrif Hitlers á kvikmyndasög-
una voru þó önnur og verri. Áður en hann
komst til valda hafði þýski kvikmynda-
iðnaðurinn keppt við þann bandaríska
næstum á jafnréttisgrundvelli. Eftir
valdatökuna fluttu flestir af hæfustu leik-
stjórunum, svo sem Fritz Lang, til Holly-
wood, meðan ritskoðunin þaggaði niður í
öðrum. Þýskaland hefur aldrei síðan end-
urheimt stöðu sína í kvikmyndagerð, né
heldur hefur neinu Evrópuríki síðan tek-
ist að keppa við Hollywood hvað vinsæld-
ir varðar. ■
Raunir Hitlers unga
HREINRÆKTAÐ SKÁLDVERK Leikritið Mein Kampf í Borgarleikhúsinu.
„Þú ert lélegur leikari, Hitler,
þú ættir frekar að einbeita þér
að stjórnmálum.“ Eitthvað á
þessa leið segir gyðingurinn
Slómó við hinn misheppnaða
listmálara Adolf í leikritinu
Mein Kampf, sem nú er sýnt
á fjölum Borgarleikhússins.
Verkið er blessunarlega ekki
byggt á samnefndri bók, sem
þykir æði endurtekningar-
söm, heldur er eftir ungverska
leikskáldið George Tabori og
fjallar hálft í öðru um lista-
mannsár Hitlers í Vín á árun-
um fyrir fyrri heimsstyrjöld.
Tabori þessi er ekki fyrsti mað-
urinn til að sviðssetja líf Hitl-
ers, né heldur eru allir á sama
máli um leikhæfileika Hitlers.
Valur Gunnarsson fer yfir sögu
Hitlers á hvíta tjaldinu og á
leikfjölunum.
MÓÐIR ALLRA MYNDA UM SÍÐUSTU DAGA
HITLERS: Bruno Ganz í hlutverki Hitlers í Der
Untergang.
„HITLER, ÞÚ ERT MAÐUR SEM ER ERFITT AÐ VERA
VEL VIÐ EN ÉG ÆTLA AÐ REYNA.“ Kvikmyndin Max
fjallar um upphafsár Hitlers.